Morgunblaðið - 01.02.1985, Síða 42
42
MOJtGUNBLADlD, FÖSTUDAGUR t. PEBROAR 1985
Fallegasti
maður heims?
„Nei ansk ... “
Þessi strákur (?) heitir Houcher og
lætur það nægja er hann kynnir sig.
Hann er breskur í báða enda og fullyrðir
að hann sé heimsins fallegasti karlmað-
ur (!) Ætli það sé nokkrum blöðum um
það að fletta, að fullyrðing drengsins fer
alfarið eftir því hver mælikvarðinn er.
Víst er, að Houcher myndi sóma sér vel
sem fegurðardís af kvenkyninu ef hann
gæti losað sig við óæskilega skeggrót og
það er spurning hvort hann eigi ekki að
keppa að fegurðartitlum á þeim væng,
því varla getur hann talist geisla af
karlmannlegum þokka. Einn sem skoðaði
myndina sagði: „Hann er svo „sætur" að
maður fær gæsahúð og grænar ..."
Poppsprellikerlingin Cindy
Lauper er búin að æfa ræðuna
sem hún ætlar að lesa yfir Elísabetu
Bretadrottningu þegar þær hittast
fyrir tilviljun á kvennasalerninu.
„Ég myndi auðvitað segja það
sem hver annar myndi segja:
Hæ Beta, hvernig hefurðu
það? Ertu til í að gefa eigin-
handaráritun. Æðislega áttu
flotta hatta.“ Annars
viðurkennir Cindy að það sé
í hæsta máta ólíklegt að
hún fái tækifæri til að flytja
ræðu sína fyrir Elísabetu,
að minnsta kosti ekki við
þau skilyrði sem að framan
er greint ...
ffclk í
fréttum
Cindy buin að
æfa ræðuna
Getur útlit
manns
verið kiám?
„Divine" heitir þessi „tág-
granni" poppari, en útlit sitt
hannar hann að hætti frægrar
persónu úr einni af kvikmynd-
um meistara Fellinis. Þetta
fyrirbæri kom lagi á vinsælda-
lista í Bretlandi og vann sér
þannig pláss í sápukúluþætt-
inum „Top of the Pops“. En
svei, einhverjir voru svo
hneykslaðir á útliti Divine, að
sett var lögbann á þáttinn og
sér ekki fyrir endann á því
máli. „Ef þeir ætla að koma í
veg fyrir að feitt fólk stundi
vinnu sína, á atvinnulausum
eftir að fjölga,“ kurrar flykkið
af kynþokka. Hann (það??) lét
mótbyrinn þó ekkert á sig fá og
stakk sér til Ástralíu í hljóm-
leikaferðalag þar sem uppselt
er á allar sýningarnar ...
• Horgunblaðið/Bjarni
Frá vinstri: Kristín Skjaldardóttir og Hilmar Egill Sveinbjörnsson, Kristfn Vilhelmsdóttir og Guðmundur Hjörtur
Einarsson.
TAKA ÞÁTT í ALÞJÓÐLEGU DANSKEPPNINNI
„Æfa 4 klukkustundir á dag“
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum munu tvö íslensk
pör taka þátt í alþjóðlegu dans-
keppninni í suður-amerískum
dönsum sem fram fer nú í byrjun
febrúar á Hótel Sögu. Þau eru öll
ung að árum, um og innan við tví-
tugt, og búa í Vogum á
Vatnsleysuströnd.
Fram kom í stuttu spjalli sem
Mbl. átti við þau að þau hafa æft
dans saman í mörg ár og verið í
öllum mögulegum dönsum, nema
þá heist diskói. Það virðist vera
þannig í Vogunum að diskó eigi
ekki upp á pallborðið þar og ef slík
námskeið hafa boðist hafa þau
dottið uppfyrir vegna áhugaleysis
og dræmrar þátttöku. Þar dansar
annars mikill hluti íbúa og á
dansleikjum þar syðra þykir unga
fólkinu, sem því eldra, lítið gaman
ef gleymist að setja syrpu með
gömlu dönsunum á.
Parið Kristín Vilhelmsdóttir og
Guðmundur Hjörtur Einarsson
hefur tvisvar hlotið íslandsverð-
laun í gömlu dönsunum í flokki
fullorðinna árið 1982 og ’84. Hitt
parið, Hilmar Egill Sveinbjörns-
son og Kristín Skjaldardóttir, hef-
ur hlotið tilsvarandi verðlaun
fyrir gömlu dansana í sínum ald-
ursflokki, 15—16 ára, 1984.
Margir úr Vogunum hafa tekið
þátt í danskeppni og voru ófá
verðlaunin sem lentu þar eftir síð-
ustu íslandskeppnina. Þessi
ungmenni ætluðu ekki að taka
þátt í keppninni, sögðu þau að-
spurð, fyrr en á næsta ári eða það
var a.m.k. takmarkið, en síðan
komu hingað enskir danskennarar
og þá fékkst það góð þjálfun að
það var talið raunhæft að veita
þeim tækifæri til þátttöku í þess-
ari keppni.
Krakkarnir æfa tvo til þrjá
tíma daglega og nú undir lokin eru
æfingar strangari og æft er að
minnsta kosti fjórar klukkustund-
ir á dag.
Innt var eftir því hvort þetta
væri ekki afskaplega bindandi og
sögðu þau það vera og ekki hefði
gefist tækifæri í óratíma til að
fara út að skemmta sér eða
skreppa í bíó. „En, sögðu þau að
lokum, þetta er vel þess virði, af-
skaplega skemmtilegt og spenn-
andi og nú er stefnan að standa
sig vel og markmiðið er auðvitað
að komast einhverntíma til út-
landa og spreyta sig.“ Pörin sem
keppa á móti íslensku ungmenn-
unum koma frá fjórum löndum,
Englandi, Ástralíu, Danmörku og
Noregi, og eru öll dansarar sem
hlotið hafa ótal verðlaun og stefna
í atvinnumennsku í dansi. Við
óskum þessum ungu keppendum
góðs gengis í keppninni.