Morgunblaðið - 01.02.1985, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
C 1984 Univefsal Press Syndicale 7-3
Jf5\/o eg saýb\, „ef þú v/ii.t gera e\tth\/ab
tii qaqns hkma., af tu/erfu máLarbu \>á.
ekki girðinquna.* ? "
Ást er ...
.... ao vera aj-
brýðisöm þegar
hann vinnur
mikla eftirvinnu.
TM Reg U S Pat Ott all rights reserved
* 1979 Los Angetes Times Syndicate
'GEj3 i| ■
-TAR*^*3^'
Lánir þú mér bflinn hafíð þið sím-
ann alveg fyrir ykkur!
HÖGNI HREKKVÍSI
Er grænmeti
lúxusvara?
Jón Magnússon skrifar:
Fyrirspurnir til forsætisráð-
herra, fjármálaráðherra, heil-
brigðisráðherra, landbúnaðar-
ráðherra, þingmanna og hús-
mæðra.
Hvernig í ósköpunum stendur
á því að það skuli vera 70% toll-
ur af innfluttu fersku grænmeti,
það mætti halda að hér væri um
einhverja lúxusvöru að ræða, en
í mínum augum er svo ekki,
þetta er lífsnauðsynleg fæða
fyrir alla landsmenn, sérstak-
lega í þessu langa skammdegi
okkar.
Þessi aukna vakning sem nú á
sér stað í heilsusamlegu fæði
kallar á aukna neyslu og fjöl-
breytni grænmetis en þar sem
um „lúxus varning" er að ræða
af hálfu stjórnvalda, reynist það
frekar dýrt vegna umrædds 70%
tolls.
Hvað segir fjármálaráðherra,
finnst honum þetta eðlilegt?
Hvað segir heilbrigðisráðherra,
finnst honum þetta eðlilegt, þeg-
ar annar hver íslendingur á við
offituvandamál að stríða, of hár
blóðþrýstingur hrjáir þriðja
hvern íslending o.s.frv? Hvað
segir forsætisráðherra: Finnst
honum þetta eðlilegt? I kjara-
samningum hér á árum áður var
það samningsatriði við launþega
að lækka tolla af innfluttum
ávöxtum svo sem eplum, appel-
sínum, bönunum o.fl. í stað
beinna launahækkana. Er þetta
ekki hægt nú? Enn eru þó til
tollar á innfluttum ávöxtum svo
sem 15% tollur af greip, perum
o.fl., 40% tollur af vínberjum,
plómum o.fl. og 70% tollur af
avacado o.fl. ávöxtum auk 24%
vörugjalds. Þarna mætti einnig
fella niður tolla því þarna er um
að ræða hollustuvörur sem ekki
eiga í samkeppni við innlenda
framleiðslu, enda ekki ræktaðir
hér.
Fjármálaráðherra sagði er
hann lækkaði til muna tolla af
myndböndum og hljómplötum,
að það kæmi ekki til tekjutaps
hjá ríkissjóði vegna þessa, vegna
þess að vörurnar lækkuðu það
mikið í verði að neytendur
keyptu meira af þessum vörum
og myndi það vega á móti tapi
rikissjóðs vegna lækkunnar toll-
anna, auk þess að koma í veg
fyrir mikið smygl á þessum vör-
um. En hvað segir fjármálaráð-
herra um niðurfellingu tolla af
innfluttu grænmeti, ekki er því
smyglað til landsins og myndi
ekki lækkun á verði grænmetis
leiða til aukinnar neyslu al-
mennings og þannig vega upp á
móti tekjutapi ríkissjóðs? Eða
gilda nú ekki sömu forsendur og
um myndbönd óg hljómplötur?
Stærsta atriðið er það að það
er ekki verið að vernda íslenska
framleiðslu þegar hún er á
boðstólum er innflutningur ein-
faldlega stöðvaður á meðan,
fyrir utan það að hér á landi er
ekki ræktaður laukur og fl.
grænmetistegundir. Það á því að
halda þeim þætti óbreyttum, þ.e.
stöðva innflutning þeirra
grænmetistegunda þegar sam-
skonar íslensk framleiðsla er
fyrir hendi enda hefur þessi
háttur reynst vel í framkvæmd.
Hvað segir landbúnaðarráð-
herra um þessi mál, hefur ekki
aukin neysla almennings á
fersku grænmeti fleiri hliðar,
t.d. myndi hún valda aukinni
þörf fyrir meiri ræktun hjá þeim
gróðurhúsabændum sem þegar
eru til og jafnvel kalla á fleiri til
að anna eftirspurn?
Hvað segja neytendur og þá
sérstaklega húsmæðurnar sem
sjá að mestu leyti um matarinn-
kaupin og verða svo oft að sleppa
grænmetinu vegna þess hve það
er dýrt? Hvar eru neytendasam-
tökin, af hverju hefur ekkert
heyrst í þeim? Við sáum það í
slagnum um frjálsu kartöflurnar
sl. vor hverju hægt er að fá áork-
að ef viljinn er fyrir hendi.
Hvað segja hinir háu herrar
sem alþingi sitja? Er þetta mál
sem þeim kemur ekkert við eða
of lítilfjörlegt til að berjast
fyrir? Nú hafa aldrei fleiri
kvenmenn setið alþingi en ekk-
ert heyrist frá þeim um þessi
mál, þær tala jú um að þær séu
að berjast fyrir hag kvenna og
tilheyrir þetta mál ekki slíkum
málum? Hvernig væri nú að allir
aðilar sameinuðu krafta sína og
kæmu því til leiðar að umræddir
tollar yrðu felldir niður hið
fyrsta. Það væri nær að hækka
tolla á einhverjum öðrum óþarfa
vörum sem fluttar eru inn til
landsins.
Að lokum nokkrar spurningar
til landbúnaðarráðherra. Af
hverju er leyfður innflutningur á
kartöflum til kartöfluverksmiðj-
anna þegar nóg er til af íslensk-
um kartöflum og um umfram-
Djelly-systur
skemmti áfram
Þessir hringdu . . .
„Maniidráp"
í lögum
Kona hringdi:
Fyrir skömmu birtist grein eftir
Jón Val Jensson í Morgunblaðinu
þar sem hann skrifar gegn fóstur-
eyðingum.
Mig langar til að benda honum
á að það er dálítið kaldhæðnislegt
að líta á fóstureyðingu sem
manndráp þegar erlendis er það í
lögum að allir karlmenn verða að
gegna herþjónustu til að fá nægi-
lega þjálfun í að drepa óvininn.
Því á að skylda stúlkur til þess
að ala upp óvelkomin börn til þess
eins að missa þau svo út í stríð og
ófrið?
Nóg komið af
Duran Duran
Ein úr sveitinni hringdi:
Ekki er hægt að hugsa bara um
Duran Duran-aðdáendur því þó
nokkuð er af Wham-aðdáendum
hér á íslandi.
Búið er að halda tvær Duran
Duran-hátíðir og sýna með þeim
langan þátt í sjónvarpi. Hvernig
væri nú að sýna tónleika með
Wham í sjónvarpinu og efna til
slíkrar hátíðar með þeirri
hljómsveit hér á landi?
Huldujógúrt
Kona hringdi:
Fyrir stuttu hringdi kona í
Velvakanda og spurði um það
hvað hefði orðið af nýju létt-jóg-
úrttegundunum tveim sem kynnt-
ar voru á BÚ ’84. Ég vil ítreka
þessa spurningu hennar, þetta
jógúrt sást í viku í búðum og síðan
ekki meira.
Vonandi svara hlutaöeigandi
aðilar fljótlega.
Athvarf fyrir
unga fíkniefna-
neytendur
Guðrún Jóhannsdóttir hringdi:
Ég vil taka undir orð Ragnars
Þorsteinssonar í greininni Kirkju-
orgelið mikla sem birtist í Velvak-
anda sl. þriðjudag.
Margt skynsamlegra væri hægt
að gera við peningana en að kaupa
risastórt orgel sem væntanlega
verður ekki útslitið á einu ári sak-
ir ofnotkunar. Ég er alveg sam-
mála því að svo sannarlega veitti
ekki af að gefa þessu blessaða
fólki í Eþíópíu mat.
Hins vegar skrifar Guðrún Agn-
arsdóttir í sama blað sl. þriðjudag
grein um athvarf fyrir unga fíkni-
efnaneytendur. Finnst mér ekki
síður þörf á að bjarga þessum
ógæfusömu ungmennum. Er til
fólk á íslandi sem vill frekar gefa
fjármuni sín til kaupa á kirkju-
orgeli frekar en að láta féð renna
til stofnunar athvarfs fyrir þessa
ungu fíkniefnaneytendur?
Bjarni, Ingó, Inga og Hanna
skrifa:
Fyrir hönd margra fastagesta
á skemmtistaðnum Ypsílon í
Kópavogi viljum við koma á
framfæri ósk okkar til forráða-
manna staðarins um að Djelly-
systur verði áfram með
skemmtidagskrá á kránni a.m.k.
um helgar.
Eftir viðræður við fjölmarga
af þeim sem sækja þennan um-
rædda skemmtistað erum við á
þeirri skoðun að aðsókn að
staðnum minnki verulega ef þær
hætta að skemmta þar.
Áfram Djelly-systur!