Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAPIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
51
^ „
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bréfritari telur að því skuli haldið óbreyttu að stöðvaður verði innflutningur
vissra grænmetistegunda þegar samskonar íslensk framleiðsla er fyrir hendi.
framleiðslu er að ræða nú í ár?
Af hverju mega ekki fleiri inn-
lendir dreifingaraðilar, aðrir en
grænmetisverslunin, meðhöndla
kartöflur, þ.e. kaupa, pakka og
selja? Sumir þessara aðila hafa
fengið leyfi ráðherra til inn-
flutnings á kartöflum (þegar ís-
lenskar eru ekki til) og fersku
grænmeti og stuðlað að fjöl-
breytni og lækkuðu vöruverði, en
þeim er ekki treystandi fyrir ís-
lenskri framleiðslu. Er þetta
ekki frekar öfugsnúið?
1 lögum um grænmetisversl-
unina er starfssvið hennar ein-
ungis fólgið í dreifingu á íslensk-
um kartöflum og innflutningi
kartaflna þegar íslensk fram-
leiðsla er ekki á boðstólum. Sam-
kvæmt þessu er innflutningur
Grænmetisverslunarinnar á
ferskum ávöxtum ekki ólöglegur
eða hefur lögunum um hana ver-
ið breytt? Og að lokum má fjár-
málaráðherra hjálpa þér með
síðustu spurninguna en hún er
þannig: Af hverju greiðir
Grænmetisverslunin ekki skatta
og skyldur eins og önnur fyrir-
tæki í landinu? Fengi ríkissjóður
skatta og skyldur Grænmetis-
verslunarinnar kæmi það þá
ekki upp á móti tekjutapi ríkis-
sjóðs vegna niðurfellingu tolla af
innfluttu grænmeti?
Með von um skjót svör og
aukna umræðu um þessi mikil-
vægu hagsmunamál og skjóta
niðurfellingu tollanna.
Vanga-
veltur
um rétt-
indamál
Ó.T.E. skrifar:
Ef menn hafa hug á því að
skoða mannlífið og þjóðfélags-
bygginguna, og gera okkur ljós-
ari grein fyrir þeim öflum, sem
þar togast á, þá verður manni
ætíð betur og betur ljóst hvað
verkafólk er fótum troðið. Ekki
bara í launum, heldur víða í
daglegum störfum. Ég sagði
„fótum troðið", því fyrir nálægt
hálfum mannsaldri störfuðu
handverksmenn við byggingar-
vinnu og járnsmíði á sumrin, en
sjó og fiskvinnu á veturna og
ekki þótti það neitt tiltökumál
þótt þeir ynnu sömu störf og
sjómenn og verkafólk. En
þróunin, verklegar framfarir og
menntun, eru svo miklar, þannig
að nú er varla til það starf, sem
vinna má öðru vísi en hafa
pappíra upp úr öllum vösum,
sem sanna að ekki sé verið að
brjóta lög eða samninga. Þau
störf eru vandfundin, sem iðn-
aðarmenn, sumir hverjir að
minnsta kosti, telja að séu ekki
hluti af þeirra starfsgrein.
Verkamenn ganga sífellt í gegn
um hvern hreinsunareldinn af
öðrum, og skilja ekki í því, hvers
vegna ekki má orðið setja hosu-
klemmu á slöngu, svo ekki séu
brotin lög.
Nýlega var nokkur ágreining-
ur á milli málmiðnaðarmanna
og nokkurra verkamanna. Deil-
an stóð í fyrstu um léttvægt
mál, þ.e.a.s. fiskfæriband.
Verkamenn taka slík bönd oft í
sundur til þess að auðvelda þrif,
og til að lagfæra klossa og fleira
sem jafnan er sjálfsagt að hafa í
lagi. Þetta verk töldu málmiðn-
aðarmenn þeirra verk, og þar
mættu hinir ekki nærri koma.
Þeir voru hreyknir og dálítið
„fordrildnir" af menntun sinni
þessir annars ágætu menn. En
svo kom rúsínan í pylsuendan-
um. Þessir sömu iðnaðarmenn,
sem fettust út í störf verka-
manna, gengu sjálfir í aðrar
starfsgreinar þvers og kruss.
Svo nú langar mig til þess að
spyrja, og vil beina spurningum
mínum til starfsmannafélags
pípulagningamanna í Reykjavík:
1. Er manni með aðeins
málmsuðuréttindi, leyfilegt
að leggja og gera við pípu-
lagnir?
2. Má vélvirki leggja og gera við
pípur?
3. Hver er þá réttur pípulagn-
ingamanna? Eiga þeir að
vera heima á atvinnuleysis-
bótum?
Innst inni eru verkamenn orð-
nir þreyttir á þessu forystuleysi
í verkalýðsfélögunum. Þeim er
ekki tryggður nokkur réttur,
ekki frekar en hundi. Það mætti
skrifa um það langt mál, en það
verður að bíða betri tíma. En
verst af öllu er að treysta alla-
böllum í verkalýðsforustunni.
Fréttirfmfýrstu hendi!
Djelly-systur
Nýkomið
fallegt sérval af jökkum og blússum frá Englandi.
Verslunin fyrir þig.
Reyjavíkurvegi 16, Hafnarfiröi.
S. 651147.
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 1.995—2.995.
Terelynebuxur frá kr. 790—950.
Gallabuxur frá kr. 295—595.
Skyrtur, peysur o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22.
TYROUA
TOmi DUGONU
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
TOPPmerkÍn ^ am m mjr m rn. U rn. i
í ikíðavörum F ALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670