Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 Rannsókn RLR á GT-húsgögnum: Áfram miöar í sjómannadeilu NOKKUÐ þokaöist í samkomulagsátt á sáttafundum í sjó- mannadeilunni í gær og fyrrakvöld. I»egar Mbl. fregnaði síöast af sáttafundum undir miðnættiö stóö enn yfír fundur — en miöaði hægt. „Við höfum verið að reyna að koma frá ýmsum sérmálum, sem ekki snerta launaliðina beint," sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöld. „Þetta gengur hægt ýmissa hluta vegna en við sitjum og það er haldið áfram." Kristján sagði að fyrr í gær hefði hann átt fund með for- mönnum útvegsmannafélaganna tólf og að þar hefði komið fram mikill einhugur og samstaða í deilonni. „Við stöndum fast á okkar afstöðu í deilunni," sagði hann. Guðjón A. Kristjánsson, for- seti Farmanna- og fiskimanna- sambandsins, sagði sömuleiðis að hægt miðaði áfram en miðaði þó. „Það er verið að reyna að koma frá ýmsum málum áður en tekið er til við launaliðina," sagði hann, „en mér hefur samt sýnst að ekki sé búið að binda neina hnúta endanlega. Það eru bókanir og fyrirvarar með öllu. Það er kannski ekki nema von — hér er verið að semja fyrir að minnsta kosti fjórar stéttir. Hvenær þessu lýkur er ómögu- legt að segja en það verður að reyna til hins ítrasta að ná sam- komulagi svo menn komist aftur á sjóinn." Krafizt gæzluvarðhalds yfir þriðja manninum Rannsóknarlögregla ríkisins gerði í gær kröfu í Sakadómi Reykjavíkur um gæsluvarðhald yf- ir þriðja manninum vegna rann- sóknar á ætluðum söluskatts- og bókhaldssvikum forráðamanna GT-húsgagna. Tveir menn, fyrrum framkvæmdastjóri GT-húsgagna og starfsmaður, voru úrskurðaðir í gæzluvarðhald um helgina. Þriðji maðurinn er einnig fyrrum starfs- maður GT-húsgagna og er krafist gæzluvarðhalds fram á föstudag. Dómari í Sakadómi tók sér sól- arhringsfrest til að úrskurða um kröfu RLR. Bú GT-húsgagna var tekið til gjaldþrotaskipta 29. nóvember siðastliðinn. Frestur til að lýsa kröfum í búið er nýliðinn og er búist við að kröfur verði um 15 milljónir króna. Þar eru vinnu- laun til starfsmanna fyrirtækis- ins um 2 milljónir króna og eru það forgangskröfur. Við skiptameðferð vaknaði grunur um að forráðamenn GT-húsgagna hefðu gerst sekir um stórfelld brot á lögum um söluskatt, bókhaldslögum og al- mennum hengingarlögum. Sam- kvæmt niðurstöðum rannsókn- ardeildar rikisskattstjóra er vantalin söluskattsskyld velta fyrirtækisins á síðastliðnu ári talin vera um 9 milljónir króna og mun það ekki endanleg niður- staða. Selurinn Ringeltje og fylgdarkonan Lenie Hart. Morgunbla&ið/Árni Sæberg Farþegi frá Hollandi ÓVENJULEGUR farþegi var með flugvél Arnarflugs frá Amsterdam í gærkvöldi. Var það ungur selur, hringanóri, Ringeltje að nafni. Sel- urinn verður fluttur til Akureyrar fyrir hádegi f dag og honum sleppt þar. Hollensk stofnun sem nefnist Selaspítalinn leitaði til Arnar- flugs um aðstoð, en selurinn fannst í fjöru í Hollandi fyrir sex vikum. Þá var hann 10 kg en er núna 23 kg. Þetta er í annað sinn sem sama stofnun leitar til Arnar- flugs um slíka flutninga. Fyrir tveimur árum var ungur hringa- nóri fluttur til Akureyrar frá Hollandi með sama hætti og honum sleppt þar. Þá kom hol- lensk kona með selnum, Lenie Hart, sem fulltrúi Selaspítalans. Hún kom hingað einnig í gær- kvöldi. Ríkisstjórnin og þingflokkarnir: Hart deilt um aðgerðir vegna innflutnings á kartöfluvörum „Viö erum kaþólskari en páfinn,“ segir forsætisráðherra, „ef ekki má beita innflutningsbanni“ MIKLAR deilur eru innan ríkisstjórnar og þingflokkanna sem að henni standa vegna afgreiðslu beiðni um aðstoð við framleiðendur matvæla úr innlendum kartöflum, en þeir eiga í harðri samkeppni við innfluttar vörur svo sem franskar kartöflur, kartöfluflögur o.fl. Framsóknarmenn leggja til að innflutningur verði bannaður, en skiptar skoðanir eru innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins um málið. Nokkrir styðja þar tillögu framsóknarmanna, a.m.k. að banni verði beitt fram á vor, en aðrir telja tollaleið eða sambland tollaleiðar og niðurgreiðsluleiðar heppilegri. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er Albert Guðmundsson fjármálaráðherra í fyrri hópnum en Matt- hías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra í seinni hópnum. Forsætisráðherra, Steingrímur lands og við fullnægðum sjálf eft- INNLENT Hermannsson, sagði í viðtali við blm. Mbl., að framsóknarmenn væru búnir að taka afstöðu. Þeir vildu að ekki yrði veitt gjaldeyris- leyfi fyrir innflutningi kartaflna á meðan nægt hráefni væri innan- irspurn. Hann sagði: „Mín per- sónulega skoðun er, að mér þykir við vera orðnir kaþólskari en páf- inn ef við megum ekki vernda inn- lenda framleiðslu úr landbúnaðar- afurðum eins og allar aðrar þjóðir f kringum okkur.“ Hann sagði ennfremur, að Framsókn gæti vel fallist á vernd með hækkuðum tollum, en málið virtist vera, að erlendir framleiðendur stunduðu þvílíkar verðlækkanir á vörunni til að klekkja á samkeppnisað- ilum, að slíkt væri varla fram- kvæmanlegt. Hann sagði síðan: „Þetta er samkvæmt upplýsing- um fjármálaráðherra, sem hefur mjög eindregið stutt það að banna innfíutning, það er að veita ekki gjaldeyrisleyfi. Hann telur tollinn verða að vera svo ákafíega háan til að vega þama upp á móti, allt að nokkur hundruð prósent." um 10 þúsund tonn á ári. Heild arsalan nú nemur samkvæmt upp lýsingum Mbl. aðeins 20% af áætl aðri framleiðslu. Til viðmiðuna við verðlag á innlendum og erlend um kartöflum má geta þess, að Danmörku kaupa þarlendar kart öfluverksmiðjur kíló af kartöflun á jafnvirði 3 kr. ísl., en hérlendi eru þær á rúmar 26 kr. kílóið. Þ; mun vörugjald það sem sett var ; kartöflur, auk síðustu gengisfell ingar, ekki hafa haft áhrif á ver innfluttu vörunnar. Því telj; menn að undirboð í verði eigi sé stað í ríkum mæli, sem réttlæt það að leggja tolla á innflutning Jónas Haralz formaður Sambands íslenskra viðskiptabanka: „íslenskir bankar nokk- uð á eftir í tækniþróunu Segir engan vafa á að bankarnir geti komist af með færra starfsfólk „ÍKLENSKIR bankar eru nokkuð á eftir í tækniþróun, en á því sviði er ýmislegt í undirbúningi hjá bönkunum sem mun hafa áhrif á næstunni," sagði Jónas Haralz bankastjóri Landsbankans í samtali við blm. Mbl. er hann var spurður hvað hann vildi segja um þá staðreynd að starfsmönnum banka og sparisjóða hefur fjölgað um 217,9% frá árinu 1963 til ársins 1983, eins oggreint var frá í Morgunblaðinu í gær. Fjöldi mannára í bönkum árið 1963 var 1.400, en 20 árum síðar, 1983, var fjöldi mannára f bönkum 4.450. Tilefni þess að Jónas var spurður er að hann er formaður Kambands íslenskra viðskiptabanka. Jónas sagði að þau tæknilegu áfram að fjölga eins mikið og verið umsvif bankanna sem í undirbún- hefur. Hann taldi ekki að ný tækni ingi væru, myndu koma í veg fyrir bankanna myndi beinlínis fækka sð starísír.önnurr. bnnkanna héldi starfsmönnum, en sagðist þó ekki telja nokkurn vafa á því að hægt væri að komast af með færra starfsfólk í bönkunum. En á það bæri einnig að Ifta að þannig hátt- aði til í öllum greinum íslensks at- vinnulífs. Jónas benti á að þróunin væri alls staðar hin sama í heiminum. Því ríkari sem þjóðfélög yrðu, þeim mun meiri hluti mannafíans ynni við þjónustustörf. Fjármálaráðherra, Albert Guð- mundsson, sagði í viðtali við blm. Mbl, að hann hefði ekki lagt fram neina tillögu í máli þessu. Hann sagði rétt vera að talað væri um að setja á mörg hundruð prósent tolla. Aðspurður um, hvort hann væri fylgjandi banni sagði hann: „Það heyrir ekki undir mig að taka ákvörðun um bann. Ég vil ekkert segja um málið annað en að það verður að afgreiðast í þing- flokki okkar strax á morgun (þ.e. í dag, innskot Mbl.). Samkvæmt heimildum Mbl. fer nú fram könnun á kartöflubirgð- um í landinu, en menn hafa nefnt tölurnar 15 til 20 þúsund tonn sem líklegan afrakstur uppskerunnar sl. haust. Þá er talið að fjölmargir einstaklingar hafi, sökum reynsl- unnar af lélegum kartöfíum á sl. vetri, sett niður eigin kartöflur og að það geti haft áhrif á söluna, sem lauslega hefur verið áætluð Spurt og svar- að um fjármál húsbyggjenda TEKIÐ er á móti spurningum í þáttinn „Spurt og svarað um fjármál húsbyggjenda" í síma 10100 frá klukkan 10.30 til klukkan 12 mánudaga til föstu- daga. Morgunblaðið hefur fengið sérfræðinga Húsnæðis- stofnunar ríkisins, Fjárfest- ingarfélagsins og Útvegsbank- ans til að svara spurningunum og birtast svörin fáum dögum eftir að spurningunum hefur verið komið á framfæri við blaÖið. óskað er eftir aÖ fyrir- spyrjendur geti um nafn og heimilisfang.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.