Morgunblaðið - 27.02.1985, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 27.02.1985, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 53 Næst skal það heita gjaldþrot Útgerðarfélags Hafnarfjarðar hf. — eftir Kristófer Magnússon Nú stendur fyrir dyrum uppgjör (rétt einu sinni) á eignum og rekstri Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar og ímynduð yfirtaka Út- gerðarfélags Hafnarfjarðar á eignum og rekstri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Eflaust verður nú öllum viðskiptaaðilum hins nýja félags tilkynnt bréflega, að bær- inn beri nú ekki lengur ábyrgð á rekstrinum? Er þá ekki allt í besta lagi? Spurningin er bara hverjir óska eftir viðskiptum og hvaða banki fengist til að annast almenn bankaviðskipti. Hvað er til veð- setningar? Mér reiknast til, sam- kvæmt framlögðum efnahags- reikningi frá Helga Jónssyni lög- fræðingi vanti um 70 milljónir upp á að hið nýja útgerðarfélag eigi fyrir skuldum. Ég leyfi mér að upplýsa að ég hef gert ítrekaðar tilraunir bæði í síma og með ábyrgðarbréfi að ná í skýringar frá Sigurði Stefánssyni endurskoðanda og Helga Jónssyni lögfræðingi án árangurs, enda geri ég varla ráð fyrir að skýr- ingar liggi á lausu og að þeir séu stoltir af afkvæmi sínu. Öflun hlutafjár Sá grunur hefur læðst að mér, og hefur reyndar verið staðfestur, að bærinn hafi aldrei ætlað að leggja fram 36 milljónir í pening- um sem hlutafé, heldur hafi ætlað að leggja sitt hlutafé fram sem ofmat á togurum og eignum BÚH. Ætlunin var að fá fyrirtæki í bænum til að gerast hluthafar á hinu nýja útgerðarfyrirtæki, sem t.d. svaraði til viðskiptaskulda BÚH við hlutaðeigandi fyrirtæki. Það þýðir að eina lausaféð, sem átti að vera til í fyrirtækinu, eru framlög bæjarbúa. Ég myndi ein- dregið ráðleggja verðandi hlut- höfum, áður en lengra yrði gengið, að leita álits bankastofnana um stöðu og veðhæfni hins nýja hluta- félags, áður en hlutabréf yrðu keypt. Af reynslu minni, geri ég varla ráð fyrir að opinber skýrsla kæmi frá bæjarstjórn um slíkt áð- ur en almennt hlutafjárútboð færi fram. Ég áliti það furðulega ráðstöfun af hendi fyrirtækja í Hafnarfirði, að þau legðu fram hlutafé sem svaraði til skulda BÚH eða að hluta til eins og dæmið stendur núna og töpuðu um leið ótvíræðum rétti sínum til greiðslu af hendi bæjarsjóðs. Rekstur BÚH undanfarna mánudi og ár Fyrst af öllu leyfi ég mér að benda bæjarbúum og bæjarfulltrúum á endurskoðandaskýrslu Ólafs Nílssonar bls. 13, þar sem hann bendir á að verði ekki breytt um rekstursform BÚH, stefni í greiðsluþrot og stöðvun. Og þá spyr ég: Hvað hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði gert til að spyrna við og koma rekstrinum í betra horf? Tóku þeir ekki mark á skýrslu Ólafs Nílsson- ar eða lásu þeir hana aldrei? Ég slæ þessu hér fram þar sem mér finnst með ólfkindum að bæjarf- ulltrúum í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar hafi ekki fundist undarl- egt hvernig rekstur BÚH hefur getað gengið, þrátt fyrir allt. Hvaðan kom rekstrarfé? Það eina sem Sjálfstæðisflokkurinn og óháðir virðast hafa nokkurn veg- inn komið sér saman um, er að reka BÚH samkvæmt vilja minni- hlutans, en það þýðir ótakmarkað austur fjármuna úr Bæjarsjóði í óskabarnið BÚH. Hvernig hefur rekstrarfé verið útvegað án veð- heimildar bæjarstjórnar og ann- ars lausafjár en sem svarar til framlags bæjarsjóðs og nokkurra auka milljóna sem allir vissu að var aðeins dropi i hafi miðað við tap BÚH. Við komumst fljótlega að þessu öllu með því að athuga reikninga Kristófer Magnússon BÚH, en enginn bæjarfulltrúi hef- ur ennþá séð ástæðu til að skýra bæjarbúum frá einstökum liðum reikninganna, enda efast ég ekki um að allir bæjarfulltrúanna, og ef til vill ekki raunhæft ætlast til þess, að þeir geti gert grein fyrir málunum, þar sem skýrsla Sigurð- ar Stefánssonar er fáorð og lftils eða einskis gagns fyrir leikmann enda fylgir ekkert yfirlit skýrsl- unni. Við lestur reikninganna kemur í ljós að veðsetning afurða eru rúm- ar 20 milljónir fram yfir þá a- furðaeign sem afurðalán eru veitt „Málid er einfalt, það eina sem nú þarf að gera, er að finna aðferð til að geta staðið í skil- um með um 150 milljón- ir og senda svo reikn- inginn til útsvars- og fasteignaskattsgreið- enda. Þá er allt gott, jafnvel fram yfir næstu kosningar, eða þangað til „næst“, hvenær sem það verður. Ætla menn aldrei að læra af reynsl- unni?“ út á, og 20 milljónir fram yfir það sem reglur mæla fyrir um, eða alls 40 milljónir yfir það sem löglegt getur talist. Er bankinn eða bæjarstjórn ábyrg? Hvernig er slík yfirveðsetning möguleg? Jú, það hlýtur að vera með því að gefa rangar upplýs- ingar í afurðaskýrslum til bank- anna. Hvernig er slíkt hægt og hver ber ábyrgð? Er ekki sniðugt að útvega fyrirtækinu rekstrarlán með þessum hætti? Eflaust finnst sumum það, en gaman væri að fá álit bankans og að ráðamenn bæj- arfélagsins svöruðu þessari spurn- ingu. Nú er úr vöndu að ráða og lítið um svör. Auðvitað vissi útgerðar- ráð ekkert um þessar yfirveðsetn- ingar? Því síður framkvæmda-, stjórinn? Og þaðan af síður bæj- arstjórnin. Að minnsta kosti hefur enginn verið beðinn um skýringar. Ég geri ráð fyrir, af fyrri reynslu, að ég teljist varla til hinna svo kölluðu „ábyrgan* aðila í málefn- um BÚH, sem má eflaust best dæma af því, að flest ef ekki allt hefur komið eða er að koma i ljós, sem ég hefi sagt um hvert stefndi í rekstri BÚH. Hver er lausnin og hver verður látinn borga? Málið er einfalt, það eina sem nú þarf að gera er að finna aðferð til að geta staðið í skilum með um 150 milljónir og senda svo reikn- inginn til útsvars- og fasteigna- skattgreiðanda. Þá er allt gott, jafnvel fram yfir næstu kosningar eða þangað til „næst“ hvenær sem það verður. Ætla menn aldrei að læra af reynslunni? Er það gjörsamlega útilokað að fá uppgefið frá fulltrúum Sjálf- stæðisflokksins og óháðum hvað þeim finnst verjanlegt að veðsetja og greiða úr bæjarkassanum fram til 1. júlí? Ef stefnir sem horfir má bæta 40—50 milljónum við nú- verandi upphæð til greiðslu úr bæjarsjóði. Hvernig væri nú að skýra bæjarbúum t.d. frá hvert tap bæjarútgerðarinnar hefur ver- ið frá áramótum, en togararnir hafa varla veitt fyrir launum og olíu? Kristófer Magnússon er rekstrar- tæknifræðingur og á sæti í stjórn fulltrúaráós sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði. Nýtt stjórnarfrumyarp f Svíþjóð: Stórbætt réttar- staða fólks sem býr í óvígðri sambúð Stokkbólmi, 25. febrúar. Frá frétUriUr* MorgunbUAaiiks, Erík Liden. Klassískt kvöld í Arnarhóli í kvöld Marakvartettinn leikur kammertónlist undir borðhaldi. NÝR, STÓRKOSTLEGUR SÉRRÉTTASEÐILL. BÖRNIN taki engan arf, fyrr en báðir foreldrarnir eru dánir. Jafn- framt verði lagareglur um óvígða sambúð færðar meir til samræmis við þær reglur, sem gilda um gift fólk. Þetta eru tvö þeirra atriða, sem fram koma í mjög umfangsmiklu frumvarpi til nýrra sifja- og fjöl- skyldulaga, er sænska stjórnin hefur lagt fram. Sænsku erfðalögin eru í stuttu máli á þann veg nú, að börnin erfa helming og eftirlifandi foreldri fær hinn helminginn. Vissar lág- markskröfur eru gerðar þar fyrir utan í þeim tilgangi að tryggja hagsmuni þess foreldrisins, sem lengur lifir. Samkvæmt hinu nýja frum- varpi, sem áformað er að taki gildi sem lög 1. janúar 1987, verður staða eftirlifandi foreldris breytt á þann veg, að það á að erfa allt. Börnin eiga ekki að taka neinn arf, fyrr en báðir foreldrarnir eru dán- ir. Forsenda þessa er þó, að um sameiginleg börn sé að ræða. For- eldri getur þannig ekki gert börn sín arflaus í reynd með því að ganga að eiga mjög ungan maka. Margt fólk, sem býr saman án þess að vera í hjúskap, hefur lent í miklum erfiðleikum, er slitnað hefur upp úr sambúðinni. Réttar- reglurnar varðandi slík tilvik hafa fremur orðið til fyrir atbeina dómstóla en sem sett lög. Með nýja frumvarpinu er gerð einörð tilraun til þess að setja lagareglur um þetta sambúðarfyrirkomulag, sem orðið hefur stöðugt algeng- ara. Tilgangurinn er að gera rétt- arstöðu fólks í óvígðri sambúð jafn trygga og væri það í hjúskap, eins og frekast er unnt. Það er lagt til sem aðalregla, að þegar sambúðarslit verða hjá þessu fólki, þá skuli hvor aðili um sig fá i sinn hlut helming allra eigna þeirra beggja. Ef annar hvor aðilinn deyr, þá á hinn aðilinn rétt á því að taka við íbúð og innbúi hins eftirlátna. Þá verður hags- munum eftirlifandi aðilans einnig veitt nokkur trygging til viðbótar á kostnað erfingjanna. Hið nýja og umfangsmikla laga- frumvarp inniheldur einnig tillög- ur um breytingar á núgildandi reglum um réttarstöðu hjóna. Sem dæmi má nefna, að við hjónaskiln- að á að verða unnt að skipta fé- lagsbúinu fyrr en nú er hægt. Samkvæmt frumvarpinu verður þetta kleift strax og makarnir sækja um hjónaskilnað fyrir dómstólum. NÝJUNG í KONÍAKSSTOFUNNI Eftir ljúffengan kvöldverð er notalegt að setjast í koníaksstofuna og hlusta á klassíska músík. Hinir efnilegu tenórar bræðurnir Guðbjörn og Gunnar Guðbjörnssynir syngja fyrir gesti okkar. Undirleik annast Bjarni Þ. Jónatansson. Guðbjörn hóf söngnám við Söngskólann í Reykjavík vetur- inn 1982 og naut þar tilsagnar Magnúsar Jónsson- ar í einn vetur. Sl. tvo vetur hefur Guðbjörn stundað nám við Nýja Tónlistarskólann með Sig- urð Demetz Franzson sem aðalkennara. Gunnar hóf söngnám haustið 1983 hjá Snæbjörgu Snæ- bjarnardóttur í Tónlistarskólanum Görðum, en sl. vetur hefur hann stundað söngnám undir hand- leiðslu Sigurðar Demetz Franzsonar við Nýja Tónlistarskólann. Vinsamlegast pantið borð tímanlega. Með ósk um að þið eigið ánægjulega kvöldstund. ARNARHÓLL A horni Hveifisgötu og Ingó/fsstiretis. Boróapantanirfsíina 18833.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.