Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 6

Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBROAR 1985 íþróttir Að þessu sinni var íþróttaþátt- urinn bráðskemmtileiíur, í senn fjölbreyttur og tók fyrir ým- islegt sem hingaðtil hefir ekki þótt hæfa í slikum þáttum einsog list- dans, slíkan er sjá mátti uppá sviði Hótel Sögu fyrir skömmu. Hafi Ingólfur Hannesson þökk fyrir þáttinn. Tel ég að honum og Bjarna Felixsyni takist oft alveg prýðilega upp, þótt stundum teyg- ist nú úr hófi úr sumum atriðun- um. Þannig er dekrað við íþrótta- greina einsog handbolta, körfu- bolta að ógleymdri skíðaíþróttinni og fimleikunum, en aðrar gleym- ast að mestu, greinar á borð við skylmingar, bogfimi, fjölbragða- glímu, karate, keiluspil, póló, rugby, fjallaklifur, froskahlaup, skotfimi, bridge, krikket, póker, pílukast, sumo, brimbrettasvif og fleira mætti nefna. Kjami málsins er sá að við megum ekki gleyma því að þaö skiptir ekki höfuðmáli hver er fyrstur í mark, aðeins að menn njóti leiksins. Mér finnst oft að í íþróttafréttum sé einum tí- undað hver vinnur og hver tapar. Þannig er vart orði vikið að þeim ógöngum sem keppnisíþróttir eru raunar komnar í í dag, eða er ekki á allra vitorði að keppnisíþrótta- menn í ýmsum greinum neyta ákveðinna forboðinna lyfja? Nú og hvað um Austur-Evrópsku smá- stelpurnar sem hoppa og skoppa á slánni, reknar áfram af ómennsk- um agameisturum? Þar er ekki talað um „barnaþrælkun". Eða bandarísku Ólympíustjörnurnar sem ganga kaupum og sölum, eins og hver önnur markaðsvara í aug- lýsingum? Hvað rekur fólk áfram til afreksverka? Hvert stefna íþróttirnar? Sá er þetta ritar hefir átt því láni að fagna að kynnast nokkrum af fremstu frjálsíþróttamönnum Bandaríkjanna. Þessir menn voru afskaplega misjafnir til orðs og æðis, einsog gengur. Og ekki varð ég nú við að þeir væru vel staddir fjárhagslega. Þannig kom fram í máli þessara manna að það væri oft mjög erfitt fyrir keppnis- íþróttamenn að finna sér lífs- grundvöll, að standa á eftir hina áralöngu ströngu þjálfun. Þeir sem hins vegar sigruðu á Ólymp- íuleikum og færu þaðan beint í bíssness, gætu gert það ótrúlega gott. Slíkum stjörnum kynntist ég nú ekki í Bandaríkjaferð minni, enda dvöldu þær víðs fjarri íþróttavöllum og lyftingarher- bergjum þar sem „toppmennirnir" reyndu að halda í horfinu og jafn- vel bæta fyrri met. Hvað um það eftir situr minningin um góða drengi er uppskáru ekki giæsivill- ur í Beverly Hills, eða Palm Beach heldur aðeins örfáa gullpeninga og þá reisn er fylgir þeim er ekki hef- ir selt sál sína og líkama. Nýjar áherslur: Ég nefni þetta hérna vegna þess að mér finnst einsog ég sagði hér áðan, athygli fjölmiðlanna beinast fullmikið að keppnisíþróttunum. Við getum náttúrulega endalaust mælt sekúndubrotin með full- komnari og fullkomnari mæli- tækjum, en hefur slíkt eitthvað með iþróttir að gera? Og hvað um allt peningaplokkeríið? Kunningi minn sem þekkir vel til íþrótta- starfs hér á landi, segir mér að vart sé svo haldið hér smá mót, til dæmis í skólum landsins, að stóru íþróttafélögin séu ekki til staðar. Gætu ríkisfjölmiðlarnir ekki haft hér einhver áhrif í þá veru, að vér lítum á ný á íþróttir, sem leik og skemmtan fyrst og fremst. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S JÓN VARP Fasteignaviðskipti ■I Síðast á 35 dagskrá sjón- ” varps í kvöld er annar þáttur af þremur um Iögfræði fyrir almenn- ing um þau svið viðskipta sem flestir kynnast af eig- in raun á lífsleiðinni. Um- sjónarmenn eru Baldur Guðlaugsson hæstarétt- arlögmaður og Pétur Þór Sigurðsson héraðsdóms- lögmaður. Að þessu sinni verður fjallað um fasteignavið- skipti. Farið verður í þær réttarreglur sem helst gilda um slík viðskipti, þ.e. réttindi og skyldur kaupanda og seljanda. Fjallað verður um það hvernig hvor um sig geti sem best tryggt sinn rétt, hvers beri að gæta og hver séu úrræði hvors um sig þegar viðskiptin ganga ekki alveg eins og til stóð. t þriðja og síðasta þættin- um verður svo fjallað um bifreiðaviðskipti. Mynd um sleöabraut- ina í St. Moritz ■I t kvöld kl. 20.40 40 verður sýnd í *“ sjónvarpi bresk gamanmynd í léttum dúr um vetrardvalarstaðinn fræga, St. Moritz í Sviss, gesti sem þangað hafa vanið komur sínar og sleðabrautina sem liggur rétt fyrir ofan bæinn. St. Moritz er elsti skíða- staðurinn í ölpunum og Bretar byggðu sleðabraut- ina þar fyrir hundrað ár- um. Breskur fréttamaður fylgist með keppni í sleða- akstri og fer reyndar sjálfur einn túr eftir brautinni. Hann rekur sögu St. Moritz og braut- arinnar en að öllum lík- indum hefur viðeigandi sleðaútbúnaður breyst töluvert frá því að brautin var opnuð fyrir einni öld. Þá verður fjallað um gesti skíðastaðarins en þeir hafa jafnan verið úr ýmsum áttum og mikið um frægt og efnað fólk. Einn á fullri ferð í sleðabrautinni I SL Moritz. MIÐVIKUDAGUR 27. febrúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurtregnir. Morgunorð: — Erlendur Jó- hannsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: . Pipuhattur galdrakarlsins" eftir Tove Jansson. Ragn- heiöur Gyða Jónsdóttir les pýðingu Steinunnar Briem (10). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þing- fréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 Islenskir einsðngvarar og kórar syngja 11.15 Úr ævi og starti Islenskra kvenna Umsjón: Björg Einarsdóttir. 1145 Islenskt mál Endurtekinn þáttur Guörunar Kvaran frá laugardegi. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12J0 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 1340 Barnagaman Umsjón: Sigrún Jóna Krist- jánsdóttir. 13J0 .Þokkabót, Spilverk þjóðanna, Randver” o.fl. leíka og syngja. 14.00 .Blessuð skepnan" eftir James Herriot Bryndls Vlglundsdóttir les pýöingu slna (15). 1440 Miödegistónleikar: Tón- list eftir Georg Firedrich Hándel a. .Andante" Michala, Hanne og David Petri leika á flautu, sembal og selló. b. Sónata I g-moll. Amand Van de Velde, Jos Rade- makers, Frans de Jonghe og Godelieve Gohil leika á fiðlu, tlautu, fagott og sembal. 1445 Popphólfið — Bryndls Jónsdóttir. 1540 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 1640 Slðdegistónleikar: Tónlist eftir Georg Friedrich Hándel I 1945 Aftanstund. Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. Sðguhornið — Brúsa- skeggur, sðgumaöur Helga Guðmundsdóttir. Tobba, Litli sjóræninginn og Hðgni Hin- riks. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 2040 Auglýsingar og dagskrá 2040 Sleöabrautin I St. Moritz. Bresk heimildamynd I léttum dúr um vetrarvalarstaöinn fræga, St. Moritz I Sviss, gesti sem þangað hafa vaniö komur slnar og aldargamla sleðabraut fyrir ofan bæinn. Blackthorne með góðvinkonu sinni, sem við fáum brátt að kynnast. Herstjórinn — 3. þáttur ■i f kvöld kl. 21.45 45 verður sýndur — þriðji þáttur bandaríska framhalds- myndaflokksins Herstjór- inn, (Shogun) sem gerður er eftir samnefndri met- sölubók eftir James Clav- ell. í öðrum þætti gerðist þetta helst: Einn af hinum fimm höfðingjum sem berjast um völdin í Japan er Toranaga hinn grimm- lyndi í Osaka. Hann gerir boð eftir stýrimanninum Blackthorne sem leikinn er af hinum góðkunna Richard Chamberlain. Portúgalskur sæfari sem er skipstjóri á galeiðu nokkurri er sendur eftir Blackthorne. Við nánari kynni kemur í ljós að sá portúgalski mun ekki vera allur þar sem hann er séð- ur. Á leiðinni til Osaka lenda þeir í ofsaveðri og er tvísýnt um afdrif skips og skipverja um tíma. En Blackthorne tekst að bjarga bæði skipi og skip- stjóra frá drukknun. Skip- stjórinn launar Black- thorne með því að ræna öllum sjókortum úr skipi hans sem er nú í höndum Japana. Þeir koma loks til Osaka en þar meinar einn af sonum Toranaga Black- thorne að fara í land og skipar honum að dvelja í skipinu uns hann verði sóttur. Þar skiljum við við Blackthorne ' en portú- galski skipstjórinn laum- ast í næturhúminu til klerks nokkurs og færir honum sjókort Black- thornes í hendur. Svo við víkjum sögunni að skipsfélögum Black- thornes þá hefur verið ákviðið að hleypa þeim upp c. „jörðina" á ný, en þeir eru þó ekki frjálsir ferða sinna frekar en Blackthorne. Skipstjórinn þeirra gamli sem var orð- inn þungt haldinn af veik- indum deyr Drottni sínum niðri í gryfjunni og þar líkur öðrum þætti. í kvöld fáum við svo að sjá hvern- ig móttökur Blackthorne fær í ríki hins grimma Toranaga. ÚTVARP a. Þrjár „Halle"-sónötur. William Bennett, Nicholas Kraemer og Denis Vigay leika á flautu, sembal og selló. b. Tveir söngvarar úr „Nlu þýskum arfum". Hermann Prey syngur. Leonard Ho- kanson, Marcel Cervera og Eduard Melkus leika á semb- al. vlólu da gamba og fiölu. c. „Vatnasvltan”, svlta I Fdúr. „Philip Jones brass Ensemble" leikur; Elgar Howarth stjórnar. 17.10 Slðdegisútvarp Tilkyrlningar. 1845 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. SJÓNVARP MIÐVIKUDAGUR 27. febrúar Þýðandi Eirlkur Haraldsson. 2145 Herstjórinn. Þriöji þáttur. Bandarlskur framhalds- myndaflokkur I tlu þáttum, gerður eftir metsölubókinni „Shogun" eftir James Clav- ell. Leikstjóri Jerry London. Aðalhlutverk: Richard Chamberlain. Thoshiro Mif- une og Yoki Shimanda. Um 1600 veröur John Black- thorne stýrimaður skipreka viö Japansstrendur ásamt áhöfn sinni. Þeir eru hnepptir l dýflissu og sæta illri meö- ferð. A þessum tlmum drottna Portúgalir yfir úthöf- 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 1945 Daglegt mál. Siguröur G. Tómasson flytur þáttinn. 19.50 Horft I strauminn með Kristjáni Róbertssyni. (RÚVAK). 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Grant skipstjóri og börn hans" eftir Jules Verne. Ragnheiður Arnardóttir les þýðingu Inga Sigurössonar (5). 2040 Mál til umræöu Matthlas Matthlasson og Þóroddur Bjarnason stjórna umræöuþætti fyrlr ungt fólk. 21.00 „Friöróður" eftir Georg Friedrich Hándel Einsöngvarar, kór og hljómsveit Tónlistarskólans I unum og eiga Itök I Japan þar sem höföirtgjar berjast um völdin. Einn þeirra, Tor- anaga, hefur örlög Black- thornes I hendi sér. Þýðandi Jón O. Edwald 2245 Fasteignaviðskipti. Ann- ar þáttur um lögfræði fyrir almenning um þau svið viö- skipta sem flestir kynnast af eigin raun á llfsleiðinni. Um- sjón Baldur Guðlaugsson, hæstaréttarlögmaöur, og Pétur Þór Sigurösson, hér- aðsdómslögmaöur. Stjórn upptöku: Örn Harðarson. 23.15 Fréttir I dagskrárlok ■■I Moskvu flytja. Alexander Svesnikov stjórnar. 2140 Að taflí Jón Þ. Þór flytur skákþátt. 22.00 Lestur Passlusálma (21) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Tlmamót Þáttur I tali og tónum. Um- sjón Ævar Kjartansson. 23.15 Nútlmatónlist Þorkell Sigurbjörnsson kynn- ir. 2345 Fréttir. Dagskrárlok. 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Kristján Sigur- jónsson. 14.00—15.00 Eftir tvö Stjórnandi: Jón Axel Ólafs- son. 15.00—16.00 Nú er lag Gömul og ný úrvalslög að hætti hússins. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. « 16.00—17.00 Vetrarbrautin Þáttur um tómstundir og úti- vist. Stjórnandi: Júllus Einarsson. 17.00—18.00 Tapað, fundið Sögukorn um soul-tónlist. Stjórnandi: Gunnlaugur Sig- fússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.