Morgunblaðið - 27.02.1985, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
21
Viðey —
— eftir Þórarinn
Björnsson
Hvernig væri nú að viðkomandi
stjórnvöld og eigendur beittu sér
fyrir að gera Viðey að útivistar-
stað fyrir okkur borgarbúa og
aðra landsmenn sem þangað vildu
koma og hafa ferju á milli. Slíkur
útivistarstaður finnst hvergi nú
orðið í návist borgarinnar. Frá
mínu sjónarmiði séð er brýn nauð-
syn á slíkum stað. Sérstaklega
fyrir Reykvíkinga, sem eiga nú
ekki eftir lófastóran blett til að
geta farið á og notið útivistar og
kyrrðar. Ég ætlast ekki til að ríkið
og borgin leggi til allt fé í þetta
verk, en leggi fram einhvern
styrk, og ekki að þessu þurfi að
koma upp þegar í stað, heldur
byrja á fyrstu framkvæmdum
(hálfnað verk þá hafið er) gróð-
ursetja lífseigar trjáplöntur og
blóm, slétta það sem þurfa kann
og sá í grasfræi. Margir spekingar
munu þusa og sveia yfir svona
uppástungu og segja: eru skattar
ekki nógu háir og trjágróður lifir
ekki í eyjunni fyrir sjóroki. Slíkt
var sagt um Laugarnestangann á
sínum tíma. Það hefi ég nú af-
sannað því ég á tæp tvö hundruð
tré í blettinum hjá mér á tangan-
um og eru þau orðin tveggja ára
gömul og dafna vel, sum ná mér
upp undir hendur og er ég þó með-
almaður á hæð.
í eynni þyrfti að koma upp stór-
um skálum eða stórum tjöldum yf-
ir sumarmánuðina ásamt hrein-
lætisaðstöðu og veitingum svo
gæti hver og einn haft sitt tjald
fyrir sig. Þetta gæti orðið byrjun-
in, ásamt skemmtikröftum, á
margra ára starfi fyrir okkur og
komandi kynslóð. Einnig væri
ekkert ofsa mál að leggja hita-
veitu og góða raflögn út í eyjuna.
Svo í framtíðinni mætti, ef hent-
ugra þætti, byggja brú úr Gufu-
nesi út í eyna. Þá er það fjáröflun-
arleiðin eða leiðirnar og þær eru
margar og ekkert risamál, ef sem
flestir hjálpuðust að. T.d. að gefa
verk í einn dag, stofna happ-
drætti, hefja merkjasölu fyrir
verkið, sem fólk myndi selja frítt,
safna áheitum um lítið sem stórt,
peninga eða annað framlag, sér-
staklega hjá stórfyrirtækjum eins
og t.d. skipafélögum, flugfélögum,
olíufélögum og efnuðum einstakl-
ingum. Eg er viss um að með þess-
um hætti mætti safna hundruðum
þúsunda.
Ég þori að fuyllyrða, að þetta
Ráðstefna
um málefni
aldraðra
ÖLDRUNARRÁÐ íslands heldur
ráðstefnu á Hótel Esju á morgun, 1.
mars. Hefst hún klukkan 13 og
stendur til kl. 18.
Ráðstefnan mun fjalla um mál-
efni þeirra öldruðu er búa á heim-
ilum sínum. Eftir framsöguerindi
verður kaffihlé og síðan hefjast
umræður. Fundarstjóri verður
formaður Öldrunarráðs íslands,
sr. Sigurður Helgi Guðmundsson.
útivistarstaður
yrði með tíð og tíma einhver eftir-
sóttasti skemmti-og útivistarstað-
ur okkar höfuðborgarbúa. Hugs-
um okkur allt það fólk í Reykjavík
sem aldrei kemst í sumarfrí og þó
sérstaklega öryrkja og gamalt
fólk, sem ekki þolir langar ferðir
til eftirsóttra staða.
Sjáið þig ekki í huganum þessa
framkvæmd í verki og hið ánægða
fólk svo þúsundum skiptir sem
myndi njóta þessa staðar, jafnvel
á vetrum líka. Það sé eg. Göngu-
stíga mætti leggja um eyna, en þó
takmarkað. Þeir þyrftu að vera
lagðir úr sjávarmöl til að koma í
veg fyrir moldrok. Ég ætla nú ekki
að hafa fleiri orð um þetta að si-
nni, en ég mun engu gleyma. t.d.
mætti reka smá búskap með
sauðfé á afgirtum svæðum og
hesta til að leigja út, svo og gælu-
dýr. Jafnvel eignast okkar alvöru
tívolí, ásamt sundlaug og íþrótta-
húsi. Fyrst það er ekki sett upp í
Laugardalnum, því ég sé ekki ann-
an nógu stóran stað fyrir slíkt hér
í höfðuborginni eða nágrenni
hennar.
Þórarinn Björnsson er fyrrv. sjó-
maóur. Hann starfaði einnig sem
kokkur og bryti bji Landhelgis-
gæzlunni.
Þórarinn Björnsson
*
„Eg þori að fullyrða, að
þetta yrði með tíð og
tíma einhver eftirsótt-
asti skemmti-og útivist-
arstaður okkar höfuð-
borgarbúa. Hugsum
okkur allt það fólk í
Reykjavík sem aldrei
kemst í sumarfrí og þó
sérstaklega fyrir öryrkja
og gamalt fólk, sem
ekki þolir langar ferðir
til eftirsóttra staða.“
ÍRRflR
SNORRABRAUT 56 SIMI 1 35 05 GLÆSIBÆ SIMI 3 43 50
AUSTURSTRÆTIÍO
SlMI 27211