Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
hverju lifir
þetta fólk?“
— eftir Björn
Steffensen
Marga stund undanfarið hefi ég
setið og notið útsýnisins frá ból-
stað hinna öldruðu á Borgarspítal-
anum. Hefur mér þá jafnan orðið
starsýnt á bílaþvöguna makalausu
í brekkunni norður úr Kópavogs-
byggðinni. Þarna eru ævinlega
þúsundir manna á ferð í bílum
sínum og hraða sér eins og um
lífið væri að tefla, enda minnir
þetta á ekkert nema síkvika
maura sem aldrei unna sér hvíld-
ar. Og sem ég sit þarna og horfi á
látlausa umferðina sækir jafnan á
hugann sama áleitna spurningin:
„Á hverju lifir allt þetta fólk?“
Og ég held áfram að bollaleggja
um það sem við mér blasir: Ekki
stendur þetta fólk í gegningum til
að afla sér tekna og enn síður
stundar það mjaltir, strokkar
smjör og selur mjólk í bæinn.
Sárafáir róa til fiskjar og enginn
breiðir lengur fisk á stakkstæði.
Allmargir dútla sjálfsagt við ein-
hverja iðju, en langflestir standa í
allskonar snatti og snúningum
hverjir fyrir aðra. Nú er ekki leng-
ur þörf á að svo að segja allir
starfi að matvælaframleiðslu til
framfleyta fábrotnu lífi, því það
er ein af þverstæðum allsnægta-
þjóðfélagsins að því fleiri sem
horfið hafa frá eiginlegum fram-
leiðslustörfum þeim mun meir
hafa allir borið úr býtum. Þetta er
hreint ekki eintóm gamansemi
mín. Um aldamótin síðustu unnu
85 af hverjum 100 íslendingum að
landbúnaði og fiskveiðum (68 að
landbúnaði einum). Nú vinna að-
eins 22 af hverjum 100 að þessari
framleiðslu (8 að landbúnaði), 5 að
veiðum og 9 að fiskvinnslu), og er
þessi framleiðsla þó orðin marg-
falt meiri og fjölbreyttari en áður
var. Jafnframt hafa tekjur hvers
íslendings að meðaltali sem næst
nífaldast að raungildi á þessu
tímabili.
Ekki ósvipað þessu er því farið
um aðrar þjóðir Vesturlanda þó í
misjöfnum mæli sé og sumpart
um aðra atvinnuvegi að ræða. Það
er því áhugavert að bollaleggja
dálítið meira um þessa hluti og
reyna að grafast fyrir undirrót
þessarar gífurlegu breytingar. Og
hér kemur svo ofurlítill þáttur í
mannkynssögu:
Lengst af frá því alþjóðleg
viðskipti hófust að marki var sú
stefna ríkjandi að hver þjóð byggi
sem mest að sínu, flytti þó sem
mest út af eigin framleiðslu en
sem minnst inn af framleiðslu
annarra þjóða. Þó að nokkuð hafi
þetta breyst eftir heimskreppuna
á 4. áratugnum komst ekki skriður
á málið fyrr en uppbygging hófst
eftir stríðslok. Þá var m.a. stofnað
til margskonar alþjóðasamtaka,
samningar gerðir þjóða í milli og
alþjóðastofnunum komið á fót,
m.a. til að tryggja afnám hafta og
stuðla að frelsi í viðskiptum.
Kenningin um að ríkisstjórnir
ættu að hrinda af stað kaupgetu
hafði fyrst orðið að veruleika með
valdatöku Hitlers en náði hámarki
með Marshall-áætluninni nokkru
eftir stríðslok. Styrjöldin átti svo
þátt í stóraukinni vélvæðingu sem
hvarvetna var tekin í notkun í at-
vinnulífinu eftir að ófriðnum lauk,
og ekki leið á löngu uns konur
tóku fyrir alvöru að takast á hend-
ur störf utan heimilis og jók það
afköst meir en áður hafði gerst í
jafn skjótri svipan. Jafnframt
hafði ísland sérstöðu um mikla yf-
irvinnu, sem nam 25% vinnunnar
í heild þegar mest var, en ná-
grannaþjóðirnar fluttu inn verka-
fólk frá suðlægari löndum.
Hér er í hnotskurn sögð saga
efnahagsmála á Vesturlöndum
síðustu hálfa öld, saga furðulegrar
grósku efnahags, aukins við-
skiptafrelsis og afnáms hafta,
saga sem að vísu hófst ekki á ís-
landi að verulegu gagni fyrr en
árið 1959 er Viðreisnarstjórnin
kom til valda.
Þjóðartekjur á mann með hin-
um ýmsu þjóðum gefur til kynna
hvernig þessum málum er komið.
Þjóðum Evrópu má skipta 1 þrjá
hópa eftir legu landa þeirra og
stjórnarfari. f fyrsta hópnum eru
þjóðir Norður- og Vestur-Evrópu
þar sem kapítalískt þjóðskipulag
rfkir og þar sem þjóðartekjur á
mann eru hæstar. Þar eru þessar
tekjur eins og hér segir reiknað í
bandaríkjadölum og eru tölurnar
alls staðar miðaðar við árið 1977:
1. Sviss ............ $ 8.880
2. Svíþjóð ............ $ 8.870
3. Danmörk ............ $ 7.450
4. Noregur ............ $ 7.420
5. V-Þýskaland ........ $ 7.380
6. Belgía ............. $ 6.780
7. Frakkland .......... $ 6.550
8. Holland ............ $ C.200
9. ísland ............ $ 6.100
10. Finnland .......... $ 5.620
11. Austurríki ........ $ 5.330
12. Bretland .......... $ 4.020
Miðjarðarhafslöndin eru sér-
stakur hópur, þar sem líka er
kapítalískt þjóðskipulag en þjóð-
Björn Steffensen
„Til þess að vera sjálf-
stæð þjóð til frambúðar
verðum við jafnan að
eiga einhver þau eftir-
sótt verðmæti til að
flytja út sem jafngilda
því sem við hverju sinni
flytjum inn, auk þess
sem við verðum að geta
borgað skuldir okkar,
og til þessa dugar ekk-
ert nema vönduð fram-
leiðsla og framúrskar-
andi hugvit.“
artekjur á mann mun lægri en
norðurfrá:
1. Ítalía ............ $ 3.050
2. Spánn ............. $ 2.920
3. Grikkland ......... $ 2.590
4. Portúgal .......... $ 1.690
5. Tyrkland .......... $ 990
Loks eru svo kommúnísku ríkin
í Austur-Evrópu:
1. A-Þýskaland ....... $ 4.220
2. Tékkóslóvakía ..... $ 3.840
3. Pólland ............ $ 2.860
4. Sovétríkin ......... $ 2.780
5. Búlgaría ........... $ 2.310
6. Ungverjaland ....... $ 2.280
7. Júgóslavía ......... $ 1.650
8. Rúmenía ............ $ 1.450
Til að látast vera óvilhallur
sleppi ég að telja Albaníu með
þessum síðasta hópi ríkja, enda
geta Albanir þrátt fyrir hnatt-
stöðu landsins varla talist til Evr-
ópuþjóða vegna frámunalega van-
þróaðs atvinnulífs sem síst mun
hafa batnað undir kommúnisma.
Albanir eru múhameðstrúar, einir
Evrópubúa.
í þessum yfirlitum um þjóðar-
tekjur á mann vekur það fyrst at-
hygli hvað tekjur Breta eru lágar
miðað við aðrar þjóðir í þessum
heimshluta, og við höfum kannski
ekki enn gert okkur fyllilega grein
fyrir orsökinni. Það ætti þó að
liggja í augum uppi ef betur er að
gáð. Það gerist ekki á hverjum
degi að heimsveldi líður undir lok,
meira að segja mesta veldi allra
tíma. Furðulegra væri ef þetta léti
ekki eftir sig nokkurn vitnisburð.
En það er eins og fyrri daginn, við
komum ekki auga á söguna fyrr en
hún er löngu farin hjá og komin á
bók.
Varðandi Miðjarðarhafslöndin
er það helst að segja að einkenni-
lega mikill munur er á einka-
framtakinu i suðri og norðri. Mig
grunar að tölurnar gefi ekki alls-
kostar rétta mynd og að hluti af
muninum eigi rót sina að rekja til
ólíkra þarfa vegna hnattstöðu og
veðurfars sem orsakar að miklu
ódýrara er að búa suðurfrá. Mikið
og ódýrt jurtafæði, skjóllitill fatn-
aður, óvandað húsnæði og engin
upphitun húsa. Þetta eru einmitt
þeir kostnaðarliðir sem tekjur
norðurbúa fara i að verulegum
hluta. Kaupgjaldið mótast svo
væntanlega af þessu, auk þess sem
lífsstíll Miðjarðarhafsbúa er i
ýmsu annar en norðanmanna, m.a.
varðandi vinnu. Kemur það líklega
berlegast fram þar sem þessar
þjóðir hafa sest að í löndum hand-
an við höf, norðanmenn í Banda-
ríkjunum, Kanada og Ástralíu,
Miðjarðarhafsfólk í Mið- og Suð-
ur-Ameríku, hversu rótgróinn
munur er á félags- og efnahagslifi
þessara þjóðflokka.
Umferð og slys
— eftirJens
Sumarliðason
í Morgunblaðinu 14. febr. sl.
getur að líta grein frá íbúasam-
tökum Vesturbæjar varðandi
hraðahindranir á Vesturgötu.
í greininni segir m.a. að i ágúst
1983 hafi hámarkshraða verið
breytt í Vesturbænum í 30 km á
klst. samkvæmt ákvörðun borgar-
yfirvalda.
Svo sem menn eflaust muna
urðu nokkrar umræður um þessa
ákvörðun og sýndist sitt hverjum
og hefur reyndar komið í ljós nú
að þessi ákvörðun ein sér hefur
ekki dugað til.
Þá segir að gegnum-umferð á
Framnesvegi og Vesturgötu sé
töluverð og hún hröð. „Til eru
mælingar sem sýna þetta,“ segir
ennfremur.
Síðar í greininni kemur fram að
fundur um þessi mál hefur verið 7.
febrúar sl. og þar lagðar fram
ákveðnar tillögur til úrbóta, og
síðar birt samþykkt borgarráðs
frá 12. febr., sjö dögum síðar.
Ekki skal dregið úr dugnaði og
áhuga íbúasamtaka Vesturbæjar
á umferðarmálum í þessum borg-
arhluta, heldur þvert á móti, það
er þakkarvert og lofsvert þegar
íbúar borgarinnar sýna umferð-
armálum áhuga.
Þrátt fyrir það sem á undan er
sagt er ástæða til að staldra við og
hugleiða eftirfarandi:
Að frumkvæði framkvæmda-
stjóra umferðarnefndar Reykja-
Jens Sumarliðason
„HvaÖ upphækkanir
snertir er ekki í skýrsl-
unni lögö aöaláhersla á
þær götur í Vesturbæ
sem borgarráö hefur
gert með samþykkt
sinni 12. febr. þrátt fyrir
þær upplýsingar sem
liggja fyrir um hraöa í
umferðinni og slysa-
tíðni.“
víkur var í janúar 1984 sett á fót
starfsnefnd, sem athuga skyldi
umferðaraðstæður við skóla I
Reykjavík með tilliti til öryggis
skólabarna og gera úrbótatillögur
f þeim efnum.
í þessari nefnd voru fulltrúar
frá Menntamálaráðuneyti,
fræðslustjóra Reykjavíkur, um-
ferðardeild borgarinnar, embætti
lögreglustjóra og fulltrúi foreldra-
samtaka.
Ekki skulu tíunduð störf þessar-
ar nefndar en hún skilaði skýrslu
sem m.a. var kynnt á frétta-
mannafundi í byrjun febr. sl.
Ef tekin eru sem dæmi úr þess-
ari skýrslu tvö hverfi borgarinnar,
Vesturbær og Breiðholt I (neðra
Breiðholt) þá með tilliti til hrað-
aksturs og slysatíðni, kemur eftir-
farandi í ljós:
Hraðamælingar km/klst.:
Meöal hraöi Mesti hraöi
Vesturbær:
Hagamelur 47,5 65,0
Ægisíða 49,3 64,0
Breiðholt I:
Álfabakki 52,3 72,0
Arnarbakki 60,1 94,0
(HraÓamælingar á Vesturgötu eru ekki í skýrel-
unni.)
Slys
Um slys á gangandi börnum,
yngri en 14 ára sem hafa orðið
fyrir bifreiðum frá 1979 til 1983,
fimm ár, segir í skýrslunni.
Hraðahindran-
ir á Vesturgötu
Frá íbúasamtökum
Vesturbæjar
Bar svo við f borginni einn
bjartan ágústdag 1983, að há-
dygði ekki lagaboðið eitt sér.
Nokkrar götur, öldugata, Ægis-
gata, Bræðraborgarstígur, Fram-
nesvegur og Vesturgata sem
dæmi, eru götur þar sem töluverð
gegnum-umferð á sér stað og hún
Vesturbær:
(Neéan Túngötu og niöur aö höfn.)
1 slys lítil meiðsli
Túngata 1 slys lítil meiðsli
1 slys mikil meiðsli
Breiðholt I:
2 slys lítil meiðsli
5 slys mikil meiðsli
Af þessum slysum eru öll, utan
eitt, á Álfabakka og Arnarbakka.
Varðandi þau börn, sem eru í
Vesturbæjarskóla, skal þess getið
að þau sækja sund í Vesturbæjar-
laug og íþróttir í Hagaskóla en í
þessum skólahverfum sýnir
skýrslan 6 slys mikil meiðsl á sl. 5
árum.
Samtals verða í þeim hverfum
sem að framan getur 16 slys og er
rétt að vekja athygli á því að eitt
af þessum 16 slysum er á Vestur-
götu, ekkert á Stýrimannastíg né
Bræðraborgarstíg, en á þessum
götum hefur borgarráð samþykkt
upphækkanir nú. (Sjá grein íbúas-
amtaka Vesturbæjar).
í fyrrgreindri skýrslu starfs-
nefndar, sem unnið hefur og mót-
að tillögur sínar í samvinnu við
skólastjórnendur og foreldrasam-
tök skólahverfa borgarinnar, er
lagt til að upphækkanir, svokall-
aðar „öldur" komi nokkuð víða í
nágrenni skóla og er að mati
flestra mjög til bóta varðandi
hraðahindranir o.fl.