Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
25
Það vekur athygli að í kommún-
ísku ríkjunum eru þjóðartekjur á
mann langhæstar í Austur-
Þýskalandi og Tékkóslóvakíu, sem
bæði eru háþróuð kapítalísk riki
meðan var og hét og enn virðist
ekki hafa tekist fulikomlega að
keyra í viðjar alræðisins hvað af-
köst varðar. Um Sovétríkin á það
við að mikill herbúnaður, sem þar
er óhjákvæmilegur til að viðhalda
lögregluríkinu, „býr til“ þjóðar-
tekjur, ef ég skil fræðin rétt. Litl-
ar þjóðartekjur á mann þrátt fyrir
mikinn herkostnað benda því til
að kjör fólks séu jafnvel enn bág-
ari en tölur gefa til kynna.
Því meir sem fjárhagur manna
batnar og möguleikarnir aukast
þannig til að fullnægja nýjum og
auknum þörfum, því minni verða
þarfirnar hlutfallslega sem áður
var svo að segja einum hægt að
fullnægja, húsaskjól, fæði og
klæði. Og þá sýnir það sig líka að
þau orð að „maðurinn lifir ekki af
einu saman brauði" eiga líka við í
jarðbundnari merkingu en þau eru
venjulega notuð í. Þarfirnar
aukast svo með aukningu tekn-
anna, annars gætu tekjurnar ekki
haldið áfram að aukast.
Mér skilst að hagfræðin noti
ekki hugtakið framleiðsla um
frumframleiðslu eina saman,
heldur líka um hverskonar um-
breytingu og tilflutning gæða, svo
og um hvers konar þjónustustörf.
Gott ef hún heldur því ekki fram
að í nútimaþjóðfélagi sé ekkert
eitt starf öðru mikilvægara, ef
einhver vill borga þér kaup ertu
ekki óþarfur, og að girnilegustu
verðmæti verði ekki verðmæt fyrr
en þau eru komin þangað sem þau
nýtast. Allt þetta fær góðan
hljómgrunn hjá okkur innnesja-
mönnum þar sem þjónustustörfin
eru svo ríkur þáttur tekjuöflunar.
Hér kemur svo yfirlit sem sýnir
á hverju við lifum, og er sýnt í
hundraðshlutum hvernig hin rúm-
lega 111 þúsund ársverk sem
greitt var kaup fyrir árið 1982, og
sem sjá 240 þúsund manns far-
borða, skiptast á starfsgreinar, og
eru orðin framleiðsla og þjónustu-
störf notuð í hefðbundinni
merkingu.
Framleiðsla:
Landbúnaður ...... 8%
Fiskv. og vinnsla .. 14
Iðnaður .......... 24% 46%
Þjónustustörf
Verslun og hótel .. 13%
Flutn., póstur
og sími ............ 7%
Peningastofnanir,
tryggingar o.fl... 6%
Varnarliðið ........ 1%
Opinber stjórns.
ogþjónusta ....... 27% 54%
100%
Gnginn má skilja orð mín svo að
ég sé að gefa í skyn að við munum
öll geta haft framfæri af því einu
að vera í snúningum hvert fyrir
annað, svo einfalt er þetta ekki.
Reynslan hefur hins vegar sýnt að
þegar einhvers staðar hefur verið
sett á laggirnar undirstöðuatvinnu-
grein þá sprettur þar gjarnan
fljótlega upp í kjölfar hennar
fjöldi ýmiss konar smærri fyrir-
tækja í iðnum og þjónustugreinum
sem þá aðeins þjóna næsta um-
hverfi.
Kannski hefur þetta allt of
langa orð — undirstöðuatvinnu-
grein — aldrei verið skilgreint, en
það merkir væntanlega myndar-
legt fyrirtæki á staðbundinn
mælikvarða, sem þjónar stórum
markaði, t.d. stóru héraði, öllu
landinu eða útflutningi, þar með
talin stóriðja, og dregur þannig til
sín fjármuni af miklu stærra
svæði en það sér fyrir atvinnu.
Spurningin er hér aðeins hve sterk
þessi áhrif til margföldunar at-
vinnu eru? Ýmsir spyrja líka
hvort eintóm smáfyrirtæki sem
væntanlega þjóna aðeins næsta
umhverfi geti ekki byggst upp svo
að segja hvert utan um annað?
Hvaðan ætti slík þróun að fá vaxt-
armátt?
Þótt þarna sé ýmislegt á huldu
er eitt sem ég veit með fullri vissu,
að til þess að vera sjálfstæð þjóð
til frambúðar verðum við jafnan
að eiga einhver þau eftirsóttu
verðmæti til að flytja út sem jafn-
gilda því sem við hverju sinni
flytjum inn, auk þess sem við
verðum að geta borgað skuldir
okkar, og til þessa dugar ekkert
nema vönduð framleiðsla og fram-
úrskarandi hugvit.
Björn StelTensen er löggiltur
endurskoðandi.
Sem dæmi um upphækkanir
„öldur" gerir starfsnefndin tillög-
ur um eftirfarandi:
Vesturbæjarskólahverfi: '
Ægisgata 1 alda
Melaskólahverfi:
Furumelur 1 alda
Hagamelur 2 öldur
Neshagi 1 alda
Ægisíða 2 öldur
Breiðholtsskólahverfi:
Arnarbakki 4 öldur
Álfabakki 2 öldur
Hvað upphækkanir snertir er
ekki í skýrslunni lögð aðaláhersla
á þær götur í Vesturbæ sem borg-
arráð hefur gert með samþykkt
sinni 12. febr. þrátt fyrir þær upp-
lýsingar, sem liggja fyrir um
hraða í umferðinni og slysatíðni.
Með þessum skrifum hér að
framan er einfaldlega verið að
segja þetta:
Unnið hefur verið að því að gera
úttekt á umferðarástandi í hverf-
um borgarinnar. ótal bréf frá
skólastjórnendum, kennarafélög-
um og foreldrafélögum hafa borist
til umferðarnefndar og borgaryf-
irvalda.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir
virðast samþykktir varðandi verk-
efni og framkvæmdaröð vera væg-
ast sagt ruglingslegar og geð-
þóttakenndar.
Augljóst er að úrbætur á Álfa-
bakka og Arnarbakka hafa verið
settar í hliðarskúffu yfirvalda.
Þetta er ritað til þess að vekja
athygli á skýrslu starfsnefndar
um umferðaröryggi, benda á
óskipuleg vinnubrögð borgaryfir-
valda og vekja áhuga almennings
á umferðarmálum.
Jens Sumarliðason er yfírkennari í
Breiðholtsskóla. Hann átti sæti í
nefnd sem fjallaði um umferðar-
aðstæður barna í nágrenni skóla á
vegum umferðarnefndar Reykja-
víkur.
Vatnsleysu-
strandarhreppun
Háar fyrir-
framgreiðsl-
ur Iauna
Vogum, 25. febrúar.
Heimaendurskoðandi Vatns-
leysustrandarhrepps gerði í sl.
viku athugasemdir við miklar
fyrirframgreiðslur launa, sem
voru útistandandi um áramót,
um 550 þús. kr. samtals til
tveggja starfsmanna.
Annar starfsmaðurinn hafði
fengið greitt samtals 450 þús. kr.
fyrirfram en hinn tæplega 100
þúsund kr. sem voru útistandandi
um áramót. Starfsmaðurinn sem
hafði fengið 100 þús. kr. fyrir-
framgreiddar hætti störfum fyrir
nokkrum mánuðum. Hafa þessar
greiðslur safnast saman á tveim-
ur árum en um áramótin 1983
1984 voru útistandandi hjá
hreppnum vegna fyrirfram-
greiddra launa rúmlega 338 þús.
kr. samkvæmt reikningum
V atnsleysustrandarhrepps.
Þeim starfsmanni, sem fengið
hefur 450 þús. kr. fyrirfram og er
í starfi hjá hreppnum, hefur ver-
ið gert að greiða skuld sína ásamt
vöxtum. Hann hefur þegar greitt
hluta upphæðarinnar og gengið
frá samningum um afganginn.
— E.G.
^Apglýsinga-
síminn er 2 24 80
Frumraun
Tónlíst
Jón Ásgeirsson
Kathleen Bearden og Snorri
Sigfús Birgisson héldu sam-
leikstónleika í Norræna hús-
inu um síðustu helgi og fluttu
tónlist eftir Schubert, Ysaýe,
Stravinsky og Ives. Tónleik-
arnir hófust á g-moll sónöt-
unni eftir Schubert, elskulegu
tónverki sem þrátt fyrir ein-
faldleika er erfitt að flytja á
sannfærandi máta, með þeirri
syngjandi sem tónlist Schu-
berts er þrungin af. Annað
verkið á efnisskránni var ein-
leikssónata eftir Ysaýe (Ysáye,
Ysaye eða Ysaye).
Ysaýe-bræðurnir voru mikl-
ir hljóðfæraleikarar, fæddir í
Belgíu og auk hljóðfæraleiks
fengust þeir við að semja tón-
list. Þau verk sem einna þekkt-
ust hafa orðið á síðari árum
eru fiðlueinleikssónöturnar
eftir eldri bróðurinn Eugene.
Hann var nemandi Vieux-
temps og átti hlutdeild i frum-
flutningi tónverka eftir
Franck, Chausson og Debussy.
Fiðlueinleikssónöturnar eru
sex að tölu og hafa þær ekki
verið fluttar neitt að ráði hér á
landi. Kathleen Bearden flutti
Ysáye-sónötuna vel og af tölu-
verðri leikni. Eftir hlé var á
efnisskránni Italska svítan
eftir Stravinsky. Tvö fiðluverk
samdi Stravinsky upp úr Pulc-
inella ballettsvítunni og kall-
aði hann fyrra verkið aðeins
svítu (1925) og seinna verkið
ftalska svítu (1933). Það mun
trúlega hafa verið fyrri svítan
sem leikin var á tónleikum
þessum en þessa verkaþyrp-
ingu vann Stravinsky upp úr
lögum sem nokkru áður höfðu
fundist á Italíu og talin voru
eftir Pergolesi. Deilt hefur
verið um það hvort rétt sé al-
farið að kalla Stravinsky höf-
und þessara verka en oft er
þess getið, þegar verkin eru
flutt, hvaðan Stravinsky lán-
aði sér efniviðinn. Margt var
vel flutt í samspili flytjenda þó
nokkuð væri ofgert um ein-
staka áherslur og píanóundir-
leikurinn á nokkrum stöðum
við efri mörkin í styrk. Síðasta
verkið á efnisskránni var önn-
ur fiðlusónatan eftir Ives,
„vandræðabarnið" í banda-
rískri tónlistarsögu. Sónatan
var vel flutt og skemmtileg
áheyrnar. Kathleen Bearden
er góður fiðlari og átti hún
bestu sprettina í Ysáye-sónöt-
unni og einnig í sónötunni eftir
Ives. Samspil hennar og
Snorra var með ágætum enda
er Snorri reyndur píanóleikari
og hefur oft áður stutt við
unga tónlistarmenn er þeir
þreyttu frumraun sína. í heild
voru þetta góðir tónleikar og
eftir þessa frumraun rétt að
bjóða Kathleen Bearden vel-
komna í velskipaðan hóp fiðlu-
leikara er hér hafa numið land
á síðari árum.
RITVintlSLA
Yfír 600 manns hafa þegar
sótt ritvinnslunámskeið okkar.
Á næstunni verða haldin eftirfarandi námsheið:
• Word • Easywriter II
• Wordstar (Ritvinnsla II)
• Hugriti • Appleworks
Upplýsingar og shráning I síma 82930
ATH! Starfsmannafélag Reykjavíkur, Starfsmenntunarsjóð-
ur starfsmannafélags ríkisstofnana og Verslunarmannafélag
Reykjavíkur styrkja félagsmenn sína til þátttöku á þessum
námskeiðum.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS Sff
TÍMABÆR