Morgunblaðið - 27.02.1985, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
Frá 6. hverfafundi Davíðs Oddssonar, borgarstjóra í Félagsheimilinu Árseli síðastliðinn sunnudag, en á hann mættu
nær 200 manns.
því, í framtíðinni, að leiga stæði
undir rekstrarkostnaði.
Bæjarútgerð
Reykjavíkur
Halldór Þorsteinsson vék í
spurningu sinni að Bæjarútgerð
Reykjavíkur og spurði hann Davíð
Oddsson hvort hann ætlaði að
gefa fleiri togara fyrirtækisins.
Borgarstjóri benti fyrirspyrjanda
á að 77 milljónir króna hefðu
fengist fyrir togara, og ef ekki
væri bann við innflutningi fiski-
skipa hefðu kaupendur getað
keypt skip erlendis á 40—45 millj-
ónir króna. Þá minnti Davíð á að á
seinasta ári greiddi borgarsjóður
12.880 krónur á mánuði fyrir
hvern starfsmann BÚR, eða sam-
tals 60 milljónir króna. Á þessu
ári er áætlað að styrkur til Bæjar-
útgerðarinnar verði um 40 millj-
ónir króna.
Davíð Oddson sagði í svari sínu
að ekki stæði til, að svo stöddu, að
selja fleiri togara BÚR, en benti
að lokum á að einn togari í eigu
útgerðarinnar væri metinn á 170
Hverfafundir borgarstjóra:
Umferðar- og íþróttamál
ofarlega í hugum manna
Bjargey Elíasdóttir spurði ^ borgar- Gunnar Petersen lagði nokkrar
stjóra um byggingu íþróttahúss. fvrirspurnir fyrir borgarstjóra.
Benedikt Bogason gerði umferðar-
mál umtalsefni umferöamál.
Lúðvík Andreasson taldi fþróttaað-
stöðuna í hverfinu mjög slæma.
BORGARSTTJÓRINN í Reykjavík,
Davíð Oddsson, hélt 6. hverfafund
sinn síðastliðinn sunnudag í Félags-
heimilinu Árseli við Rofabæ og voru
fundargestir nær 200 íbúar Árbæjar-
og Seláshverfis. Fundarstjóri var
Vilhjálmur B. Vilhiálmsson og fund-
arritari Jóhannes Oli Garðarsson.
Eftir framsöguræðu borgar-
stjóra gafst fundarmönnum tæki-
færi til að leggja fyrirspurnir
fyrir Davíð Oddsson og var
mönnum tíðrætt um æskulýðs- og
íþróttamál og umferðamál.
Gunnar Petersen bar fram
fyrstu munnlegu fyrirspurnina, en
hann sagðist sakna þess að ekki
skuli hafa verið fjallað um kirkju-
byggingar I ræðu borgarstjóra.
Benti hann á að úr borgarsjóði
færu 3 milljónir króna til þessa
málaflokks í ár og er það 50%
hækkun frá 1984. Davíð Oddsson
sagði byggingar kirkna ekki verk-
efni Reykjavíkurborgar heldur
ríkis og safnaðarfélaga, þó borg-
arsjóður styrkji kirkjubygginga-
sjóð.
Aðspurður, af Gunnari, um há-
spennumöstur í hverfinu sagði
borgarstjóri að deilur væru milli
Reykjavíkur og Landsvirkjunar
um þau, en borgin telur það í
verkahring Landsvirkjunar að
leggja línurnar í jörð svo unnt sé
að fjarlægja möstrin.
Gunnar Petersen innti Davíð
Oddsson að lokum um umferðar-
ljós við Brekkuháls og í svari kom
fram að þau kæmu vel til greina á
meðan ekki er búið að samtengja
Suðurlandsveg og Vesturlandsveg.
íþróttamál
Lúðvík Andreasson gerði að um-
talsefni íþróttaaðstöðuna í hverf-
inu, en engin aðstaða er fyrir inni-
íþróttir og léleg fyrir aðrar grein-
ar. Sagði Lúðvík að aðstaða Fylk-
ismanna væri léleg og spurði hann
borgarstjóra hvort til greina
kæmi að aðstoða þá við gerð a.m.k.
eins grasvallar næsta sumar. í
svari Davíðs Oddssonar kom fram
að fjárveitingar til íþróttamála
eru í föstum farvegi og fara þær í
gegnum ÍBR, er sér um einstakar
veitingar.
Jón H. Guðmundsson spurði því
næst hvort ekki mætti fella niður
leigu á íþróttasölum, en borgar-
stjóri kvað nei við, enda leigan lág.
Þá spurðist Karl Guðmundsson
fyrir um gervigrasvöllinn og sagði
Davíð Oddsson að stefnt væri að
milljónir krona en á honum hvíla
skuldir fyrir á þriðja hundrað
milljónir króna.
Sami fyrirspyrjandi gerði að
umtalsefni húsgrunna við Brúar-
ás, sem í mörg ár hafa verið
íbúum í grenndinni til ama vegna
aurs og moldarryks, auk þess sem
þeir væru slysagildrur fyrir börn.
Davíð Oddsson sagði að sér væri
það óskiljanlegt hvers vegna við-
komandi byggingameistari seldi
ekki grunnana til að forðast
árekstra við Reykjavíkurborg og
Félagsheimilið Ársel viö Rofabæ.
íbúa hverfisins. Hins vegar væri
þetta mál erfitt úrlausnar, en
byggingarnefnd gæti að vísu gefið
viðkomandi dagsektir vegna þess
að framkvæmdahraði hefur ekki
staðist.
Haraldur Haraldsson þakkaði
borgarstjóra fyrir að halda þenn-
an fund, en vék í máli sínu að sam-
eiginlegu umhverfi skólans, Ársels
og kirkjunnar. er hann taldi ekki
sem skyldi. I svari við þessari
spurningu kom fram að á seinasta
ári var tæpum 4 milljónum króna
varið til framkvæmda við fegrun
umhverfis.
Aðspurður um göngustíg milli
Brúaráss og Brautaráss, sagði
borgarstjóri að hann væri á áætl-
un á þessu ári.
Jón Þorgeirsson lagi fyrir borg-
arstjóra margar spurningar, með-
al annars um dagheimili og salt-
mokstur á götur, sem hann taldi
of mikinn. Davíð Oddsson sagði að
dagheimili fyrir 97 börn yrði til-
búið í haust og ætti eftirspurn að
verða nokkurveginn fullnægt, en á
það yrði að reyna.
Um saltmokstur á götur benti
borgarstjóri á að mjög hefði verið
dregið úr honum á undanförnum
árum, en bílstjórar strætisvagna
knýja hins vegar mjög á um að
götur séu saltbornar af öryggis-
ástæðum, enda strætisvagnar
vanbúnir til aksturs í hálku og
slæmri færð.
Bjargey Elíasdóttir vék að
íþróttamálum, en um 200 börn og
unglingar í hverfinu stunda
íþróttir innanhúss, en þurfa að
sækja tíma upp í Selásskóla.
Spurðist hún fyrir hvort byggja
ætti íþróttahús. Þá gerði Bjargey
einnig leiðakerfi SVR að umtals-
efni og vildi hún fjölga ferðum
milli Breiðholts og Árbæjar.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagðist ekki geta lofað Bjargey
íþróttahúsi, en tillaga frá Sjöfn
Sigfúsdóttur um að næsta íþrótta-
hús yrði byggt við Fjölbrautar-
skólann í Breiðholti var samþykkt
í borgarstjórn 1981. Þá benti hann
á að SVR er að fjölga ferðum milli
umræddra staða, breyta leiðum og
bæta þjónustuna.
Sigurður Sigurðarson innti
borgarstjóra hvort hann hefði
áhyggjur af útgöngu kennara 1.
mars nk. en jafnframt vildi hann
vita hvort til greina kæmi að
borgarsjóður lánaði ríki til að
standa undir launagreiðslum til
þeirra. Svar Davíðs var jákvætt
við fyrri spurningunni, en nei-
kvætt við þeirri síðari.
Benedikt Bogason spurðist fyrir
um fyrirætlanir Reykjavíkurborg-
ar í umferðarmálum til að auka
öryggi. Nefndi hann að erfitt væri
að komast út úr hverfinu. í svari
kom fram að Ofanbyggðavegur,
sem nú hefur verið malbikaður að
hálfu leyti, mun létta verulega á
umferðarþunganum. Davíð
Oddsson sagði að jafnframt kæmi
til greina að setja upp umferðar-
ljós á viðkvæmustu stöðunum.
Umferðarvandamál eru mjög víða,
t.d. hefur lagning Fossvogs-
brautar tafist. Benti borgarstjóri
á að ekki væri fyrirhugað að
hringtengja Selásbraut, en nokkr-
ir fundarmanna lýstu áhuga á að
það yrði gert. Guðmundur Þor-
geirsson var þeim hins vegar ekki
sammála, en að hans mati mundi
umferð aukast í hverfinu.
Umgengni
Aðspurður um umgengni sagði
borgarstjóri að henni væri víða
ábótavant og nefndi hann sem
dæmi að á seinasta ári var helm-
ingur allra stöðumæla í borginni
eyðilagður og símaklefar fengju
oft slæma útreið skemmdarvarga.
Haraldur Sumarliðason gerði að
umtalsefni Árbæjarskóla, sem
byggður var fyrir 700 til 750 börn,
en hátt í eitt þúsund nemendur
sækja skólann að staðaldri. Sagði
Haraldur að nemendum myndi
fjölga verulega næsta haust og
kom hann þeirri hugmynd á fram-
færi hvort ekki kæmi til greina að
byggja skóla í Selási. Davíð
Oddsson borgarstjóri benti á að
barnafjöldi í hverfinu hefði hlut-
fallslega fækkað úr 2,4 í 1,9. Hins
vegar er víða kvartað um pláss-
leysi í skólum, jafnvel þar sem
nemendum hefði fækkað mjög.