Morgunblaðið - 27.02.1985, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986
Peningamarkaðurinn
GENGIS-
SKRÁNING
NR.39
26.febrúar 1985
Kr. Kr. Toll-
Eio. KL09.I5 Kanp Sala gengi
lDollari 42,910 43,030 41,090
1 SLpuod 45,174 45500 45,641
Kto. dollari 30,606 30,692 31,024
1 Dönsk kr. 3,4570 3,4667 3,6313
lNorskkr. 45530 45652 45757
1 Scnsk kr. 4,4271 4,4395 45361
1 FL mark 6,0292 6,0461 6,1817
1 Fr. franki 4,0577 4,0690 45400
1 Belg. fraoki 0,6156 0,6173 0,6480
1 Sv. franki 14,6902 14,7313 15,4358
1 Holl. gyllini 10,9395 10,9700 11,4664
IV-þmark 125125 125472 12,9632
lÍLlír* 0,01983 0,01988 0,02103
1 Austorr. sch. 1,7655 1,7704 15463
1 PorL esoido 05313 05320 05376
1 Sp. peseti 05251 05258 05340
llap. jen 0,16406 0,16452 0,16168
1 frskt pnnd 38598 38,705 40550
SDR. (Séret
dráttarr.) 405725 405864
1 Belg. franki 0,6137 0,6154
INNLÁNSVEXTIR:
Sparí*jóðtb»kur___________________ 24,00%
Spansjóðsreikningar
iimó 3ja mánaða upptðgn
Alþýðubankinn................ 27,00%
Búnaöarbankinn............... 27,00%
lðnaðarbankinn1>............. 27,00%
Landsbankinn................. 27,00%
Samvinnubankinn.............. 27,00%
Sparisjóðir3*................ 27,00%
Útvegsbankinn................ 27,00%
Verzlunarbankinn............. 27,00%
mað 6 mánaða upptögn
Alþýðubankinn................ 30,00%
Búnaöarbankinn................31,50%
IðnaðarbankinnV.............. 36,00%
Samvinnubankinn...............31,50%
Sparisjóðir3*.................31,50%
Utvegsbankinn.................31,50%
Verzlunarbankinn............. 30,00%
mað 12 mánaða upptögn
Alþýöubankinn................ 32,00%
Landsbankinn..................31,50%
Sparisjóðir3*................ 32,50%
Útvegsbankinn................ 32,00%
með 18 mánaða upptögn
Búnaðarbankinn............... 37,00%
Innlántskírteini
Alþýðubankinn................ 30,00%
Búnaöarbankinn................31,50%
Landsbankinn..................31,50%
Samvinnubankrnn...............31,50%
Sparisjóöir...................31,50%
Útvegsbankinn................ 30,50%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lántkjaravítitöiu
með 3ja mánaða upptögn
Alþýöubankinn................. 4,00%
Búnaöarbankinn................ 2,50%
lónaöarbankinn1*.............. 0,00%
Landsbankinn.................. 2,50%
Samvinnubankinn............... 1,00%
Sparisjóðir3*................. 1,00%
Útvegsbankinn................. 2,75%
Verzlunarbankinn.............. 1,00%
mað 6 mánaða upptögn
Alþýöubankinn.................. 850%
Búnaöarbankinn................ 3,50%
Iðnaöarbankinn1*.............. 3,50%
Landsbankinn................... 350%
Samvinnubankinn............... 3,50%
Sparisjóðir3*................. 3,50%
Útvegsbankinn................. 3,00%
Verzlunarbankinn.............. 2,00%
Ávitana- og hlaupareíkningar
Alþýðubankinn
— ávísanareikningar......... 22,00%
— hlaupareikningar.......... 16,00%
Búnaöarbankinn............... 18,00%
lönaöarbankinn................19,00%
Landsbankinn................. 19,00%
Samvinnubankinn
— ávisanareikningar..... 19,00%
— hlaupareikningar.......... 12,00%
Sparisjóðir...................18,00%
Útvegsbankinn................ 19,00%
Verzlunarbankinn............. 19,00%
Stjðmureikningar
Alþýöubankinn21............... 8,00%
Alþýöubankinn..................9,00%
Safnlán — heimilitlán — IB-lán — plútlán
með 3ja til 5 mánaða bindingu
lönaöarbankinn............... 27,00%
Landsbankinn................. 27,00%
Sparisjóöir.................. 27,00%
Samvinnubankinn.............. 27,00%
Útvegsbankinn................ 27,00%
Verzlunarbankinn............. 27,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
lönaöarbankinn............... 30,00%
Landsbankinn................. 27,00%
Sparisjóöir.................. 31,50%
Útvegsbankinn................ 29,00%
Verzlunarbankinn............. 30,00%
Kjðrbók Landtbankant:
Nafnvextir á Kjörbók eru 35% á ári. Innstæöur
eru óbundnar en af útborgaöri fjárhæö er
dregin vaxtaleiörétting 2,1%. Þó ekki af vöxt-
um liðins árs. Vaxtafærsla er um áramót. Ef
ávöxtun á 3 mánaöa visitölutryggöum reikn-
ingi aö viöbættum 2.50% ársvöxtum er hærri
gildir hún og fer matið fram á 3 mánaóa fresti.
Katkó-reikningur:
Verzkmarbankinn
tryggir aö innstæður á kaskó-reikning-
um njóti beztu ávöxtunar sem bankinn
býöur á hverjum tima.
Sparibók með sérvöxtum hjá Búnaðarbank-
anum:
Nafnvextir eru 35,0% á ári. Innistæður eru
óbundnar, en dregin er 1,8% vaxtaleiórétting
frá úttektarupphæö.
Vextir liöins árs eru undanþegnir vaxtaleið-
réttingu. Vaxtafærsla er um áramót. Geröur er
samanburður viö ávöxtun 3ja mánaöa verö-
tryggöra reikninga og reynist hún betri, er
ávöxtunin hækkuó sem nemur mismuninum.
Ársávöxtun 18 mánaða reikninga er borin
saman vö ávöxtun 6 mánaöa verötryggöra
reikninga. Vaxtafærsla tvisvar á ári.
Spariveltureikningar:
Samvinnubankinn...... ...... 24,00%
Innlendir gjaldeyritreikningar.
Bandaríkjadollar
Alþýöubankinn..................950%
Búnaóarbankinn....... ........ 8,00%
lónaöarbankinn...... ..........8,00%
Landsbankinn___________________7,50%
Samvinnubankinn....... ...... 7,00%
Sparisjóðir...................8,00%
Útvegsbankinn.................7,50%
Verzlunarbankinn..............7,50%
Steriingtpund
Alþýöubankinn.................9,50%
Búnaöarbankinn............... 10,00%
lónaöarbankinn...... ..........8,50%
Landsbankinn.................10,00%
Samvinnubankinn....... ...... 8,00%
Sparisjóöir....................850%
Útvegsbankinn................ 10,00%
Verzlunarbankinn.............10,00%
Vettur-þýtk mörk
Alþýðubankinn.................4,00%
Búnaöarbankinn....... ........ 4,00%
lönaóarbankinn................4,00%
Landsbankinn....... ...........4,00%
Samvinnubankinn...... ........ 4,00%
Sparisjóöir...................4,00%
Útvegsbankinn.................4,00%
Verzlunarbankinn..............41)0%
Dantkar krónur
Alþýóubankinn.................9,50%
Búnaóarbankinn...............10,00%
lónaóarbankinn................ 850%
Landsbankinn.................10,00%
Samvinnubankinn...... ....... 850%
Sparisjóóir...................8,50%
Útvegsbankinn................10,00%
Verzlunarbankinn.............10,00%
1) Mánaðarlega er borin taman áriávöxtun
á verðtryggðum og óverðtryggðum Bónut-
reikningum. Áunnir vextir verða leiðréttir í
byrjun nætta mánaðar, þannig að ávðxtun
verði miðuð við það reikningtform, tem
tuerri ávöxtun ber á hverjum tíma.
2) Stjðrnureikningar eru verðtryggðir og
geta þeir tem annað hvort eru eldri en 64 ára
eða yngri en 16 ára ttofnað tlíka reikninga.
3) Trompreikningar. Innlegg óhreyft í 6
mánuði eða lengur vaxtakjör borin taman
við ávöxtun 6 mánaða verötryggðra reikn-
inga og hagttæóari kjðrin valin.
ÚTLÁNSVEXTIR:
Almennir víxlar, forvextir____________3150%
Viðtkiptavixlar
Alþýðubankinn.................. 32,00%
Landsbankinn................... 32,00%
Búnaöarbankinn................. 32,00%
lönaöarbankinn................. 32,00%
Sparisjóöir.................... 32,00%
Samvinnubankinn................ 32,00%
Verzlunarbankinn............... 32,00%
Yfirdráttarlán af hlaupareikningum:
Viöskiptabankarnir............. 32,00%
Sparisjóðir.................... 32,00%
Endurteljanleg lán
fyrir innlendan markað______________ 24,00%
lán í SDR vegna útflutningiframl.__ 950%
Skuldabréf, almenn:----------------- 34,00%
Viðtkiptatkuldabréf:________________ 34,00%
Verðtryggð lán miöað við
lántkjaravititölu
í allt að l'h ár........................ 4%
lengur en 2% ár......................... 5%
Vantkilavextir----------------------- 39,0%
Óverðtryggð skuldabréf
útgefinfyrir 11.08.'84.............. 34,00%
Lífeyrissjódslán:
Lrfeyrissjóður alarftmanna ríkiaint:
Lánsupphaeö er nú 300 þúsund krónur
og er lánió vísitölubundió meó láns-
kjaravísitölu, en ársvextir eru 5%.
Lánstimi er allt aó 25 ár, en getur verió
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er i er lítilfjörleg, þá
getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Lífeyritsjóður verzlunarmanna:
Lánsupphaeð er nú eftir 3ja ára aöild aö
lifeyrissjóönum 144.000 krónur, en fyrir
hvern ársfjórðung umfram 3 ár bætast
viö lánið 12.000 krónur, unz sjóösfélagi
hefur náö 5 ára aöild aö sjóönum. Á
timabilinu frá 5 til 10 ára sjóösaöild
bætast viö höfuöstól leyfiiegrar láns-
upphæöar 6.000 krónur á hverjum árs-
fjóróungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er
lánsupphæöin oröin 360.000 krónur.
Eftir 10 ára aöild bætast viö 3.000 krón-
ur fyrir hvern ársfjórðung sem líöur. Þvi
er í raun ekkert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
lánskjaravísitölu, en lánsupphæöin ber
nú 5% ársvexti. Lánstiminn er 10 til 32
ár aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitalan fyrir feb. 1985 er
1050 stig en var fyrir jan. 1006 stig.
Hækkun milli mánaðanna er 4,3%. Miö-
að er viö vísitöluna 100 í júní 1979.
Byggíngavísitala fyrir jan. til mars
1985 er 185 stig og er þá miöaö viö 100
i janúar 1983.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18-20%.
Hort glímir við Sjómannaskólanemendur.
Einn lagði Hort
SÍÐASTLIÐIÐ mánudagskvöld
bauð skólafélag Stýrimannaskólans
í Reykjavík stórmeistaranum Vlast-
imil Hort til fjölteflis í Sjómanna-
skólanum.
Tefldu nemendur Stýrimanna-
skólans, Vélskólans og nokkrir
fleiri við stórmeistarann eða sam-
tals 35 manns.
Úrslit urðu þau, að V. Hort sigr-
aði með 33 vinningum gegn 2.
Hann tapaði einni skák fyrir Erl-
ingi Sæmundssyni nemanda í Vél-
skóla íslands og gerði jafntefli við
Benedikt Benediktsson kennara i
Vélskólanum og við Þórhall Otte-
sen nemanda í Stýrimannaskól-
anum.
Athugasemdir stjórnar Félags alifuglabænda:
Kallað er á ríkisvaldið til að byggja
stofnræktarstöð fyrir milljónatugi
— og þeir einir geta notað sem fastir eru á spenanum
STJÓRN Félags alifuglabænda hefur sent Búnaðarþingi athugsemdir vegna
nefndarálits sem Samband eggjaframleiðenda lagði fyrir þingið varðandi
stöðu eggjaframleiðslunnar og fleira. Telur stjórnin nefndarálitið villandi,
m.a. hvað varði upplýsingar um varp norskra hæna. Segja þeir að landsmeð-
altal varphæna í Noregi sé 13,5 kg af eggjum en ekki 17 kg eins og S.E. haldi
fram. Þá liggi engar marktækar skýrslur fyrir um fóðurnotkun pr. kg eggja,
vanhöld og afurðamagn pr. hænu á íslandi.
í athugasemdum stjórnar félags íslenskra alifuglabænda segir m.a.:
„Þá eru settar fram fullyrðingar
um fóðurnotkun pr. kg eggja og
vanhöld í stofninum hér á landi og
í Noregi. Þar er um furðulegar
staðhæfingar að ræða, því engar
marktækar íslenskar skýrslur eru
til um þetta efni og raunar ekki
heldur um afurðamagn pr. hænu.
Hins vegar er ljóst að sjúkdómur-
inn hænsnalömun hefur lengi
höggvið stór skörð í varpfuglana,
en hér er ekki leyft að bólusetja
gegn veikinni eins og alls staðar í
nágrannalöndunum. Þessi stað-
reynd hlýtur að valda miklu um
afurðagetu stofnsins og væri full
þörf á að Búnaðarþing knýi á um
það efni.
Það sem þó vekur mesta furðu í
nefndarálitinu og fylgiskjölum
þess er þetta: Þegar búið er að
segja frá því í álitinu að ekki sé
fyrir hendi samstaða eða skilning-
ur á því að skipuleggja og sam-
ræma framleiðsluna, þá segir svo í
fylgiskjali: „Skoðun mín á þessum
mismun er sú að hér ríki algjört
stjórnleysi og ringulreið. ... Þetta
stjórnleysi í alifuglarækt kostar
þjóðina hundruð milljóna í sóun á
gjaldeyri hennar." Hér er um
óvenju grófan og ósvífinn atvinnu-
róg að ræða sem vart er svara-
verður. Rétt er þó að minna á, að
þrátt fyrir stórfellda ríkisstyrki
til norskra alifuglabænda, þá hef-
ur smásöluverð á eggjum verið
lægra hér á landi um árabil, og
það þrátt fyrir að 33—50% skatt-
ur hafi verið lagður á allt innflutt
alifuglafóður um nærri 5 ára
skeið, aðallega til styrktar öðrum
búgreinum, og nemur skattur
þessi samtals hundruðum milljóna
á núvirði.
Fyrir nokkrum árum bauð
Framleiðsluráð landbúnaðarins
Sambandi eggjaframleiðenda
mikla fjármuni til að stofnsetja
dreifingarstöð fyrir egg. Þáver-
andi stjórn samtakanna óskaði
eftir því, að þeim milljónum yrði
varið til að byggja upp stofnrækt-
arstöð að Stóra-Ármóti í Flóa.
Þessu hafnaði Framleiðsluráð og
byggði dreifingarstöð í nafni Sam-
bands eggjaframleiðenda og veitti
því um leið einkaleyfi til að selja
öll egg í heildsölu á íslandi og síð-
an hefur „apparatið" sogið fast
kjarnfóðursjóðsspenann. En nú á
að gera betur; kallað er á ríkis-
valdið að auki til að byggja upp
þriggja þrepa stofnræktarstöð,
sem væntanlega kostar milljóna-
tugi og þeir einir geta notað sem
fastir eru á spenanum og um leið
er hrópað á frekari hjálp til að
samræma og skipuleggja fram-
leiðsluna.
Að lokum þetta. Félag alifugla-
bænda leggur á það sérstaka
áherslu, að verði bólusetning gegn
hænsnalömun ekki leyfð, svo og
öll nauðsynleg lyf til blöndunar í
alifuglafóður, m.a. til að halda
niðri hinu skæða garnadrepi í
kjúklingum, þá er allt annað í
þessum efnum unnið fyrir gýg.“
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn, Keflavík:
Félögum fjölgaði
14%arið 1984
SÓKN, félag sjálfstæðiskvenna í Keflavík, varð 35 ára 19. febrúar á síðasta
ári. Af því tilefni hélt félagið hóf og bauð þangað Vigdísi Jakobsdóttur fyrsta
formanni félagsins, Halldóru Rafnar formanni Landssambands sjálfstæð-
iskvenna, alþingismönnunum Salome Þorkelsdóttur, Matthíasi Á. Mathie-
sen og Ólafi G. Einarssyni ásamt mökum þeirra.
EIÐFAXISf
Eiðfaxi kominn út
EIÐFAXI er kominn út í annað sinn
á þessu ári. í blaöinu greinir Þorgeir
Guðlaugsson frá ferð sinni um Mos-
fellssveit, sem hann fór í janúar.
Eyjólfur ísólfsson ritar grein um
höfuðburð og hjálpartauma. Krist-
ján Stefánsson, Gilhaga, segir frá
Skagfirðingum á faraldsfæti. Knúið
er dyra hjá Sigurbergi Magnússyni í
Steinum undir Eyjafjöllum og Björn
Steinbjörnsson dýrlæknanemi skrif-
ar grein um járningar.
Eiðfaxi er 40 síður í brotinu A4.
Ritstjóri er Iljalti Jón Sveinsson.
Á síðastliðnu ári var margskon-
ar nýbreytni tekin upp hjá Sókn.
Umræðuhópar störfuðu einu sinni
í viku og voru þar rædd félagsmál,
bæjarmál, ástandið í stjórnmálum
landsins, skólamál og heilbrigð-
ismál.
Árið 1984 hófst einnig útgáfa
fréttabréfs sem sent var félags-
konum. Þrjú fréttabréf komu út á
árinu.
Ræðunámskeið var haldið og
tóku 10 konur þátt í því.
Átak var gert í fjáröflun á veg-
um félagsins, m.a. með því að hafa
kaffisölu á félagsfundum og stór-
bingó í félagsheimilinu Stapa í
desember sl.
Aðalfundur Sóknar var haldinn
19. nóvember sl. Ný stjórn var
kjörin og eiga sæti i henni þær
Kristrún Helgadóttir formaður,
Þorbjörg Guðnadóttir varafor-
maður, Sesselja Ingimundardóttir
gjaldkeri, Ágústa Randrup ritari
og Guðrún Hrönn Kristinsdóttir
meðstjórnandi. í varastjórn voru
kjörnar Helga Margrét Guð-
mundsdóttir, Kristín Gestsdóttir
og Svandís Guðnadóttir.
Félögum í Sjálfstæðiskvennafé-
laginu Sókn fjölgaði um 14% árið
1984.
Sóknarkonur hafa opnað skrif-
stofu í Sjálfstæðishúsinu og er
opið á fimmtudögum frá kl. 17.00
til 20.00.