Morgunblaðið - 27.02.1985, Side 61

Morgunblaðið - 27.02.1985, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 61 Svipmyndir frá unglingameistaramóti íslands í fimleikum EINS og skýrt var frá í blaðinu í gœr fór unglingameistaramót íslands í fimleikum fram um síöustu helgi. Rúmlega 100 keppendur tóku þátt í mótinu sem fór mjög vel fram og var FSÍ til sóma. Keppt var í fyrsta sinn eftir íslenskum fimleikastiga. Fimleikastiginn er fimm þrep og er alþjóðleg skylduæfing efsta þrepiö. Það er alveg greinilegt aö mikil gróska er um þessar mundir hjá ungu fimleikafólki. Á myndunum hér á síðunni má sjá yngstu kepp- endurna æfa, en þeir settu mjög skemmtilegan svip á mótiö. • Hlín Diegó er aöeins sex ára gömul en stóö samt vel fyrir sínu og sannaöi aö margur er knár þó hann sé smár. Hér fær hún aöstoð þjálfarans viö eina æfinguna. • Hnarreistar Gerplu-stúlkur ganga til keppni ásamt Valdimar Karls- synL • Þórey Einarsdóttir sex ára ásamt þjálfara sínum Jónasi Tryggvasyni. Þórey er tilbúin I æfingu á gólfi. • Stjarnan, Garöabæ, sendi keppendur í fyrsta sinn á fimleikamót. Hér er Sigurbjörg úr Stjörnunni aö framkvæma erfiöa æfingu og ferst þaö vel úr hendi. Morgunblaðlð/Júlíus • Hérna sjást yngstu keppendur Gerplu á mótinu. Allar voru stúlkurnar sérlega snyrtilega klæddar og tóku íþrótt sína alvarlega. W • Hjördís Sóley I gólfæfingu. Hún var glaöleg á svipinn þegar hún framkvæmdi æfingar sínar og haföi greínilega mikla ánasgju af. • Hjördís Sóley Siguröardóttir á jafvægisslánni. Þaö er stfll yfir litlu hnátunni. • Gunnhildur Steinarsdóttir á tvíslánni, einbeitingin skfn út úr andlitinu, enda er æfingin erfið í framkvæmd. • Vala Thoroddsen á jafnvæg- ísslánni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.