Morgunblaðið - 06.03.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
25
Frakki telur
sig hafa fundið
Josef Mengele
Lyon, 5-marz. AP.
JOSEF Mengele, yfir-
læknirinn í útrýmingar-
búðunum í Auschwitz, býr
undir eigin nafni á griða-
stað nazista í Norður-
Paraguay, að því er
franskur kaupsýslumaður
heldur fram í blaðinu „Ly-
on Matin“ í dag.
Kaupsýslumaðurinn, sem
vill aðeins láta kalla sig Rob-
ert N, kveðst þekkja vel
þennan hluta Suður-Amer-
íku og hafa farið þangað í
janúar til þess að heimsækja
héraðið Pratis-Gill. Hann
sagði að griðastaðurinn væri
nálægt bænum Filadelfia.
„Á því leikur ekki hinn
minnsti vafi að Mengele býr
á svæði, sem afmarkast af
Filadelfia og Neuland," sagði
kaupsýslumaðurinn. „Hann
hefur ekki einu sinni leynt
nafni sínu. Hann á nægar
eignir svo að hann þarf ekki
að hafa fjárhagsáhyggjur."
Kaupsýslumaðurinn
kvaðst hafa aflað þessara
upplýsinga hjá vinum sínum,
sem búi á þessum slóðum og
hafi borið kennsl á Mengele.
Hann sagði að börn í Fila-
Josef Mengeie
delfiu hefðu séð Mengele í
fylgd með fjórum lífvörðum.
Hann sagði að svæðið, þar
sem Mengele ætti heima,
væri undir stjórn sértrúar-
flokks af prússneskum upp-
runa, mennoníta, og að
nokkrir aðrir nazistar
byggju þar óhultir.
Samkvæmt bandarískum
stjórnarskjölum, sem birt
voru í síðustu viku, fóru CIA
að berast fréttir þess efnis
1971 að Mengele væri viðrið-
inn eiturlyfjasölu í Para-
guay.
Liprir
Götusópar
Afkastamiklir Danline götusópar af ýmsum
stærðum og gerðum. Stórt geymslurými -
með eða án vatnsúða og rennusteinsbursta.
Auðveld losun.
Sterkir og endingargóðir.
Hafið samband og fáið allar frekari
upplýsingar.
UMBOÐS- OG HE/LDVEfíSLUN
LÁGMÚLI5, 108 REYKJA VIK, SÍMI: 91-685222
PÓSTHÚLF: 887, 121 REYKJAVÍK
BEINT DAGFLUGISOUKINH)
Benidorm er á Costa Blanca ströndinni — ströndinni
hvítu — sem telst vera besta baðströnd Spánar.
Strendurnar eru hreinar, sandurinn hvítur, sjórinn
tær og hér er sólríkasti staður landsins.
Benidorm er fiskimannabær með hvítkölkuð hús
uppi við fjallshlíðarnar — og nútíma ferðamannabær
með breiðgötum, nýtísku verslunum, veitinga- og
gistihúsum.
Eins og aiþjóðlegum ferðamannastað sæmir hefur
staðurinn úrval næturklúbba og veitingahúsa, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Hér geta lífsglaðir landar — á öilum aldri — notið lífsins og látið drauminn um vel
heppnað frí rætast. Það segir hreint ekki svo lítið, að Beni-
dorm er vinsælasti ferðamannastaður Spánverja sjálfra.
A vorin leggur ilminn af sítrusávöxtum og blómstrandi
trjám yfir allt, sumarið er eitt hið sólríkasta i Evrópu,
haustið langt og hlýtt.
Benidorm liggur 60 km norður af Alicante og í 140 km
fjarlægð frá Valencia, á þrjár hliðar umlukt fjallahring. Því
er auðvelt að leita á náðir gamla timans og kynnast hjarta
landsins.
Margir láta sér nægja að liggja flatir í sandinum og baða sig í bláu Miðjarðarhafinu. Aðrir
smella sér í golf (tveir golfvellir í nágrenni Benidorm), minigolf, tennis, keiluspil, leigja sér
hjól eða fá sér göngu upp í hæðirnar fyrir ofan borgina og njóta kyrrðarinnar.
Ef þú ert feiminn við sólarlandaferð, farðu þá til Benidorm!
Brottfarardagar: 3/4, 17/4, 8/5, 29/5, 19/6, 10/7, 31/7, 21/8, 11/9, og 2/10.
Gisting í íbúðum eða hótelum-, með eða án fæðis. Ath: Beint dagflug.
BENIDORM-STRÖNDIN HVÍTA
FERÐAMIÐSTODIN
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133