Morgunblaðið - 20.03.1985, Síða 1

Morgunblaðið - 20.03.1985, Síða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 66. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Brezka fjárlagafrumvarpið: Áherzla lögð á að- hald í útgjöldum Halli á fjárlögum 7 milljarðar punda London 19. marz AP. KOLAVERKFALLIÐ í Bretlandi, sem stóó í heilt ár, hefur orðið til þess að auka halla ríkissjóðs þar um 2.750 raillj. punda. Kom þetta fram i ræðu Nigels Lawsons fjármálaráðherra f neðri málstofu brezka þingsins í dag, er hann fylgdi úr hlaði fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar. Lawson sagði, að verkfallið væri brezku þjóðinni dýrkeypt. Það hefði spillt mjög fyrir þeirri við- leitni að draga bæði úr verðbólgu og halla ríkissjóðs. Lawson sagði hins vegar, að það hefði reynzt enn dýrkeyptara, ef stjórnin hefði lótið undan í verkfallinu. Með fjárlagafrumvarpinu nú, sem er fyrir fjárhagsárið 1985—1986 er hefst í apríl, er lögð megináherzla á það aðhald f pen- ingamálum, sem stjórn Margaretar Thatcher hefur fylgt fast eftir i 6 ár. Nema niðurstöðutölur frum- varpsins 134,1 milljarði punda og er hækkun þess frá þvf áður um 5%. Er hækkun þessi mjög f sam- ræmi við verðbólguna f landinu. í frumvarpinu er gert ráð fyrir halla rfkissjóðs, sem nemi 7 milljörðum punda. Gert hafði verið ráð fyrir halla rfkissjóðs að fjárhæð 7,2 milljarðar punda f núgildandi fjárlögum, en ljóst er, að hann verður um 10,5 milljarðar punda. Sagði Lawson, að langmestur hluti þessa mikla halla, eða 10 milljarðar punda, væri af- leiðing kolaverkfallsins. Belgía: . Meirihluti með stýriflaugum Brttnel, 19. marz AP. MINNKANDI líkur vora i þvf f kvöld, að til atkvæðagreiðslu myndi koma í belgíska þinginu gegn ákvörð- un stjórnarinnar að setja upp stýrf- flaugar f landinu. Var þetta Ijóst, eftir að Luc van den Brande, einn helzti andstæðingur stýriflauganna á þjóð- þingi Belgfu, sneri við blaðinu í dag og ákvað á sfðustu stundu að styðja ákvörðun stjórnarinnar. í frumvarpinu er gert ráð fyrir 10% lækkun tekjuskatts og lækkun á gjöldum vegna almannatrygg- inga hja öllum þeim, sem hafa minna en 130 pund f tekjur á viku. Á móti koma hækkanir á tóbaki, áfengi og bensfni. Útgjöld vegna al- mannatrygginga eru langhæsti lið- ur frumvarpsins og nema þau 40,1 milljarði punda. Síðan koma út- gjöld vegna varnarmála að fjárhæð 18,1 milljarður punda. Nigel Lawson, fjármálaráðherra Bretlands, með stendur Teresa, kona hans. ,fjárlagatöskuna“ f hendinni á leið til þings í gær. Við hlið hans Stríð írana og fraka harðnar enn: Eldflaug skotið á Bagdad Fjórtán manns bíða bana írakar svara með því að gera loftárásir á fimm borgir í íran Bagdad, 19. marz. AP. HERÞOTUR íraka gerðu í dag loftáásir á fimm borgir í íran, eftir að feiknarleg sprenging hafði orðið í íbúðarhverfi ( Bagdad, höfuð- borg íraks. Fjórtán manns fórust í sprengingunni og fjögur íbúðar- hús eyðilögðust. íranir sögðust í dag hafa skotið langdrægri eldflaug á borgina og hefði hún valdið sprengingunni. Væri þetta fjórða langdræga eldflaugin, sem þeir hefðu skotið á Bagdad undanfarna fímm daga. Var því hótað, að ekkert lát yrði á áframhaldandi eldflaugaárásum á borgina næstu daga. „Bagdad verður jöfnuð við jörðu, ef loftárásum á íranskar borgir verður haldið áfram,“ sagði f tilkynningu, sem lesin var upp (íranska útvarpinu. Haft var eftir sjónarvottum, að sprengingin i Bagdad hefði lagt húsin fjögur gersamlega i rúst, en þau stóðu í íbúðarhverfi á vestur- bakka Tigrisfljóts, sem rennur í gegnum Bagdad. Hefði fjölmennt lögreglulið afgirt þetta svæði i skyndi og lokað þvi, eftir að lækn- ar og hjúkrunarfólk var komið á vettvang. Bardagar fóru hins vegar minnkandi i dag á fenjasvæðinu i suðurhluta Iraks, þar sem hvað ákafast hefur verið barist undan- farna daga. Útlendingar i írak reyna nú sem óðast að komast burt frá landinu i kjölfar harðnandi stríðsátaka undanfarinna daga. Þannig flutti vestur-þýzka flugvélagið Luft- hansa 357 Evrópumenn frá írak ( dag og yfir 300 Tyrkir fóru þaðan með tyrkneskum fluvélum, sem flugu margar ferðir til íraks i dag. íranir segjast hafa unnið stóra sigra í bardögum við íraka (fenjasvæðunum syðst (frak. Mynd þessi, sem (ranska fréttastofan IRNA sendi frá sér í gær, á að sýna hluta þeirra 3000 hermanna Iraka, sem íranir segjast hafa tekið til fanga f bardögunum undanfarna daga. Talsmaður írösku herstjórnar- innar sagði, að flugvélar fraks hefðu gert loftárásir á borgirnar Bushehr, Hamadan, Erdebil, Krand og Korramabad. Væri markmiðið með þessum loftárás- um að „knýja ráðamenn f Iran til þess að fallast á frið og binda endi á stríðið". MX-áætl- unin sam- þykkt WuhiB(toii, I*. nut AP. Öldungadcild Bandaríkja- þings samþykkti í dag með 55 atkvæðum gegn 45 áætlun Reagans forseta um smíði svonefndra MX-kjarnorku- eldflauga. Er þetta talið vera meiriháttar sigur fyrir forsetann. Reagan lýsti þessum úrslitum sem „sönnun um einurð Banda- rikjamanna“. Sagði hann enn- fremur, að Sovétmenn myndu hafa túlkað það sem merki um istöðuleysi og óákveðni af hálfu Bandaríkjanna, hefði áætlunin um MX-flaugarnar verið felld. Hefði þá mátt vita það fyrir- fram, að afvopnunarviðræður þær, sem nú eru nýhafnar i Genf, myndu fara út um þúfur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.