Morgunblaðið - 20.03.1985, Side 3

Morgunblaðið - 20.03.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 3 íslensk auglýsing hlýtur viðurkenningu: Gaman að kollegarn- ir skoði okkar vinnu gagnrýnum augum „VIÐ ERUM montin af þessu enda þykir upphefð að fi birta auglýsingu í þessu blaði, sem er einskonar biblía auglýsinga- og markaðssérfrseðinga um allan heim,“ sagði Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri auglýsingastofu er ber nafn hans, í samtali við blm. í gærkvöld. Auglýsing, sem stofa hans gerði um Parísarferðir Flugleiða, hefur verið birt í þættinum „Global Gallery“ í bandariska auglýs- ingatímaritinu „Advertising Age“, sem er líklega stærsta og virtasta blað sinnar tegundar i heiminum og kemur út í milljón- um eintaka. „Maður er vanur að líta fyrst af öllu á þessar síður til að sjá hverj- ir hafa komist inn,“ sagði Ólafur. „Það er mikil ánægja fyrir okkur að fá slika viðurkenningu fyrir fagleg vinnubrögð og fallegan hlut og gaman að hugsa til þess, að starfsbræður okkar um allan heim eru að skoða okkar vinnu gagnrýnum augum. Það eru yfir- leitt engir aukvisar, sem fá sín verk birt á þessum síðum — mest eru það risarnir á hinum alþjóð- lega auglýsingamarkaði. Meðal annarra, sem eiga aug- lýsingar í „Global Gallery" í blað- inu 7. mars eru fyrirtækin sem annast auglýsingagerð fyrir Chevrolet GM, Boeing-verksmiðj- urnar og Kodak. Margeir tefiir við Schvidler MARGEIR Pétursson mætir ísra- elska skákmanninum Schvidler í einvígi um rétt til þátttöku á milli- svreðamóti í skák. Schvidler geröi jafntefli við v-þýzka skákmanninn Lau í einvígi um réttinn til að tefla við Margeir, 2-2. En þar sem Schvidler hafði unnið innbyrðis við- ureign þeirra, komst hann áfram. Skáksamband tsraels bauöst til að halda einvígi Margeirs og Schvidlers, en tekið var fram, að það sæi sér ekki fært að taka þátt í ferðakostnaði Margeirs. Skák- samband tslands sendi ísraelum skeyti um hæl, þar sem „boði“ tsraels var hafnað og talið móðg- andi. Jafnframt bauðst Skáksam- bandið til að halda einvígið í Reykjavík með sömu skilmálum og ísraelar. Það er að Schvidler yrði að koma sér hingað til lands. Þó var tekið fram, að Skáksam- bandið mundi veita verðlaun. „Reiöubúinn að hitta kenn- ara hvenær sem er, nótt eða dag — segir Albert Guðmunds- son, fjármálaráðherra „ÞAÐ síðasta sem ég sagði við for- ystumenn kennara var að ég væri hvenær sem er reiðubúinn að hitta þá, nótt eða dag, ef þeir óska eftir og halda að það geti borið árangur, og ég hef ekki heyrt frá þeim síðan," sagði Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra er hann var spurður hvort hann einn stæði í vegi fyrir því að gengiö yrði til samninga við kennara. „Að sjálfsögðu reyna kennarar núna á síðustu stundu, áður en Kjaradómur tekur málið til með- ferðar,“ sagði Albert, „að beita þrýstingi frá almenningi á mig sem fjármálaráðherra. En ég fer að lög- um. Ég hef tekið að mér að vinna ákveðið verk fyrir þjóðfélagið og ég fer að lögum, hvort sem það hefur slæm áhrif eða ekki fyrir mig per- sónulega og þar á ég við fylgið. En það skal enginn segja að ég hafi brugðist í starfi.“ Fulltrúar Hins íslenska kennara- félags munu í dag ganga á fund Al- berts Guðmundssonar, fjármála- ráðherra, og ræða við hann deilu- mál sín og fjármálaráðuneytisins, að þvl er upplýstist í gærkvöldi. Rannsóknastofnun byggingariðnaðaríns: Hákon Olafsson verður forstjóri SVERRIR Hermannsson iðnaðar- ráðherra ákvað í gær að skipa Hákon Ólafsson forstjóra Rannsóknastofn- unar byggingariðnaðarins frá 1. aprfl nk„ en þá lætur Haraldur Ásgeirsson, . núverandi forstjóri af störfum, sam- kvæmt eigin ósk. Hákon Ólafsson hefur verið yfir- verkfræðingur stofnunarinnar og gegnt forstjórastarfinu í fjarveru Haraldar. Stjórn stofnunarinnar mælti einróma með því að Hákon hlyti stöðuna, en auk hans sóttu þeir Guöni Jóhannesson og Björn Oddsson um stöðuna. Þægilegar og • falla vel að. . Sloggi nærbuxur eru úr 95% bómull og 5% Lycra. Sloggi nærbuxur halda alltaf lögun sinni og góðri teygju. Sloggi nærbuxur falla þétt að líkamanum og því sjást engin brot í buxunum. AGUST ARMANN hf UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 24, SÍMI 686677 /k HALLDÓR JÓNSSON / VOGAFELL HF. Dugguvogi 8-10, símí 686066

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.