Morgunblaðið - 20.03.1985, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985
Fjölmennur fundur um
skólamál á Akureyri:
Skora á
stjórnvöld
að ganga
þegar til
samninga
Akureyri, 19. mars.
Geysifjölmennur fundur
kennara, nemenda, foreldra og
annars áhugafólks var haldinn í
Sjallanum í gærkvöld. Fundar-
boðendur voru framhaldsskóla-
kennarar og fundarefnið:
„Ástandið í skólunum“. Fund-
argestir voru nokkuð á sjötta
hundrað eða nokkurn veginn
eins margir og aðalsalur Sjall-
ans framast rúmaði.
Valdimar Gunnarsson, fyrrver-
andi kennari við MA, setti fund-
inn en Þóroddur Jóhannsson,
ökukennari, var fundarstjóri.
Frummælendur voru Bragi Guð-
mundsson, fyrrverandi kennari
við MA, Bernharð Valsson, for-
maður Skólafélagsins Hugins,
Þóra Björg Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, Ingvar Ingvars-
son, kennari við Lundarskóla, og
gestur fundarins, Heimir Páls-
son, fyrrv. menntaskólakennari.
Um tuttugu ræðumenn tóku til
máls auk frummælenda og f
fundarlok var samþykkt eindreg-
in ályktun til stuðnings fram-
haldsskólakennurum í kjarabar-
áttu þeirra og í ályktuninni var
einnig skorað á stjórnvöld að
ganga tafarlaust til samninga við
þá.
Nemendum bættur kennslumissir:
Nemendur Iönskólans í Reykjavík sóttu ekki kennslustundir { gær. Með því sögðust þeir vera að sýna samstöðu með milstað kennara sem lagt hafa niður
störf.
Iðnskólinn:
Nemendur sóttu ekki kennslustundir í gær
— mótmæltu aðgerðarleysi stjórnvalda í kennaradeilunni
„ÞAÐ HEFUR verið lítið um
kennslu hér í dag vegna aðgerða
nemenda," sagði Ingvar Ásmunds-
son, skólastjóri Iðnskólans í Reykja-
vík, í samtali við blm. í gær.
Nemendur Iðnskólans ákváðu i
gærmorgun að mæta ekki í
kennslustundir þann daginn. Að
sögn Ingvars héldu þeir fund í
húsnæði skólans. „Ég lét þá vita af
því að fundur þessi væri í óþökk
minni, en þá var liðið að hádegi og
greinilega búið að spilla allri
kennslu í dag,“ sagði hann.
í Iðnskólanum hefur um 90%
kennslu verið haldið uppi undan-
farna daga. Ingvar sagði talsmenn
nemenda hafa gefið þá skýringu á
því að mæta ekki til náms, að þeir
væru að mótmæla aðgerðarleysi
stjórnvalda i kennaradeilunni.
Hann sagðist búast við að nem-
endur mættu til náms í dag, svo
ekki yrði um frekari truflun á
skólastarfinu að ræða.
í dag var kennsla felld niður í
öllum grunnskólum á Akureyri
og Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri en kennarafundir voru
haldnir í þess stað, þar sem fram-
tíðarhorfur nemenda og ástandið
í skólamálum var til umræðu í
ljósi siðustu atburða.
— Sv.P.
INNLENT
Ráðning forfallakennara, viðtalstímar
fyrir nemendur og lenging kennslutíma
— meðal úrræða sem menntamálaráðuneytið telur vænlegust
NEMENDAFÉLÖG framhaldsskólanema i höfuðborgarsvæðinu sendu á
minudag bréf til menntamilariðuneytisins, þar sem þeir óska svara við því
hvort samningsaðilar í kennaradeilunni eygi leiðir til þess að Ijúka þessu
starfsmisseri og með hvaða hætti það gæti orðið og einnig hvort aukailag i
kennara og nemendur sé sú
skólairsins fram i sumar.
leið sem stjórnvöld hugsi og/eða lenging
Segir í bréfinu, að siík lenging
myndi óhjákvæmilega leiða til
þess að nemendur hefðu ekki fjár-
ráð til að halda áfram námi á
vetri komanda. Framhaldsskóla-
nemar lýsa yfir áhyggjum sínum
yfir ástandinu, sem skapast hefur
í skólunum og krefjast skýrra og
Skorað á kennara og stjórnvöld
að leysa deiluna sem skjótast
„VIÐ hörmum þi stöðu, sem komið
hefur upp í kjaradeilu kennara og
ríkisins og forum fram i það við
samningsaðila að þeir leysi deiluna
sem skjótast,** segir í undirskrifta-
lista 100 nemenda við Menntaskól-
ann i ísafirði.
Morgunblaðinu hefur einnig
borist bréf frá 32 kennurum við
Hagaskólann í Reykjavík. Þar seg-
ir, að kennararnir lýsi yfir fullum
stuðningi við baráttu fram-
haldsskólakennara og átelji harð-
lega móðgandi viðbrögð ráða-
manna. 1 niðurlagi bréfsins segir,
að kennarar hafi áhyggjur af stöð-
unni eins og hún er nú spyrja síð-
an hvað vika eða mánuður sé í
samanburði við það ástand sem
upp komi ef ekkert verði að gert.
Félag kvenna í fræðslustörfum,
Delta Kappa Gamma, Alfa-deild,
ályktaði svo á fundi sínum síðasta
laugardag, að skora á stjórnvöld
og kennara að gera allt sem i
þeirra valdi standi til að ráða bót
á því ófremdarástandi sem nú rík-
ir i framhaldsskólum landsins og
koma í veg fyrir að nemendur tefj-
ist i námi og framtíðaráætlanir
þeirra raskist af þessum völdum.
greinargóðra svara við þessum
spurningum.
f svari menntamálaráðuneytis-
ins til nemendafélaganna í gær
kemur fram, að það sé sameigin-
leg stefna ráðuneytisins og skóla-
stjóra framhaldsskólanna að
brautskrá nemendur í vor, þrátt
fyrir ýmsa óvænta erfiðleika, sem
komið hafi upp á á þessu skólaári.
Ráðuneytið hafi bent skólastjór-
um á eftirtaldar leiðir til að bæta
nemendum þann kennslumissi
sem þeir hafa orðið fyrir:
1. Ráðnir verði forfallakennarar
eftir þvi sem tök eru á í stað
þeirra sem hurfu frá störfum. 2.
Takist ekki að ráða forfallakenn-
ara i skólana verði skipulagðir
viðtalstímar fyrir nemendur, þar
sem þeir geti fengið aðstoð og
leiðbeiningar í námi sínu. 3.
Kennslutíminn til vors verði
lengdur eins og hægt er með góðu
móti, t.d. með þvi að kenna á laug-
ardögum, í dymbilvikunni og verja
skemmri tíma til prófa en venja
er. Þá kemur til greina að lengja
skólaárið.
„Aðildarfélög Launamálaráðs geta unnt
kennurum meiri hækkunar en þau fá“
— segir formaður Launamálaráðs
„ÞAÐ ER rétt að kennarar hafa gert
hærri kröfur en aðrir ríkisstarfs-
menn með sambærilega menntun og
Launamálaráð BHM befur sam-
þykkt þessar kröfur þeirra sem
réttmætar,“ sagði Stefán Ólafsson
formaður Launamálaráðs í samtali
við blm. í gær.
Stefán sagði, að hin 24 félögin,
sem eru innan Launamálaráðsins,
gætu unnt kennurum þess að fá
hærri uppbót en þau fá. „Kröfur
kennara eru ekki það miklu hærn
en annarra félaga að þau geti ekki
sætt sig við það,“ sagði Stefán.
„Félögin hafa öll dregist aftur úr í
launum og þó talað sé um að kenn-
arar fái tvo launaflokka aukalega,
þá er það tiltölulega lítill hluti af
þeirri leiðréttingu sem þarf að
gera. Hin félögin eru sammála um
það að kennarar hafi dregist örlít-
ið meira aftur úr en þau og það er
því enginn ágreiningur um að
kennurum beri að fá meiri leið-
réttingu," sagði formaður Launa-
málaráðs að lokum.
í lok svarbréfs menntamála-
ráðuneytisins kemur fram, að það
sé von ráðuneytisins að kennarar
hverfi til starfa sinna hið fyrsta
þannig að það tjón, sem brottför
þeirra hefur í för með sér, verði
ekki meira en orðið er.
Foreldrar
hugleiða að
höfða skaða-
bótamál á
hendur HÍK
„FJÖLMARGIR foreldrar hafa
hringt í menntamálaráðuneytið
til að lýsa áhyggjum sínum vegna
aðgerða framhaldsskólakcnn-
ara,“ sagði Ragnhildur Helga-
dóttir menntamálaráðherra f
samtali við blm. Mbl.
Ragnhildur sagði marga for-
eldra vera að íhuga að fara I
skaðabótamál við Hið íslenska
kennarafélag. „Foreldrar eru
óskaplega reiðir vegna þessara
aðgerða kennara og það virtist
keyra um þverbak þegar
grunnskólakennarar ákváðu að
leggja niður störf í gær,“ sagði
menntamálaráðherra. „Á
mánudagsmorgun hringdu
margir og sögðust ætla í
skaðabótamál, því þeir álitu
aðgerðir kennara hafa skaðað
börn sín verulega og heimilin í
heild. Þeir sem eiga börn í
framhaldsskóla og grunnskóla
voru afar reiðir yfir því að nám
grunnskólanna skyldi einnig
vera truflað," sagði Ragnhildur
Bfelgadóttir að lokum.
T3F--------------------