Morgunblaðið - 20.03.1985, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985
9
Fjórðungsmót
sunnlenzkra hesta-
manna, FH ’85
Fræöslunefnd Fáks efnir til fræöslufundar um FH
’85 í Félagsheimili Fáks viö Bústaöaveg fimmtu-
daginn 21. marz og hefst kl. 20.30. Undirbún-
ingsstörf og framkvæmdir á félagssvæöi Fáks,
Víöivöllum, verða kynntar. Skýrt veröur frá fyrir-
komulagi, þátttökuskilyröum, dagskrá, aöstööu
fyrir menn og hesta og ööru viökomandi FH ’85
mótinu. Kvikmynd af FH ’84 á Vesturlandi veröur
sýnd.
Fræðslunefnd Fáks
Námskeið fyrir iðnfyrirtæki
Öryggi á vinnustaö — auknar tekjur
Markmið
— Koma í veg fyrir framleiöslustöövun og rekstrartap
vegna slysa og skipulagsleysis i öryggismálum.
— Bæta afkomu fyrirtækisins meö bættu öryggi.
— Greina rangar og hættulegar vinnuaöferöir.
Lýsing
Stuöst er viö námskeið frá National Safety Council i
Bandarikjunum:
— Öryggi sem stjórnunaraðferð.
— Forysta - þátttaka stjórnenda i öryggismálum.
— Finna rangar og hættulegar vinnuaöferöir.
— Öryggiseftirlit á vinnustaö.
— Mengun og umhverfi á vinnustað.
— Eldvarnir.
— Öryggisfatnaöur.
— Lyfta rétt.
Þátttakendur
Námskeiöiö er einkum ætlaö og þeim stjórnendum
fyrirtækja er bera ábyrgö á öryggi starfsmanna.
Leiðbeinandi
Ágúst Þorsteinsson, ráögjafi i öryggismálum.
Tími
26.-28. mars nk. kl. 8.30-12.30.
Staður
Hallveigarstigur 1, 3. hæö.
Verð
Fyrir félagsmenn FÍI kr. 2.400.- Fyrir aöra kr. 3.200.-
Þátttaka tilkynnist til Félags íslenskra iönrekenda, Hall-
veigarstíg 1, simi 91-27577 fyrir 21. mars nk.
Markmiö Félags islenskra íönrekenda er aö efla islenskan iönaö þannig aö iönaöurinn
veröi undirstaöa bættra lifskjara. Félagíö gætir hagsmuna iönaöarins gagnvart opin-
berum aöilum og veltir félagsmönnum ýmiskonar þjónustu.
FÉLAG ÍSLENSKRA
IÐNREKENDA
Óróinn á Stórhöfða
íslenzks samfélags
Þeir eru kampakátir stjórnarliöarnir á þessari mynd, þar sem þeir
brosa hver framan í annan og tilveruna af tröppum Alþingis-
hússins, enda lengir dag, voriö framundan og sólris á himni.
Engu aö síöur er órói í stjórnarliðinu, ef marka má fum og fuöur
NT dag hvern síðastliðnar vikur. Bandalag jafnaöarmanna og
Samtök um kvennalista sverja af sér í gríö og erg Alþýöubanda-
lagiö, sem hríöhorast í innbyröis átökum og skoðanakönnunum.
Nýkjörinn formaöur Alþýöuflokks heldur í víking á hendur Skand-
inövum, eftir aö hafa „höggviö mann og annan" heimafyrir. Þá er
síður en svo koppalogn á vinnumarkaöinum, allra sízt innan
ríkisbúskaparins, þar sem fjóröi hver islendingur þiggur laun.
Staksteinar staldra lítiö eitt viö á Stórhöföa hins íslenzka sam-
félags í dag.
„Mikil
óánægjaM
„Mikil óánægja er nú
meóal framsóknarmanna
meö stjómarsamstarfið.
Kemur sú umræóa í kjölfar
þess að samkvæmt skoó-
anakönnunum tapar flokk-
urinn nú mikhi fylgi."
Þannig hefst forystu-
grein NT í gær. Hún er aó-
eins bergmál af fyrri skrif-
um; sibylja úr Hljóðaklett-
um Kramsóknarflokksins.
NT hefur í raun verió mik-
ilvirkasta stjómar-
andstöðumálgagnið frá því
að Þórarinn Þórarínsson
vék úr ritstjórasæti. Ríkis-
stjóra Steingríms Her-
mannssonar, formanns
Framsóknarflokksins, bef-
ur hlotið fleiri skráveifur
hjá NT en Þjóðviljanum,
sem hefur verið heldur
þunnmjólkurlegur lengi
undanfarið.
Leiðari NT segir enn-
fremun
„Sjálfstæðismenn munu
á landsfúndi sínum í aprfl
leggja línur að nýjum kosn-
ingum og nýrri ríkisstjórn.
Framsóknarmenn mega
ekki sitja með hendur í
skauti og bíöa þess sem
veröa vilL“
Það þarf ekki glöggan
mann til að lesa á milli
lína, hvað NT er að fara.
Framsóknarflokkurinn á
að hlaupast undan ábyrgð
en skella skuldinni á sam-
starfsflokkinn. Þetta era
máske mannleg viðbrögð
en ekki stórmannleg!
„Framsóknarmenn
þurfa að standa upp úr
hægindum sínum og byrja
að predika. Þeir eiga góða
predikara ekkert síður en
aðrir," segir NT. Þetta var
skondin setning. Vóru þá
ráðherrastólar Framsóknar
aðeins hægindi? Og hver
er hinn nýi predikari
vinstri mennskunnar á
NT?
Því er heldur ekki að
leyna að nokkur órói með
stjóraarsamstarfið hefur
gert vart við sig innan
Sjálfstæðisflokksins.
Ráðherrar verða að taka
af skarið með skörungs-
skap og kunngera trúverð-
uga verkáætlun í vanda-
málum þjóðarinnar. Ef
ekki fjarar enn frekar und-
an stjórninni hjá öllum al-
menningi.
Ein er stoð
sem aldrei
bregst
Því er ekki að neita að
ýmis dökk ský hafa hrann-
ast upp á himin stjórnar-
samstarfsins. Þar er þó ein
stoð sem aldrei hefur
brugðizt fjórskipt. hand-
ónýt og sundurþykk stjórn-
arandstaöa. f samanburði
við stjórnarandstöðuna
hefur rikisstjórain vinning-
inn.
Alþýðubandalagið, sem
nú er hálfdrættingur af
sjálfu sér 1978 samkvæmt
skoðanakönnunum, fór á
fjörur um „nýtt land-
stjórnarafl" við aðra
stjórnarandstöðuflokka.
sem síðan hafa keppst um
að sverja Alþýðubandalag-
ið af sér. Ástæðan er arf-
leifð þess frá ríkisstjórnum
1978—1983: 130% verð-
bólga, vaxandi viðskipta-
halli við útlönd, himinháar
erlendar skuldir, stanz-
laust gengisfall og lýrnun
kaupgildis krónunnar,
hallarekstur ríkissjóðs,
stóraukin skattheimta og
fjórtán skerðingar á verð-
bótum launa!
Stjórnarandstöðuflokkar
hafa eldað grátt sflfur og
staöið í innbyrðis hanaslag
það sem af er kjörtímabif
inu. Formanni Alþýðu-
flokksins finnst sem von-
legt er h'tið púður í því að
hirta áfram hrófatildrin í
stjórnarandstöðunni hér
heima og hefur snúið sér
að því að hressa upp á jafn-
aðarmannaflokka á Norð-
urlöndum, sem ekki mun
af veita, þó þeir þekki
hinsvegar ekki sinn vitjun-
artíma né framúrstefnu
offarans. Alþýöubandalag-
ið stendur í innbyrðis
„hallarbyltingum" og reyt-
ir af sér fylgið í allar áttir.
Það blæs ekki byrlega
um samstöðuna í þessu
þjóðfélagL Þverbrestir
sjást víða: hjá stjórnarliö-
um, hjá stjórnarandstöðu
og á vinnumarkaöinum,
ekki sízt innan ríkisbú-
skaparins, þar sem fjórð-
ungur vinnufærra manna
blívur.
Þjóðartekjur dragast
saman og kaupmáttur
krónunnar þverr. Meian
íslendingar takast á um
rýraandi skiptahhit vaxa
vandamálin j höndum
þeirra.
Var nokkur að tala um
þjóðarsátt og nýsköpun at-
vinnulífsins?
Húsavík:
Leikfélagið frumsýnir „Astin sigrar“
HúsaTÍk, 17. mara.
LEIKFÉLAG Húsavíkur minnist á
þessu ári 85 ára afmælis síns, —
stofnað 14. febrúar 1900. —
í tilefni af því hefur félagið þeg-
ar tekið tvö verkefni til sýningar á
þessu leikári. Það sýndi fyrir ára-
mótin barnaleikritið Gúmmí-
Tarzan við mikla aðsókn og góðar
undirtektir.
Á föstudagskvöldið frumsýndi
félagið gleðileikinn Ástin sigrar,
nýtt leikrit eftir ólaf Hauk Sím-
onarson, og leikstýrði því Þórhall-
ur Sigurðsson, leikari Þjóðleik-
hússins, sem jafnframt gerði leik-
mynd með Þorvaldi Daða Hall-
dórssyni.
Með aðalhlutverk fara Jón Frið-
rik Benónýsson, Anna Ragnars-
dóttir, Arnar Björnsson og Snædís
Gunnlaugsdóttir. Leikritið var að
nokkru leyti staðarhæft og kom
það öllum skemmtilega á óvart að
sjá alla bæjarstjórn Húsavíkur á
þrekæfingarnámskeiði og trimm-
aði bæjarstjórnin um leiksviðið og
sýndi nú ýmsar þrekæfingar og
aflraunir í verki, en ekki látin
segja orð á þessum vettvangi.
Frumsýningargestir skemmtu
sér vel og mikið var hlegið að ýms-
um tilburðum og orðaskiptum.
Leikarar, leikstjóri og höfundur
voru óspart hylltir í leikslok með
lófataki og blómum.
Stjórn Leikfélags Húsavíkur
skipa nú: Anna Ragnarsdóttir,
formaður, Ása Gísladóttir, gjald-
keri, og Snædís Gunnlaugsdóttir,
ritari, Svavar Jónsson og Þorkell
Björnsson, meðstjórnendur.
Félagið starfar nú af miklum
krafti, en við lélagar og erfiðar að-
stæður í litlu húsi, en eins og segir
í leikskrá:
„Þrátt fyrir að ýmsar blikur séu
á lofti er bjartsýni ríkjandi hjá
félögum LH og vonast allir til að
geta haldið 100. afmælissýninguna
í nýju og glæsilegu leikhúsi."
Fréttaritari