Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 20. MARZ 1985
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra:
Mistök að tengja ekki
lánskjör og kaupmátt
Ríkið getur ekki greitt niður
vAvtí daaÍ*• fiói*mólofóAiiArro
„ALLT frá því að þessi ríkisstjórn
var mynduð, bef ég reifað þá skoðun
öðru hvoru að það hafi verið mistök
að taka ekki úr sambandi lánskjara-
vísitöluna um leið og við tókum vísi-
töhi kaupgjalds úr sambandi. Ég hef
varað við því að í þessu væri hætta
fyrir ríkisstjórnina, og að þetta
myndi leiða til þess að hún kæmist í
slík vandræði, að uppúr syði. Nú er
komið að því,“ sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra, er
hann var spurður álits á þeim orðum
forsætisráðherra á fundi Framsókn-
arfélagsins I Reykjavík sl. sunnu-
dag, að það hefðu verið meiriháttar
pólitísk mistök að tengja ekki
lánskjör og kaupmátt, þegar byrjað
var að krukka í kaupmáttarvísitöl-
una.
Albert sagðist telja að á sama
tíma hefðu vextirnir verið of háir
hér á landi. „Það þýðir ekkert
fyrir okkur að vera að fara eftir
einhverjum hagfræðilegum hug-
„Vaxtafrelsi
pólitískt
glapræði,"
sagði Þórarinn
Þórarinsson
„ÞAÐ VAR þjóðarsátt í landinu, og
ríkisstjórnin hafði alla burði til þess
að halda áfram á þeirri braut sem
hún var á,“ sagði Haraldur Ólafsson
alþingismaður m.a. á fundi Fram-
sóknarfélagsins í Reykjavík sl.
sunnudag, en Haraldur var þar ann-
ar frummælenda um stöðu Fram-
sóknarflokksins og stjórnarsam-
starfið. í máli Haraldar, sem og
nokkuð margra þeirra sem tóku til
máls, komu fram miklar efasemdir
um ágæti stjórnarsamstarfs Fram-
sóknarflokksins við Sjálfstæðis-
flokkinn.
Meðal þeirra sem tóku til máls á
fundinum voru Eysteinn Jónsson,
fyrrverandi formaður Framsókn-
arflokksins, og Þórarinn Þórar-
insson, fyrrverandi ritstjóri. Ey-
steinn sagði að ofsahræðsla hefði
gripið um sig f landinu, þegar
vextir voru gefnir frjálsir. Hann
tökum eða kenningum — þær eiga
einfaldlega ekki við í okkar þjóð-
félagi," sagði Albert.
„Eg tel að það hafi verið meiri-
háttar pólitísk mistök í maí 1982,
þegar byrjað var að krukka aftur
og aftur í vísitöluna, að tengja
ekki lánskjör og kaupmátt," sagði
Steingrímur orðrétt á ofangreind-
um fundi.
Steingrímur sagði að þetta hefði
verið rætt aftur og aftur í ríkis-
stjórn dr. Gunnars Thoroddsen,
eftir að byrjað var að krukka í
vísitöluna. „Þessi mál voru rædd í
rikisstjórninni og við þá hjá
Seðlabankanum sem um þessi mál
fjalla, en því miður án þess að
sagði að það væri frumskilyrði að
lánskjaravísitölu yrði breytt með
lögum, þannig að hún yrði aldrei
hærri en kaupgjaldsvfsitalan.
Hann sagði einnig að lögbjóða
ætti hámark vaxta, hvað sem það
kostaði, þvf þúsundir manna lifðu
hér við algjörlega óbærilegt
ástand.
samstaða um breytingar næðist,1
sagði forsætisráðherra. Forsæt-
isráðherra lagði áherslu á að mis-
gengið hefði hafist í tfð síðustu
ríkisstjórnar, og reyndar hefði
helmingur þessa misgengis á milli
lánskjara og kaupmáttar verið
kominn fram á miðju ári 1983,
þcgar núverandi ríkisstjórn tók
við.
Sagði hann að stóri vandinn
væri sá að finna leiðir til þess að
aðstoða þá sem orðið hefðu hvað
verst úti frá 1982. „Eina leiðin, að
mínu mati,“ sagði Steingrímur,
„er að aðstoðin komi í gegnum
Húsnæðisstofnun, sem verður þá
að fá fé frá ríkinu. Ég held að það
Þórarinn Þórarinsson sagðist
telja að of hart hefði verið gengið
fram í því að skerða kjör launa-
fólks, með harkalegum aðgerðum
þessarar ríkisstjórnar. „Ég
óttast,“ sagði Þórarinn, „að vaxta-
frelsið í haust hafi verið dauða-
dómur þessarar rfkisstjórnar, þó
að hún sitji eitthvað lengur. Ég
sé ekki óskynsamleg leið að lengja
lánin fram i tímann og lækka þá
vexti og jafnvel greiða þá vexti
niður úr ríkissjóði.”
Forsætisráðherra sagðist telja
að þetta væri langstærsta póli-
tíska verkefnið sem hvíldi á ríkis-
stjórninni.
Fjármálaráðherra var spurður
hvort hann væri hlynntur þeim
hugmyndum sem forsætisráð-
herra hefði reifað, til lausnar á
vanda húsbyggjenda: „Ég vil ekki
taka undir það að ríkið greiði
niður vexti," sagði Albert, „því það
er ekki hægt að koma öllu yfir á
ríkissjóð. Rikissjóður er hvorki fé-
lagsmálastofnun né banki. Vissu-
lega þarf að koma í veg fyrir að
vandinn haldi áfram að hlaða
utan á sig. Það er búið að gera
ráðstafanir til þess að hjálpa þeim
sem eru í greiösluvanda, og það er
nóg f augnablikinu, og ekki hægt
að lofa meiru í bili.“
man ekki eftir öðru eins pólitfsku
glapræði."
Björn Lfndal, starfsmaður við-
skiptaráðuneytisins, varði vaxta-
stefnu þá sem verið hefur við lýði
síðan sl. haust. Björn sagði að
menn yrðu að sýna biðlund. Taldi
hann að inn- og útlán yrðu komin
f jafnvægi eftir örfáa mánuði, en
það þýddi jú minni erlendar lán-
tökur.
Haraldur ólafsson sagði að stór
hópur framsóknarmanna hefði
vantrú á því sem gert væri, vegna
þess að það væri gert með Sjálf-
stæðisflokknum.
Síðar sagði Haraldur: „Ég held
að Sjálfstæðisflokkurinn bfði eftir
tækifæri til þess að rjúfa þetta
samstarf og hann gæti komið okk-
ur á óvart í þeim efnum. Vatnið er
talsvert gruggugt.”
ólafur Jónsson og fleiri tóku í
sama streng, og sögðu ekki ólfk-
legt að sjálfstæðismenn undir-
byggju nú brottfðr úr ríkisstjórn-
inni. Bentu þeir á fylgisaukningu
Alþýðuflokksins og töldu ræðu-
menn ekki ólíklegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn vildi stefna að nýrri
Viðreisn. Þetta tþldu ræðumenn
vera mjög slæman kost fyrir
Framsóknarflokkinn. .. .
Harður
árekstur
á Húsavík
MJÖG harður árekstur varð í
nágrenni Húsavíkur á Töstudag
er tvær bifreiðir rákust saman í
hríðarbyl sem þar gerði seinni-
partinn. Voru fimm fluttir á
slysadeild, skornir og brotnir,
þar af þrír til Akureyrar, en eng-
inn er í lífshættu.
Um var að ræða fólksbíl með
fjórum innanborðs og jeppa
með ökumanni. Áreksturinn
varð í Aðaldalnum, um 25 kíló-
metra sunnan Húsavíkur.
Skullu framendar bifreiðanna
. saman og er slæmt skyggni tal-
ið bein orsök áreksturins. Báð-
ar bifreiðirnar eru taldar ónýt-
ar.
Unnið að
viðgerð
DC-8-vélar-
innar í
Lúxemborg
BÚIST var við að viðgerð á DC-8-vél
Flugleiða, sem bilaði í flugtaki í Lúx-
emborg sl. föstudag, lyki í gær. Við-
gerðin fór fram hjá Cargolux og
komu varahlutir í hjólbúnað vélar-
innar frá Kaupmannhöfn í gær.
Ekki er fullljóst hver orsök
óhappsins var, en talið er að
sprungið hafi á einum hjólbarða
vélarinnar á flugbrautinni. Við
hemlun sprakk síðan á öðrum
hjólbarða. Þegar byrjað var að
hemla voru aðeins eftir um tvær
mílur f flugtakshraða. Við átakið
myndaðist mikill hiti í hemlum
vélarinnar, enda var hún fullhlað-
in farþegum og eldsneyti. Þegar
vélin stöðvaðist logaði f hemlun-
um, en fljótlega tókst að slökkva
eldinn.
Sveinn Sæmundsson sagði að
tæming vélarinnar hafi farið fram
eftir settum reglum. Enginn ótti
greip um sig meðal farþeganna, en
rétt þótti að þeir færu úr vélinni
eftir rennum. Sveinn sagði að allt
hefði þetta farið vel og það sýndi
að áhöfnin var í fyrsta flokks
þjálfun.
Áskorun almenns
borgarafundar í Vogum:
Löggiltum
endurskoð-
endum verði
sagt upp
Vogum, 18. mars.
ALMENNUR borgarafundur var
haldinn í Glaðheimum, Vogum, sl.
laugardag þann 16. mars. Á fundin-
um sem var mjög fjölmennur, á
annað hundrað manns, var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga með 45 at-
kvæðum, en 5 voru á móti, og 14
seðlar voru auðir. Atkvæðagreiðsla
um tillöguna var skrideg.
„Almennur borgarafundur
haldinn í Glaðheimum, Vogum,
þann 16. mars 1985, skorar á
hreppsnefnd Vatnsleysustrand-
arhrepps að segja löggiltum
endurskoðendum hreppsreikn-
inga upp störfum nú þegar, þar
sem komið hefur í ljós, að þeir
hafa haldið leyndum mikilvægum
upplýsingum varðandi fjármál
sveitarsjóðs allt frá árinu 1983
þar til í febrúar sl. Auk þess virð-
ist vinna þeirra vera mun dýrari
en almennt gerist í nágranna
sveitarfélögum."
Miklar efasemdir komu fram á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur um ágæti stjórnarsamstarfsins við Sjálfstæðis-
flokkinn og töldu þó nokkrir ræðuroanna að Sjálfstæðisflokkurinn væri á leið út úr stjórninni.
Framsóknarmenn í Reykjavík funda:
Tortryggni í garð samstarfs
við Sjálfstæðisflokkinn
MorxinbUMA/RAX
Steingrfmur Hermannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, sagðist telja það meiriháttar pólitísk
mistök að hafa ekki tengt lánskjör og kaupmátt.