Morgunblaðið - 20.03.1985, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. MARZH65
31
Brazilía:
Fyrstu ráðstafanir
nýju stjórnarinnar
Brasilía, Brazilíu, 19. nura. AP.
STJÓRNVÖLD ( Brazilíu greindu í dag frá riðstöfunum í efnahagsmálum,
sem ætlað er að vinna gegn verðbólgunni í landinu, sem nú er 220%. Aðeins
þrír dagar eru frá því borgaraleg stjórn tók við eftir að herstjórnir höfðu farið
með völdin í 21 ár.
Ráðstafanirnar felast m.a. í því,
að fjárlögin eru skorin niður um
10% frá því, sem herstjórnin hafði
ákveðið, frestað verður lánveiting-
um til útflytjenda og landbúnað-
arframkvæmda í þrjá mánuði og
næstu tvo mánuði mun stjórnin
ekki leita eftir lánsfé á innan-
landsmarkaði. Að sögn stjórn-
valda er það markmiðið með þess-
um aðgerðum að ýta undir áfram-
haldandi hagvöxt, draga úr rikis-
útgjöldum og koma böndum á
verðbólguna. Auk þessa verða út-
gjöldum ráðuneytanna settar
skorður og engir nýir ríkis-
starfsmenn ráðnir til loka ársins.
Þegar ríkisstjórn Tancredo Neves
tók við af herstjórninni fylgdu
með í kaupunum erlendar skuldir
upp á 100 milljarða dollara, þær
mestu hjá nokkurri þróunarþjóð,
og verðbólga, sem er rúmlega
220% á ári.
Neves, sem er hálfáttræður að
aldri, hefur enn ekki svarið emb-
ættiseið sem forseti enda var hann
fluttur á sjúkrahús aðeins nokkr-
um stundum áður en athöfnin átti
að hefjast. Jose Sarney, varafor-
seti, sór hins vegar sinn eið og
gegnir nú störfum forseta til
bráðabirgðá.
Svínsnef grætt
á bónda í Kína
Pelting, 19. ma AP.
LÆKNAR hafa grætt brjósk úr
svínsnefi á andlit bónda, sem varð
fyrir því óláni fyrir aldarfjórðungi
að rotta beit bróðurpartinn af nef-
inu á honum, að sögn kínversks
dagblaðs.
Aðgerðin var framkvæmd í
fyrravor og hefur hún heppnast
vel, þvi bóndinn getur að nýju
andað með nefinu og hefur
endurheimt lyktarskyn sitt.
Tekið var brjósk úr svínsnefi
og það grætt í nefstæði bóndans.
Tekinn var húðflipi aftan af
vinstri öxl hans og græddur yfir
brjóskið.
Læknar binda miklar vonir við
svínsbrjósk í lýtaskurðlækning-
um og segja það að öllu leyti
heppilegra en kísilgúmmí.
Hvorki er skýrt frá nafni
bóndans né aldri i frétt kín-
verska blaðsins China Daily, að-
eins sagt að aðgerðin hafi verið
gerð á hersjúkrahúsi i Jinan,
Sovézkir íþróttamenn
heimsækja S-Kóreu
■ 1Q AD ”
Seoul, 19. nuti AP.
SOVÉZKIR íþróttamenn verða með-
al þátttakenda í alþjóðlegri keppnis-
sýningu ( listhlaupi á skautum (
næstu viku, og er það í fyrsta sinn
sem sovézkir íþróttamenn sækja
Suður-Kóreu heim frá þv( Kóreu-
skaganum var skipt í norður- og suð-
urríki við lok seinni heimsstyrjaldar-
innar.
Sovézku fþróttamennirnir eru í
hópi austur-evrópskra skauta-
manna, bandarískra og kana-
dískra, sem eru á sýningarferða-
lagi um Kína, Hong Kong og
Suður-Kóreu. Koma þeir til Seoul
27. marz og sýna listir sínar í
Seopul og Taegu.
Embættismenn og yfirvöld í
Suður-Kóreu hafa varizt allra
frétta og neitað að gefa minnstu
upplýsingar, en Kyodo-fréttastof-
an japanska hefur það eftir heim-
ildarmönnum i Seoul, að i hópn-
um, sem kæmi til Suður-Kóreu,
séu 18 skautamenn frá Sovétríkj-
unum, Austur-Þýzkalandi og
Tékkóslóvakiu.
Nær öruggt er talið að sovézku
Slasaðist
við flótta-
tilraun
Kkury Merogin, Krakklandi, 18. man. AP.
Ræninginn Bnino Sulak, sem
frægð hefur hlotið fyrir óvenju djarf-
an flótta úr rammgerðu fangelsi (
tvigang, liggur nú milli heims og
helju eftir þriðju flóttatilraunina (
dag.
Sulak, sem er 29 ára fyrrverandi
leiguliði, hlaut beinbrot og mjög
slæm innvortis meiðsl, er hann
stökk úr fangelsisglugga á þriðju
hæð. Hann hefur um dagana
framið mörg skartgriparán en
aldrei gert nokkrum manni mein i
ránunum. Sulak afplánar nú niu
ára fangelsisdóm fyrir vopnað
rán.
íþróttamennirnir séu og fyrstu
sovézku borgararnir sem koma til
Suður-Kóreu frá þvi Rússar skutu
niður kóreska farþegaþotu með
tæplega 300 manns 1. september
1983.
Stjórnmálasamband er ekkert
með Suður-Kóreu og Sovétríkjun-
um, en samskipti hafa samt verið
á öðrum sviðum. Sovétríkin eru
bandaríki Norður-Kóreu, en
fjandsamt er milli Kóreuríkjanna
tveggja.
TÖLVUSÍMSVARAR
TIL SÖLU
Hefi tekiö aö mér aö afsetja eftirstöðvar birgöa firma sem hætt hefir sölu á
álitnum heimsins fullkomnustu símsvörum. Birgöir eiga aö seljast á gömlu
kostnaöarveröi meö kostakjörum. Símsvararnir uppfylla öll skilyröi reglu-
gerðar frá 15/6 1981 um símtækjainnflutning meö þjónustu SÍMSKÓLA-
TÆKNIMANNS.
Þeir eru með fullkominni fjarstýr-
ingu, bæöi til 20 mínútna inntals
og 50 mínútna móttekinna skila-
boöa. Bil milli símtala er 20 sek-
úndur. Hafa hraöa-, hljóm- og
tónstillingu. Geta endurtekiö ef
meö þarf 3 eöa 7 orö og allt sím-
taliö meö fóttæki. Sérstakt heyrn-
artæki gerir þá þannig, aö viö-
staddir heyra ekki inntal á þá.
Geta tekiö inn á sig símtöl og einn-
ig upp samtöl þar sem þeir eru
staösettir, t.d. viö samningsgeröir.
Einstakan símsvara má tengja og
nota fyrir 2, 3 eöa 5 símanúmer.
Þeir eru fullkomnir diktófónar,
sem tengja má til einkaritara, og
gefa honum skýringar til uppskrift-
ar meö tali inn á inntalsspóluna og
þaö meö sérstakri samtengingu.
Ágætis hljómflutningstæki. Þessir
sænsk-bandarísku símsvarar hafa
fariö sigurför í öllum tæknilöndum
og eru sérstaklega hagkvæmir
fyrir alla forstjóra, lækna, dómara,
lögmenn, fasteignasala, miölara og
kaupsýslumenn. Einstaklega hag-
kvæmir fyrir aila telexþjónustu.
Meö míkrafón-skilaboöum getur
starfsfólk gefiö fjarverandi yfir-
manni upplýsingar, svo aö hann
þarfnast aöeins eins símtals til
móttöku þeirra allra viö símsvara
sinn. Fjarstýringin nær til símsvar-
ans hvaöanæva úr heiminum.
Frekari upplýsingar gefur undirrit-
aöur.
Þorv. Ari Arason, hrl.,
Smiðjuvegi D-9, 200 Kópavogi. Símar 45533 & 40170.
Áskriftarsíminn er 83033
PARADIS FJOLSKYLDUNNAR
Land liste
ogsögu
ITALIA
Ókeypis ferðafræðsla Útsýnar í ráðstefnusal
Hótels Loftleiða kl. 20.30 í kvöld 20. marz.
LIGNANO - Gullna ströndin
BIBIONE
Gististaöir, verzlanir, matsölustaöir. Kynnisferöir
m.a. til Rómar, Flórens, Feneyja, Verona, Austurríkis,
Júgóslavíu.
Pétur Björnsson aöalfararstjóri og ingiveig Gunnarsdóttir fararstjóri
annast fræöslukvöidiö.