Morgunblaðið - 20.03.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985
37
Er vegurinn vit-
laust hannaður?
HARALDUR Haraldsson arki-
tekt kom í gær að máli við
Morgunblaðið, en hann var einn
þeirra óheppnu, sem lenti í
árekstrinum mikla um helgina í
brekkunni neðan við Skíðaskál-
ann. Hann kvaðst hafa lesið frá-
sögn af atburðunum í blaðinu í
gær, en kvaðst vilja benda á, að
Hafnarferðir BSRB
og Samvinnuferða:
frá sínu mati væri vegurinn vit-
laust hannaður.
Haraldur sagði að hann
hefði farið austur í gær til
þess að sækja bíl sinn og hafi
hann þá kannað aðstæður bet-
ur. Komi ökumenn að brekku-
brún er þar ekkert sem gefur
til kynna um að brekka sé
framundan eða hætta af neinu
tagi. í snjókomu og slæmu
skyggni geti því orðið þarna
stórslys, eins og sagan ber
raunar vitni um. Þótt menn
Develop 10
Minnsta
Ijósritunarvél í heimi
Ljósritunarvél fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og stofnanir. Ótrúlega lítil,
áreiöanleg og auðveld í notkun. Vél
sem skilar svörtu kolsvörtu og hvítu
snjóhvítu.
GM0A@lftg(!3)S KJAPAN HF
ÁRMÚLA 22 REYKJAVÍK SÍMI83022
Ekkert
heyrt um
kærumál
— segir ráðuneytis-
stjórinn í samgöngu-
ráðuneytinu
„ÞAÐ ER ekkert lágmarksverð á
flugfargjöldum og því ekkert sem
bannar flugfélögum að selja far-
miða á sjö þúsund krónur. Hitt er
annað, að reglugerð um svokallaðar
„alferðir" gerir ráð fyrir að meira
sé í pakkanum en flugferðin ein,“
sagði Ólafur Steinar Valdimarsson,
ráðuneytisstjóri í samgönguráðu-
neytinu, er Mbl. ræddi við hann um
umræddar orlofsferðir BSRB-fé-
laga með Samvinnuferðum-Land-
sýn.
„Það er vitaskuld mjög erfitt
að fylgjast með því hvort þeir,
sem hafa keypt þessar sjö þúsund
króna ferðir, muni fylgja settum
reglum og kaupa til viðbótar aðra
þjónustu. Það er hlutverk ferða-
skrifstofunnar og flugfélagsins
að fylgja því eftir,“ sagði hann.
Óíafur sagðist ekki hafa fengið
nokkra staðfestingu á að til stæði
að kæra ferðaskrifstofuna, svo
sem talað hefði verið um í blöð-
um, enda vissi hann ekki hvað
ætti að kæra, þar sem engin
ákvæði væru um lágmarksverð á
flugfargjöldum.
LA í leikför
til Færeyja
LEIKFÉLAG Akureyrar sýnir leikrit
Sveins Einarssonar, „Ég er gull og
gersemi“, í Norðurlandahúsinu í
Færeyjum í dag, og á morgun.
Tæplega 30 manns taka þátt í
þessari leikferð, en í frétt frá LA
segir, að hún sé farin fyrir styrk
frá Norrænu leiklistarnefndinni,
NTK og Norðurlandahúsinu í
Færeyjum, auk þess sem færeyska
skipafélagið Skiparakstur flytji
leikmyndina frítt.
Aðalhlutverkið, Sölva Helgason,
leikur Theodór Júlíusson, en leik-
arar eru 13 auk 6 barna sem
skipta með sér þremur hlutverk-
um og 2 hljóðfæraleikarar. Á með-
an Leikfélag Akureyrar sækir
Færeyinga heim, falla sýningar á
söngleiknum Edith Piaf niður, en
hann hefur verið sýndur fyrir
fullu húsi fram að þessu. Næstu
sýningar á Edith Piaf verða
sunnudaginn 24. mars og fimmtu-
daginn 28. mars kl. 20.30.
INNLENT
aki fullkomlega eftir aðstæð-
um í slíku veðri, sem var um
helgina, komi aðstæður á þess-
um stað svo í opna skjöldu, að
svo til ekkert svigrúm skapist
til þess að forðast árekstur.
EKKI BARA VERÐIÐ
Við höfum veríð ófeimnir við að benda á hið
ótrúlega góða verð á SKODA. Verðið er þó aðeins ein
af ástæðunum fyrir því að þú gerir mjög góð kaup þegar
þú festir þér þennan sterka og trausta bíl.
SKODA ER ÞÆGILEGUR
Komdu og sestu upp í bíl hjá okkur og aktu einn
hring, þá finnuröu best hvaö SKODA er rúmgóöur
og hversu gott er aö keyra hann. Rýmið og þægindin
gera hann aö afburðaferðabíl sem leikur í höndum
bílstjórans og farþegum líöur vel í.
GOÐ KJOR
Til viðbótar besta veröi sem býöst í dag eru kjörin
mjög góö hjá okkur. Helmingur út og eftirstöðvar á
6-8 mánuðum. Viö tökum auðvitað gamla
SKODANN uppí kaupverðið, og jafnvel aðrar
tegundir líka, hver veit.
STYRKUROG
ÞJÓINUSTUÖRYGGI
Allir vilja geta treysta bílnum sínum, vilja að hann
sé úr góðu efni, sterkur og vel smíðaður. Svo þart
varahluta- og viðgerðarþjónustan auðvitað
að vera í lagi ef eitthvað kemur fyrir.
SKODA er einn af þeim bílum sem þú getur
treyst, hann er mjög sterkbyggður og þjónusta
| okkar nýtur viðurkenningar allra SKODA
i eigenda og hefur gert í áraraðir.
METSOLUBILL
í DANNÖRKU
SKODA hefur árum saman verið mest seldi bíll í
Danmörku. Allir vita að Danir eru hagsýnir menn
og fljótir að finna hvar þeir gera bestu kaupin.
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2 KOPAVOGI SIMI 42600