Morgunblaðið - 27.03.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985
iðleikum með að setja sig inn í
hlutskipti túlksins. Hann er
sjálfur flóttamaður og átti fót-
um fjör að launa undan hersveit-
um Rauðu Khmeranna, var tek-
inn til fanga í þrígang og missti
framan af fingri við pyntingar.
„Þetta er ótrúlegt," sagði Ngor
þegar hann veifaði verðlauna-
styttunni stoltur í fyrrakvöld,
„en þannig hefur allt mitt líf
verið.“ Hann þakkaði framleið-
endum The Killing Fields fyrir
að vekja athygli á þjáningum
þjóðar sinnar. „Ég á það Búddha
að þakka að ég skuli yfirleitt
vera hérna,“ bætti hann við.
Ngor starfar nú sem ráðgjafi
fyrir aðra flóttamenn frá Kam-
bódíu í Los Angeles, þar sem
hann stundar jafnframt há-
skólanám til að öðlast réttindi
til að starfa sem læknir í Banda-
ríkjunum. Hann er líka búinn að
fá sér umboðsmann og hefur
fengið nokkur tilboð um frekari
kvikmyndaleik. í 57 ára sögu
Óskarsverðlaunanna hefur
ómenntaður og óreyndur leikari
aðeins einu sinni áður öðlast
slíkan heiður. The Killing Fields
hlaut einnig verðlaunin fyrir af-
bragðs kvikmyndatöku Englend-
ingsins Chris Menges og klipp-
ingu.
Gamla leik-
hússtjarnan
Þótt stórmynd Davids Lean, A
Passage to India (sjá umsögn í
Mbl. í gær), hafi ekki orðið eins
sigursæl og framleiðendur henn-
ar höfðu vonað var ein frægasta
leikhússtjarna Englendinga,
Dame Peggy Ashcroft, sem er 77
ára að aldri, vel að sínum verð-
launum komin fyrir besta leik í
aukahlutverki kvenna. Túlkun
hennar á hinni spakvitru frú
Moore hefur fært list þessarar
miklu leikkonu „til kvikmynda-
húsagesta um allan heim“, eins
og Angela Lansbury sagði er hún
tók við verðlaununum fyrir hönd
Dame Peggy sem þurfti að vera
viðstödd jarðarför starfsbróður
síns, Sir Michaels Redgrave,
heima á Englandi. íslenskir
sjónvarpsáhorfendur hafa áður
séð Dame Peggy Aschroft túlka
enska konu í indversku umhverfi
í hlutverki hins viljasterka trú-
boða Barbie Bachelor í syrpunni
um Dýrasta djásnið. A Passage
to India fékk ein önnur Óskars-
verðlaun, — fyrir bestu frum-
sömdu tónlistina. Hún var verk
franska tónskáldsins Maurice
Jarre.
Skákin í Genf
Besta erlenda kvikmyndin að
mati úthlutunarnefndarinnar
var svissneska myndin „Hættu-
legir leikir" sem fjallar um sam-
skipti tveggja skákmeistara,
Sovétmanns og útlægs andófs-
manns, á heimsmeistaramóti í
skák sem haldið er i Genf. Leik-
stjóri myndarinnar er Richard
Dembo, en í aðalhlutverkum eru
alþjóðlegar stjörnur eins og
Michel Piccoli, Liv Ullman og
Leslie Caron.
Besta söngtónlistin var valin
rokkmúsík stjörnunnar Prince í
myndinni Purple Rain, sem til
skamms tíma var sýnd í Austur-
bæjarbíói, og besta lagið I Just
Called to Say I Love You eftir
Stevie Wonder úr gamanmynd-
inni The Woman in Red. Besta
heimildamyndin í fullri lengd
var The Times of Harvey Milk
um morð á kynhverfum embætt-
ismanni í San Francisco, og
besta stutta heimildamyndin
The Stone Carvers. Indiana Jon-
es and the Temple of Doom var
verðlaunuð fyrir bestu tækni-
brellurnar. Og mestur fögnuður
braust út á Óskarshátíðinni í
fyrrakvöld þegar Cary Grant af-
henti sínum gamla starfsbróður
James Stewart, sem nú er 72 ára,
heiðursverðlaun fyrir hálfrar
aldar starf í bandarískri kvik-
myndagerð.
Hið vandaða handverk
fékk Oskarsverðlaunin
- Verðlaunamyndirnar allar væntanlegar eða komnar í íslensk kvikmyndahús
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Vönduð, frekar en ævintýra-
gjörn kvikmyndagerð hreppti að
venju obbann af amerísku Óskars-
verðlaununum sem úthlutað var í
fyrrakvöld. Fyrirfram var búist við
því að kvikmynd hins gamalreynda
enska stórmyndaleikstjóra Davids
Lean, A Passage to India, sem nú
er sýnd í Regnboganum í Reykja-
víki, myndi sópa til sín verðlaun-
um með 11 útnefningar. Svo fór þó
ekki. Kvikmynd tékkneska leik-
stjórans Milos Forman, Amadeus
eftir samnefndu leikriti Peters
Shaffer sem Þjóðleikhúsið sýndi
fyrir nokkrum árum, var ótvíræður
sigurvegari á Óskarshátíðinni með
alls 8 verðlaun af 11 útnefningum,
— þar af verðlaunin fyrir bestu
myndina, bestu leikstjórnina og
besta leik í aðalhlutverki karla,
fyrir túlkun F. Murray Abraham á
undirmálstónskáldinu Salieri.
Sally Field hlaut verðlaunin fyrir
besta leik í aðalhlutverki kvenna
fyrir Places in the Heart, og fyrir
besta leik í aukahlutverkum
deildu þau verðskulduðum verð-
launum, sú aldna enska leikhús-
stjarna Dame Peggy Ashcroft fyrir
A Passage to India og nýliði,
ómenntaður í leiklist, dr. Haing S.
Ngor, fyrir The Killing Fields.
Það er af sem áður var að ís-
lenskir kvikmyndahúsagestir þurfi
að bíða í nokkur ár eftir að fá að
sjá Óskarsverðlaunamyndir. Sýn-
ingar á A Passage to India standa
nú þegar yfir og senn er von á
Places in the Heart í Stjörnubíó.
Háskólabíó bætir svo enn um bet-
ur, því The Killing Fields kemur
þar á tjaldið á næstu dögum og
sjálfur Amadeus í júní.
Mozart og snilligáfan
Amadeus er, eins og íslenskir
leikhúsgestir muna af uppfærslu
Þjóðleikhússins með Róbert
Arnfinnssyni sem Salieri og Sig-
urði Sigurjónssyni sem Mozart,
lýsing á sambandi hins villta
snillings og afbrýðissams eldra
tónskálds. Forman, sem nú
starfar í Bandaríkjunum, hefur
áður hlotið Óskarsverðlaunin
einu sinni fyrir leikstjórn sína á
Gaukshreiðrinu, — One Flew
Over the Cuckoo’s Nest. F.
Murray Abraham er á hinn bóg-
inn nýtt nafn í bandarískri
kvikmyndagerð. Hann er 45 ára
leikari sem varið hefur starfsævi
sinni til þessa í sjónvarpsauglýs-
ingum og jaðarleikhúsum í New
York. Við afhendinguna sagði
Abraham: „Það er aðeins eitt
sem ég sakna í kvöld, og það er
að hafa ekki Tom Hulce við hlið
mér,“ og átti þá við mótleikara
sinn í hlutverki Mozarts. Ama-
deus fékk ennfremur verðlaunin
fyrir handritsútfærslu leik-
skáldsins Shaffers á eigin leik-
riti, förðun, hljóð, útlitshönnun
og búningateikningu.
Bóndakonan
Hin geðþekka kvikmyndaleik-
kona Sally Field tók við Óskars-
verðlaununum öðru sinni, nú
fyrir túlkun sína á dugmikilli
ekkju sem lætur ekki hrekja sig
af bóndabýli fjölskyldunnar í
hörmungum kreppunnar í sjálfs-
ævisögulegri kvikmynd leik-
stjórans Roberts Benton, Places
in the Heart. Benton, sem fræg-
astur er fyrir Kramer vs. Kram-
er, hlaut svo verðlaun fyrir besta
frumsamda kvikmyndahandrit-
ið. Field þakkað Benton sérstak-
Amadeusi fagnað — Besta myndin, besta leikstjórnin, besti leikur í karlhlutverki. Þeir höfðu gilda ástæðu til að
vera kampakátir í fyrrakvöld, leikstjórinn Milos Forman (Lv.), leikarinn F. Murray Abraham og framleiðandinn
Saul Zaentz.
Læknirinn sem fékk Óskarsverðlaun — Dr. Haing S. Ngor — brosir stoltur með Óskarsverðlaunastyttuna í
hendinni. Hann tók við henni fyrir besta leik í aukahlutverki karla fyrir túlkun sína á túlkinum Dith Pran í
hinni sannsögulegu kvikmynd The Killing Fields, sem verður páskamynd Háskólabíós. Verðlaunin afhenti
Linda Hunt (Lh.) sem í fyrra hlaut verðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki kvenna.
lega í ávarpi sínu í fyrrakvöld og
sagði: „Þú hefur sannarlega
breytt lífi mínu.“ Sally Field,
sem er 37 ára að aldri, hefur áð-
ur leikið seigar, ungar baráttu-
konur í myndum eins og Absence
of Malice og Norma Rae, sem
hún hlaut fyrri Oscar sinn fyrir
árið 1979. Places in the Heart er
ein þriggja bandarískra kvik-
mynda síðasta árs sem fjalla um
ungar bóndakonur í stríði við
umhverfi sitt, og sú eina sem
fékk Óskarsverðlaun. Hinar
tvær eru Country með Jessica
Lange og The River með Sissy
Spacek.
Kambódíski
læknirinn
Breska kvikmyndin The Kill-
ing Fields hreppti þrenn verð-
laun. Myndin, sem gerð er af
framleiðandanum David Putt-
nam og leikstjóranum Roland
Joffee, er sönn saga um banda-
ríska blaðamanninn Sidney
Schanberg og túlk hans, Dith
Pran, vináttu þeirra og örlög í
ólgu Kambódíustríðsins. Lækn-
irinn Haing S. Ngor, sem aldrei
hefur leikið áður, átti ekki í erf-