Morgunblaðið - 31.03.1985, Side 6
6 B
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1985
Stefánsblóm:
Afskorin blóm og
blómaskreytingar
LIÐIN eru níu ár frá því að Stefán
Hermanns byrjaði með blóma-
verzlun sína Stefánsblóm við Bar-
ónsstíg.
Nú fyrir skömmu tók blóma-
búðin stakkaskiptum er Stefán
lét hanna nýjar innréttingar og
endurbæta húsnæðið.
Stefánsblóm verslar aðallega
með afskorin blóm og leggur
einnig áherzlu á hverskyns
blómaskreytingar. Auk þess er
hægt að fá þar pottablóm og
ýmsa gjafavöru.
Lárus Ingólfsson stærðfræðikennari leiðbeinir Sæmundi Tómassyni og Gunnari Björgvinssyni, nemendum úr 9. bekk
Langholtsskóla, í ritvinnsiu.
Langholtsskóli:
Tölvukennsla í 9. bekk
Morgunblaðið/Bjarni
Stefán Hermanns, eigandi blómabúðarinnar Stefánsblóm, en nýlega var
verzluninni breytt til muna.
Langholtsskóli hefur á undanfornum
þremur árum boðið nemendum 9.
bekkjar tölvufræði sem valgrein.
Kennslan fer fram hjá Tölvuskólanum
Framsýn, en kennari þeirra þar er Lár-
us Ingólfsson, stærðfræðikennari úr
Langholtsskóla.
„Það má segja að við höfum leitað
á náðir einkaframtaksins meö tölvu-
kennslu í Langholtsskóla og höfum
við notið sérstakrar greiðasemi hjá
Framsýn," sapði Lárus. „Nemendur
geta fengið hér fullkomna tölvu-
fræðslu. Þeir kynnast ritvinnslu og
möguleikum hennar, skrárvinnslu og
læra forritun í Basic. Það auðveldar
kennsluna að allt námsefni, sem við
þurfum, fáum við hér. Tölvan ein, án
námsefnis eða skipulags á því sem á
að framkvæma dugir skammt."
Um helmingur nemenda 9. bekkj-
ar hefur að jafnaði tekið tölvufræði
sem valgrein. Námið gerir kröfur til
þeirra og er þeim gerð grein fyrir því
í upphafi að tölvuleikir eru ekki
leyfðir. Þau skila verkefnum yfir
veturinn og taka próf í annarlok.
Nemendur eru þegar farnir að
hagnýta sér ritvinnsluna og vinna
ritgerðir sínar beint á tölvu. Tvö
skólablöð hafa verið unnin í rit-
vinnslu af nemendum og það þriðja
er á leiðinni.
TILBOÐ
AF
SKÁLDUM
HALLDÓR LAXISIESS
AF SKALDUM
eftir Halldór Laxness
Kr. 298,-
Opiö kl. 13—18
BÓKAMARKAÐUR
FÉL. ÍSL.
BÓKAÚTGEFENDA
í VÖRUMARKADNUM EIÐISTORGI