Morgunblaðið - 31.03.1985, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1985
Þær eru
fyrstu konurnar
í lífi okkar
í Ljósmædraskólanum á Landspítalalóöinni
hafa rúmlega 30 Ijósmæður víðs vegar aö af
landinu þingað undanfarna viku. Þær hafa set-
iö þar á endurmenntunarnámskeiði og hlýtt á
fyrirlestra um meðgöngu, fæöingu, sængur-
legu og brjóstagjöf auk þess sem þær hafa
rætt málin innbyrðis. Hin gamla stétt Ijós-
mæðra er nú að deyja út, í dag er stefnt aö því
að Ijósmæður séu jafnframt hjúkrunarfræö-
ingar og hjúkrunarmenntun skilyrði fyrir inn-
göngu í Ljósmæðraskólann. Við litum inn á
námskeiðið og tókum nokkrar þeirra tali.
LJÓSMÆÐUR Á ENDURMENNTUNARNÁMSKEIÐI
GUÐRÚN ERLA
AÐALSTEINSDÓTTIR
BÍLDUDAL
„Þurfum að
styðja konuna
andlega bæði
fyrir og eftir
fæðingua
Guðrún Erla Aðal-
steinsdóttir útskrif-
aðist úr Ljósmæðra-
skólanum 75 og úr
Hjúkrunarskólanum 78. Hún
er Reykvíkingur en hefur unnið
á Bíldudal í fimm ár.
„Ég fylgist með konunum á
meðgöngutímanum og hef sam-
band við lækni ef ástæða er til,
það eru tveir læknar á Patreks-
firði og tekur þá venjulega ekki
nema um þrjátíu mínútur að
keyra á milli. Konurnar fæða
flestar á spítala, annað hvort á
Patreksfirði, ef allt er eðlilegt,
eða í Reykjavík. Ljósmóð-
urstarfið felst þó í fleiru en
taka á móti börnum, ég er með
mæðraeftirlit og tek við konun-
um er þær koma heim, leiðbeini
þeim með brjóstagjöf, eftirlit
með brjóstunum og reyni að
svara ýmsum spurningum sem
upp kunna að koma. Það er ekki
síst andlega hliðin sem getur
verið konunum erfið fyrir og
eftir fæðinguna, það er mikil
breyting fyrir hana að þurfa
skyndilega að vera bundin yfir
nýjum einstaklingi 24 tíma sól-
arhringsins. Þetta er oft mikið
álag og oft erfiðast fyrir þær að
koma mönnum sínum til að
skilja að það er ekki síður
þeirra að taka þátt í þessari
ánægju og erfiði.
Feðurnir hafa þó tekið auk-
inn þátt í umönnun barna
sinna, og það hefur orðið mikil
breyting á síðustu árum, en þó
ekki nægilega mikil. Þeir eru í
auknum mæli viðstaddir fæð-
ingu barna sinna og aukin for-
eldrafræðsla hefur gert það að
verkum að þeir skilja þetta bet-
ur. Konur þurfa oft mikla
hvatningu og fræðslu meðan á
meðgöngutímanum stendur og
eftir fæðinguna, margar hverj-
ar eru t.d. svartsýnar á að þær
geti staðið í brjóstagjöfum, og
hvatning frá öðrum konum ger-
ir þeim því mjög gott.“
— Hefurðu tekið á móti
mörgum börnum á undanförn-
um árum?
„Nei, ekki síðan ég útskrifað-
ist, ég fór fljótlega eftir ljós-
móðurnámið í Hjúkrunarskól-
ann og hef verið mest í heilsu-
gæslu síðan. Ég er þó með öll
nauðsynleg tæki til staðar og
viðbúin því að taka á móti
barni ef aðstæður krefjast
þess.“
FJÓLA
ÞORLEIFSDÓTTIR
SAUÐÁRKRÓKI
Tók í fyrsta
sinn við barni
í sumarbústað
við kertaljós
að eru 30 ár síðan ég
tók við fyrsta barninu
í Skagafirði." Fjóla
Þorleifsdóttir er Hún-
vetningur, en hefur búið á
Sauðárkróki í 32 ár. „Ég var
fyrst með einn hrepp, en nú er-
um við þrjár sjúkrahúsljós-
mæður með allan Skagafjörð
nema Fljótin, þau tilheyra
Siglufirði.
Á spítalanum fæðast milli 70
og 80 börn á ári, ég held þau
hafi verið 78 á síðasta ári, flest
hafa fæðst rúmlega hundrað á
ári, en fæðingum hefur fækkað
eitthvað að undanförnu."
— Er eitthvað til í því að
fæðingar séu flestar í kringum
fullt tungl?
„Já, það er alveg áreiðanlegt.
Það koma tímar þegar ekkert
er að gera hjá okkur, en um leið
og tungl verður fullt gjörbreyt-
ist þetta.“
— Hvernig er aðstaðan hjá
ykkur á Sauðárkróki?
„Við erum með góða aðstöðu,
erum með sónartæki og að öðru
leyti vel búin tækjum, og þar að
auki með ágæta lækna!“
— Hvaða fæðing er þér
minnisstæðust?
„Það er fyrsta barnið sem ég
tók á móti eftir að ég lauk
námi. Ég bjó þá í sumarbústað
á Vatnsenda ásamt vinkonu
minni og mönnum okkar. Við
vorum húsnæðislaus og bjugg-
um þarna í smá tíma meðan við
biðum eftir íbúð i Reykjavík.
Við áttum báðar von á barni, ég
átti eftir tvo mánuði og hún
eitthvað minna. Kvöld nokkurt
kom maður vinkonu minnar inn
til mín og sagði konu sína vera
orðna veika. Og meðan læknir-
inn var sóttur fæddi hún barn-
ið, ég tók á móti við kertaljós
og afar frumstæðar aðstæður.
Þetta var myndarlegur 17
marka sonur, og ég náði í
bendlaband úr sængurveri til
að binda um naflastrenginn.
Eftir á var þetta spennandi,
þar sem allt gekk svona vel, en
þetta er ógleymanleg reynsla."
ELÍN
STEFÁNSDÓTTIR
MIÐFELLI
í HRUNAMANNAHREPPI
Alltaf verið
í fullu starfi
og stundað
bústörf með
Fyrstu fimmtán árin tók ég
á móti öllum börnum sem
fæddust í Hrunamanna-
hreppi." Elín Stefánsdótt-
ir frá Miðfelli í Hrunamanna-
hreppi hefur verið ljósmóðir þar í
30 ár.
„Kom fyrst uppeftir sem um-
dæmisljósmóðir, hef alltaf verið í
fullu starfi og stundað bústörf með,
er bóndakona. Fyrstu árin tók ég á
móti öllum börnunum heima, en
þróunin hefur orðið sú að heima-
fæðingum hefur fækkað. Nú fara
flestar konur frá mér á Selfoss,
þeim er fylgt, stundum hef ég verið
viðstödd fæðingarnar og einstaka
sinnum tekið á móti, svona að
gamni mínu. Nú er ég í hálfu starfi
á heilsugæslustöð í Laugarási í
Biskupstungum, en þar starfa auk
min tveir læknar og hjúkrunar-
fræðingur. Ég er með mæðraskoð-
un einu sinni i viku og við erum
saman með ungbarnaeftirlit.
Þetta hefur breyst mikið eftir að
heimafæðingar lögðust niður. Áður
komu konurnar til mín einu sinni
til tvisvar á meðgöngutímanum,
sumar kölluðu þó ekki á mig fyrr
en rétt áður en þær fæddu. Kon-
urnar höfðu ekki alltaf húshjálp
svo ég reyndi að hjálpa til eftir
megni og taka til höndunum, var
venjulega hjá þeim í þrjá sólar-
hringa eftir að þær fæddu. Það var
V/Ð ULKYZVMM BRKYTTÆ VEXTI Á
TXJSLElXmJM CiJÆ TDE VRISREIKNUXG UM
BANDARÍKJADOLLAR........... 8,00%
ENSK PUND..................12,00%
DANSKAR KRÓNUR.............10,00%
ÞÝSK MÖRK.................. 5,00%
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI