Morgunblaðið - 31.03.1985, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.03.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1985 B 47 Háskólabíó: Blóðvöllurínn Þessa dagana er Háskólabíó aó taka til sýninga eina af þeim kvikmyndum sem hlutu flest Óskarsverólaun. Myndin nefnist „Blóóvöllurinn" (The Killing Fields) en hún hreppti þrenn verðlaun. Blóóvöllurinn er sannsöguleg kvikmynd. Þegar her- deildir Rauöu khmeranna réóust meö blóöugu offorsi inn í Kambódíu árið 1975 og myrtu flesta sem fyrir voru, var þar starfandi fréttamaöur á vegum bandaríska stór- blaðsins The New York Times, Sydney Scanberg að nafní. Hann hafði starfaö í Phonom Penh í nokkur ár, en fréttir hans vöktu æ meiri athygli t vesturheimi eftir því sem blóðbaöið í Kambódíu varð skelfilegra. En á bak viö sérhverja frétt var sama sem hinir vestrænu lesend- ur fengu ekki að vita um. Scanberg haföi kynnst kambódískum lækni, sem heitir Dith Pran, og með þeim tókst djúp vinátta. Pran veitti honum mikilvægar upp- lýsingar um gang stríðsins og eðli þess; bjargaöi raunar lífi blaöamannsins daginn sem Khmerarnir réöust inn í landið. Haing Ngor leikur Dith Pran, sem kynnist bandaríska fréttamanninum Scanberg. Þeir sem lánuöu Puttnam fé vildu fá Sidney Lumet til aö stjórna myndinni og Dustin Hoffman í hlut- verk fréttamannsins. En Puttnam haföi annaö í huga: hann vildi aö leikarnir væru því sem næst óþekktir, þ.e.a.s. sannfærandi. Puttnam er manna duglegastur viö aö uppgötva hæfileikafólk: Hugh Hudson var nýgræöingur þegar hann byrjaöi á Eldvögnunum, og Roland Joffé haföi aldrei gert mynd í fullri lengd þegar Puttnam réö hann til aö stjórna Blóövellin- um. i samtali viö breska tímaritiö Stills agöi Joffé aö hann hafi mikiö velt vöngum yfir hvernig enda ætti myndina: „Ég enda hana á hlut- lausan hátt, því eftir aö ég byrjaði aö gera myndir sem fjalla um póli- tisk efni hef ég átaö mig á aö ekki þarf aö segja allt, þaö er nóg aö myndir snerti fólk og vekji þaö til umhugsunar." Scanberg leikur breski leikarinn Sam Waterston, sem var útnefnd- ur til Óskarsverölauna. Waterston er sennilega þekktastur fyrir túlkun sína á sögumanninum í „The Great Gatsby". Einna mesta athygli hefur Haing Ngor vakiö, en hann leikur Dith Pran. Ngor varö fyrir svipaöri reynslu og Pran, hann lenti í blóð- ugum höndum khmeranna og fjöl- skyldu hans var slátraö. Hann flýöi og starfaöi sem læknir í Bandaríkj- unum um þaö leyti sem Puttnam leitaö logandi Ijósi aö manni sem passaði í hlutverkiö. Þaö var ekki fyrr en myndir af Ngor birtust í heimspressunni aö hann komst aö því aö ein frænka hans haföi lifaö blóöbaöiö af. „Þetta var ótrúlegt," sagöi Ngor viö verölaunaafhend- inguna sl. mánudagskvöld, „en þannig hefur líf mitt verið." Hann þakkaöi Puttnam fyrir aö vekja at- hygi á þjáningum þjóöar sinnar. Ngor starfar sem ráögjafi fyrir kambódiska flóttamenn í Los Ang- eles, þar sem hann stundar jafn- framt háskólanám til aö öölast læknisréttindi. HJÓ Sam Waterston leikur Scanberg, sem varð vitni aö hinni blóði drifnu byltingu Rauðu Khmeranna í Kambódíu 1975. Leiöir Scanbergs og Pran skildu þegar vestrænir fréttamenn voru reknir úr landi; engir áttu aö vera til frásagnar um blóöi drifna bylt- ingu khmeranna. En eftir nokkurra ára harmleik Pran og kambódísku þjóöarinnar, komst kvikmynda- framleiöandinn David Puttnam á snoöir um þessa óvenjuiegu sögu um vináttu. Puttnam haföi ætíö langaö til aö gera damatiska kvikmynd í ætt viö Hjartarbanann. En þaö tók hann tíma aö sannfæra Scanberg um réttmæti myndarinn- ar. Samkomulag tókst daginn sem tökur á „Chariots of Fire" hófust. Það eru erfiöir tímar hjá maraþonfjölskyldu Sijans. dáun sem fordæmingu. Síöari mynd Sijan sem sýnd veröur á kvikmyndahátíö er „Hvernig ég var kerfisbundiö lagö- ur í rúst af fíflum" frá 1983. Myndin fjallar á satírískan hátt um frelsiö og byltinguna og þann sem veröur étinn af hvoru tveggja. Babi sem er flækingur á götum Belgraö veröur svo snortinn viö fráfall Che Guvera aö hann ákveður aö feta í fótspor hans í sínum eigin heimi. Einka- bylting hans á sér samsvörun i stúdentaóeiröum 1968 og þeim hugmyndum sem fylgdu i kjölfariö. Þessi mynd Sijan er uppgjör hans viö eigin kynslóö, og drauminn um betri heim meö blóm í haga. Frá- sögnin er eins og í Maraþonfjöl- skyldunni oft á mörkum þess fáránlega, „en lífiö er fáránlegra en skáldskapur" hefur Sijan sagt eins og fleiri. Sijan er einn fárra leik- stjóra frá Austur-Evrópu sem náö hefur aö skapa sér sterkan per- sónulegan stíl og sigla í gegnum flestar torfærur ritskoöunar. Hér er á feröinni nýr leikstjóri sem ætti aö vera forvitnilegur fyrir þá sem hafa áhuga á því mark- veröasta og frumlegasta sem er aö gerast á sviöi nýsköpunar í kvik- myndagerð í landi sem viö sjáum annars svo til aldrei myndir frá. Bíóhöllin: — framhald hinnar sígildu geimvís- indamyndar Kubricks 1968 var ekki aðeins ér vorsins í Prag heldur einnig fæöingarér geimvísindaskáldskaparins: þaö var þegar „2001“: A Space Odyssey“ var gerð. Stanley Kub- rick gerði myndina eftir handriti Arthurs C. Clarke, en hann samdi síðan framhald sem Peter Hyams hefur kvikmyndaö. Myndin nefn- ist einfaldlega „2010“ og verður hún frumsýnd í Bíóhöllinni é allra næstu dögum. Áöur en lengra er haldiö skal strax sleginn varnagli: „2010“ er ekki eiginlegt framhald af „2001“. Astæöan er bæöi listræn og fjár- hagsleg. Clarke, sem samdi bæöi handritin, segir myndina óbeint framhald, þ.e. sjálfstæöa mynd. Þar aö auki vill leikstjórinn, Hyams, ekki fyrir nokkurn mun láta bera sig saman við Kubrick: „Engum heilvita manni dettur i hug aö herma eftir Kubrick. Viö reynum í mesta lagi aö stela elnstökum hugmyndum frá honum." Þessi feimni er líka komin til vegna könnunar sem framkvæmd var í Bandaríkjunum: meirihluti þátttakenda lýsti andúö sinni á mynd Kubricks; fólki þótti hún leiö- inleg og annaó í þeim dúr. Clarke segii: „2001“ var einstök þvi hún kom á réttum tíma. Hún var fyrsta kvikmynd sinnar tegundar og þaö er ekki hægt aö endurskapa slíkar kringumstæður. Þaö hefur svo margt breyst á himni og jörö síöan ’68. í „2001“ uröum viö aö fræöa áhorfendur svo þeir tækju myndina alvarlega. En nú hafa áhorfendur kynnst öllum geimbún- aöinum í raunveruleikanum svo aö í „2010“ einbeitum viö okkur aö per- sónum og stjórnmálum. Söguþráðinn þekkja flestir; hann snýst um hina rafmögnuöu spennu milli tveggja stórvelda hér á jöröu. hverra annarra en Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Bandarískir og sov- éskir geimvísindamenn fara saman út í geiminn til aö kanna hvaö varö af Discovery-farinu, tölvunni HAL Roy Scheider leikur eitt aðalhlut- verkið ( „2010“, sem er óeiginlegt framhald af víðfrægri mynd Stan- leys Kubrick, „2001: A Space Odysaey". 9000 og geimfarann Bowman, sem var aðalpersónan í mynd Kubricks. „2010“ er mikið tækniundur elns og flestar geimvísindamyndir. Þaö var Richard Edlund sem sá um tæknibrellurnar; hann er sérfræö- ingur á þvi sviði, sá um tæknibrell- urnar í stjörnustríösmyndum og Ghostbuster. Leikarahópurinn er æöi skraut- legur, en hann samanstendur af bandarískum og sovéskum leikur- um. Hinir bandarisku er öllu þekkt- ari, en meðal þeirra má nefna Roy Scheider, sem hér á landi sást síö- ast i Bláu þrumunni, John Lithgow, lék í Terms of Endaerment, og breska leikkonan Helen Mirran. Meöal hinna sovésku leikara má nefna Elya Baskin, en hann lék stórt hlutverk i Moscow on the Hudson. Hann er reyndar nýlega oröinn bandarískur ríkisborgari, en hann flúöi heimaland sitt fyrir nokkrum árum. Arthur Clarke, oft kallaöur hinn andlegi leiötogi geimaldarinnar, hélt því alltaf fram aö þaö væri gersam- lega ómögulegt aö gera framhaldiö af „2001: A Space Odyssey". En þegar tiu ár voru liðin frá gerö myndarinnar var Clarke þegar far- inn aö huga aö framhaldi, sem kom út i bókarformi nokkrum árum síöar. Þá hélt Clarke þvi fram aö meira aö segja Kubrick gæti ekki gert mynd eftir þeirri bók. Enn einu sinni hefur Clarke þurft aö éta ofani sig og hver veit nema þaö tengist endalausri leit hans aö endimörkum alheimsins. HJÓ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.