Morgunblaðið - 31.03.1985, Page 24
24 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1985
Fundur hestamanna og Skógræktarfélags Reykjavfkur:
Hestamenn þurfa að bæta
umgengnina í Heiðmörk
Morgunblaðið/Bjarni
Hestamenn í útreiðartúr í Heiðmörk. Langflestir virða umgengnisreglur Heið-
merkur, en þeir sem ekki gera það koma óorði á alla hestamenn.
Á næstu vikum, þegar frost fer úr
jörðu, má búast við að gróður taki
strax að lifna. Jörðin verður blaut og
gljúp og þess vegna er hætta á að
gróður skemmist verði hann fyrir
átroðningi.
Það er einmitt á þessum árstíma,
sem reiðhestar eru margir hverjir
komnir í ágæta þjálfun og þá huga
hestamenn að því að fara í lengri
ferðir á hestum sínum.
Ásókn hestamanna í Heiðmörk
er skiljanieg, enda uppfyllir hún
öll skilyrði um fallegar og góðar
reiðleiðir. Einnig eru hesthúsa-
byggðir á Reykjavíkursvæðinu
þannig í sveit settar, að það hent-
ar vel að skreppa í lengri eða
skemmri reiðtúra um Heiðmörk-
ina.
Því miður hefur umgengni
hestamanna ekki verið nógu góð á
þessu svæði og til að ræða þessi
mál efndu fulltrúar hestamanna-
félaganna á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu ásamt fulltrúa Skógrækt-
arfélags Reykjavíkur til fundar í
síðustu viku.
Það voru þeir ólafur G.E. Sæ-
mundsen skógræktarfræðingur
frá Skógræktarfélagi Reykjavík-
ur, örn Ingólfsson framkvæmda-
stjóri Fáks, ólafur Schram full-
trúi Andvara og Guðmundur Jóns-
son framkvæmdastjóri Gusts sem
sátu fundinn.
Á fundinum kom fram sam-
staða um að brýna þyrfti fyrir
hestamönnum að ganga vel um
Heiðmörk. Yfirleitt væri þarna
um örfáa einstaklinga að ræða,
sem ekki virtu umgengnisreglurn-
ar. Þetta kæmi síðan niður á öll-
um hestamönnum.
ólafur G.E. Sæmundsen sagði
að það væri í raun og veru aðeins
fyrst á vorin, sem gróður væri
mjög viðkvæmur. Þegar líða tekur
á vorið og þorna fer um, væri allt í
lagi að fara um á hestum svo
framarlega sem trjágróður fengi
að vera í friði.
Víða í Heiðmörkinni eru vegir
lagðir yfir móhellu, sem verður
eitt svað þegar frost er að fara úr
jörðu. Þessir vegir eru lokaðir með
slám, þar til óhætt er talið að
opna þá fyrir umferð hesta og
bíla. Einhverjir hestamenn hafa
ekki tekið tillit til þessara lokanna
og farið framhjá slánum og þar
hefur myndast moldarsvað.
Ólafur G.E. Sæmundsen sagði
að einnig hefði borið á því að
hestamenn færu inn á svokallað
Jaðarsvæði. Þar eru þeir komnir
inn á bannsvæði, því þarna eru
vatnsból Reykjavíkur. Þetta er að
vonum mikið áhyggjuefni því mik-
il hætta er á að vatn mengist við
þessa umferð. Einnig hefur á und-
anförnum árum aukist umferð
austan við Myllulækjartjörn, en
þar er um sömu mengunarhættu
að ræða.
Þegar líða tekur fram á vor og
þorna fer um, kemur annað alvar-
legt vandamál upp í Heiðmörk.
Það er hættan á sinueldum. ólaf-
ur lagði ríka áherslu á að hesta-
menn gættu mjög vel að því að
skilja ekki eftir logandi eldspýtur
eða vindlinga.
Heiðmerkursvæðið er ákaflega
fallegt og vinsælt útivistarsvæði
og sagði Ölafur að það væri eðli-
legt að þeir sem stunduðu útivist
sæktu í það. Hann sagði að hesta-
menn yrðu að gera sér grein fyrir
því að ef hestar færu yfir gróður-
lendi á þessum viðkvæmasta tima,
væri mikil hætta á skemmdum
bæði á grasi og trjágróðri Hann
sagði að því miður yrði að útiloka
hestamenn frá svæðinu ef um-
gengni þeirra batnaði ekki.
Við allar inngönguleiðir í
Heiðmörk eru eftirfarandi um-
gengnisreglur, svo auðvelt ætti að
vera fyrir fólk að kynna sér þær.
Þar segir: Um leið og Skógræktar-
félag Reykjavíkur býður alla vel-
komna til Heiðmerkur er þess ósk-
að að eftirfarandi reglur verði
hafðar að leiðarljósi:
1. Sýnið tillitsemi í umferð. Ak-
ið ekki utan vega.
2. Hlífið trjá- og blómgróðri.
3. Kveikið ekki eld.
4. Klifrið ekki yfir girðingar.
Notið heldur stigana (prílurnar).
5. Notið ruslatunnurnar.
6. óheimilt er að tjalda án leyf-
is.
7. öll notkun skotvopna er
bönnuð og allar veiðar á dýrum
eru óheimilar.
8. Hestamenn skulu sýna öllum
gróðri tillitssemi. Sleppið ekki
hestum lausum.
9. Á tímabilinu 1. apríl til 1.
september er óheimilt að sleppa
hundum lausum á svæðinu af til-
litssemi við fólk og fuglalíf.
10. Umferð vélsleða og vélknú-
inna torfærutækja er óheimil.
11. Skemmið ekki sérstæðar
jarðmyndanir eða aðrar minjar og
hlaðið ekki vörður að óþörfu.
12. Spillið ekki vatni.
Forsvarsmenn hestamannafé-
laganna töldu brýnt að leggja
áherslu á betri umgengni hesta-
manna í Heiðmörk. Þeir voru
sammála um að það væri mjög
alvarlegt mál ef hestamenn yrðu
útilokaðir frá svæðinu. Þeir töldu
einnig brýnt að bætt yrði úr að-
stöðu fyrir hestamenn á svæðinu,
m.a. með lagningu varanlegra
reiðvega. Ef til vill mætti einnig
setja upp gerði á nokkrum stöðum,
svo engin hætta væri á að gróður
yrði eyðilagður á áningarstöðum.
Fundarmenn lýstu yfir áhuga á
samstarfi hestamannafélaganna
og Skógræktarfélagsins um að
bæta aðstöðu hestamanna og um-
gengni þeirra í Heiðmörk.
Þessi vatnsveitustokkur var geröur fyrir nokkrum árum. Eins og sjá má á
myndinni er ágætis reióvegur við hliöina á honum. Samt sem áöur er greinilegt
að einhverjir hestamenn hafa ekki getað látið það vera að fara ríðandi eftir
stokknum.
Myndimar tala
sínu máli
KARNABÆR
P Austurstræti 22, Laugavegi 30, Laugavegi 66,
t-A „isíntiLmrAi AKann
Giæsibæ.
Sími frá skiptiborði 45800.