Morgunblaðið - 31.03.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1985
B 25
Ljóðræna hvers-
dagsleikans
Leiklist
Jóhann hjálmarsson
Þjóóleikhúsið:
VALBORG OG BEKKURINN
eftir Finn Methling.
Þýðing: Þrándur Thoroddsen.
Leikmynd: Stígur Steinþórsson.
Leikstjóri: Borgar Garðarsson.
Guðrún Þ. Stephensen hefur
þá góðu eiginleika leikara að
geta tjáð sig án mikils hávaða og
bægslagangs. Með hljóðlátri og
innilegri túlkun nær hún langt.
Hlutverk Valborgar í Valborg og
bekkurinn er líkt og búið til fyrir
hana. Finn Methling er leikrita-
höfundur sem gæðir hversdags-
leikann áleitinni ljóðrænu. Guð-
rún Þ. Stephensen kemur ljóð-
rænu hans til skila og nýtur sín
líka vel í söng.
Valborg og bekkurinn getur
ekki talist veigamikið verk. Það
er ósköp venjulegt og látlaust.
En hefur sína kosti.
Gömul ekkja talar við bekk,
segir honum frá ævi sinni, gleði
og sorg. Hún tjáir bekknum að
hún vilji lifa sínu lífi áfram
þrátt fyrir aldurinn, ekki hætta
að vera manneskja. í tali hennar
er m.a. samfélagsgagnrýni,
nokkur ádeila á valdhafa sem
koma ekki nægilega vel til móts
við hina gömlu, líta á þá sem
afgreidda.
Bekkurinn tekur á sig ýmis
gervi og er að öllu leyti mjög
atkvæðamikill bekkur.
Gáskafullur leikur Karls Ág-
ústs Úlfssonar sem leikur bekk-
inn var á köflum í töluverðu
mótvægi við hófsama túlkun
Guðrúnar Þ. Stephensen. Karl
Ágúst var að mínum dómi einum
of ákaflyndur í túlkun sinni því
að ljóst var að Borgar Garðars-
son leikstjóri vildi halda öllu
innan hóflegra marka og tókst
það reyndar ágætlega.
Sigurður Alfonsson harmon-
ikkuleikari var á sínum stað og
laðaði fram í senn angurværa og
hressandi tóna. Reynir Jónasson
mun einnig sjá um harmonikku-
leikinn.
Þrándur Thoroddsen er þýð-
andi sem vekur jafnan athygli
fyrir verk sín. Frægastur er
hann fyrir þýðingu sína á texta
Prúðu leikaranna í sjónvarpi.
Þrándur er hinn mesti grallari í
þýðingum sínum, orðhagur og
fundvís á óvenjuleg orð og orða-
tiltæki. Þýðing hans á Valborgu
og bekknum er í anda verksins,
en gæðir textann lit.
Mjög dönsk var leikmynd
Stígs Steinþórssonar, laglegt
verk sem bendir til þess að hér
sé efnilegur maður á ferð.
Það má semsagt hafa af því
gaman að ganga á fund Valborg-
ar hinnar dönsku þótt hér sé lít-
ið um leikræn átök og allra síst
þann nýstárleika sem maður
hélt að myndi einkenna Litla
sviðið.
Boðið var upp á góðan mat að
dönskum hætti fyrir sýningu.
Guðrún Þ. Stephensen og Karl Ágúst Úlfason (hhitverkum sínum.
Ný verzlun í
GrindtTfk.
NÝLEGA var opnuð verslunin Paloma
í Grindavík. Verslunin er í nýrri veral-
unarmiðstöð við Víkurbraut 62.
Eigendur verslunarinnar eru Erla
B. Dalberts og Svava Gunnlaugsdóttir
úr Grindavík.
Grindavík
Þær munu hafa fjölbreytt úrval
tískufatnaðar á boðstólum, álna-
vöru, prjónagarn, smávörur og
spariskó á alla fjölskylduna. Nú
þurfa Grindvíkingar ekki að sækja
spariskó til annarra byggðarlaga.
— Guðfinnur
V orlitir
meo
hækkandl sól
KARNABÆR
BARNA- OG UNGLINGADEILD — AUSTURSTRÆTI22.
Simi frá skiptiboröi 45800.