Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 1
B/C/D
128 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
79. tbl. 72. árg.____________________________________FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Æ'
Irakar
fá 60 her-
þotur frá
Frökkum
London, 3. apríl. AP.
ÍRAKAR eru í þann mund að und-
irrita samning við Frakka um
kaup á 60 hljóðfráum herþotum af
gerðinni Mirage-2000. Skýrði
brezka herfræðitímaritið Jane’s
Defense Weekly frá þessu í dag.
Blaðið tilgreinir ekki heimildirnar
fyrir frétt sinni, en skýrir frá því,
að Frakkar hyggist einnig selja
írökum exocet-eldflaugar auk las-
erstýrðra loftvarnaeldflauga.
Talið er víst, að með þessum
nýju flugvélum og vopnum fái ír-
akar enn meiri yfirburði í lofti
gagnvart frönum í styrjöld þjóð-
anna, sem nú hefur staðið í 4Vé
ár. Á síðasta ári fengu írakar 100
MIG-herþotur frá Sovétríkjun-
um. Ræður flugher þeirra nú yfir
600 flugvélum og hefur hann sýnt
verulega yfirburði gagnvart
flugher írana að undanförnu, en
þeir síðarnefndu ráða aðeins yfir
120 flugvélum. Hefur flugher
þeirra orðið fyrir miklum
skakkaföllum að undanförnu og
þar að auki er talið, að skortur á
varahlutum hái honum mjög.
17. aldar
málverk
á 110
milljónir
London, 3. aprfl. AP.
í DAG seldist á uppboði hjá
Sotheby’s í London málverk eft-
jr ítalska 17. aldar málarann Gu-
ido Reni og var söluverðið 2,2
milljónir punda (um 110 milljón-
ir ísl. kr.). Eigandi málverksins
hafði staðið í þeirri trú, að
myndin væri eftirlíking.
Talsmaður Sotheby’s kvað
þetta metverð fyrir verk eftir
Reni. Hvorki kaupandi né selj-
andi vildi láta nafns síns getið.
Málverkið, sem heitir „Dav-
íð með höfuð Golíats", er svip-
að því sem hangir í Louvre-
safninu í París, að sögn John
Somerville hjá Sotheby’s. Tal-
ið er, að Reni hafi málað
myndina á árinu 1620, u.þ.b. 15
árum á eftir Louvre-myndinni.
Þá seldist 18. aldar brjóst-
mynd í dag á uppboði hjá
Christie’s á 518.400 pund (um
25 millj. ísl. kr.).
Brjóstmynd þessi, sem er af
fjórða jarlinum af Chester-
field, er gerð af Louis Francois
Roubiliac árið 1745. Að sögn
talsmanns Christie’s er þetta
dýrasta höggmynd, sem seld
hefur verið á uppboði í Eng-
landi.
Roubiliac var franskur húg-
enotti og kom til Englands
1735.
Ferming í Dómkirkjunni.
MorKunblaðið/Ólafur K. Magnúsaon.
Grikkland:
Þing-
kosn-
ingar í
sumar
Aþenu, 3.aprfl. AP.
ANDREAS Papandrou forsætis-
ráðherra hefur ákveðið að boða til
nýrra kosninga nokkrum mánuð-
um áöur en fjögurra ára kjörtíma-
bil sósíalistastjórnar hans rennur
út, að sögn talsmanns stjórnarinn-
ar í dag.
Hann sagði að Papandreou
mundi ganga á morgun á fund
nýkjörins forseta, Kristosar
Sartzetakis, og biðja hann að
rjúfa þing, fljótlega eftir að það
hefði samþykkt fyrirhugaðar
breytingar á stjórnarskránni.
Að sögn embættismanna verð-
ur kosið í júní eða júlí.
Þingið greiðir atkvæði um
stjórnarskrárbreytingarnar í
næstu viku og þær verða að fá
samþykki beggja þingdeilda.
Kosningar má halda einum mán-
uði eftir að þing hefur verið rof-
ið.
Talsmaðurinn sagði að sjálf-
heldan í Kýpurdeilunni væri ein
af ástæðunum fyrir þvi að geng-
ið yrði til kosninga. Bollalegg-
ingar hafa verið uppi um nýjar
kosningar síðan Konstantín
Karamanlis forseti sagði af sér í
síðasta mánuði og jukust við
umdeilda kosningu Sartzetakis-
ar, eftirmanns hans, í síðustu
viku.
Á Kýpur er Spyros Kyprianou
forseti gagnrýndur fyrir að
hafna tillögum SÞ um friðsam-
lega lausn deilumálanna á eynni.
Þingið vítti Kyprianou fyrir
það hvernig hann hélt á málum í
viðræðum við Rauf Denktash,
leiðtoga tyrkneska minnihlut-*
ans, í New York í janúar.
Dregur úr verkfallsað-
gerðum í Danmörku
Kyrrð verður komin á innan skamms, segir Poul Schliiter
Kaupmannaböfn, 3. aprfl. AP.
MJÓG dró úr verkfallsaðgerðum í Danmörku í dag og sneru þúsundir
verkamanna aftur til vinnu. Poul Schliiter forsætisráðherra spáði því, að
„kyrrð yrði komin á í landinu innan skamms”. Háværar raddir voru samt
uppi um nýjar og harðari aðgerðir að loknu páskaleyfi og lýstu forystumenn
nokkurra verkalýðsfélaga því yfir, að efnt yrði aftur til verkfalla 10. aprfl.
Þrátt fyrir minnkandi verkföll
fór því fjarri, að innanlands-
ástand í Danmörku væri komið í
eðlilegt horf í dag. Þannig voru
miklar truflanir á sölu bensíns og
olíu á Sjálandi. Umferð á Kast-
rup-flugvelli var þó mjög tekin að
aukast á ný, enda þótt flugvélar
gætu enn ekki tekið eldsneyti þar.
Áframhaldandi verkfall 700 fram-
reiðslumanna hjá SAS olli því
ennfremur, að farþegar með vél-
um félagsins fengu hvorki vott né
þurrt um borð.
Nokkrar truflanir voru enn á
ferðum strætisvagna í dag, en
vonir stóðu til, að þær yrðu nokk-
urn veginn með eðlilegu móti á
morgun, fimmtudag. Hins vegar
voru litlar líkur á því, að áætlun-
arferðir með ferjunum yfir dönsku
sundin kæmust fljótt í lag. Var því
gert ráð fyrir verulegum truflun-
um á ferðum þeirra, sem hyggjast'
fara milli dönsku eyjanna í páska-
leyfinu.
Dagskrá danska útvarpsins var
með eðlilegum hætti, bæði í hljóð-
varpi og sjónvarpi. Þar kom það
hins vegar fram í fréttum, að
„neyðarástand" ríkti enn í mörg-
um sjúkrahúsum vegna verkfall-
anna, en starfsemi dagvistarstofn-
ana og annarra slíkra stofnanna
væri komin í venjulegt horf.