Morgunblaðið - 04.04.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.04.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985 Ljóðið Hversu snautlegt væri lífið ekki án ljóðsins eða gætuð þið hugsað ykkur Austurstræti án Tómasar eða Þingvelli án Jónas- ar? Með alls óvæntum hætti bár- ust vorvindar ljóðlistarinnar inní sjónvarpsdagskrána á þriðjudag- inn, og þokuðu um stund burt grámósku hversdagsins. í fyrsta lagi birtist ljóðið í texta nýs bresks teiknimyndaflokks fyrir börn er nefnist: Hugi frendi á ferö, en sá ágæti íslenskumaður Guðni Kolbeinsson snarar þeim texta og flytur af miklum þrótti. Gæti ég ímyndað mér að þannig hafi kveðskaparhefðin flust milli kynslóðanna, við undirspil spuna- rokka og í hálfrökkri olíulamp- anna þar sem hugarflugið magn- aðist og flutti menn fjarri stað og stund. I dag er baðstofan bððuð í rafurljósum og sagnaþulurinn hefir aðsetur inní litlum kassa er sjónvarp nefnist, en söm er þörf barnsins að stæla hugann við rímnaleiki. Síðar um kveldið: Síðar um kveldið mætti svo í baðstofuna okkar maður þeirrar kynslóðar er hefir stælt aflvél sál- arinnar við kveðskap, nefndist sá Eyjólfur R. Eyjólfsson á Hvammstanga en hann var sóttur heim af Ingva Hrafni Jónssyni í þættinum: Heilsað uppá fólk. Eyj- ólfur gerði sér lítið fyrir og kast- aði fram stöku um fund þeirra Ingva Hrafns, og sjaldan hef ég hlýtt á jafn áreynslulausan og eðlilegan flutning kveðskapar og hjá Eyjólfi. Það var rétt eins og hann væri að spjalla um veðrið, er hann gekk til móts við skáldagyðj- una, frammi fyrir alþjóð, en um þann fund dæmi ég eigi nánar. Ljóðið sækir fram: Já, það er ekki annað að sjá en ljóðið sæki fram í þjóðlífi voru þessa dagana, þannig birtist sú gleðifrétt á miðopnu Morgun- blaðsins í gær, að hér hefði verið stofnaður á vegum Almenna bók- afélagsins sérstakur Ljóðaklúbb- ur. Slíkt hlýtur að teljast fagnað- arefni öllum þeim er vilja rækta málsmekk sinn, fegurðarskyn og tilfinningalíf. Persónulega finnst mér einna áhugaverðast að skoða ljóðið út frá myndlistarlegu sjón- arhorni en þvf miður hefir ekki gefist nægilegt tóm til slíks að undanförnu vegna brauðstritsins og blessaðrar lánskjaravísi- tölunnar, en hver veit nema ein- hvern tímann birti til og nýr hólmgöngustaður ljóðs og myndar markist á hugarreitnum? Akademía: Og ekki er séð fyrir endann á andlegri upplyftingu þjóðarsálar- innar. Menntamálaráðherra hefir lagt fram frumvarp um Myndlist- arháskóla íslands. Þannig sækja ekki bara raungreinaforkólfarnir á brattan þessa dagana, heldur og hinir er unna ljóðlist og myndlist. Ég vil beina þeirri hugmynd til menntamálaráðherra að hún beiti sér fyrir því að hér verði stofnuð Ljóðlistarakademía, þar sem ljóðskáld og hagyrðingar geta mæst hvaðanæva úr heiminum. Eða væri kannski nær að varpa þessari hugmynd til þeirra er sitja í Norðurlandaráði? Við skulum gá að því að slík Akademía gæti með tíð og tíma orðið athvarf þeirra er berjast fyrir prentfrelsi og frjálsri hugsun, og þannig unnið mark- visst gegn einræðisöflum þessa heims. Hún gæti orðið einskonar lýsandi kyndill í myrkri kúgunar og andlegrar valdníðslu, og þannig brúað bilið milli austurs og vest- urs. En sú mikla gjá verður víst seint brúuð af stjómmálamönnun- um, er virðast raunar sumir hverj- ir vaxa að afli við reiptogið mikla. ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S JÓN VARP Hví ekki kímni f Nýja testamentinu? ■ „Hví ekki kímni 20 > Nýja testa- mentinu?" nefnist þáttur sem er á dagskrá útvarps í dag, skírdag, í umsjá dr. Jak- obs Jónssonar. í þættin- um flytur hann erindi sem er að stofni til byggt á eft- irmála dr. Jakobs við aðra útgáfu doktorsritgerðar hans sem er að koma út í Hollandi. Dr. Jakob sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann hefði orðið var við það að margir furðuðu sig á því að talað væri um kímni í sambandi við helgirit. I þessu erindi hans í dag ætlar hann því að svara sumum þeim at- hugasemdum sem fram hafa komið. Sagði dr. Jakob að það væri vitað mál að ekki væri allt í Nýja testa- mentinu frá sama tíma. Kvaðst hann álíta að þeir kaflar þar sem finna mætti dæmigerðan „gyð- ingalegan húmor" hlyti að tilheyra elstu gerð Nýja testamentisins. „Þriðji maðurinn“ er Rolf Johansen ■i Þátturinn 00 Þriðji maður- ““ inn er á dagskrá rásar 2 í kvöld og hefst hann kl. 21.00. Stjórnendur eru þeir Ing- ólfur Margeirsson og Árni Þórarinsson. Gestur þáttarins, eða þriðji maðurinn, að þessu sinni er Rolf Johansen stórkaupmaður. Dr. Jakob Jónsson Tónlistarkrossgáta rásar 2 Hér birtist Tónlistar- krossgáta risar 2, númer 23. Til stóð að engin dagskrá yrði á rás 2 á páskadag en nú hefur verið ákveðið að útvarpa sem á venjulegum sunnudegi. Þáttur Jóns Gröndal er því á dagskránni sunnu- daginn 7. apríl, páskadag, kl. 15. Hlustendum er gef- inn kostur á að svara ein- földum spurningum um tónlist og tónlistarmenn og ráða krossgátu um leið. Lausnir sendist til Kíkisút- varpsins, rásar 2, Kfstaleiti 1. (Athugið breytt heimilLsfang), 108 Reykjarík. Merkt Tón- listarkrossg&tan. Valgeir Guðjónsson er gestur þáttarins. Morgunblaðió/VE í gegnum tíðina ■I Þátturinn „í 00 gegnum tíðina" “ er á dagskrá rásar 2 í dag kl. 15. Stjórnandi er Ragnheiður Davíðsdóttir. í flesta þætti sína hefur Ragnheiður fengið ein- hvern gest I heimsókn sem oft hefur verið ís- lenskur tónlistarmaður. Síðast heiðruðu þeir spaug-bræður, Halli og Laddi, þáttinn með nær- veru sinni en að þessu sinni verður hljómlistar- og Stuðmaðurinn Valgeir Guðjónsson gestur þátt- arins. Ragnheiður spjallar við Valgeir um lífið og tilver- una og hans litríka feril sem hljómlistarmaður, leikari, kvikmyndaleik- stjóri, og kvikmynda- handritshöfundur svo eitthvað sé nefnt. Það má með sanni segja að Val- geir hafi komið víða við og verið viðriðinn fjölmargar íslenskar hljómplötur sem hér hafa komið út. Hver man t.d. ekki eftir Spilverki þjóðanna og Jollý og Kóla? Eða lögun- um úr kvikmyndinni Punktur, punktur, komma strik og á plötunni Hrekkjusvínin sem eru eftir Valgeir? Ekki má gleyma Stuðmönnunum sem hafa tekið sér ótal margt fyrir hendur, s.s. útgáfu fjölda hljómpíatna og kvikmyndagerð svo eitthvað sé nefnt. En sem sagt, nánari upplýsingar um Valgeir ( þættinum í dag. ÚTVARP FIMMTUDAGUR 4. aprfl skírdagur 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.20 Morguntónleikar .Kristur á Ollufjallinu", óra- torla eftir Ludwig van Beet- hoven. Elizabeth Harwood, James King og Franz Crasc syngja meö Söngfélaginu og Sinfónluhljómsveitinni I Vln; Bernhard Klee stjórnar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr ). 8J5 Létt morgunlög Hljómsveit Lou Whiteson leikur. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Albert“ eftir Ole Lund Kirkegaard. Valdls Óskars- dóttir les þýöingu Þorvalds Kristinssonar (9). 9J20 Kanadlski blásarakvint- ettinn leikur á tónleikum I Ludwigsburg I september sl. tónverk eftir Samuel Scheidt, Henry Purcell, Giovanni Gabrielli. Johann Pachelbel O.fl. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10Í5 Fyrrverandi þingmenn Vesturlands segja frá. Eö- varö Ingólfsson ræöir við Jónas Arnason. 11.00 Messa I Neskirkiu Avarp: Kristján Búason, formaöur Samstarfsnefndar kristinna trúfélaga. Ræöu- maður: Sam Daniel Glad. Ritningarlestur: Öskar Jóns- son, Hjálpræöishernum I Reykjavlk, og séra Hjalti Þorkelsson, prestur róm- versk-kapólskra i Reykjavlk. Kórsöngur: Kór aðventista I Reykjavlk. Undirleikari: Krystyna Cortes. Einsöngur: Jón H. Jónsson. Undirleikari: Sólveig Jónsson. Organisti: Reynir Jónasson. Kirkjukór Neskirkju syngur. Sönghóp- ar frá Kristskirkju og hvlta- sunnumönnum I Reykjavlk. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 1220 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. 13.15 Tónleikar 13.30 „Olfar og svanir'' Ljóðaleikur eftir rússneska skáldið Nikolaj Gúmiljof, sem gerist á Islandi á 9. öld. Arni Bergmann tók dagskrána saman. Lesarar: Jóhann Sig- uröarson, Marla Siguröar- dóttir og Erlingur Glslason. 14.30 A frivaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.25 Frá bernskustöðvum á Lokinhömrum. Glsli Krist- jánsson talar viö Guðmund Glslason Hagalln rithöfund. (Aöur á dagskrá I mal 1974.) 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 1820 Hvi ekki klmni I Nýja testamentinu? Dr. Jakob Jónsson flytur er- indi. 17.00 Johann Sebastian Bach — Ævi og samtlö eftir Hendrik Willem van Loon. Þýtt hefur Arni Jónsson frá Múla. Jón Múli Arnason les (9). 17.30 Sfödegistónleikar: Kammertónlist eftir þá Bach-bræðurna Vilhelm Friedemann, Johann Christ- oph Friedrich, Carl Philipp Emanuel og Johann Christi- an. Kammersveit Berllnarfll- harmonlunnar leikur. 18J0 Tónleikar. Tilkynningar. 1845 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynn- ingar. 19.50 Daglegt mál. Siguröur G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 Hvlskur Umsjón: Höröur Siguröar- son. 20M Kvöld I dymbilviku meö Jónasi Jónassyni og Ingimar Eydal. (RÚVAK) 21.30 Frá tónleikum Kamm- ersveitar Reykjavlkur I As- kirkju 6. janúar sl. a. Hljómsveitarsvlta nr. 1 I C-dúr. b. Fiölukonsert I E-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Einieikari: Rut Ingólfsdóttir. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orö kvöldsins. 22.35 Fimmtudagsumræöan — Mannréttindamál. Um- sjón: Friðrik Páll Jónsson. 23.45 Hljómleikar Evrópu- bandalags útvarpsstööva 1985 300 ára minningartónleikar um Domenico Scarlatti I Tor- ino á Itallu 4. febr. sl. Rytj- endur: Kór og hljómsvelt út- FIMMTUDAGUR 4. aprll 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Kristján Sigur- jónsson og Siguröur Sverr- isson. 14.01F—15.00 Dægurflugur Nýjustu dægurlögin. Stjórnandi: Leópold Sveins- son. 15.00 I gegnum tlðina. Stjórnandi Ragnheiður Dav- lösdóttir. varpsins I Torino. Stjórnandi: Bruno Martinotti. Einsöngv- arar: Patricia Pace, Miwako Natsumoto, Helga MOIIer Molinari og lorio Zennaro. a. Sinfónlur nr. 1, 2. 5, 4, 11, 16 og 14. b. Serenata — „Contesa della stagioni". Kynnir: Guð- mundur Gilsson. 01.15 Fréttir. Dagskrárlok. 16.00—17.00 Bylgjur Framsækin rokktónlist. Stjórnendur: Asmundur Jónsson og Arni Danlel Júll- usson. 17J)0—18JK) Einu sinni áöur var Vinsæl lög frá 1955 til 1962 — Rokktlmabilið. Stjórnandi: Ðetram Möller. Þriggja mlnútna fréttir sagö- ar klukkan: 11, 15, 16 og 17. Hlé. 20.00—21.00 Vinsældalisti hlustenda rásar 2 10 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 21.00—22.00 Þriðji maöurinn Stjórnendur: Ingólfur Mar- geirsson og Arni Þórarins- son. 224)0—23.00 Rðkkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests. 234)0—24.00 Óákveðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.