Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 44

Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 44
44“ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1985 ViA fiskreiðar starfa um 5.600 manns og rúmlega 10.000 við fiskvinnslu. Atvinnumál Skýrsla forseta ASÍ til miðstjórnar sambandsins Samantekt þessi fjallar um at- vinnumál eins og yfirskriftin ber með sér. Rakin eru meginatriði at- vinnuþróunar, lagt mat á núver- andi stöðu, fjallað um framtíðar- horfur og loks farið nokkrum orð- um um það er sem helst stendur i vegi hagvaxtar á íslandi og hvern- ig bæta megi úr. IInngangur íbúaþróun. í megindráttum hefur mann- fjöldi hér á landi fylgt svipuðum ferli og mannfjöldi jarðarkringl- unnar. Talið er að frá því að land- ið byggðist og fram yfir aldamótin 1800 hafi mannfjöldi á íslandi sveiflast á milli 40 og 70 þús. í upphafi 19. aldar var íbúafjöldi um 45 þús. Síðan hefur íbúum landsins fjölgað hratt. Þeir eru nú um 240 þús. og horfur á að þeir verði um 300 þús. um næstu alda- mót. Umskipti í atvinnu og afkomu. Samhliða aukningu mannfjölda hefur atvinnulíf og atvinnuskipt- ing þjóðarinnar gjörbreyst. Um m'ðja síðustu öld störfuðu um 80% fólks í landbúnaði en aðeins 26% unnu í öðrum greinum. 1960 var hlutfall þeirra sem störfuðu við landbúnað komið niður í 14%, en þjónusta, iðnaður og bygg- ingastarfsemi höfðu vaxið að sama skapi. Jafnframt urðu hrein umskipti í afkomu þjóðarinnar. Á þessari öld er áætlað að þjóðar- tekjur á mann hafi nífaldast. Þessi umskipti koma m.a. fram í því að árið 1910 bjó helmingur þjóðarinnar enn í torfbæjum. Árið 1947 voru utanferðir innan við 4.000 á ári, 10.000 um 1960, 27.000 1970 og loks um 80.000 árið 1978. Fjölmörg önnur dæmi mætti nefna, t.d. um bifreiðaeign, eign á ísskápum, sjónvarpstækjum o.fl. Allt vitnar þetta um stórbættan efnahag þjóðarinnar. Stöðnun. Eins og að framan er rakið hafa orðið stórstígar efnahagsframfar- ir á íslandi á öldinni. Síðustu 10 árin höfum við hins vegar ekki þokast fram á við og því dregist verulega aftur úr flestum nálæg- um löndum. Þótt efnahagskreppan hafi dregið úr hagvexti hefur nágrannalöndunum flestum miðað nokkuð á leið. Atvinnuskipting þjóðarinnar. Áður en lengra er haldið er rétt að skoða hver atvinnuþróunin hef- ur verið síðustu árin, en á síðustu tuttugu árum hafa miklar breyt- ingar orðið á mannafla í hinum ýmsu atvinnugreinum. ■ Sá fjöldi fólks sem starfaði í landbúnaði var um 14% alls mannafla í landinu árið 1963. Árið 1981 var þetta hlutfall komið niður í 6%. ■ f fiskveiðum hefur fólki einnig fækkað hlutfallslega úr nærri 7% alls starfandi fólks í 5% árið 1981. ■ Landbúnaður og fiskveiðar voru sameiginlega með liðlega 20% alls mannafla árið 1963, en aðeins rétt rúm 11% árið 1981. ■ Árið 1963 starfaði nærri 10. hver maður i fiskiðnaði og 1981 var þetta hlutfall nánast óbreytt. ■ Árið 1963 störfuðu 18% mann- aflans í öðrum iðnaði, en þetta hlutfall var komið niður í 16,7% árið 1981. ■ Starfsmenn hjá rafmagns- og vatnsveitum voru mun fleiri árið 1981 en 1963, en fjöldinn var svo lítill, að naumast skiptir máli. ■ Byggingarstarfsemi hélt svip- uðum hluta mannafla frá 1963 til 1981, en sveiflur voru töluverðar. ■ Viðskipti og veitingastarfsemi héldu svipuðu hlutfalli mannafla frá 1963 til 1981, en þá störfuðu um 14% mannaflans í þessum greinum. ■ f samgöngustarfsemi lækkaði hlutfallið úr nærri 10% árið 1963 í rúm 7% árið 1981. ■ Samanlagt voru um 82% mann- aflans í framantöldum greinum 1963, en átján árum síðar var hlutfallið 68,7%. Aðrar greinar höfðu þannig aukið sinn hlut úr 18% í 31,3%. ■ Banka- og tryggingastarfsemi og þjónusta við atvinnurekstur juku sinn hlut mjög mikið eða úr 3% mannafla í 6% 1981. ■ Þjónustustarfsemi, þ.e. opinber stjórnsýsla, opinber þjónusta o.fl., tóku til sin rúm 15% mannaflans 1963, en 25,2% árið 1981. ■ Eins og fram kemur á með- fylgjandi yfirliti var hvergi hlut- fallsleg aukning mannafla nema í þjónustugreinunum á þessu tutt- ugu ára tímabili. Ársverk í hverri grein. Hlutfallstölur um mannafla í hverri grein fela breytingar í bein- um tölum. Þess vegna er rétt að líta á hver raunverulegur fjöldi ársverka hefur verið í hinum ýmsu atvinnugreinum. ■ í landbúnaði voru árið 1963 tal- in 9.254 ársverk. Þessi tala var nær óbreytt 1973, en síðan hefur fækkunin verið ör, þannig að á ár- inu 1981 voru ársverk í landbúnaði einungis talin 6.665. Fólki við landbúnað hafði því fækkað um þriðjung. ■ Við fiskveiðar störfuðu um 4.500 manns á árinu 1963. Fram til 1973 fjölgaði ársverkum fiski- manna í 4.900. Árin 1973—1981 fjölgaði enn eða í 5.587 ársverk. ■ í fiskiðnaði voru tæplega 6.700 ársverk árið 1963 og hélst sá fjöldi nær óbreyttur fram til 1973. Tímabilið 1973—1981 varð hins vegar veruleg fjölgun í fisk- vinnslu, væntanlega fyrst og fremst vegna aukins bolfiskafla og aukinnar frystingar. í fiskvinnslu voru rúm 10.000 ársverk á árinu 1981. ■ í iðnaði voru ársverk rúmlega 12.000 ári 1963, en áratuginn þar á eftir var fjölgun veruleg og fjöldi ársverka var orðinn 16.000 árið 1973. Síðan þá hefur ársverkum í iðnaði fjölgað um 2.000 ef miðað er við tölur ársins 1981. Síðustu ár fer því ekki mikið fyrir mannafla- aukningu í þeirri grein, sem flestir telja að taka eigi við vaxandi fjölda á næstu árum. ■ í byggingastarfsemi var all ör aukning tímabilið 1963 til 1973. Ársverkum fjölgaði úr rúmlega 7.000 í tæplega 11.000. ■ í verslun og veitingastarfsemi hefur fjölgun verið nokkuð jöfn síðustu tvo áratugina, úr rúmlega 9.000 ársverkum árið 1963 í tæp 15.000 árið 1981. Samgöngustarf- semi jók mannafla sinn áru 6.400 ársverkum árið 1%3 í rúmlega 7.700 árið 1973, en síðan hefur aukningin verið óveruleg. ■ Árið 1%3 voru 1.880 ársverk talin í banka- og tryggingastarf- semi og þjónustu við atvinnu- rekstur. Tíu árum síðar hafði fjöldi ársverka í þessari grein meira en tvöfaldast og var orðinn 4.143. Fram til ársins 1981 varð aftur stórt stökk, þannig að 1981 var fjöldi ársverka orðinn 6.666. ■ í þjónustugreinum störfuðu 10.000 manns 1963, en 1981 voru 27.552 ársverk í þessum greinum. ■ f landbúnaði, fiskveiðum, fisk- iðnaði og öðrum iðnaði voru sam- anlagt 32.437 mannár árið 1963, en átján árum síðar 40.979. Fjöldi ársverka hafði því aukist um rúmlega 8.500. Heildarfjöldi árs- verka jókst hins vegar á sama tíma úr 67.517 í 109.457 eða um 41.940. II Hvert stefnir? Af reynslu liðinna ára verður aldrei dregin einhlít ályktun um framtíðina. Áveðnar vísbendingar má þó fá ef forsendur einstakra greina eru athugaðar. Landbúnaður. Flest bendir til þess að ársverk- um í landbúnaði muni áfram fara fækkandi. Nú er veruleg umfram framleiðsla á kindakjöti og mjólk svo óhjákvæmilegt er að draga úr framleiðslu. Söluverð erlendis greiðir aðeins lítinn hluta fram- leiðslukostnaðar. Naumast er rétt- lætanlegt að viðhalda útflutn- ingsbótum til lengdar. Einnig er ljóst að neysla á þessum vörum fer minnkandi með breyttum neyslu- venjum og afköst á hvern mann fara vaxandi, eða gætu farið vax- andi, væri framleiðendum ekki skammtaður kvóti. Mikið er rætt um nýjar auka- búgreinar, einkum loðdýrarækt og fiskeldi. Mjög erfitt er að dæma um hve miklir möguleikar eru fyrir þessar greinar sem auka- búgreinar. Fiskirækt og fiskeldi í smáum stíl kann að hafa ein- hverja möguleika. Fyrst og fremst virðist fiskeldi þó vera stóriðnað- ur í þeim skilningi, að fjárfesta þarf í stórum eldisstöðvum, þar sem alfarið er notað framleitt fóð- ur og jarðhiti nýttur til þess að örva vöxt. Slíkur rekstur verður naumast aukabúgrein hjá bænd- um. Loðdýrarækt hefur á undan- förnum árum verið í örum vexti og reynslan virðist benda til þess að tiltölulega lítil bú geti skilað þokkalegri afkomu. Með skipu- legri uppbyggingu, tækniþjónustu, fóðurmiðlun o.fl., getur slíkur rekstur átt verulega framtíð fyrir sér á bújörðum. Hins vegar er mjög ólíklegt að nýjar aukabú- greinar geti vegið upp þann sam- drátt framleiðslu sem fyrirsjáan- legur er á næstu árum í hefð- bundnum greinum. Því er óhjá- kvæmilegt að bændum fækki og valið stendur aðeins um hvort byggðin verði grisjuð vítt og breitt eða hún þrengd þannig, að byggð leggist af á afmörkuðum svæðum. í þessu sambandi er rétt að hafa i huga, að ekkert bendir til þess að forsendur fyrir útflutning búvara breytist okkur í hag á næstu ár- um. Sá hluti heimsbyggðarinnar sem hefur efni á að borga hefur nægan mat. Hinir sem ekki hafa efni á að borga verða væntanlega fyrr færir um að framleiða til eig- in þarfa en að kaupa af okkur bú- vörur á verði sem viðunandi væri fyrir alla aðila. Sjávarútvegur og fiskiðnaður. í fiskveiðum má búast við svip- uðum mannafla næstu árin. 1 dag býr sjávarútvegurinn við veiði- skömmtun. Kvótakerfið er hins vegar ekki orsök, heldur afleiðing takmarkaðra fiskistofna við land- ið. Þótt afli aukist á næstu árum, er ekki líklegt að veiðar verði hömlulausar. Það má einnig telja fullvíst, að núverandi skipastóll og mannafli geti annað auknum veið- um. Sjávarafurðir námu á síðasta ári 68,7% af heildarverðmæti vöruútflutnings þrátt fyrir afla- samdrátt síðustu þrjú ár. Vegna mikilvægis sjávarafurða í heildar- útflutningi er ljóst, að öflug fram- sókn í öflun erlends gjaldeyris getur vart orðið nema með auknu verðmæti útfluttra sjávarafurða. 10% aukning á þeim 30% sem aðr- ar útflutningsgreinar skila leiðir aðeins til 3% aukningar á útflutn- ingsverðmæti í heild. Helsta forsenda aukinnar verð- mætasköpunar sjávarútvegs- greina er að það takist að auka gæði afurðanna. Bætt meðferð og vitlegt skipulagt veiða og vinnslu getur skilað miklu í þessu efni. Einnig er unnt að auka útflutn- ingsverðmæti með breyttri vinnslu, með því að fullvinna af- urðir í meiri mæli en nú er gert, með því að vinna nýjar afurðir og þá kannski fremur með breyttum vinnsluaðferðum en með því að vinna nýjar tegundir. í framtíð- inni hlýtur að verða að leita nýrra markaða og laga sig að þeim kröf- um sem þar eru hvort sem um er að ræða ferskan fisk, saltaðan eða frystan ellegar fisk verkaðan með öðrum hætti. Markmiðið er að fá aukið verð- mæti úr sama magni. Tímabundin aukning gæti þá orðið á mannafla í fiskiðnaði. Innan áratugs kann ný tækni hins vegar að leiða til breyttra aðstæðna og fækkunar starfsfólks.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.