Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 16. APRÍL 1985
Úr aðgerðinni í Eyjum
Vertíðin setur jafnan sinn svip á atvinnulífið
í Eyjum. í mestu hrotunum tekur nánast hver,
sem vettlingi getur valdið, til hendinni í að-
gerð og fiskvinnslu af öllu tagi. Fyrir páskana
var unnið af miklum krafti í fiskinum og von-
ast Eyjamenn eftir jafngóðum afla að lokinni
hátíðinni. Mikið hefur fengizt af stórum
þorski, sem ekki er véltækur, og hefur hann
aö mestu verið unninn í salt. Meðfylgjandi
Ijósmyndir Sigurgeirs Jónassonar úr Fiskverk-
unarstöðinni Klifi lýsa þessu reyndar betur en
flest orð og því bezt að láta þær tala sínu máli.
I»ær Helga og Halldóra meóhöndla þann gula með bros á vör.
Skólakrakkarnir hafa verið duglegir
vió að koma sér í vinnu, þegar svig-
rúm befur gefizt fri náminu. Jónas
Þór er bér að þræða þorskhausana
fyrir herzlu.
Þrfr vænir. Bjarni Sveins hampar hér tveimur sýnishornum úr aflanum, en
golþorskar sem þessir hafa verið algengir f Eyjum að undanförnu.
Aðgerðin er ekki alltaf þrifaleg, en hana verður að vinna eins og önnur verk. Þær Herdís og
Nína kippa sér því ekkert upp við hana þó bæði sé hún kaisöm og oft á tíðum erfið.
Margur vænn þorskurinn hefur farið undir hnífinn hjá Valda á þessari vertíð. Það er lika eins
gott að kunna vel til verka eigi fiskurinn að verða fyrsta flokks við útflutning.
Bankamaðurinn Gylfi tekur líka til hendinni. Hér er hann í gotunni, sem sé að salta þorskhrogn
og drýgir tekjurnar um leið.
Hjá Klif er nær eingöngu verkað í salt, jú og reyndar skreið, þegar sá markaður er opinn.