Morgunblaðið - 18.04.1985, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.04.1985, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÍMMTDDAGUR18. APRÍL1985 3 19 íslenzk málverk á uppboði í Kaup- mannahöfn 24. apríl Kjarvalsmynd á uppboðinu, sem virt er á rúmlega 450 þúsund krónur LISTAVERKAUPPBOÐ verður haldið l Kunsthallen i Kaupmannahöfn dag- ana 24., 25. og 26. apríl næstkomandi og er þar margt íslenzkra listaverka i boðstólum eftir alls 10 listamenn og mi þar nefna Jóhannes Kjarval, Ásgrím Jónsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Svavar Guðnason, Jón Engilberts, Sigurjón Ólafsson o.fl. Alls verða boðin upp 484 verk og fylgir uppboðsskrá, sem Morg- unblaðið hefur fengið senda. Alls eru listaverk íslenzkra lista- manna 19 á uppboðinu. í verðskrá aftast í uppboðslistanum er gefin hugmynd um verð verkanna og eru þar Kjarval og Ásgrímur í sérflokki miðað við aðra íslenzka listamenn. Hæst virta myndin er Þingvallamynd eftir Jóhannes S. Kjarval, sem virt er á 120.000 danskar krónur, sem eru rúmlega 454 þúsund íslenzkar krónur. Næstdýrasta mynd íslenzks lista- manns er landslagsmynd, liklega frá Þingvöllum, eftir Ásgrím Jónsson og er hún virt á 100.000 danskar krónur eða á tæplega 379 þúsund krónur. Ásgrímur á einnig þriðju dýrustu myndina, lands- lagsmynd, sem metin er á 30.000 danskar krónur eða á tæplega 114 þúsund krónur. Þá eru nokkrar myndir virtar á 25.000 kr. danskar eftir Kjarval og Ásgrím. Tvö af verkum Júlíönu Sveinsdóttur eru virt á 20.000 og 15.000 danskar krónur. Þau íslenzku listaverk, sem verða á uppboðinu eru Blóma- mynd eftir Magnús Á. Árnason, máluð 1970, Sumarnótt á Þing- völlum, Skjaldbreið, eftir Jón Engilberts; landslagsmynd eftir Eggert Guðmundsson, máluð 1939 og síðan fjórar myndir eftir Ás- grím Jónsson, áðurnefnd mynd, sem líklegast er frá Þingvöllum; landslagsmynd máluð í vatnsliti; þá landslagsmynd með húsum, einnig i vatnslitum og siðan mynd, sem nefnd er i skránni Rauðafell og einnig er máluð með vatnslitum. Myndir Kjarvals á uppboðinu eru þrjár, en að auki verða boðnar upp tvær steinþrykksmyndir eftir hann. I fyrsta lagi er myndin, sem mynd er birt af hér á síðunni, en Þingvallamynd Jóhannesar S. Kjarval, sem virt er f uppboðsskrá á rúmlega 545.000 krónur. að auki er blómamynd og lands- lagsmynd. Steinþrykkmyndirnar eru af seglskipum i höfn og klett- um. Þá verður boðin upp bronz- mynd eftir Sigurjón Olafsson, Fugl; Heklumynd eftir Júliönu Sveinsdóttur frá 1928; önnur mynd er nefnist Sumardagur við Heklu frá 1925 og mynd frá 1963, sem í skránni ber heitið „Uppstill- ing“. Þá verður einnig boðin upp landslagsmynd eftir Ólaf Túbals; landslagsmynd eftir Ragnar Pál Einarsson frá 1971 og vatnslita- mynd eftir Svavar Guðnason frá 1972, sem í skránni er nefnd Norð- urljós yfir Húsavík. Dýrustu myndirnar á uppboð- inu samkvæmt áðurnefndri verð- skrá eru myndir eftir Asger Jorn, mynd frá 1944 sem virt er á 700.000 danskar krónur eða á um 2.650.000 islenzkar krónur. Frystitogarinn Akureyrin: Coldwater tekur við sölu á þorskflökum COLDWATER Seafood ('orporation tók fyrir nokkni við sölu þeirra af- urða frystitogarans Akureyrarinnar EA 10, sem unnar eru á Bandarfkja- markað, beinlaus þorskflök með roði. Áður hafði Iceland Seafood, fyrírtæki Sambandsins, séð um sölu þorskilakanna. Sala afurða Akureyr- arinnar á aðra markaði er ekki bundin ákveðnum aðiljum. Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja, sem gerir Akureyrina út, sagði i sam- tali við Morgunblaðið, að þessi breyting hefði orðið í febrúar síð- astliðnum. Coldwater hefði þá lagt fyrir útgerð Akureyrinnar hug- myndir um sölu beinlausra þorsk- flaka með roði, sem unnin væru um borð. Sér og samherjum sínum Ihefði litizt svo vel á þessar hug- myndir að ákveðið hefði verið að slá til og skipta um sölufyrirtæki. Samherji væri utan beggja stóru sölusamtakanna, Sambands- ins og SH, en sér virtist að hjá þeim báðum væru að gerast góðir hlutir og ynnu þau bæði að fram- kvæmd nýrra hugmynda um sölu og vöruþróun. Þessi samtök virk- uðu alls ekki á sig sem úrelt og stöðnuð fyrirtæki og því hefði hann falazt eftir viðskiptum við þau. Hann gæti, eftir að hafa kynnt sér sölumálin, ekki séð að hægt væri að standa betur að þeim. Samkeppni félaganna væri næg og hann hræddist þann dag, sem núverandi sölukerfi yrði brot- ið upp. Þorsteinn Már sagði ennfremur, að of snemmt væri að tala um árangur af samstarfinu við Coldwater. Hann væri ánægður með það til þessa, en bíða yrði haustsins til að fá raunhæfa niðurstöðu. Það væri bæði tíma- frekt og útlátasamt að afla mark- aðar fyrir nýjar vörur. Myndimar tala sínu máli dHi KARNABÆR .. é_s on f t Austurstræti 22, Laugavegi 30, Laugavegi 66, Glæsibæ. Sími frá skiptiboröi 45800.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.