Morgunblaðið - 18.04.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1985
8jl9
klukkan fjögur á nóttunni til
þess að ná morgunbirtunni og ég
hef ekki áttað mig á tímanum
fyrr en það var farið að rökkva,
málað og málað allan daginn. Á
röltinu á fjöllum vil ég vera einn
á ferð, það er ótruflað og það er
mikið atriði, þá getur maður
numið staðar að vild, sofið úti
áhyggjulaust, flandrað um heið-
ar og fjöll með bakpokann,
nestisbita og stundum hef ég
sofið í álpoka sem ég ber með
mér á gönguferðum. Það var góð
æfing að íabba langar leiðir á
fjöllum, en svo keypti ég mér bíl
og þá fækkaði gönguferðunum,
en þá var líka gott að taka til
hendinni við grjótið með meitl-
um, slaghömrum og vírburstum,
svona til þess að halda sér við.
— Það er erfitt að segja, en
líklega er ég veikastur fyrir
auðninni og jöklunum. Þegar
maður ráfar um Kaldadalinn í
rigningu þá lýsa jöklarnir upp
Prestahnjúkinn sem er perlu-
steinn og þá verða Hnjúkurinn
og jöklarnir eins og lýsandi per-
ur i auðninni og allt er umvafið
jarðlitunum sem ég er svo hrif-
inn af. Það eru ekki smáatriðin
ein sér sem höfða til mín í auðn-
inni, heldur heildin. Ég mála
einnig mikið á vetrum og hef
málað heilan dag i 15 stiga frosti
aðeins til aö ná stemmningunni,
ég fer þá einfaldlega í dúnúlpuna
mína og hef það gott.
Það gengur allt vel ef maður
ætlar sér það, ég hef nokkuð
góða vinnustofu, gamla kaupfé-
lagið í Borgarnesi, það er mikið
pláss og þar er einnig kennslu-
stofan mín en ég kenni myndlist
að hluta í skólanum þar. Það er
mikilvægt þegar maður veit
hvað maður ætlar að gera og ég
veit það, ég mun vinna jöfnum
höndum í grjót, málningu og
teikningu, yrkisefnin eru nóg
framundan.
— i.j.
prentarinna
Prentarinn
kominn út
PRENTARINN, málgagn Félags
bókagerðarmanna, 1. tbl. 5. árgangs
er nýkomið út. Ritið er prentað á
góðan pappír og litprentað, m.a. er
forsíðan í fyrsta skipti prentuð í lit.
Er höfundur myndar Sigurður Þórir
Sigurðsson.
f ritinu kennir margra grasa.
Þar er m.a. að finna greinar um
réttindamál prentara og verka-
lýðshreyfinguna, greinar um vin-
nuvernd, launamál karla og
kvenna, fræöslumál, menningar-
mál og margt fleira. Prentarinn
kemur út 6 sinnum á ári. Ritstjóri
er Magnús E. Sigurðsson, formað-
ur Félags bókagerðarmanna.
ÚTVEGSMENN - VERZLANIR - VERKTAKAR - EINSTAKLINGAR
— EINSTAKT VÖRUÚRVAL Á EINUM STAÐ
ÚTGERÐARVÖRUR
SKOÐUNARVÖRUR
BÁTABÚNAÐUR
• •
FÓTREIPISKEÐJUR HANDFÆRAVINDUR
’/4“, 5/b" FÆREYSKAR
TROLLLÁSAR NÆLONLÍNUR
HANDFÆRAÖNGLAR MEÐ GERVIBEITU
CQO HANDFÆRASÖKKUR
MARLÍN- TÓG
LÍNUEFNI BLÝ-TEINATÓG
DURCO PATENTLÁSAR FLOTTEINN
’A“, 5^“, y«“ NÆLON-TÓG
• LANDFESTAR
STÁLBRÝNI HVERFISTEINAR STÁLVÍR
í KASSA, OG LAUSIR alls konar
RAFMAGNS-HVERFISTEINAR •
MÖRE-
NETAHRINGIR
NETAKEÐJA
NETALÁSAR
NETAKÓSSAR
LÓOADREKAR
BAUJUFLÖGG
NETAFLÖGG
FISKKÖRFUR
FISKGOGGAR
FISKSTINGIR
SALTSKÓFLUR
ÍSSKÓFLUR
BAUJUSTENGUR
Al, bambus, plast
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
ENDURSKINSBORDAR
LlNUBELGIR
NETABELGIR
BAUJUBELGIR
RAUÐMAGANET
GRÁSLEPPUNET
HF.
Ánanaustum, Grandagarði, sími 28855. .
VEIÐARFÆRI - ÚTGERÐARVÖRUR - VÉLAÞÉTTINGAR - VERKFÆRI - MÁLNINGARVÖRUR - TJÖRUR
BYGGINGAVÖRUR - SJÓFATNAÐUR - VINNUFATNAÐUR og ótal margt fleira.
ST..........................................................