Morgunblaðið - 18.04.1985, Page 20
20
M0RGUNBLAÐ1Ð, FIMMTUDAGUR18. APRÍL1985
Finnland:
Svartamark-
aðsverð á áfengi
fimmfaldast
Hebfinki, Finnlandi, 16. aprfl. AP.
EFTIR 17 daga verkfall
starfsfólks í áfengisverslun-
um finnska ríkisins hefur
svartamarkaðsverð á áfengi
meira en fimmfaldast, að því
er talsmaður lögreglunnar
sagði í dag.
„Um helgina komst hálf-
potturinn af sterku víni upp í
300 finnsk mörk (um 1900 ísl.
kr.),“ sagði Aulis Kosonen hjá
lögreglunni. Venjulegt verð á
hálfpottinum er í kringum 57
mörk (um 360 ísl. kr.).
Alíar útsölur áfengiseinka-
sölu finnska ríkisins, ALKO,
hafa verið lokaðar frá 29.
mars vegna deilna um laun og
vinnutíma starfsmanna.
Ekki er í önnur hús að
venda í Finnlandi, þegar um
er að ræða að kaupa áfengi
eða sterkan bjór, og er haft
eftir yfirstjórn tollgæslunnar,
að mjög færist í vöxt, að reynt
sé að smygla þessum vörum
inn í landið frá Svíþjóð. Um
400 manns hafa verið teknir
með smygl á landamærum
ríkjaanna frá því að verkfall-
ið hófst.
Kosonen sagði, að hið háa
svartamarkaðsverð réðist
fyrst og fremst af „þeirri
staðreynd að eftirspurnin er
mikil en framboðið lítið".
En hann varaði við þvi, að
svartamarkaðssalarnir væru
sumir farnir að falbjóða gör-
ótta drykki, sem reynst gætu
hættulegir, ef þeirra væri
neytt í miklum mæli.
terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Morgunblaðið/Sigrúo Sigfúadóttir
Hveragerðiskirkja séð frá Hverahlíð. Syðst er sjálft kirkjuskipið, austan við er líkhúsið, þá anddyri og safnaðarheim-
ili, sem er hin mesta menningarmiðstöð, og nyrst á myndinni er klukknaportið sem vígt var á síðasta ári.
Framkvæmdir við
Hveragerðiskirkju
llveragerúi, 7. aprfl.
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við
skrifstofu fyrir sóknarprestinn. Set
kvcmdum mun fram haldið í sumar.
Ég hitti formann sóknarnefnd-
ar, Guðmund Ingvarsson, að máli
nýlega og sagði hann að nú væri
mikill hugur í þeim í sóknarnefnd
að ljúka ýmsum verkefnum, sem
ýmist hafa verið ráðgerð eða væru
hafin og ljúka þyrfti, t.d. væri ver-
ið að innrétta skrifstofu fyrir
sóknarprestinn, sem jafnframt
yrði skjalageymsla fyrir embætt-
ið. Þar gæti presturinn tekið á
móti sóknarbörnum sem óskuðu
viðtals og unnið fleiri embættis-
störf.
Fyrirhugað er að setja kælikerfi
í líkhúsið, en það hefði staðið til
lengi.
Lóðarframkvæmdir hafa staðið
yfir í tvö ár og verður væntanlega
lokið i sumar. Er það mikil vinna,
sem hefur verið stjórnað af Guðna
Tómassyni skrúðgarðyrkj umeist-
ara. Það sem búið er af því verki
lofar góðu. Lionsklúbbur Hvera-
gerðis gaf fyrir nokkrum árum
teikningar af lóðinni, unnar af
Reyni Vilhjálmssyni skrúðgarð-
yrkjumeistara.
Hveragerðiskirkju. Verið er að innrétta
ja á kælikerfi í líkhúsið. Lóðarfram-
Flóðlýsing var sett upp í vetur.
Þá var í vetur, stuttu fyrir jól,
komið fyrir flóðlýsingu á kirkju-
lóðinni. Var lýsingin kostuð af
gjöf sem frú Sigríður Björnsdóttir
gaf til minningar um mann sinn,
Eirík Bjarnason frá Bóli, og gjöf
sem hjónin Sigríður Ólafsdóttir og
Jóhannes Guðmundsson gáfu á
sínum tíma til lýsingar á kirkj-
unni. Var ákaflega kærkomið að
fá þessa fögru lýsingu og mildaði
hún svartasta skammdegismyrkr-
ið hér í Hveragerði.
Guðmundur tók það fram að
stöðugt væru kirkjunni að berast
áheit og gjafir, bæði frá fólki hér í
þorpinu og burtfluttu. Vildi hann
koma á framfæri þakklæti til
þessa fólks.
Þá nefndi han'n sérstaklega eina
gjöf, sem hann sagði að aldrei
hefði verið þökkuð sem skyldi, „en
betra væri seint en aldrei". Það
væru alveg frábærir tónleikar sem
Einar Markússon píanóleikari hélt
og gaf kirkjunni allan ágóða af.
Fékk Guðmundur mér umsögn
eins kirkjugestsins skráða og
óskaði eftir að hún yrði birt.
„Tónleikar fluttir í Hveragerð-
iskirkju. Píanóleikari Einar Mark-
ússon. I upphafi kynnti Hafsteinn
Kristinsson listamanninn og verk
þau sem flutt voru.
Einar Markússon píanóleikari
lék ýmis verk og frumflutti m.a.
verk eftir dr. Hallgrím Helgason.
Tónleikarnir hófust með fantasíu
eftir Ball, sterkt verk sem naut sín
vel I flutningi Einars. Síðan rak
hvert verkið annað, Mazúrka eftir
Belovaskie, Etýða eftir Rosenthal,
Etýða fyrir vinstri hönd eftir Stu-
bert, sérkennilegt verk sem þarf
áreiðanlega mikla færni til að
leika. Þá kom röðin að Arabesku
um „Donau so Blau“. Þar var Dóná
tekin rækilega i gegn, ef svo má að
orði komast, skreytt og flúrað á
alla vegu en alls staðar heyrist
stefið í gegn. Þetta var mjög
skemmtilegt verk og vel flutt. ís-
lendingaljóð dr. Hallgrims Helga-
sonar var næst, fallegt verk og
snilldarlega flutt. Það er alltaf
gaman að heyra ný verk frá dr.
Hallgrími. Lestina ráku síðan
Poem eftir Godowsky og Vínar-
valsar Friedmans Gertmar,
skemmtileg verk hvor tveggja.
Tónleikunum var mjög vel tekið
og einleikarinn klappaður upp aft-
ur og aftur. Hann lék nokkur
aukaverk, þar á meðal ó, blessuð
vertu sumarsól, i eigin útsetningu.
Ég vek athygli á þvi verki, þvi þar
er farið mjög næmum höndum um
þetta fallega lag, það mætti heyr-
ast oftar og viðar.
Einar Markússon gaf allt sem
inn kom fyrir þessa tónleika til
gluggasjóðs Hveragerðiskirkju.
Mér er ljúft og skylt að færa Ein-
ari alúðarþakkir fyrir framtakið.
Hvergerðingum er sómi að eiga
slíkan listamann innan sinna vé-
banda. Hafðu þökk fyrir Einar
Markússon.
Þessa umsögn ritaði Ragnar
Ragnars flugumferðarstjóri að
tónleikunum loknum. Munu víst
flestir sem viðstaddir voru taka
undir orð hans og þakkir.
Sigrún
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Flokkur (grade) A. DNV-skírteini.
Sandblásnar og grunnaðar
Stærð 2-6 mm
Þykkt 5-12 mm
SINDRA AmSTÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
Frá afhendingu gjafarinnar. Á myndinni eni fulltrúar Blindrafélagains og
Kiwanismanna. Þórarinn B. Gunnarason fyrrverandi foraeti Jörfa afhenti
gjöflna en Ilalldór Rafnar formaður Blindrafélagsins tók við henni fyrir
hönd félagsins.
Hvernig ber að umgang-
ast blinda og
Kiwanisklúbburinn Jörfi afhendi
nýlega Blindrafélaginu, samtökum
blindra og sjónskertra, 30 þúsund
eintök af bæklingi að gjöf. Bækling-
urinn er ætlaður til upplýsinga fyrir
hina sjáandi um hvernig þeir eigi að
umgangast og aðstoða blinda og
sjónskerta í daglegu lífi. Auk þess
eru upplýsingar um Blindrafélagið
og starfsemi þess ásamt þjónustu
sem tengist félaginu.
sjónskerta?
í frétt frá Kiwanisklúbbnum
Jörfa segir að Ásgerður Ólafsdótt-
ir blindraráðgjafi hafi unnið text-
ann í bæklinginn. Vilhjálm Vil-
hjálmsson auglýsingateiknari
myndskreytti hann, en setning og
umbrot var unnið í Bókiðnadeild
Iðnskólans í Reykjavík. Útlit ann-
aðist einn úr Jörfa, Birgir Ingi-
marsson.