Morgunblaðið - 18.04.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUOAGUR I& APRÍL litá................. ................. ... 23
Morgunbladid/Bjarni
Undirbúningsnefnd ad stofnnn Félagsheimilis tóniisUrmanna. Frá vinstri Þorkell Sigurbjörnsson, Jóhann G. Jó-
hannsson, Guðný Bjarnar, Stefán Edelstein, Helga Tulinius og Erla Elín Hansdóttir.
Tónlistarmenn samein-
ast um félagsheimili
breyttra aðstaeðna og eru því orð-
in úrelt eða hafa aldrei haft
sjálfstæða þýðingu.
Meginnýmæli frumvarpsins eru:
1. Stjórn þingsins er efld með
skipulegum og markvissum
vinnubrögðum. Að þessu lúta
ákvæði um hlutverk forseta
þingsins, 2. mgr. 11. gr., og
ákvæði um verkefni fasta-
nefnda þjngsins, 6. mgr. 15.gr.,
" svó og ákvæði '2. mgr. 18. gr og'
'6. mgr. 28. gr., sem stuðla að því
að þingmálum sé útbýtt tíman-
lega svo að meðferð mála verði
dreift sem jafnast á þingtíman-
um.
2. Fjölgað er fastanefndum í sam-
einuðu þingi með því að gera
þar ráð fyrir félagsmálanefnd,
1. og 2. mgr. 15. gr.
3. Settar eru reglur um hnitmið-
aðri meðferð þingsályktunartil-
lagna en verið hefur. Stuðlað er
að því að tillögur til þingsálykt-
unar verði aðeins bornar fram í
sameinuðu þingi. Tvær umræð-
ur þarf um allar þingsályktun-
artillögur til þess að þær nái
samþykki til fullnaðar. Tíma-
lengd fyrri umræðu er tak-
mörkuð nema um sé að ræða
tillögur um tiltekin mikilvæg
mál. Reglur þessar miða að því
að meira ráðrúm gefist til eig-
inlegra löggjafarstarfa í þing-
deildum, 28. gr.
4. Breytt er reglum um fyrir-
spurnir þannig að umræðan er
bundin einungis við fyrirspyrj-
anda og viðkomandi ráðherra
og ræðutími styttur. Með þessu
er komið í veg fyrir að almenn
umræða drepi á dreif sjálfri
fyrirspurninni og tilgangi
fyrirspyrjanda með henni.
Jafnframt gefur þetta meira
svigrúm til löggjafarstarfa
þingsins með því að umfang
fyrirspurna I þingstörfum
minnkar, 5. mgr. 31. gr.
5. Sett eru ákvæði um umræður
utan dagskrár, en um það efni
hefur ekkert verið að finna í
þingsköpum. Ákvæði þessi eru
tvenns konar eftir því hve mik-
ilsverð mál er um að ræða.
Annars vegar er opnuð leið
fyrir því að fleiri mál megi
verða tekin fyrir utan dagskrár
en tíðkast hefur jafnframt því
að umræður séu mjög takmark-
aðar. Hins vegar er ætlunin að
þrengja möguleika til umræðna
utan dagskrár án tímatak-
markana þannig að slíkar um-
ræður verði nánast í undan-
tekningartilvikum um hin mik-
ilvægustu mál, 32. gr.
Þær breytingar í frumvarpinu,
sem eru fólgnar í lögfestingu á
venjum sem fylgt hefur verið í
framkvæmd, eru af ýmsum toga
spunnar, t.d.: Varamaður, ,sem
gerist aðalmaður, tekur sæti í
þeirri "þingdeild Sem sá sat í sem
hvarf af þingi, 9. gr. Fjárveitinga-
nefnd er heimilað að skipa undir-
nefnd til að starfa að sérstökum
verkefnum milli þinga, 3. mgr. 15.
gr. Munnleg skýrsla ráðherra til
Alþingis er heimiluð ef ekki verð-
ur komið við að prenta skýrslu eða
ekki þykir ástæða til, 3. mgr. 29.
gr. Kveðið er á um málsmeðferð ef
þingmaður forfallast svo að nauð-
syn krefji að varamaður taki sæti
hans á meðam, 2. mgr. 34. gr.
Fram er tekið að hvort heldur
sameinað þing eða þingdeild megi
vísa máli til ríkisstjórnar eða ein-
stakra ráðherra, 42. gr. Ef fram
kemur ósk um nafnakall er ákveð-
ið að við henni skuli orðið, 2. mgr.
47. gr.
Þau ákvæði frumvarpsins, sem
fela í sér umorðun eða formbreyt-
ingu á gildandi þingsköpum án
efnisbreytinga, er að finna á víð
og dreif. Þar er að nefna t.d.: Hiut-
verk forseta við framkvæmda-
stjórn Alþingis og skipan og verk-
efni skrifstofustjóra Alþingis, 3.—
4.mgr. 11. gr. Þá er kaflinn um
útvarpsumræðu að miklu leyti
umorðaður.
Ákvæði gildandi þingskapa, sem
felld eru niður í frumvarpi þessu,
varða ýmis efni, t.d.: Vinnunefndir
eru lagðar niður, 6. og 7. mgr. 15.
gr. óhlutbundin kosning í nefndir
afnumin, 16. gr., sbr. 49. gr. Felld
er niður 29. gr. gildandi þingskapa
um ávarp þingdeilda eða samein-
aðs þings til forseta lýðveldisins,
en að sjálfsögðu standa ákvæði 38.
gr. stjórnarskrárinnar um þetta
efni óhögguð. Felld eru niður
ákvæði sem lúta að því að taka
mál út af dagskrá og fá mál tekin
á dagskrá, 44. gr.
Morgunblaðið birtir hér ræðu tor-
seta sameinaðs þings við fyrstu
umræðu um frumvarp til laga um
þingsköp Alþingis samkvæmt sér-
stakri ósk hans. Millifyrirsagnir
eru blaðsins.
Ákveðið hefur verið að stofna
hlutafélag um Féiagsheimili tón-
listarmanna og er stofnfundur fé-
lagsins fyrirhugaður í maí nk. Til-
gangur félagsins er að eiga og
reka sameiginlegt félagsheimili
fyrir íslenska tónlistarmenn, þar
sem fjölþætt aðstaða verður fyrir
hendi.
SATT (Samband alþýðutón-
skálda og textahöfunda), FAT
(Félag alþýðutónskálda, nú FTT
— Félag tónskálda og textahöf-
unda), Jazzvakning og Vísnavin-
ir festu árið 1980 kaup á hús-
næði á Vitastíg 3. Að sögn und-
irbúningsnefndar um stofnun
félagsheimilisins var ákveðið
um síðustu áramót að gefa öllu
íslensku tónlistarfólki og áhuga-
fólki um tónlistarmál kost á að
gerast hluthafar í húsnæðinu og
sameinast um markmið Félags-
heimilis tónlistarmanna. Gera
það að veruleika nú á ári tónlist-
arinnar. Félagið hefur hlotið
góðar viðtökur þar sem það hef-
ur verið kynnt og hafa þegar
safnast nálægt 200 hlutar af
þeim 400, sem hlutaféð skiptist
í.
Fyrirhugað er að í félags-
heimilinu verði sameiginleg
skrifstofa fyrir hin ýmsu félög
og samtök tónlistarmanna.
Þarna á að vera hægt að halda
tónleika í sal sem tekur milli 70
og 100 áheyrendur. Ennfremur
aðstaða til funda- og skemmt-
anahalds, þar sem jafnvel væru
veitingar.
í húsinu er fullkomlega frá-
gengið hljóðver, sem þegar hef-
ur verið tekið í notkun og með
því skapast upptökumöguleikar
fyrir hvers konar tegund tón-
listar. Einnig er gert ráð fyrir
æfingaraðstöðu fyrir flokka
hljóðfæraleikara og kóra og
hugsanlega verður aðstaða til
tónlistarkennslu.
í undirbúningsnefnd Félags-
heimilis tónlistarmanna eru Jó-
hann G. Jóhannsson, Stefán
Edelstein og Þorkell Sigur-
björnsson. Umsjón með söfnun
hlutafjár hefur Helga Tulinius
ásamt Erlu Elínu Hansdóttur og
Guðnýju Bjarnar. Þeir sem vilja
fá nánari upplýsingar eða láta
skrá sig fyrir hlutafé hafi sam-
band við Helgu Tulinius, sími
10333, Erlu Elínu í sima 37443,
Guðnýju í síma 50804, Stefán í
síma 28477 eða 37745 og Jóhann
í síma 15310 eða 75783.
T KANNSKIIBUDAPEST
Flugleiðirbjóða flug og bíl í tengslum við áætlunarflug félagsins til 11 borga í Evrópu.
Þessir staðir eru: Björgvin, Glasgow, Gautaborg, Frankfurt, Kaupmannahöfn,
London, Luxemborg, Osló, París, Salzburg og Stokkhólmur. Ef þú vilt hafa
fararstjórnina í eigin höndum, þá hentar enginn ferðamáti þér betur en
flug og bíll.
Það er ódýrt að ferðast um Evrópu á bílaleigubíl.
Við hittum ykkur kannski í Búdapest.
LEITIO FREKARI UPPLÝSINGA UM FLUG & BlL
A SÖLUSKRIFSTOFUM FLUGLEIÐA,
HJÁ UMBOÐSMÖNNUM
FÉLAGSINS, EÐA A
FERÐASKRIFSTOFUNUM.
)fl
sem viljá stexki
heiminnog
skilja hannbetur