Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 24
24_______________ Rallakstur í tíu ár: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR18. APRÍL1985 Ómar og Jón hafa sigrað sautján ÁRANGUR bræðranna Ómars og Jóns Ragnarssona í rallakstri á undanförnum árum hefur tæpast farið framhjá fólki. Hafa þeir sigr- að svo oft að það hefur fyrirfram verið talið sjálfsagt af almenningi að þeir yrðu í efsta sæti. Hvort slíkt heyrir fortíðinni til kemur i ljós á komandi keppnistímabili rallökumanna, sem hefst á morgun með 10 ára afmælisralli Bifreiða- íþróttaklúbbs Reykjavíkur og Skeljungs. Er það 38. rallkeppnin sem haldin er hérlendis og sjötta árið í röð sem keppt er til ís- landsmeistara. Ýmsar blikur eru á lofti í ár. Komnir eru nýir keppnisbílar er- lendis frá og rallkappar hafa hlúð að keppnisbílum í skjóli vetrar. Sem fyrr eru ákveðnir aðilar lík- legri til að ná toppsætunum í röll- um og berjast til Islandsmeistara, en í ár er meiningin að leggja áherslu á að fá óbreytta bíla til keppni, laða hinn almenna öku- mann meira að rallinu án mikils tilkostnaðar. En Islandsmeistara- titilinn geta þeir eingöngu nálgast sem aka kraftmiklum bílum, og raða sér í efstu sæti í röllum. Ómar Ragnarsson hefur oftast orðið ís- landsmeistari, fjórum sinnum. Hann hefur líka náð langbestum sinnum árangri í keppni ásamt bróður sín- um Jóni. Saman hafa þeir sigrað 17 keppnir af 38, á Simca, (4 sigrar), Renault (12) og Toyota (1). Næstur þeim kemur fyrsti íslandsmeistar- inn, Hafsteinn heitinn Hauksson, með 6 sigra á Escort, en íslands- meistari ökumanna 1983, Halldór Úlfarsson, hefur 5 sinnum náð efsta sæti, 4 sinnum á Toyota og 1 sinni á Chevette. Hafsteinn Aðal- steinsson hefur þrívegis borið sigur úr býtum en aðrir sjaldnar. Þeir keppendur sem líklegastir eru til að keppa um íslandsmeist- aratitil ökumanna og aðstoðaröku- manna, en keppnin er tvískipt, hafa yfirleitt ekki gert upp hug sinn hvort þeir taki þátt í þeim sex röllum er gilda til titilsins. Besti árangur í fimm þeirra reiknast, en stigagjöfin er þannig að fyrsta sætið fær 20 stig, annað 15, síðan eru gefin 12, 10, 8, 6, 5, 4, 3, 2,1 stig eftir því sem neðar dreg- ur. „Við ætlum okkur Islandsmeist- aratitilinn í ár, ekkert annað. Það verður mun harðari keppni í ár en undanfarið. Bjarmi verður skæður á sterkum Talbot bílnum,“ sagði Jón Ragnarsson aðspurður um horfurnar í íslandsmeistarakeppn- inni í ár. Þeir hafa undanfarið ekið á 124 hestafla Toyota Corolla, en Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Bæðurnir margfrægu, Ómar og Jón Ragnarssynir, hafa sigrað í ralikeppni oftar en nokk unniðuir aðrir, sautján sinnum. Tólf sigra höluðu þeir inn á Renault 5 keppnisbfl sem hér sést ásamt hiuta verðlaunagripanna er hann vann til. Nú aka þeir Toyota og munu eiga í vök að verjast á árinu, ef þeir fá ekki kraftmeiri vél í bflinn. verða að fá sér betri bíl ef þeir ætla að eiga góða möguleika á titlinum. Kemur til greina að þeir fari á nýsmíðuðum 200 hestafla Escort. íslandsmeistari aðstoðarökumanna frá liðnu ári, Eiríkur Friðriksson, situr nú ökumannsmegin i bil sin- um, 160 hestafla Escort. Gæti hann blandað sér í toppbaráttuna ef hon- um tekst vel til við stýrið. „Ég tók Islandsmeistaradolluna af Jóni Ragnarssyni í fyrra, mig munar ekkert um að taka hana af ómari núna,“ sagði Eiríkur glettinn. Tveir nýir Talbot Sunbeam Lotus keppn- isbílar verða örugglega ofarlega. Öðrum aka þeir Bjarmi Sigurgarð- arsson og Birgir V. Halldórsson, sem spjallað er við annars staðar, en hinum þeir Þórhallur Krist- jánsson og Sigurður Jenssen. Bill Þórhalls er 200 hestöfl. „Ég hef ekki keppt lengi og veit ekki hvar ég stend sem ökumaður, þó bíllinn sé góður. Hraðinn hefur aukist mjög mikið undanfarin tvö ár,“ sagði Þórhallur. Aðrir liklegir keppendur hafa ekki ákveðið hvort þeir geri atlögu að titlinum. Halldór Úlfarsson og Hjörleifur Hilmarsson á Toyota hafa verið í fremstu röð undanfar- in ár, en Halldór vinnur i Dan- mörku og því er óljóst hve mikið hann keppir. Hann verður þó með í afmælisrallinu, en bfll hans verður siðan til sölu í umboði bílsins. Fé- lagarnir Óskar Ólafsson og Árni Ó. Friðriksson á Escort eru að prófa sig saman aftur eftir hlé. Árið 1982 misstu þeir af titlinum á óþægi- legan hátt eftir kærumál í Ljóma- rallinu. .Yfirvegaður akstur skilaði þeim vel áfram fyrir tveimur árum og spurningin er hvar þeir standa núna. En stærri spurning er hver af öllum nefndum og ónefndum köppum er líklegastur. Það er erfitt að meta það fyrr en að lokinni fyrstu keppninni um helgina, þá ættu keppendur að vera búnir að ná áttum og einhverjir verðlauna- sætum. —GR SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI/ óiafur Ormsson Eitthvað er af fólki sem líklega er ekki að byggja Föstudaginn langa bar uppá fimmta dag aprilmánaðar i ár. Árla morguns þann dag gafst mér kostur á að njóta leiðsagnar fararstjóra, manns á sextugs- aldri, um nýja hverfið f Grafar- vogi. Maðurinn starfar á stóru moksturstæki hjá fyrirtæki í borginni og aðspurður kveðst hann vera skóflumaður að at- vinnu. Hann ók bifreið sinni, rauðri japanskri fólksbifreið, fimm manna af nýjustu gerð og farþegar voru greinarhöfundur og miðaldra gullsmiður, góður vinur. Fararstjórinn kunni skil á hverju húsi, á hverri þúfu. Hann kom hingað á Skeggjagötuna f bifreið sinni ásamt gullsmiðn- um. Við erum góðir kunningjar ég og fararstjórinn og hann flautaði ákaft fyrir framan heimili mitt um hálfnfuleytið að morgni föstudagsins langa og þegar ég var ekki kominn út i bifreiðina að örfáum mínútum liðnum þá fór hann að ókyrrast og hljóp sfðan upp tröppurnar við húsið og ýtti á dyrabjölluna. Við tókumst i hendur við úti- dyrahurð buðum hvor öðrum góðan daginn og sögðum nokkur orð um veðurblíðuna. Sólin var komin upp og sendi geisla sína yfir höfuðborgarsvæðið. Það var svolítill andvari en hlýtt i veðri. Japanska fólksbifreiðin héit af stað þegar ég og fararstjórinn höfðum geispað tvisvar til þrisv- ar og við hófum ferðina með þvf að fá okkur eldsneyti, morgun- kaffi og meðlæti í Múlakaffi við Hallarmúla þar sem alþýða manna hefur snætt árum saman. Frá Múlakaffi var haldið eftir stutta stund áleiðis inn Suður- landsbrautina og uppí Ártúns- höfða. Þar hefur risið nýtt hverfi einbýlis- og raðhúsa ásamt stærri byggingum t.d. Hús- gagnahöllinni og stórhýsi is- lenskra aðalverktaka á vinstri hönd þegar ekið er út úr borg- inni. Farþegar f japanska fólks- bílnum sem ekki koma daglega f þetta hverfi borgarinnar höfðu orð á því að uppbyggingin væri ævintýri líkust. Fararstjórinn þekkti til flestra húsa og jafnvel húsgrunna í Ártúnshöfða. Hann rakti byggingarsögu hverfisins af sagnfræðilegri nákvæmni og ég hugleiddi þar sem ég sat i aft- ursæti bifreiðarinnar að um Ártúnshöfðann hefði hann sennilega farið með atvinnutæk- ið, skófluna, og rutt um jarðvegi, tekið grunna þar sem nú hefur risið myndarlegt hverfi íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Við Vesturlandsveg, á hægri hðnd þegar ekið er frá Ártúns- höfða, er ölgerð Egils Skalla- grímssonar að byggja framtíðar- húsnæði sem senn verður tilbúið og mun ekki af veita þegar þorstinn sækir að þjóðinni með bjórnum. Á framhlið hússins eru líkön af gosdrykkjum, maltöli og pilsner, sem ölgerðin framleiðir. Fararstjórinn ók greitt fram hjá ölgerðinni, hann reytti af sér brandara, hann er húmoristi með háa einkunn úr skóla lífsins og hlær stundum líkt og Wolf- man Jack, sá kunni útvarpsmað- ur, sem oft kemur fram í Kefla- víkurútvarpinu. Bíllinn beygði út af þjóðveginum við hús Iðn- tæknistofnunar og síðan var ekið sem leið lá um gamla Gufu- nesveginn að Gufuneskirkju- garði. Þar stoppuðum við um stund, litum á leiði, héldum að svo búnu áfram um gamla Gufu- nesveginn, holótta götuslóð sem varla er boðleg nýjum glæsi- Ekið um Gullinbrú. vagni frá Japan. Það sá ekki á bílnum þegar ekið var fram hjá Áburðarverksmiðjunni og held- ur ekki þegar ekið var áleiðis að nýja hverfinu í Grafarvogi. í Grafarvogi hefur risið fjöldi frekar smárra húsa er minna helst á nýtísku sumarbústaði. Þar var verið að sprengja i klöpp fyrir bílvegi þegar við fórum þar um og vinnuflokkur með loft- pressu að störfum. Við fórum um Fjallkonuveg, um Logafold, Reykjafold og mættum þar á göngu fólki sem spókaði sig i góða veðrinu og skoðaði nýbygg- ingar af svo mikilli athygli að það hefði varla veitt því athygli þó flugvél hefði lent í nágrenn- inu. Þarna er að rísa framtíðar- byggð og svo vel er staðið að allri skipulagningu byggðarinnar að athygli vekur. Sum húsin eru i stærra lagi og likjast helst fé- lagsheimili úti á landsbyggðinni og kemur þá i huga saga af konu er bjó úti á landsbyggðinni og var orðin nokkuð roskin þegar hún kom fyrst í heimsókn til Reykjavíkur fyrir örfáum árum. Konunni ver boðið í bíltúr um höfuðborgarsvæðið, þetta var fyrsta árið eftir að borgarstjórn- armeirihluti sjálfstæðismanna tók við borginni af vinstri meiri- hlutanum eftir bæjar- og sveit- arstjórnarkosningar, og með til- komu meirihluta sjálfstæð- ismanna hófst markviss upp- bygging I borginni. Konan var ekki litið undrandi er hún sá hinar miklu framkvæmdir víða um borgina, sérstaklega varð henni starsýnt á hin fjölmörgu nýju hús sem voru f byggingu og hún sneri sér að frænda sínum, bifreiðarstjóranum, og sagði: — Ég sé að mikið er byggt af félagsheimilun hér í Reykjavík. Þessi hús eru eins og félags- heimilið heima. Hvað ætlar fólk að gera við öll þessi félagsheim- ili,? spurði konan undrandi. Frændi hennar, bifreiðarstjór- inn, svaraði: Þetta er allt saman fbúðarhúsnæði, frænka. Reyk- víkingar byggja stórt og nú er aftur mikið byggt, eftir að við erum lausir við vinstri meiri- hlutann úr borgarstjórn en hann var ekki sammála um eitt eða neitt og þess vegna rfkti eigin- lega stöðnun i öllum fram- kvæmdum í þau fjögur ár sem við urðum p.ð þola stjórn vinstri manna. Leiðin frá Grafarvogi lá um Gullinbrú sem tengir umferð frá borginni að Grafarvogi. Upp- byggingin í Grafarvogi er svo ör að einstakt má teljast og er skemmtilegt að fylgjast með framvindu mála. Allt umhverfið er hið fegursta og það er skjól- gott í Grafarvoginum. Það er ekki einungis í Grafar- vogi sem byggt er á höfuðborg- arsvæðinu. Við Eiðistorg og í ná- grenni við Granda hefur mikið verið byggt síðustu tvö árin. Ég átti þar leið um annan dag páska og var um tíma gjörsamlega áttavilltur. Leiðin lá á bóka- markaöinn og það var ekki fyrr en eftir nokkra leit að húsið þar sem bókamarkaðurinn var til húsa kom i leitirnar. Ein sam- felld byggð tengir nú saman byggðina á Seltjarnarnesi að Granda og allt i kringum Eiðis- torg hefur risið hverfi nýbygg- inga. 1 húsi Vörumarkaðarins við Eiðistorg f kjallara fann ég bókamarkaðinn. Þar var margt um manninn innan um bóka- staflana. Árni Bergmann, rit- stjóri Þjóðviljans, var kominn með fjölda bóka í fangið og var niðursokkinn f athugun á inni- haldi bókar þegar ég gekk fram hjá honum. Og við eitt borðið sá ég Baldur Guðlaugsson, hæsta- réttarlögmann, og Björn Þór- hallsson, varaforseti Alþýðu- sambandsins, var þarna lika og ég sá ekki betur en að hann rannsakaöi Ijóðadeildina á bóka- markaðnum. Kristján Linnet, lyfjafræðingur, var með stafla af bókum f fanginu þegar ég hitti hann við stúku gjaldkera og fleiri kunn andlit voru þarna á bókamarkaðnum og það var mikið verslað. Það var stöðugur straumur fólks inná bóka- markaðinn þær tuttugu minútur sem ég stoppaði þar. Eitthvað er af fólki, sem liklega er ekki aö byggja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.