Morgunblaðið - 18.04.1985, Side 30

Morgunblaðið - 18.04.1985, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1985 Biilow-réttarhöldin standa enn yfir Þessi mynd er tekin í síðustu viku er Claus von Biilow yfirgefur húsa- kynni hestaréttar í Providence á Rhode Island. Þar standa enn yfir réttarhöld gegn honum, en hann er sakaður um að hafa reynt að myrða eiginkonu sína með þvi að gefa henni inn insúiín. Carter gagnrýnir Reagan harðlega New BnUin, Connectieut, 17. apríl. AP. „RONALD REAGAN aðhefst ekkert sem leitt geti til friðar í Mið-Amer- íku eða dregið úr spennunni í þeim heimshluta. Hann klifar á því að skeniliðarnir í Nicaragua séu eina von þjóðarinnar og hleður á þá vopn- um og annarri aðstoð þegar slíkt get- ur ekki haft annað i for með sér en aukna spennu og áframhaldandi átök í landinu. Reagan verður að endurskoða stefnu sína í Mið- Ameríku rekilega ef ekki á illa að fara.“ Sá sem svo melir er Jimmy Carter, fyrrum forseti Bandaríkj- anna, en hann melti þessi orð í reðu sem hann flutti í háskólanum í New Britain í ConnecticuL Carter var ómyrkur í máli er hann reifaði bresti þá sem hann taldi vera í utanríkisstefnu Reag- ans, sérstaklega varðandi Mið- Ameríku. „Reagan er alltaf að geina frá samningslipurð sinni og samkomulagsvilja i ræðum sem hann flytur hér eða þar. Samt eru það verkin sem tala og ef maður lítur á þau sést glöggt að þrátt fyrir fögur orð virðist forsetinn hrifnastur af þvi að ýmist beita hernaðarlegu ofbeldi eða að hóta því til þess að koma fram vilja sínum. Ég óttast að bandarískir hermenn verði komnir í eldlínuna i Mið-Ameríku áður en langt um líður, ég vona að ég hafi rangt fyrir mér, en ef breyting verður ekki til batnaðar í stefnu forset- ans þá óttast ég að ég hafi rétt fyrir mér,“ sagði Carter að lokum. GENGI GJALDMIÐLA London. 17. apríl, AP. BANDARÍSKUR dollar var óstöðugur í dag á gjaldeyris- mörkuðum í Evrópu, og var ástæðan talin vera óvissan um áframhaldandi efnahagsbata i Bandaríkjunum. Breska pundið hækkaði í 1,2797 dollara, en var 1,2752 dollarar í gærkvöldi. Staða dollars gagnvart öðr- um helstu gjaldmiðlum var í dag sem hér segir: Vestur-þýsk mörk 3,0230 (3,0125), svissn. frankar 2,5260 (2,5055), franskir frankar 9,2350 (9,1950), hollensk gyllini 3,4240 (3,4975), ítalskar lírur 1.934,50 (1.928,25), kanad. doll- ar 1,3567 (1,3597). Veður Lngst H«Mt Akureyri 2 slydduél Amsterdam 9 17 skýjaó Aþena 14 21 skýjaó Barcelona 18 heióskírt Berlin 12 heióskirt Briissel 6 18 skýjað Chicago 8 14 heióskírt Oublín 9 17 skýjaó Feneyjar 16 skýjaó Frankfurt 2 13 heiðskírt Genf 7 14 skýjaó Helsinki 1 4 skýjaó Hong Kong 19 25 heióskírt Jerúsalem 14 20 heióskírt Kaupm.höfn 2 11 heióskírt Laa Palmas 23 rykmist Lissabon 12 27 heióskirt London 11 19 heióskírt Los Angeles 14 21 skýjaó Luxemborg 12 hálfsk. Malaga 21 heiðskírt Mallorca 23 heióskírt Miami 21 30 skýjaó Montreal 9 15 rigning Moskva 4 16 rigning New York 10 12 heiðskírt Osló 1 12 rigning París 9 17 heióskírt Peking 6 25 skýjaó Reykjavík 4 alskýjaó Rio de Janeiro 19 34 skýjaó Rómaborg 11 19 heióskírt Stokkhólmur +1 7 skýjaó Sydney 13 21 heiöskírt Tókýú 9 18 heiöskírt Vínarborg 4 14 rigning Þórshöfn 7 skýjaó Hið hvíta víti rauða hersins eftir Leon Nikulin Sovétmenn fórnuðu nær 275.000 hermönnum til þess að tryggia ser yfirráðin yfir Kirjálabotni. I síð- astliðnum mánuði voru liðin 40 ár frá lokum finnsk-rússneska vetr- arstríðsins. Fyrir næstum 45 árum teygðu angar síðari heimsstyrjaldar- innar sig til ógreiðfærra freð- mýra norðursins. Þá hafnaði smáríkið Finnland með 3,5 millj- ónum ibúa — eða álíka marga og Leníngrad — landakröfum Sov- étríkjanna og hið örlagaríka vetrarstríð braust út milli nágrannarikjanna tveggja. Á þessum tíma voru frosthörkurn- ar geysilegar og frostið komst niður í 50 gráður þegar það varð mest. Kaldhæðni örlaganna réð því að samkvæmt hugmyndum Len- íns þá átti bylting bolsévíkanna einmitt að hefjast í Finnlandi. Tuttugu og þrem árum seinna réðust arftakar Leníns í Kreml vægðarlaust gegn þessu frið- sama smáríki. Finnskum stjórnvöldum bár- ust afarkostir Molotovs utanrík- isráðherra í símskeyti þar sem Finnum var gefinn 48 klukku- stunda frestur til þess að koma til Moskvu „að ræða tiltekin pólitísk atriði". Stalín sjálfur var viðstaddur þegar Molotov tók á móti finnsku sendinefnd- inni í Kreml. Stalín sagði gestunum að íbúum Leníngrad væri ógnað. Borgin væri aðeins 32 kílómetra frá landamærunum og ekki væri hægt að flytja borgina, eins og hann orðaði það, og því væri nauðsynlegt að flytja landamær- in. Það má bæta því við hér, að hingað til hefur íbúum Len- íngrad einungis verið ógnað af sovésku öryggislögreglunni. Samkvæmt alfræðibókum voru ibúar borgarinnar 2,42 milljónir fyrir byltinguna. Þremur árum síðar hafði þeim fækkað um 720.000 eða þriðjung. Orsökin var „hreinsanir" öryggislögregl- unnar. Stalín sgði Finnunum að hann vildi einnig slá eign sinni á nokkrar smáeyjar Kirjálabotns. Þá krafðist hann þess að fá „til leigu“ nesið Hangö sem er vest- an við Helsingfors. Þar ætlaði hann að koma upp sovéskri flotastöð. Stalín vildi líka að landamærin við Leníngrad yrðu færð 12 kílómetra til vesturs þannig að þau yrðu 44 kílómetra frá Leningrad en ekki 32 eins og þá var. Að endingu kvaðst hann vilja fá Petsamó í sinn hlut. Finnska stjórnin hafnaði öll- um kröfum Sovétmanna í þeirri von að ekki lægi alvara að baki hótunum Sovétstjórnarinnar og að ekki kæmi til striðs þá um veturinn. Daginn eftir réðst Rauði her- inn á Finnland og sovéskar sprengjuflugvélar gerðu loftárás á Helsingfors. Upphaflega tengdist striðið ekki siðari heimsstyrjöldinni en ekki mátti miklu muna að heimsstriðið hefði afdrifaríkar afleiðingar á gang mála. Sovétrikin gerðu árásina með ofurefli liðs: 450.000 manna fót- gönguliði, 1900 brynvörðum bif- reiðum, 1000 skriðdrekum og 800 flugvélum. Ibúatala Finnlands var þá sem fyrr segir 3,5 milljón- ir en í Sovétríkjunum var iþúa- tala 175 milljónir. Finnum tókst að koma saman 13 fótgönguliðs- sveitum. Þeir höfðu yfir að ráða 60 gömlum skriðdrekum og 175 herflugvélum. En nú gerðist það sem engan hafði órað fyrir. Finnum tókst að stöðva framrás Rauða hers- ins. Þeir umkringdu þrjár sov- éskar herdeildir og einn skrið- drekaflokk og gersigruðu. Leyni- skyttur Finnanna komu þá að miklum notum, en rússnesku hermennirnir nefndu þær „gauk- ana“ sin á milli. Gegn skriðdrek- um innrásarhersins reyndust líka svokallaðir „Molotovkokteil- ar“ vel, en það voru flöskur fyllt- ar með bensini. Þótt Finnar væru mun færri þá nutu þeir þess að gjörþekkja landið, og þeir kunnu líka mun betur á veðurfarið, ef svo mætti orða það. Hrakfarir Rússa urðu þeim mikill álitshnekkir um viða veröld. Afleiðingar stríðsins blöstu þar að auki hvarvetna við í Sovétríkjunum. Þúsundir ör- kumla manna settu svip sinn á daglegt líf fólksins þennan harða vetur. Þetta voru mennirnir sem sneru heim aftur örkumla frá finnsku vigstöðvunum. Fjöldi særðra var allt of mikill þegar smæð andstæðingsins var höfð i huga. Þess vegna komu stjórnvöld fljótlega upp sérstök- um gaddavirsgirtum búðum þar sem hinir sáru voru geymdir. Þannig var reynt að fela hinar hörmulegu afleiðingar vetrar- stríðsins fyrir óbreyttum borg- urum. í vetrarstriðinu kvað Stalín í fyrsta sinn hafa orðið alvarlega skelkaður. „Hvernig eigum við að geta staðið okkur gegn fjöl- mennum, velþjálfuðum og vel vopnum búnum her, (væntan- lega er hér átt við þýska herinn), þegar við getum ekki einu sinni sigrað finnsku „gaukana“?“ Þetta á einræðisherrann að hafa sagt i viðræðum við Khrustjev. Stalín hefur líklega verið búinn að gleyma þvi að þúsundir af ágætustu hermönnum Rússa höfðu verið drepnir í umfangs- miklum „hreinsunum" sem hann stóð sjálfur fyrir. Sovésku hersveitirnar urðu að lokum að gefast upp við sókn sína fyrir norðan Ladógavatn en einbeita sér þess í stað að að- gerðunum á Kirjálaeiði. Timosjenko, hershöfðingi Sov- étmanna, fékk öflugt varalið beint frá Síberíu. Þaðan komu 26 fótgönguliðasveitir og sex skrið- drekasveitir. Alls voru þá á vígstöðvunum 46 herdeildir Sov- étmanna og geysiðflugt stórskotalið. Finnar áttu ekkert varalið og skotfæraskortur varð brátt mjög alvarlegur. En almenningsálitið var hvarvetna Finnum í vil. í þá daga gat verið erfitt að vera sanntrúaður kommúnisti. Fyrir Þjóðverja var striðið eins konar herfræðileg tilraunastofa til þess að meta getu rússneska björnsins. Sjálfboðaliðar gáfu sig brátt fram í fjölmörgum löndum, og hafnar voru fjársafnanir til stuðnings Finnum. Mestu mun- aði um stuðning Svia, en Finn- land var einmitt hluti af Svíþjóð fram til ársins 1809. Frá Svíþjóð komu 8000 sjálfboðaliðar og þar söfnuðust rúmlega tveir millj- arðar króna. í febrúar 1940 hófu Rússar stórsókn á Kirjálaeiði. Síðar var sókninni beint gegn Manner- heim-línunni svokölluðu, en þar voru 96 virki, en af þeim vöru þó aðeins 26 sæmilega búin. í lok febrúar byrjuðu Finnar að hörfa þar sem ekki reyndist unnt að stöðva innrásarliðið á flatlend- inu sem þarna er. Á sama tíma gáfu Rússar í skyn að þeir væru til viðtals um stöðvun vopnaviðskipta. Þeir létu kommúníska leppstjórn, sem þeir höfðu sett á laggirnar í landamæraþorpi, sigla sinn sjó. Þá létu þeir þau boð berast í geg.ium Svía að þeir væru til- búnir í friðarviðræður með ákveðnum skilyrðum. Finnar kusu að taka boðinu og friðarviðræðurnar hófust >' mars. Þann 12. næsta mánaðar voru svo friðarsamningar undirritað- ur í Moskvu. Finnar misstu í striðinu 23.000 manns fallna og 10.000 urðu ör- kumla. Fjöldi flóttamanna var geysilegur, og tóku Finnar á móti 450.000 flóttamönnum frá Kirjálaeiði. Sovétmenn sögðu sjálfir að 220.000 manns hefðu fallið úr þeirra liði eða væri saknað. Aðrar heimildir herma hinns vegar að tala fallinna hafi verið um 273.000 manns. Með öðrum orðum hefur mannfallið í liði Rússa verið 12 sinnum meira en hjá Finnum. í friðarsamningunum þurftu þeir siðarnefndu að láta Kirjála- eiði af hendi ásamt með bænum Viborg. Þá neyddust þeir til þess að leyfa sovéska herstöð í Hangö. En Finnar björguðu því sem mikilvægast var, það er sjálfstæði sínu. Með stríðinu tryggðu Sovétmenn yfirráð sín yfir Kirjálabotni og landamærin fluttust 100 kílómetra frá Len- íngrad. Stríðið brá engum skugga á hina vinsamlegu sambúð Þýska- lands og Sovétríkjanna á þessum tíma. í skeyti til Hitlers í tengsl- um við sextugsafmæli sitt árétt- aði Stalin vináttu þjóðanna. Nú, 45 árum síðar, telja sænskir hermálasérfræðingar að Sovétmenn séu að reyna að sannfæra stjórnvöld í Svíþjóð og öðrum norrænum löndum um gagnsleysi hervarna gegn sov- éska stórveldinu og að mikilvæg- ur liður í þeirri áróðursherferð séu sovésku kafbátamir sem rjúfa landhelgi Svíþjóðar og Noregs. Þá gegndi áróður Sov- étmanna fyrir kjarnorkuvopna- lausum svæðum á Norðurlönd- um sama hlutverki, þ.e. að þvinga Norðurlöndin til þess að fara að fordæma Finna og forð- ast að styggja Sovétmenn með aðgerðum sínum heima og heiman. Rétt er að hafna hugmyndum Sovétmanna um kjarnorku- vopnalaus svæði á Norðurlönd- um af sama þunga og óskum Hitlers um griðarsáttmála við hinar norrænu þjóðir í apríl árið 1939. Áróður Sovétmanna um þess- ar mundir getur einungis stefnt öryggi Norðurlandanna í hættu. Það sannar reynsla Finna og íbúa Eystrasaltslandanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.