Morgunblaðið - 18.04.1985, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1985
33
Carrington íNoregi
Peter Carrington lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins,
kom á sunnudag í fyrstu opinberu heimsókn sína til Noregs, síðan hann
tók við embætti. Carrington dvaldist í Noregi í tvo daga og átti viðræður
við ráðamenn, auk þess sem hann þá heimboð konungs og forseta
Stórþingsins. Þá flutti framkvæmdastjórinn fyrirlestur við háskólann í
Ósló. A myndinni sést er Káre Willoch forsætisráðherra tók á móti
honum á Fornebu-flugvelli.
Úrgangsmála-
ráðherra
Lundúnum, 17. april. AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur skipað
sérstakan úrgangsmálaráðherra og
er hann hinn fyrsti sinnar tegundar í
landinu. Hlutverk úrgangsmálaráð-
herra verður að skipuleggja nýtingu
sorps og annars úrgangs.
Ráðherrann heitir David
Trippier og er 39 ára gamall fyrr-
um starfsmaður hjá samgöngu-
málaráðuneytinu. Frú Thatcher
sagði er hún skipaði Trippier i
embættið, að 60 prósent hinna 56
milijóna tonna af úrgangi sem
fellur til í Bretlandi ár hvert væru
nýtanleg, þar væri að finna efni á
borð við gler, pappír, ál, kopar og
gúmmi að andvirði 750 milljóna
punda. Annan úrgang mætti nýta
til rafmagnsframleiðslu og fleira.
„Úrgangur er allt of víða og raun-
ar nær alls staðar meðhöndlaður
eins og hvert annað sorp, en það er
hugarfar sem þarf að breytast, því
í úrgangi eru mikil verðmæti fólg-
in,“ sagði frú Thatcher.
Andstæðingar sandinista
fái áframhaldandi aðstoð
Wauhington, 16. npril. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
skoraði í dag enn á ný á fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings að samþykkja
tillögu hans um 14 millj. dollara
framlag til skæruliða, sem berjast
gegn vinstri stjórn sandinista í Nic-
aragua. „Hvert atkvæði gegn þessari
tillögu er bókstaflega ekkert annað
en atkvæði gegn friðnum," sagði for-
setinn.
Forsetinn sagði ennfremur, að
þessi fjárhæð væri „svo litil en
samt svo þýðingarmikið tákn um
einurð okkar“. Lýsti forsetinn bar-
áttunni fyrir auknu frelsi i Nicar-
agua sem „einu mesta siðferðis-
lega baráttumáli sögunnar allt frá
lokum heimsstyrjaldarinnar síð-
ari“.
Andstæðingar forsetans hafa
nú hafið mikla herferð gegn allri
aðstoð við skæruliða í Nicaragua,
ekki hvað sizt með greinum i blöð-
um og auglýsingum í sjónvarpi og
útvarpi með frásögnum af meint-
um ofbeldisverkum skæruliða.
Daniel Ortega, forseti Nicar-
agua, skoraði í dag á fulltrúadeild
Bandaríkjaþings að greiða at-
kvæði gegn tillögu Reagans for-
seta. „Með því að greiða atkvæði
með tillögunni er verið að greiða
atkvæði með árásarstefnu og
hryðjuverkum gegn þjóð Nicar-
agua,“ sagði Ortega.
Hestamenn — Fáksfélagar
Evrópumót
íslenska hestsíns 1985
Hópferö til Svíþjóöar og Danmerkur í ágúst
Ferðatilhögun:
Flogiö til Gautaborgar 15. ágúst og gist þar í 4 nætur, á meöan
mótiö fer fram í Alingsás. Frá 19.—25. ágúst veröur dvaliö á
Hótel Marienlyst í Helsingör, sem er eitt af glæsilegri hótelum á
Noröurlöndum, staösett viö eina bestu baöströnd Danmerkur.
Siöustu dagana, 25.-27. ágúst, veröur dvaliö á Hótel Cosmo-
pol í Kaupmannahöfn.
Verð kr. 29.800,- fyrir utan flugvallarskatt. Viö-
bótarverð fyrir einn kr. 6.000,-
Allar nánari upplýsingar hjá Útsýn.
Feröaskrifstofan
0TSÝN
Austurstræti 17,
sími 26611.
STJÓRNUN
BREYTINGA
Management of change
Stöðugar breytingar í vinnuumhverfi stiórnenda
leiða tn meiri krafna og auka vinnuálag. Til þess að
ráða við betta þarf nýjar aðferðir og nyja hæfni sem
ekki er tif staðar nema að litlu leyti i dag. Breytingar
eru eðliiegur hluti af lífinu, en hinar öru tæknifram-
farir á undanförnum árum hafa aukið hraða breyt-
inganna og áhrif þeirra fara vaxandi.
Vaxandi skilningur er á því innan atvinnulífsins að
geta fyrirtækjanna til þess að lifa af, velti mjög á
næfninni til þess að stjórna breytingum á árangurs-
ríkan hátt. tngin einfold leið er til.
Markmið námskeiösins er m.a. að:
- greina eðli breytinga og þau vandamál
sem þær skapa
- yfirfara aðferðir við stjórnun breytinga
- greina vandamál sem við er að etja í dag
vegna breytinga
Efni námskeiðsins er m.a.:
- þörfin fyrir breytingar og framtíðarspár
- nin raunverulequ vandamál breytinga
- þróun bestu aðstæðna
- skipulagning og framkvæmd á árangurs-
ríkum stjórnunaraðferðum
- helstu lykilatriði við stiórnunbreytinga
- markvirkar stjórnskipulagsbreytingar
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað öllum stjórn-
endum fyrirtækja og stofnana, sem á einhvern hátt
þurfa ao stjórna breytinaum; námskeiðið hentar
einnig mjög vel rekstrarráogjöfum, sem óska að ná
tökum á viofangseefninu.
Leiðbeinandi: Mike Fischer, starfar sem stjórnun-
arráðgiafi hjá fyrirtækinu Organisation Dynamics.
samskiþta- og nvatningaraoteroir. Hann
ára starfsreynslu við Teiðbeiningarstörf í breska
flughernum og hjá breska varnarmálaráðuneytinu,
og starfaði sem aðalleiðbeinandi á þjálfunarnám-
skeiðum hersins.
Staður og tími: 23.-24. apríl 1985 í Krist-
alssal Hótels Loftleiða.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930