Morgunblaðið - 18.04.1985, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 18.04.1985, Qupperneq 45
MQRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR18. AFRÍL1986 vanda af rekstri þess framvegis." Þáverandi menntamálaráðherra, Brynjólfur Bjarnason, svaraði með bréfi dags. 16. október 1946 og sagði ríkið vilja taka við safninu, hvenær sem félagið æskir að af- henda það. „En til bráðabirgða hefur ráðuneytið ákveðið, að ráða að safninu frá 1. janúar 1947 að telja tvo fasta starfsmenn, þá dr. Sigurð Þórarinsson og dr. Finn Guðmundsson." Stjórn náttúrufræðifélagsins gerði nú uppkast að samningi um afhendingu safnsins og lagði það fyrir næsta aðalfund félagsins, sem haldinn var 22. febrúar 1947, og samþykkti fundurinn uppkastið með smávægilegum breytingum. Þann 16. júní 1947 undirrituðu svo þáverandi menntamálaráðherra, Eysteinn Jónsson og Hið íslenzka náttúrufræðifélag eftirfarandi samning. Samningur um náttúrugripasafnið „Stjórn Hins íslenzka náttúru- fræðifélags og menntamálaráðu- neytið gjöra með sér svofelldan samning: Stjórn Hins íslenzka náttúru- fræðifélags afhendir hér með menntamálaráðuneytinu f.h. rík- issjóðs náttúrugripasafn félagsins til fullrar eignar og umráða, ásamt sjóði þeim, að fjáhæð kr. 82.395,21 — áttatíu og tvö þúsund þrjú hundruð niutíu og sex 21/100,- er félagið hefur myndað í því skyni að reisa safninu hús, svo og bækur, áhöld, skjöl og allt ann- að, er safninu hefur fylgt og fylgir. Félagið afhendir einnig allt það, er varðar fuglamerkingarstarf- semi félagsins og útgáfu vísinda- ritsins „Acta naturalia islandica". í staðinn skuldbindur mennta- málaráðuneytið sig til að láta Hinu íslenzka náttúrufræðifélagi í té ókeypis eitt herbergi í hinni nýju náttúrugripasafnsbyggingu, er verði skrifstofa félagsins og að- albækistöð. Ennfremur skal félag- ið fá ókeypis hentugt og hæfilegt geymslurúm í nefndri safnbygg- ingu fyrir uppiög tímaritsins Náttúrufræðingsins, Flóru ís- lands, ársskýrslu félagsins og ann- arra rita, er félagið kann að gefa út og nánar semst um. Þá skal félagið og fá ókeypis afnot af kennslusal hinnar fyrirhuguðu náttúrugripasafnsbyggingar til fundarhalda sinna, eftir nánara samkomulagi, þegar smíði hússins er lokið. Félagar í Hinu íslenzka náttúrufræðifélagi skulu fá ókeyp- is aðgang að náttúrugripasafninu. Framangreind afhending miðist við 1. janúar 1947. Samningur þessi er undirritaður i tveimur samhljóða frumritum og heldur hvor aðili sínu eintaki." Reykjavík, 16. júní 1947. Menntamálaráðherra F.h. Hins íslenzka Eysteinn Jónsson. náttúrufræÓifélags: Siguróur Þórarinsson Gunnar Árnason Guðmundur Þorlákss. Sigurður Pétursson. Hér urðu mikil þáttaskil i sögu náttúrugripasafnsins. Safnið, sem hafði verið einkaeign þess félags, er byggði það upp, var nú orðið ríkiseign, og mátti því teljast vel sett á þeirra tíma mælikvarða. Auk þess fylgdi safninu allstór hússjóður, myndaður „í því skyni að reisa safninu hús“, og teikn- ingar af húsinu voru tilbúnar. Nú var því hægt að hefjast handa strax við byggingu hússins. Árið 1951 voru gefin út lög um Náttúrugripasafn Islands (lög nr. 17/1951). Þar stendur í 2. gr., að aðalhlutverk safnsins sé: 1. að viða að sér sem fullkomn- ustu safni islenzkra náttú u- gripa og varðveita það 2. að afla erlendra náttúrugripa, eftir því sem heppilegt þykir og aðstæður leyfa 3. að annast fuglamerkingu í vis- indalegum tilgangi. 4. að vinna skipuiagsbundið að al- mennum rannsóknum á nátt- úru íslands 5. að annast eða sjá um tilteknar rannsóknir eftir því sem ríkis- stjórnin kann að óska. I 4. gr. stendur: Náttúrugripasafnið skal vera almenningi til sýnis eigi sjaldnar en þrisvar í viku ... Lögð skal áherzla á, að safnið veiti sem gleggst yfirlit um náttúru lands- ins. f þessum lögum er ekki gert ráð fyrir því, að kennsla fari fram í Náttúrugripasafni Islands. Safnið á fyrst og fremst að vera sýn- ingarsafn, sem opið skal öllum al- menningi, jafnt skólafólki og öðr- um, án þess að tilheyra sérstakl- ega Háskóla fslands eða létta af honum náttúrufræðikennslunni. Hússjóðurinn, sem látinn var fylgja safninu við afhendinguna árið 1947, var þá að upphæð 82.396 kr. Miðað við byggingarkostnað árið 1985 jafngildir það 1.050 þús. kr. En hér fór allt á annan veg en ætlað var. Ríkissjóður fslands stóð aldrei að sínum hluta við samninginn um náttúrugripasafn- ið frá 16. júní 1947. Ennþá hefur ekki veriö hafin bygging á húsi fyrir Náttúrugripasafnið, og hús- sjóðurinn er horfinn. Sigurður Pétursson er gerlafræö- iagur og fýrrrerandi deildar- stjóri hjí Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins. Ijósmynd/Sig. Jóns „Litli Sam“: Smári Kristjánsson, Jóhann Stefánsson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Margrét Lilliendahl, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Helgi Kristjánsson og Gissur Geirsson. Selfoss: Arlegir vortónleikar á döfinni SelfoHRÍ, 15. sgríl. HÉR Á Selfossi eru margir góðir sönghálsar, enda fjórir kórar starfandi. Samkór Selfoss hélt sína árlegu vortónleika föstudaginn 12. aprfl sl. Tónleikarnir voru haldnir i Sel- fossbíói og tókust með ágætum. Söngskráin var fjölbreytt að vanda, mjúkir tónar af nótnablöð- um Bachs, dillandi diskótaktur, ásamt hefðbundnum kórlögum. Kórstjórinn, Helgi Kristjánsson, skipti kórnum þannig að sum Iög sungu karlarnir einir, konurnar einar og loks var „Litli Sam“ með sína hressilegu skemmtidagskrá. Reyndar eru kvennaraddirnar kall- aðar „Kvensam", svona til að kitla hláturtaugar. Nú eru á döfinni söngskemmtan- ir a.m.k. tveggja kóra, Karlakórs- ins og kórs Fjölbrautaskólans og verður sjálfsagt unun á að hlýða, enda vorsöngur okkar Selfossbúa. Sig. Jóns. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Myndastytta af Jósef Stalín á Gömul mynd úr mosku f Tirane. Skanderbeg-torgi í Tirane. Öllum bænahúsum hefur síðan verið breytt í leikhús eða verzlanir. Albanía: Landbúnaður stendur með blóma f landinu. Verður breyting á ein- angrunarstefnu Albaníu með nýrri forystu? EKKI er ósennilegt, að vandabarátta brjótist upp á yfírborðið í Albaníu, að Enver Hoxha látnum. Þó svo að Ramiz Alia hafí tekið við stöðu flokksleiðtoga, eins og Hoxha lagði fyrir, er trúlegt að Adil Carcani forsætisráðherra reyni að láta að sér kveða. Carcani er fylgjandi þvf að Albanía taki upp samskipti við erlend ríki, en Alia styður einangrunar- stefnu fyrirrennara síns. Ovíst er að fréttir berist af valdabaráttu nema í tak- mörkuðum mæli, en augu manna beinast þessa stundina að Alb- aníu og áreiðanlega reyna frétt- amenn að fylgjast með gangi mála. Þegar Hoxha lézt á dögunum, 76 ára að aldri, hafði hann verið í fyrirsvari í kommúnistariki, lengur en nokkur annar. Hoxha bannaði trúarbrögð og nam trúna úr gildi formlega árið 1967. Albanía var eina landið í Evrópu, þar sem trúarbrögð hafa verið bönnuð með opinberri lagasetningu. Hoxha bannaði að menn ættu einkabíla, að fólk færi f utanlandsferðir, kysstist á almannafæri svo að nokkuð sé nefnt. Hann efldi mjög landbúnað í Albaníu, svo að landið er sjálfu sér nægt með matvælafram- leiðslu. Lífskjör í landinu hafa batnað en ýmsar auðlindir þess eru enn vannýttar og Albanía telst vera snauðasta land í Evr- ópu. Landið er mjög lokað, ferða- menn eru þar sjaldséðir og strangar reglur ero í gildi um ferðir þeirra og samskipti þeirra við Albani. Hoxha stofnaði kommúnista- flokk Albaníu árið 1941 og gat sér sfðan gott orð sem leiðtogi andspyrnuhreyfingarinnar f heimsstyrjöldinni síðari gegn ít- ölum og Þjóðverjum, sem höfðu ráðizt inn í landið. Bandamenn veittu honum stuðning með þvf fororði, að efnt yrði til frjálsra kosninga. I desember 1945 var kommúnistaþing landsins „kos- ið“ og mánuði síðar lýst yfir stofnun lýðveldis í landinu. Bretar og Bandaríkjamenn rufu stjórnmálasamband við Albaníu árið 1946, eftir að Hoxha hafði aukið samskiptin við Júgóslavíu. Þau urðu enda- slepp; þegar Tito sleit Júgóslavíu úr tengslum við Sovétríkin, brást Hoxha hinn versti við og sneri sér heilshugar að stuðningi við Stalínstjórnina. Árið 1960 var vinfengi við Kremlarbúa fyrir bí eftir að Krúsjev hafði gagnrýnt Stalín og stjórnar- háttu hans. Hoxha sakaði Krúsj- ev um endurskoðunarstefnu og ákvað að halla sér að Kfnverjum. En árið 1978 slitnaði svo upp úr þeirri vináttu og enn var ástæð- an hjá Hoxha hin sama: Kínverj- ar höfðu gerzt sekir um endur- skoðunarstefnu. Enginn vafi er á þvf að Hoxha hélt öllum þráðum valdsins f hendi sér. Hann barði miskunn- arlaust niður alla andspyrnu og greip til þeirra bragða sem hon- um þótti áhrifamest hverju sinni. Hann hafði ákveðið að Mehmet Shehu, forsætisráð- herra um árabil, yrði eftirmaður sinn. Árið 1981 sinnaðist þeim félögum og samkvæmt opinber- um fréttum framdi Shehu sjálfs- morð. Heimildir sem taldar hafa verið langtum öruggari sögðu að Hoxha hefði skotið Shehu með eigin hendi, eftir að sundur- þykkja milli þeirra magnaðist. Shehu hafði verið dáð stríðs- hetja, en f einni af mörgum bók- um sínum, sagði Hoxha að Shehu hefði verið njósnari um árabil fyrir Breta, Bandaríkja- menn, Sovétmenn og Júgóslava. Árið 1967 var Albanía form- lega lýst trúlaust rfki, eins og minnzt var á. Meirihluti þjóðar- innar hafði verið múhameðstrú- ar og allmargir voru kristnir. Moskum og kirkjum var snar- lega breytt í leikhús, verzlanir eða skrifstofur og öll iðkun trúar stranglega bönnuð og hörð við- urlög við brotum. Enver Hoxha virðist hafa ver- ið haldinn sjúklegri tortryggni í garð útlendinga, það er kunnara en frá þurfi að segja. Sú tor- tryggni magnaðist með árunum. Ungur var hann þó við nám í Frakklandi og starfaði síðan í Belgiu áður en hann fluttist al- farinn heim til Albaniu, þar sem hann kenndi um hríð frönsku i Tirané. Þó að Hoxha væri óumdeilan- legur stjórnandi Albanfu í ára- tugi hefur einangrunarstefna sú, sem hann fylgdi, sætt gagnrýni á hinum síðustu árum. Fremstur f flokki er þar sem sagt forsætis- ráðherrann Adil Carcani. Car- cani álítur nauðsynlegt að koma Albaníu aftur inn á Evrópukort- ið, og taka upp viðskipti við er- lend ríki. Um þær mundir sem Hoxha sleit stjórnmálasambandi við Sovétríkin hafði af hálfu leið- toga þar verið lagt að Hoxha að rjúfa einangrun Albaniu. Sov- étmenn hafa ftrekað þetta marg- sinnis sfðar og f nóvember sl. sagði Gorbasjev núverandi flokksleiðtogi f heimsókn i Búlg- ariu, að Sovétríkin vildu koma samskiptum við Albaniu f eðli- legt horf. Vestræn ríki hafa einnig farið á fjörurnar við Alb- ani varðandi þetta mál, en fram til þessa hafa viðbrögðin verið neikvæð. Flokksleiðtoginn nýi, Ramiz Alia, var dyggur stuðningsmað- ur Hoxha og stefnu hans og þvi er álitið, að hann muni ekki eiga frumkvæði að neinum breyting- um er hnigju f þessa átt. Reynist vera sterkari hljómgrunnur inn- an forystusveitar kommúnista- flokksins fyrir breytingum mun Adil Carcani og þeir sem honum fylgja án efa reyna að þrýsta á um að farnar verði nýjar leiðir. Hver yrði svo niðurstaða þeirrar baráttu er með öllu óráðin gáta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.