Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL1985 Minning: Jón Sigurðsson frá Snœbjarnarstöðum Fæddur 25. nóvember 1897 Diinn 6. aprfl 1985 „Það er svo margt að minnast á frá morgni æskuljósum." Þegar samferðamenn, sem eru hugstæðir, hverfa yfir móðuna miklu leitar hugurinn gjarnan til æviferils þeirra og þess umhverfis sem ól þá. í þeim felst og þróast eftir atvikum arfleifð feðranna, áhrif þess andrúmslofts sem mótar manninn í æsku og endurminning- in sem fylgir honum á lífsgöng- unni. Hver sveit og landsvæði í okkar fjölbreytta, fagra landi hefur ein- hverja sérstöðu „sjarma" sem er frábrugðin öllu öðru og vitnar um fjölbreytni þess sköpunarverks sem mönnunum hlotnast að njóta og búa við meðan jarðvistin varir. Fnjóskadalur er ein þeirra byggða sem býr yfir þeim töfrum að skarta einum fríðasta skógi á landinu sem hefur viðhaldist frá öndverðu. Landnámsmaöurinn Þórir snep- ill Ketilsson blótaði lundinn. Það má segja að hann hafi vigt lundinn og helgað hann. Skógurinn hefur lika staðið gegnum aldirnar. Að Snæbjarnarstöðum í Fnjóskadal fæddist fyrir rúmum áttatíu og sjö árum, nánar 25. nóv- ember 1897, drengurinn Jón Sig- urðsson, sonur hjónanna Sigurðar Bjarnasonar, bónda þar af Reykja- ætt, og Hólmfríðar Jónsdóttur af steinkirkjuætt. En ættir þessar voru gamalgrónar þarna í dalnum og eru þar enn og ekki óiíklegt að vissar greinar nái allt til land- námsmannsins. Jón var sjötta barn þeirra hjóna og eini drengurinn þá. Alls urðu börnin níu, annar dreng- ur, Snæbjörn, yngstur systkinanna, og ellefu árum yngri en Jón. Systurnar sjö, þessar Fnjóska- dalsdætur, voru: Heiga, sem lærði ljósmóðurfræði og starfaði sem í dag kveðjum við tengdamóður mina, Kristínu Benediktsdóttur. Hún var fædd í Reykjavík 22. apríl 1901 og bjó hér alla ævi sína. Foreldrar hennar voru Ingunn Björnsdóttir ættuð úr Lundar- reykjadal og Benedikt Jóhannes- son fæddur á Borg á Mýrum. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu þau á Rein við Akranes, síðar fiuttu þau til Reykjavikur. Systkinin voru fimm, Jón, Björn og Guðbjörg, sem öll eru látin og Margrét sem lifir systkini sín, hún býr á Haiikelshólum í Grímsnesi. Kynni mín af tengdamóður minni hófust fyrir 35 árum og hef- ur ekki skuggi fallið á vináttu okkar og væntumþykju. Frá fyrstu tíð hefur hún verið mér sem besta móðir og er sökn- uðurinn mikill hjá okkur og böm- um okkar, sem dáðu ömmu sína. Ég held að ekki sé ofsagt að samband hennar við börnin hafi verið einstakt. Enda var metingur þegar þau voru lítil hvert þeirra fengi að vera hjá ömmu Kristínu. Hún var þá sem eitt þeirra i ieik og gríni og varla hægt að sjá á milli hver skemmti sér best. Þá var afi ólafur ekki síður góð- ur við börain og gaf sér ailtaf tíma að spila við þau. Þau Kristín og ólafur voru sam- hent í öllu sem þau gerðu og var hjónaband þeirra hamingjusamt. Þau báru mikla umhyggju hvort fyrir öðru. Það var alveg sérstakt hvernig tengdafaðir minn hefur hugsað um hana og annast í henn- ar veikindum, sem staðið hafa í mörg ár, að ég tali ekki um síðustu árin sem voru henni erfið og hún oft meira rúmliggjandi en á fót- ljósmóðir í Reykjavík langt árabil; Margrét, bjó á Grund í Eyjafirði; Kristin, bjó á Steintúni á Bakka- firði, síðar í Reykjavík; Rósa, bjó á Merkigili í Eyjafirði; Bjarney, bjó í Torfufelli í Eyjafirði; Sigurbjörg, bjó á Bakkafiröi, síðar í Reykjavík; Ólöf, bjó í Fjósakoti í Eyjafirði; Snæbjörn, yngri bróðirinn, var bóndi i Hólshúsum og siðar á Grund. Systurnar Helga, Margrét og Bjarney eru látnar. Það var fjöimennt heimilið á Snæbjarnarstöðum og þó ekki væri ríkidæmi þá var það vel bjargálna. Það var heimilinu mikið bjargræði hvað kvíærnar mjólkuðu vel enda sauðland gott og tvær mjólkurkýr voru jafnan í fjósi. Hólmfríður húsfreyja var mjög lagin að til- reiða mjólkurmat og safnaði drjúg- um forða til vetrarins sem nægði til fráfærna næsta vors. í endurminningu þeirra systr- anna sem best mundu Snæbjarn- arstaðaheimilið á þessum tíma voru hin ljúfu bernskuár Jóns Sig- urðssonar og spegla vissa þætti sem gerðu þetta mannlíf hugljúft og farsælt. Vinnuástundun, nýtni og nægju- semi var forsenda þess að komast af. Glaðværð og sönghneigð hús- freyjunnar lífgaði upp á hvers- dagsleikann, sagnfræðiáhugi hús- bóndans hefur líka verið forvitni- legur þeim sem höfðu aldur til og húslestrar voru lesnir nema yfir sláttinn. Þá var það hefðbundin venja eft- ir að elstu börnin þörfnuðust til- sagnar við lærdóm að kennari var tekinn á heimiiið einn mánuð á hverjum vetri og mun sá tími hafa orðið notadrjúgur enda fengnir til kennslunnar hinir ágætustu menn. Einhverju sinni hafði ókunnug kona viljað kynna sér hjá einni af elstu systrunum hvernig heimilis- hættir væru á þessu afskekkta dalabýli og eftir að hafa kynnst um. Hann bar hana á höndum sér og umhyggja fyrir henni sat ætið í fyrirrúmi. Hann annaðist hana og heimiiið og var alltaf sami kæri eiginmaðurinn og kunni hún vel að meta það. Kristínu var margt til lista lagt og man ég sérstaklega hvað allt iék í höndum hennar hvort sem um saumaskap, hannyrðir eða matargerð var að ræða. Margar voru peysurnar, pilsin og svunt- urnar sem amma Kristín gerði handa börnunum og alit vakti þetta athygli þar sem þau fóru. Það verður tóm á Hraunteig við fráfall hennar, að ég tali ekki um hátíðsdagana þegar fjölskyldan var vön að koma þar saman. Hvort sem var um kaffi- eða matarboð að ræða var það þannig úr garði gert að sómt hefði þjóðhöfðingja. Minnist ég einnig bolludaganna, þá fórum við með börnin á Hraunteig og þar biðu fagurlega skreyttir bolluvendir, sem amma hafði búið til handa þeim. Upp- dekkað borð skreytt með máluðum eggjum og ýmsu góðgæti. Það er mikiil söknuður þegar leiðir skilja og maður er aldrei til- búinn að taka þvi. Við huggum okkur við að nú er hún laus við allar þjáningar og biðjum Guð fyrir hana að hún fái að vera í návist hans. Við biðjum Guð um að gefa tengdaföður minum styrk og vera honum miskunnsamur. Að lokum þakka ég tengdamóð- ur minni samfylgdina og ást henn- ar til okkar. Guð blessi minningu hennar. Hvíl í friði. Björg stúlkunni og lýsingu hennar á heimilinu hafði hún sagt: „Nú, þú ert bara alin upp á menningar- heimili." En langvinnt strit við erfiðar að- stæður reynir á heilsu og mannlegt þrek þrátt fyrir góða aðstoð barn- anna strax og þau uxu úr grasi og elstu dæturnar þegar farnar að heiman. Þá bregða hjónin, Hólm- fríður og Sigurður á Snæbjarnar- stöðum, eftir meira en tuttugu ára búskap þar, á það ráð að flytjast búferlum yfir „heiðina" (Vaðla- heiði) að Garðsá í Eyjafirði. Það má gera sér i hugarlund tilfinn- ingar þessa fólks þegar það horfir yfir dalinn sinn af heiöarbrúninni og er að kveðja. Kveðja þessa kæru ættarbyggð sem hafði fóstrað þau öll frá fæöingu, ailt til þessa dags. Þar hafa án efa fallið mörg höfug tár og frá brjóstum þeirra hrærst bæn og þakkargjörð. Þarna verða veruleg þáttaskil í lífi Jóns Sigurðssonar. Eliefu ára drengur hverfur úr vernduðu um- hverfi þar sem hann var eftirlæt- isbarn foreldra sinna og systra, ennþá eini bróðirinn (en Snæbjörn fæddist 22. ágúst þetta sumar, 1908). Jón var fjörmikill drengur en um leið skapmikill og kannski nokkuð ertinn á þessum tíma, hafði notið mikils frjáisræðis, systur í dag er til moldar borin elsku amma mín, Kristín Benediktsdótt- ir. Ég vil aðeins með fáum og fá- tæklegum orðum fá að þakka ömmu minni fyrir allar þær ógleymanlegu stundir sem við átt- um saman, bæði í gleði og sorg, því hún var einstök amma. Amma sem alltaf gaf sér tíma til að setjast niður og spjalla við mig eða leika við mig, þegar ég var yngri. Amma sem ailtaf var tilbúin að leiðbeina mér og kenna og gaf svo mikið af sjálfri sér. Amma sem börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn elskuðu svo innilega og var sú ást ríkulega endurgoldin. Svona gæti ég lengi talið upp, en fæ aldrei fullþakkað. Ég bið góðan Guð að blessa hana og varðveita. Þig, elsku afi minn, sem alitaf stóðst við hlið hennar og tókst svo ríkan þátt í öllu hennar iífi og sem hugsaðir svo vel um hana í hennar löngu veikindum, bið ég Guð að styrkja og blessa. Kristín hans kölluðu hann gjarnan dekur- barn. Þarna er Jón kominn á þann aldur að hann hlaut að taka að sér smalastarfið að meira eða minna leyti því ennþá var fært frá fyrstu árin á Garðsá. Ærnar voru óhag- vanar, þráðu að komast til átthaga sinna austan heiðar — að minnsta kosti fyrsta sprettinn. Þó að spor smaladrengsins væru létt og vor- næturnar oft fagrar við Eyjafjörð þá voru þessi smalastörf oft erfið. Á þriðja búskaparárinu á Garðsá missti húsbóndinn, Sigurður, heils- una og varð að liggja í Sjúkra- húsinu á Akureyri vetrarlangt og var næstu misserin mjög heilsu- tæpur. Þá tók Jón að sér fjárhirð- inguna með aðstoð systra sinna. Reyndur fjármaður sagði að fjár- hirðingin hefði farið þessum unga fjármanni mjög vel úr hendi. Ein- hvern tíma vetrarins hefur hann þó notið skólatilsagnar þvi um vorið lauk hann fullnaðarprófi með mjög góðum vitnisburði. Til marks um það hvað þessi loka-barnaskólapróf voru mikils metin á þessum tíma má geta um það að Oddur Björnsson, prentara- meistari á Akureyri, talaði við Sig- urð, föður Jóns, um það hvort hann vildi ekki láta drenginn læra prent- iðn. Hvort tveggja var að hagur fjöiskyldunnar var erfiður og einn- ig var búið að vistráða Jón á góðu heimili — Rifkelsstöðum — hjá ágætu fólki svo að af prentnámi varð ekkert. Þetta sama vor gekk Jón til spurninga til séra Þorsteins Briem, þess frbæra kennimanns, sem þá þjónaði Grundarþingum og fermdist þá um vorið. Undirritaður sat dagsstund hjá Jóni nú fyrir fáum vikum heima í íbúð hans við Dalbraut og þá rifj- aði hann upp ýmislegt frá löngu liðnum árum, meðal annars glatað tækifæri til prentnáms og eftir- minnilega uppfræðslu séra Þor- steins Briem. Hann sagði að sér væri enn í dag minnisstæð ræða prestsins síðasta daginn sem hann talaði við börnin fyrir ferminguna. Gamli maðurinn hló við og sagði: „Já, þær grétu allar stúlkurnar og ég held nú jafnvel að okkur hafi öllum vöknað um augu nema Magga í Holti.“ Hann dáði karl- mennsku Magga. Eftir tveggja ára dvöl á Rif- kelsstöðum lá leiðin til Akureyrar en þar bjuggu þá foreldrar Jóns og stundaði hann þar almenna vinnu nokkurt tímabil. Veturinn 1916 til 1917 stundaði hann nám í Flens- borgarskóla í Hafnarfirði og hafði af þessari námsdvöl góð not þótt ekki væri lengri timi. Jón var mjög góður námsmaður með trútt minni, góða stærðfræðihæfni og hafði frábæra rithönd. Þá hverfur hann norður aftur, hóf störf hjá klæðaverksmiðjunni Gefjunni, vann þar sem litari langt árabil og var þekktur undir nafn- inu Jón litari. Árið 1919 kvæntist Jón eftirlifandi konu sinni Magn- úsínu Kristinsdóttur, ættaðri frá Akureyri og eyfirskum byggðum. Þar hlaut hann stóra vinninginn í lífinu. Magnúsína var og er slík ágætiskona, glæsiieg, mikilhæf húsmóðir og fær saumakona, vann mikið við saumaskap og kenndi og hélt námskeið. Magnúsína klæddist daglega bolbúningi og peysufötum við hátíðleg tækifæri. Þessi glað- væra og hjartahlýja kona fagnaði jafnan gestum í húsi sínu. Það sóp- aði að henni. Það var líka oft gestkvæmt í Brekkugötu 25, frændgarðurinn stór og margir leituðu heim til Jóns frænda í bæj- arferðum, fengu gistingu og góðan beina og aðrir jafnvel til dvalar við nám eða vegna annarra atvika. Það var alltaf opið hús hjá þeim hjón- um. Magnúsína var manni sínum sannur verndarengill á erfiðum stundum. Allir hafa sina annmarka og eigin erfiðleika við að glima og þá er gott að eiga — traustan vin — sem — skilur mann —. Þau voru glæsileg hjón, Magnúsína og Jón. Þeim varð fimm barna auðið. Eitt dó i frumbernsku en þau er upp- komust eru: Hólmfriður Guðlaug, gift Ingva Ingvarssyni ráðuneytis- stjóra, þau eiga eina dóttur; Bryn- ieifur klæðskerameistari, kvæntur Sigurbjörgu Guðmundsdóttur, þau eiga fimm börn; Sigurður Kristinn byggingarmeistari, kvæntur Selmu Jóhannesdóttur, þau eiga fimm börn og eina dóttur átti Sigurður áður; yngstur er Helgi verkfræð- ingur og kennari við Tækniskóla íslands, ókvæntur. Alit eru þetta góðir borgarar sem bera foreldrum sinum fagurt vitni. Magnúsína dvelur nú í Vífilsstaðaspítala, farin að heilsu en er samstiga öldinni, fædd 1. janúar 1900. Á Akureyrarárum sinum tók Jón mikinn þátt i skáklifi bæjarins og var þar jafnan í fremstu röð skákmanna. Hlaut hann þá viður- kenningu að verða útnefndur heið- ursfélagi hjá Skáksambandi ís- lands. Árið 1947 flytja þau Jón og Magnúsina til Borgarness. Mun það hafa verið í samræmi við lög- málið, fyrst fljúga ungarnir úr hreiðrinu, síðan koma þeir sem eldri eru á eftir til að geta verið nálægt sínum nánustu. Þá bjó Brynleifur sonur þeirra með fjöl- skyldu sinni i Borgarnesi. Þar vann Jón hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. Frá Borgarnesi lá leiðin til Reykjavíkur og búa þau þar lengst i Sambandshúsinu við Austur- stræti þar sem Jón var húsvörður og stundaði jafnframt verslunar- störf. Á þessum árum átti Magnús- ina við erfiöleika að striða vegna sjóndepru sem þó lagaðist nokkuð siðar. Þegar starfsdagurinn á vinnu- markaðinum var á enda var flutt í Básenda 4 og síðasta heimilið var á vistheimilinu við Dalbrautina. Hvar sem heimilið var þá var sama sinnan til að fagna gestum. Og nú er góður maður genginn. Jón Sigurðsson frá Snæbjarnar- stöðum lést i Landspítalanum 6. apríl sl. Síðasti áfanginn var nokkuð erf- iður eins og oft vill verða við hin stóru þáttaskil lifs og dauða. Með morgunsólinni hóf hann för sína yfir hið óræða djúp. Sæmdar- maður, sáttur við guð og menn. Hann safnaði ekki auði en hlaut þó mikla hamingju i lifinu. Ef til vill hefur hann í lokin, likt og skáldið, hugsað um: „Dalinn Ijúfa í austur átt, þar átti mamma heima.“ Siguröur Jósefsson Fyrir nokkrum vikum heimsótti ég kunningja minn, Jón Sigurðs- son, og bað hann að rifja upp ferð, sem hann fór ásamt féiögum sín- um á Akureyri vestur til Blöndu- óss. Það var vorið 1925 og erindið að sitja stofnfund Skáksambands íslands, sem sex norðlenzk taflfé- lög stóðu að í byrjun. Helztu atriði þessa viðtals okkar birtust í móts- hefti hins alþjóðlega skákmóts i Reykjavík i febrúar, sem skák- sambandið efndi til í tengslum við 60 ára afmæli sitt. Jón sagði þá frá þvi, að þeir félagarnir úr Eyja- firði og Skagafirði fóru þessa ferð á hestum; og tók hún alls fimm sólarhringa fyrir suma Eyfirðing- ana i góðu vorveðri um Jóns- messubil. Þarna kom sem sé fram skemmtilegur þáttur i sögunni um stofnun hinna mætu samtaka ís- lenzkra skákmanna. Og nú kemur á daginn, að ekki var seinna vænna að fá fram þessa lýsingu á ferðlaginu, þvi að sögumaðurinn minn er nú farinn í aðra ferð stór- vægilegri. Þótt Jón væri fæddur Fnjósk- dælingur kenndist hann löngum við Akureyri, enda búsettur þar árum saman, var þá starfsmaður klæðaverksmiðjunnar Gefjunar sem litunarmeistari. Hefur það áreiðanlega verið nákvæmnislegt vandaverk. En við lok síðara striðs flutti hann búferlum með fjöl- skyldu sinni til Borgarness, þar sem hann starfaði hjá kaupféiag- inu í 7 ár, unz hann fluttist til Reykjavikur og átti þar heimili síðan. í lokin hélt hann til i fbúða- stofnun aldraðra við Daibraut. Ég kynntist Jóni Sigurðssyni á sjötta áratugnum, þegar hann fékkst við innheimtustörf fyrir Ríkisútvarpið um nokkurt árabil. Þá var tafliðkun nokkur meðal starfsmanna (sem og sfðar), og lágu þar saman leiðir okkar, því að báðir höfðu gaman af henni, en auk þess hittumst við auðvitað annað veifið á göngum hússins. Alltaf var gaman að skipta orðum við Jón, því að hann var greindur og fróður og einkar geðfelldur i aiiri viðkynningu. Enginn var Kristín Benedikts- dóttir — Minning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.