Morgunblaðið - 20.04.1985, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRlL 1985
3
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
Voðinn vís ef nýhafín
samráðstilraun mistekst
— segir 3 % raunvexti eðlilega, gerir úttekt
á samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn
„EF SÚ tilraun, sem hafin er til samráðs við launþega og vinnuveitendur um
skynsamlega hagstjórn, mistekst, og launahækkanir verða langt fram úr því,
sem þjóðarbúið þolir, er voðinn vís. Það mun ég ekki horfa á aðgerðarlaus.
Þjóðarbúið, atvinnuvegirnir og einstaklingarnir munu þola illa aðra verð-
bólgukollsteypu. Ríkisstjórninni ber skylda til að koma í veg fyrir slfkt eða
fara frá ella,“ sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og formað-
ur Framsóknarflokksins, meðal annars í setningarræðu aðalfundar mið-
stjórnar framsóknarmanna, sem hófst í gær.
í ræðu sinni ræddi forsætis- sagði að aukið viðskiptafrelsi, þar
ráðherra aukið frjálsræði. Hann sem samkeppni er nægileg, hefði
Ólafur Stephensen, formaður SÍA:
Viljum að frjálsræði
sé á markaðnum
„PERSÖNULEGA er ég mikið á móti bönnum vegna þess aö það hefur sýnt
sig erlendis að það hefur ekki minnkað neyzlan á þeim vörum, sem bannað
er að auglýsa. Það hafa verið notaðar ýmsar aðrar útbreiðsluleiðir til að
vekja athygli á þeim. Vitaskuld er það ákaflega leiðinlegt að til séu lög hér á
íslandi, sem banni auglýsingar á ákveðnum vörutegundum. Við erum líka á
því, að neytendur eigi aðgang að sem flestum fjölmiðlum, hvort sem þeir eru
innlendir eða erlendir," sagði Ólafur Stephensen, formaður Sambands ís-
lenzkra auglýsingastofa, er Morgunblaðið innti hann álits á því að ekki væri
amazt við auglýsingum um tóbak og áfengi í erlendum blöðum og tímaritum,
sem hér væru seld, en væru bannaðar í innlendum blöðum.
„Vissulega eru þær íslenzkar
auglýsingastofur, sem aðilar eru
að SÍA, því fylgjandi að það ríki
sem mest frjálsræði á auglýsinga-
vettvangnum. Það á alveg að vera
sami réttur neytandans á mark-
aðnum að kaupa erlend tímarit,
sem í boði eru eins og innlend
tímarit. Á hinn bóginn er aldrei
hægt að setja sig upp á móti því,
að erlend blöð og tímarit, sem
hingað berast, séu með auglýs-
ingar um hluti, sem annað hvort
er ekki hægt að fá hér eða er
bannað að auglýsa hér. Það er ekki
nema örlítið brot af upplaginu,
sem kemur hingað til lands og yf-
irleitt ekki tekið með í reikninginn
að auglýsingar séu sérstaklega
gerðar í erlend blöð fyrir íslenzka
neytendur. En þegar um er að
ræða að auglýsingar erlendra
tímarita séu gerðar fyrir íslenzka
markaðinn hefur reyndin verið sú,
að erlendar auglýsingastofur hafa
fengið aðstoð íslenzkra og öfugt.
Þá finnst mér í sambandi við
boð og bönn nauðsynlegt að benda
á eina grein tilvonandi útvarps-
laga. Þar segir að auglýsingar,
sem fylgi dagskrá um gervihnött
og fari þá inn i kapalkerfi, séu
heimilar, brjóti þær ekki í bága
við íslenzk lög. Ef þetta verður að
veruleika skapast mikið misrétti
milli innlendra og erlendra aug-
lýsenda og það yrði hlálegt. í lög-
unum er gert ráð fyrir að það sé
bannað að auglýsa í útsendingum
um kapal. Ætli innlend auglýs-
Afmælisralliö:
Omar og Jón
með forystuna
BR/EÐURNIR Ómar og Jón Ragn-
arssynir höfðu forystuna í afimælis-
ralli Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavík-
ur og Skeljungs er helmingur sérleiða
á Reykjanesi hafði verið ekinn í
gærkvöldi. Þeir bræður aka bíl af
gerðinni Toyota Corolla og voru með
tímann 10,29 mín.
í öðru sæti voru Birgir Bragason
og Gestur Friðjónsson á Toyota
Corolla á 10,59 mín og í þriðja sæti
Bjarni Sigurgarðarsson og Birgir V.
Halldórsson á 11,13 mín. en þeir
aka á Talbot Lotus. Halldór tJlf-
arsson og Hjörleifur Hilmarsson,
sem álitnir voru sigurstranglegir,
féllu úr keppninni á annarri sérleið
er bíll þeirra bilaði.
ingaastofa sér að koma auglýsingu
i kapalkerfi, þegar þar að kemur,
yrði að panta hana i gegnum
gervihnött," sagði ólafur Steph-
ensen.
reynst betur en hann vænti. A
hinn bóginn hefði vaxtafrelsið
ekki gefið jafn góða raun. Hann
sagðist þó þeirrar skoðunar, að
vextir hér á landi hlytu í framtíð-
inni að verða frjálsir að svipuðu
leyti og í okkar nágrannalöndum.
Um vextina sagði hann einnig:
„Ég get fullyrt, að nafnvextir
munu lækka. Þeir verða hins veg-
ar að sjálfsögðu jákvæðir, enda
hef ég engan heyrt gera ráð fyrir
neikvæðum vöxtum lengur. Hve
háir raunvextir verða, get ég hins
vegar ekki fullyrt á þessari
stundu. Ég teldi eðlilegt, að þeir
yrðu um 3 af hundraði. Það skal
hins vegar tekið fram, að um þetta
er ekki samkomulag á milli stjórn-
arflokkanna. Ýmsir Sjálfstæðis-
menn vilja frjálsa vexti, við telj-
um það ekki kleift í því efnahags-
ástandi sem er. Þegar þannig er
ástatt, hefur Seðlabankinn loka-
orðið. Við munum gera allt, sem í
okkar valdi stendur, til að fá
raunvexti lækkaða."
Samstarfíð við Sjálf-
stæðisflokkinn
Forsætisráðherra sagði það
hafa valdið nokkrum erfiðleikum,
að formaður Sjálfstæðisflokksins
sæti ekki í ríkisstjórninni, og
bætti við: „Ég er þeirrar skoðunar,
að hann ætti að vera þar.“
Forsætisráðherra taldi að núver-
andi skipan hefði haft skaðleg
áhrif fyrir ríkisstjórnina. Þá sagð-
ist hann afskrifa fullyrðingar
Þorsteins Pálssonar í landsfund-
arræðu um frumkvæði sjálfstæð-
ismanna í flestum mikilvægum
málefnum ríkisstjórnarinnar
„sem nauðsynlega viðleitni for-
mannsins til að berja saman sitt
lið“. Hann sagði stjórnarsam-
starfið gott og að í viðræðum
„okkar formannanna hafi ávallt
ríkt heilindi af beggja hálfu ...“
Steingrímur Hermannsson
sagðist undrast þá ofuráherslu,
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði
lagt á einkarekstur á landsfundi
sínum. Hann sagðist vilja heyra
dæmi um að framsóknarmenn
gættu á óeðlilegan hátt hagsmuna
SÍS og vildi „vara við markvissri
viðleitni til þess að brjóta niður
einhver heilbrigðustu samtök
fólksins í landinu, samvinnufélög-
in“.
í lokakafla ræðu sinnar varaði
formaður Framsóknarflokksins
við frjálshyggjunni og sagði, að
hún hefði „því miður .... náð
sterkum tökum á nokkrum fjölda
sjálfstæðismanna." Á hinn bóginn
fagnaði hann því að „frjálshyggj-
unnar gætir minna í samþykktum
landsfundarins en ég gerði ráð
fyrir“.
Um aðra flokka en Sjálfstæðis-
flokkinn, stjórnarandstöðuna,
hafði forsætisráðherra það eitt að
segja, að sér virtist hún „rótlaus,
stefnulaus og fljóta í tómarúmi".
Verkefni
Steingrímur Hermannsson
sagðist ekki hafa neina trú á því,
Steingrímur Hermannsson
að verðbætur á laun í nokkurri
líkingu við það sem áður var, verði
teknar upp að nýju. Hann sagði
brýnustu viðfangsefnin nú vera
fjárhagserfiðleika húsbyggjenda
og bænda og staðbundnir erfið-
leikar í sjávarútvegi og hjá skreið-
arframleiðendum.
Hann taldi viðskiptahallan
„vafalaust í hnotskurn alvarleg-
asta vandamálið, sem við eigum
við að stríða". Svigrúm til al-
mennra kjarabóta væri mjög lítið.
Þó væri mikilvægt, að nokkrar og
öruggar kjarabætur yrðu, ekki síst
hjá þeim, sem lægstu launin hafa,
t.d. í fiskvinnslunni. Hann taldi
bata framundan og ræddi um
nýsköpun atvinnulífsins.
Ráðherrann boðaði, að strax
eftir helgina myndi hann leggja
fram á Alþingi frumvarp til laga
um Þróunarfélag, einnig frumvarp
til laga um Byggðastofnun og
Framkvæmdasjóð. Menntakerfið
ætti að tengja betur atvinnulífinu,
endurskoða bæri skipulag ran-
nsóknastarfseminnar og sameina
utanríkisviðskipti og utanríkisr-
áðuneyti og beina starfseminni
fyrst og fremst inn á markaðssvið-
ið.
Aðalfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins stendur fram á
sunnudag.