Morgunblaðið - 20.04.1985, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRlL 1985
9
DqO 1 iúsnæðisslol'nun ríkisins
LÆKKUN VAXTA
Orðsending til lántakenda á tímabilinu
1. maí 1978 til 30. júní 1979.
Ákveðið hefur verið að lækka vexti á
lánum þeim, sem veitt voru úr Byggingar-
sjóði ríkisins á tímabilinu 1. maí 1978 til
30. júní 1979. Hafa lánin til þessa verið
með 9,75% vöxtum og 60% verðtrygg-
ingu samkvæmt byggingarvísitölu.
Vextirnir hafa nú verið lækkaðir úr
9,75% í 2,8%. Vaxtalækkunin gildir frá
og með gjalddögunum 1. maí 1984 og
1. nóvember 1984. Kemur hún til
framkvæmda á gjalddögum þessa árs.
Verðtrygging samkvæmt byggingarvísi-
tölu verður óbreytt frá því, sem verið
hefur.
Hinir nýju vextir munu í framtíðinni
fylgja þeim breytingum, sem kunna að
verða gerðar á vöxtum annarra lána úr
Byggingarsjóði ríkisins.
Reykjavík, 15. apríl 1985,
I lúsnæðisstofnun ríkisins
TÓNABÍÓ
Sími31182
Sér grefur gröf
Hörkuspennandí og snilldarvel gerð, ný,
amerísk sakamálamynd í litum. Myndin
hefur aðeins verið frumsýnd í New York,
London og Los Angeles. Hún hefur hlotið
frábæra dóma gagnrýnenda sem hafa lýst
henní sem einni bestu sakamálamynd síð-
ari tíma. Mynd í algjörum sérflokki.
ísl. texti.
John Getz, Frances McDormand.
Leikstjóri: Joel Coen.
Blaöaumsögn:
Blood Simple er einhver ánægjulegasta æfing i spennumögnun
sem fram hefur komið undanfarin ár. Myndin er frískleikinn og
hugkvæmnin uppmáluö. Djarfleg klipping og seiöandi tónlist
Carters Burwell krydda svo enn frekar þetta bráöglúrna, feiki-
lega spennandi verk. Blood Simple er einfaldiega þriller í fyrsta
gæöaflokki.
Morgunblaðið
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Stranglega bönnuö innan 16 ára.
Höfðingja-mótmæli
Myndin sem hér birtist er frá mótmæla-
aögeröum gegn kjarnorkuvopnum í
Vestur-Þýskalandi. Þessi mótmæli eru
ekki lengur sömu fjöldaaögeröir og fyrir
fáeinum misserum. Athyglisvert er, aö
Heimsfriöarráðið höföar ekki lengur til
aögerða fjöldans þegar þaö dásamar
friöarvilja Sovétmanna. Nú vísar ráöiö til
höföingja-mótmæla og hvetur til stuön-
ings við Dehli-yfirlýsinguna svonefndu og
friðarfrumkvæði Ólafs R. Grímssonar.
Um þetta er rætt í Staksteinum í dag.
Stuðningur
Heimsfriðar-
ráðsins.
Það er nú margsannað,
að Heimsfriðarráðið
svonefnda er útíbú frá
áróðursmiðstöð KremL
verja. Enn ein sönnunin
fyrir því birtist i blaði sov-
éska sendiráðsins í
Reykjavík, Fréttum frá
Sovétríkjunum, nú á dög-
unum. Þar er birt yfirlýsing
frá forsætisnefnd Heims-
friðarráðsins sem gefin var
út eftir fund hennar (
Moskvu 25. mars siðastlið-
inn.
í yfírlýsingunni er þess
fyrst minnst, að í ár eru 40
ár liðin frá sigrinum yfír
nasistum og lyktum síöari
heimsstyrjaMarínnar.
Heimsfríðarráðið er ekki (
neinum vafa um það, hver
réð úrslitum um sigur (sið-
arí heimsstyrjöldinni: „Allt
mannkynið vottar Sovét-
ríkjunum virðingu sina, en
þau lögðu úrslitafrainlag af
mörkum til sigurs." Síðan
er litið til þeirra hernaðar-
átaka sem nú eiga sér stað
og mótnuelt „blóðugum
gúepum" þeirra sem kall-
aðir cru „andbyltingar-
menn í Afganistan". Með
þessum orðum leggur
Heimsfridarráðið blessun
sina yfir sovésku innrásina
í Afganistan og stríðið sem
háð hefur verið gegn afg-
önsku þjóðinni í rúm fímm
ár.
Eftir að hafa vottað Sov-
étmönnum virðingu sína
vegna stríðsaðgerða þeirra
fyrr og síðar snýr forsætis-
nefnd Heimsfriðarráðsins
sér að vigbúnaðarkapp-
hlaupinu og þeirrí hættu
sem nú steðjar aö mann-
kyni og segir: „Hættan er
komin tíl vegna hins brjál-
æðislega vigbúnaðarkapp-
hlaups sem Bandaríkin og
bandamenn þeirra (NATO
hafa komið af stað... “
Heimsfriðarráðið sér þó
ekki cinungis dökku hlið-
arnar og Ijósasti punktur-
inn fyrír utan trúna á Sov-
étríkin er þessú
„Heimsfríðarráðið hvet-
ur fólk til að styðja Delhi-
yfirlýsingu sex ríkja í fjór-
um beimsálfum þar sem
hvatt er til þeæ að þegar í
stað verði komið á fryst-
ingu á þróun, framleiðslu,
tilraunir og uppsetningu
kjarnorkuvopna og komið (
veg fyrir að vígbúnaöar-
kapphíaupið farí út í geim-
inn. Það er lagt til að 22.
maí 1985 — þá verður liðið
ár frá því að fyrsta ávarpið
var gefíð út af hálfu rfltj-
anna sex — verði stuðn-
ingsdagur við Delhi-yfirlýs-
inguna."
Lenínorðan?
Engum ætti að vera það
betur Ijóst en íslendingum,
og kannski eru þeir eina
þjóð heims sem veit það
upp á sína tíu fíngur, hver
það var sem samdi hina
sögufrægu yfírKsingu frá
22. maí 1984. Islendingar
vita það einnig allra þjóöa
best, hver stóð fyrir þvi að
sex þjóðarleiðtogar komu
saman í Nýju Delhi i byrj-
un þessa árs og sameinuð-
ust um þá friðartillögu sem
er Heimsfriðarráðinu svo
mjög að skapi. Heilinn og
maðurinn á bak við þetta
alh saman er enginn annar
en Óiafúr R. Grímsson,
fyrrum þingmaður Alþýðu-
bandalagsins en núverandi
formaður Þingmannasam-
taka um heimsskipulag.
Heimsfríðarráðið má sín
mikils í Moskvu eins og
best sést af kveðjunni sem
það fékk frá forsætisnefnd
Æðsta ráðs Sovétríkjanna
þegar fundurinn var hald-
inn í Moskvu á dögunum.
Lokaorð hennar voru þessi
samkvæmt Fréttum frá
Sovétríkjunum: „Megi
rödd skynsemi ykkar og
hjarta, rödd samvisku
mannkynsins ná til allra
góðviljaðra manna!"
Þegar hrifning Heims-
fríðarráðsins yfir Delhi-
yfírlýsingunni og með
hliðsjón af þvi að Kreml-
verjar líta á ráðið sem
„rödd skynseminnar" og
„rödd mannkyns" sýnist
ekki iangt í það aö maður-
inn á bak við friðarfrum-
kvæðið, núverandi formað-
ur Þingmannasamtaka um
heimsskipulag, fái þá við-
urkenningu sem bonum
ber hjá þessum aðihim, til
dæmis Lenínorðuna.
Hugmyndinni er hér með
hreyft og um leið bent á, að
ekki væri unnt að minnast
22. maí með verðugrí hættí
en þeirri að veita frum-
kvöðli hins nýja fríðarátaks
þessa orðu þann dag.
Þjóöyiljinn og
NT sammála
Framsóknarmenn hafa
löngum verið tvíátta í utan-
ríkismáhim. Þeir sýnast
ekki geta staðið að þvi á
Alþingi að fella tillögu Ai-
þýðu bandalagsins og
Bandalags jafnaðarmanna
um ratsjárstöðvarnar. í
mati á svonefndum fríðar-
vflja Bandaríkjanna og
Sovétrikjanna er sam-
hljómur á milli Þjóðviljans
og NT, málgagns fram-
sóknarmanna.
Á það hefur verið bent
hér í blaðinu að NT telur
friðar- og afvopnunarvilj-
ann meirí hjá Sovét-
mönnum en Bandaríkja-
mönnum. Þetta er hefð-
bundin niðurstaða saman-
burðarfræðinga sem
stunda fræðin til að bera
blak af Sovét: Bandaríkin
eru ívið verra risaveldi en
Sovétríkin.
Þjóðviljinn tekur undir
þessa skoðun á miðviku-
daginn og kemst að þeirrí
niðurstöðu ef grannt er
skoðað og brotist í gegnum
orðaflóðið, að „mark sé
takandi á tillögum" Sov-
étmanna um afvopnunar-
mál en ekki Bandaríkja-
manna. Nú bíðum við eftir
því, hvort NT og Þjóðvilj-
inn haldi sameiginlega upp
á 22. maí næstkomandi (
anda Heimsfríðarráðsins.
í Kaupmannahöf n
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖOINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
Fréttirfráivrstu hendi!
73 í lamathadutinn
^■iMisgötu 12-18
Opið laugardaga
Subaru Station 4x4 1984
Grásans., ekinn 16 þ. km. Útvarp, segul-
band o.fl. Verö 470 þús.
Torfærubíl! í sérflokki
Volvo Lapplander 1982
Drapplltur, etdnn 19 þ. km. Yllrbyggður hjá
R. Vals. Vökvastýrl, útvarp. segulband. snjó-
dekk. sumardekk, klæddur, spll. Toppbíll.
Verö 620 þús.
Volvo 244 GL 1983
Ekinn 18 þ. km. Verö 520 þús.
Eagle Station 4x4 1982
M/öllu. eklnn 40 þ. km. Verö 680 þús.
Fiat Panda 1983
Ekinn 6 þ. km. Verö 170 þús.
Mazda 626 LX 2000 1983
Hatcbback. 5 dyra. eklnn 22 þ. km.
Vérð 390 þús.
Nýr bíll
Ford Sierra 1.6 GL 1985
Grásans., ekinn 3 þ. km. Utvarp, segulband.
snjódekk. sumardekk. Verö 495 þús.
VW Golf GL 1984
Ekinn 13 þ. km, Verð 395 þús.
Mazda 626 (2000) 1982
Ekinn 26 þ. km. Verö 290 þús.
Toyota Corolla 1980
Eklnn 58 þ. km. Verö 195 þús.
Mazda 929 station 1981
Ekinn 59 þ. km. Verö 280 þús.
Mazda 929 Saloon 1983
Blásans., sjálfsk., aflstýri. Eklnn 30 þ. km. 2
dekkjagangar o.fl. Verö 415 þús.
Subaru Hatchback 4x4 1984
Hvítur, eklnn 11 þ. km. Verö 440 þús. ‘
Honda Quinted EX 1982
Rauöur, 5 dyra. ekinn 57 þ. km. Sjálfsklptur.
vökvastyri, ratm., sóllúga og fl. Fallegur bál.
Verð 350 þús.