Morgunblaðið - 20.04.1985, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRlL 1966
13
Stefán Kalmans-
son formaður Vöku
AÐALFUNDUR Vöku, Félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, var hald-
inn þann 29. mars sl. Á fundinum
lét af störfum stjórn óla Bjarnar
Kárasonar og við tók ný stjórn.
Formaður var kosinn Stefán
Kalmansson.
Á öðrum fundi nýkjörinnar
stjórnar, þann 17. apríl, skipti hún
með sér verkum. Áðrir stjórnar-
menn eru: Eyjólfur Sveinsson,
varaformaður, Þórunn Sigurðar-
dóttir, gjaldkeri, Pétur Jónsson,
ritari, Baldur Sveinbjörnsson, rit-
stjóri, Bjarni Árnason, meðstjórn-
andi, Sveinn Guðmundsson, með-
stjórnandi.
Á aðalfundi lagði fráfarandi
stjórn fram skýrslu um störf
hennar og félagsins síðastliðið ár.
Þar kemur m.a. fram að á árinu
1985 er félagið 50 ára og var í til-
efni þess haldið hóf að Hótel Borg
í febrúar. Næsta haust er síðan að
vænta afmælisrits en Páll
Björnsson sagnfræðinemi hefur
tekið að sér að rita 50 ára sögu
félagsins.
í sumar verður haldinn aðal-
fundur EDS (European Democrat-
ic Students) hér á landi. Vaka
mun hafa veg og vanda af fundin-
um en von er á yfir 30 erlendum
gestum.
Að lokum má geta þess að í síð-
ustu kosningum til Stúdentaráðs
og Háskólaráðs vann Vaka veru-
lega á og er nú stærsta fylking
innan Stúdentaráðs.
(Frétutilkjiiiag)
8.000 tunnur salt-
sfldar eru óseldar
Saltað var í þær umfram samninga
SALTAÐ var í um 8.000 tunnur af
síld á síðustu vertíð umfram gerða
sölusamninga. Svarar það til um
þriggja hundraðshluta heildar-
söltunarinnar. Samkvæmt upplýs-
ingum Síldarútvegsnefndar hefur
enn ekki tekizt að selja þessa
saltsíld þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Alls var saltað í rúmlega
250.000 tunnur á síðustu vertíð og
er það næstmesta söltun Suður-
landssildar frá upphafi. Af þessu
voru 185.000 tunnur seldar til Sov-
étríkjanna og 45.000 tunnur til
Svíþjóðar og Finnlands. Mismun-
urinn fór til ýmissa annarra landa
og á innanlandsmarkað.
Að sögn Síldarútvegsnefndar
var saltað í umræddar 8.000 tunn-
ur þrátt fyrir aðvaranir hennar og
saltendafélaganna. Af 53 söltun-
arstöðvum söltuðu um 40 meira en
heimilað var samkvæmt samning-
um. Um þessar mundir eru allir
saltsíldarmarkaðir yfirfullir og
má sem dæmi um það nefna, að á
síðasta ári urðu Norðmenn að
setja rúmlega tvo þriðju hluta
síldarafla síns i bræðslu.
Borgarafundur
um viðhorf í
skólamálum
SAMTÖK áhugafólks um uppeld-
is- og menntamál gengst fyrir
opnum borgarafundi í Kennslu-
miðstöðinni á Laugavegi 166 á
mánudag, 22. apríl klukkan 20.
Frummælandi verður Bessí Jó-
hannsdóttir, sem nefnir erindi
sitt: Nýjungar í starfi grunnskól-
ans, en andmælandi hennar verð-
ur Elín G. Ólafsdóttir. Stutt ávörp
flytja fulltrúi menntamálaráðu-
neytisins og foreldri.
MorgunblaAið/Árni Sœberg
Nemendur úr barna og unglinga deild Myndlistaskólans í Reykjavfk vió
vinnu sína.
Myndlistaskólinn í Reykjavík:
Kynnmgarsýning í
barna- og unglingadeild
UM helgina veröur sýning á verk-
um nemenda úr barna- og unglinga-
deildum Myndlistaskólans í Reykja-
vík. Sýningin verður opin í húsa-
kynnum skólans í Tryggvagötu 15,
laugardag og sunnudag kl. 14—18.
Kynning á starfi Myndlistaskól-
ans í Reykjavík hefur staðið yfir
seinni hluta vetrar. Nemendur við
skólann eru nú rúmlega 300 tals-
ins í 22 deildum. í barna- og ungl-
ingadeild eru um 100 nemendur á
aldrinum 6 til 16 ára. Skólastjóri
er Valgerður Bergsdóttir. Deildir
hafa verið kynntar nemendum og
gestum á göngum skólans.
Myndlistaskólinn í Reykjavík
var stofnaður 1947. Hlutverk hans
er að veita almenna myndlistar-
menntun börnum og fullorðnum.
Ennfremur undirbýr skólinn nem-
endur, sem hyggja á nám við aðra
listaskóla hér sem erlendis, hvað
varðar frjálsa myndlist, listiðnað
og byggingarlist. Við skólann eru
haldnir fyrirlestrar um listsögu-
leg efni auk umfjöllunar um ein-
staka listamenn.
Stjórn Vöku skipa: f.v. Eyjólfur Sveinsson, Baldur Sveinbjörnsson, Sveinn Guðmundsson, Stefán Kalmansson,
Pétur Jónsson, Þórunn Sigurðardóttir og Bjarni Árnason. Fyrir miöju er mynd af Jóhanni Hafstein, en hann var
fyrsti formaður Vöku, félags lýðreðissinnaðra stúdenta.
VIÐIR
6 Ky nnum
dag
I Mjóddinni:
OBOY súkkulaðidrykk frá Marabou
FIRM AI.OSS megrunardrykk
frá Vaxtarræktinni
Holdahænubringur frá Holtabúinu h.f.
r
og Islensk matvæli h.f. kynnir Qölbreytta
framleiðslu sína.
Kynnum í Starmýri:
Kjötbúðing að hætti Víðis
Kjúklingar 1QQ
AÐEINS JL ^
.00
pr. kg.
Ný Egg 129
.00
pr.kg.
V
we)
í 1/1
Lambakjöt icq
skrokkum niðursagað i ^
Lnghænur Frafrípartar
. _ niðursagaðir
Vo
.00
pr.kg.
CSjsbcmöi 29
.50
Stór dós
AÐEINS
Opið til kl. 16
í MJÓDDINNI
& STARMÝRI.
en til kl. 13 í
AUSTURSTRÆTI
VÍÐIR
AUSTURSTRÆTI 17- STARMÝRI 2
MJODDINNI