Morgunblaðið - 20.04.1985, Síða 14

Morgunblaðið - 20.04.1985, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985 Morgunblaðsmenn á íslenskunámskeiði: „Stofnanamálið er veruleg ógnun við íslenska tungir* — rætt við íslenskukennarana Heimi Pálsson og Þórð Helgason „AUÐVITAÐ er málfarið á Morgunblaðinu ekki nógu gott. En það er mjög gott miðað við þær aðstæður, sem blaðamenn vinna við. Blaðið hefur allt frá dögum Valtýs og Jónasar frá Hriflu verið málfarslegur fjólugarður. En beri maður málfarið á síðum Morgun- blaðsins saman við málfar annarra blaða kemur Morgunblaðið vel út. Og það læðist að manni sá grunur, að það hafi tekið sig nokkuð á að undanförnu!" Þeir sem tala eru íslenskukenn- ararnir Heimir Pálsson og Þórður Helgason. Undanfarnar vikur — og margar næstu vikur verða blaðamenn Morgunblaðsins á námskeiðum í „Móðurmálsskóla" þeirra. Námskeiðin standa í hálf- an mánuð hvert, tvo tíma á dag, og þátttakendur eru um tugur blaða- manna hverju sinni. Umræða um íslenskt mál og málnotkun hefur aukist verulega á blaðinu síðan námskeiðin hófust. Sagði hann þetta en meinti hann hitt? „Það versta við blöðin eru klisj- urnar, fastar málleysur — ekki síst úr málfari stjórnmálamanna," sögðu þeir. „Orð eins og atvinnu- tækifæri, að framkvæma þetta og hitt, gera átak, kortleggja ástand- ið, fletir á málum og svo það sem er komið „inn í myndina“.“ — Fleira? „Annað ámælisvert í blöðum eru orðréttar þýðingar. Þær geta verið afspyrnu ljótar og hvergi í þeim vottur af íslenskri hugsun. Á námskeiðinu tókum við dæmi úr nýlegu fréttaskeyti, þar sem talað var um „shipping world". Það var þýtt sem „flutningaheimurinn". Það er vitanlega íslenska og skilst — en er náttúrlega ekki íslensk hugsun. Þetta er hugsað út frá „viðskiptaheiminum". Ekki rangt hugsað — en útlenska. Sami vandi blasir vissulega við öllum þýðend- um.“ — Og stundum tökum við blaða- menn orðrétta einhverja vitleysu eft- ir viðmælanda okkar ... „Já, mikið af því efni, sem Morgunblaðið/Júllus Heimir Pálsson (t.v.) og Þórður Helgason, kennarar á íslenskunámskeiði með blaöamönnum Morgunblaðsins: Varla hægt að ætlast til að fólk sé læst eins og staðið er að skólunum. blaðamenn í innlendum fréttum afla og þurfa að skrifa um, er byggt á viðtölum og frásögnum manna. Við ímyndum okkur að tímaskorturinn leiði blaðamenn gjarnan í þá freistni að taka orð- rétt upp eftir mönnum. Þá eru þeir að minnsta kosti vissir um að hafa rétt eftir! En tóninn kann að vanta. Var það þetta sem maðurinn átti við? Dæmi frá námskeiðinu er fullyrð- ingin: „Ég sagði ekki að hann hefði stolið bókinni." Þessi setning getur fengið jafn margar merki- ngar og orðin eru mörg, allt eftir því á hvaða orði áherslan liggur. Það er kannski erfitt að fá við þessu gert á meðan vinnuálagið á blaðamönnum er svona mikið, en auðvitað er afsökunin „hann sagði þetta" ekki annað en skálkaskjól. Blaðamaðurinn hlýtur alltaf að standa frammi fyrir því að þurfa að orða frásagnir manna á þann hátt, að merkingin skili sér.“ ... og kellingin hrímaði í aftursætinu — Nú er stundum talað um að blöðin séu spegill þjóðlífsins. Mér leið eins — segir rússneski fiðiuleikarinn Viktoría Mullova, sem flúði frá Sovétríkjunum fyrir tveimur árum og nýtur nú frelsis á Vesturlöndum „Auðvitað sakna ég stundum þess lífs, sem ég lifði í foreldrahúsum í Rússlandi, en ég set frelsið, sem ég nýt á Vesturlöndum ofar öðru,“ segir Viktoria Mullova, landflótta rússneskur fiðluleikari, í samtali við Morgun- bladió. Viktoría, sem er aöeins 25 ára og hefur þegar getið sér alþjóðlegs orðstírs, lék á fimmtudagskvöld einleik á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands og í dag, laugardag, leikur hún hjá Tónlistarfélaginu. Mullova kom hingað til lands frá Los Angeles, þar sem hún hélt tónleika, en hún hefur verið búsett í New York undanfarin tvö ár. Að íslandsförinni lokinni eru fram- undan hjá henni tónleikar í Miami á Flórída og síðan í Þýskalandi og á Ítalíu. „Eg kem fram á um það og ég væri í fangelsi Fiðlarinn yljaði verði um hjartað Stokkbðhni l jiM. AP SOVfeZKI fiAlukikarinn Vikloría Mullova, ttem er UndflólU, æfði oig í dag í aðaUtoðvum tænsku ör- ygguslogreglunnar í Slokkhólmi. Hertna fréttir að nóluleikarinn haH aótt um haeli sem pólitisknr flóttamaóur í Bandaríkjuaum of bíói bún svnra frá þarlendum jflr- ▼öldum. „Hún sagði okkur að hún þyrfti að æfa sig fimm klukku- stundir á dag svo að sór færi ekki aftur,“ sagði Tore Porsberg lögregiuforingi. „Hún spilar þarna hinum megin við vegginn og það er stórkostlegt á að hlýða,“ bætti hann við. Lðgregl- an mun hafa haft samband við Gert Crafoord konsertmeistara við Fílharmoniusveit Stokk- hólms og beðið hann að lána ungfrú Mullovu fiðlu til æfinga. Grafoord, sem leikur á þrjú hundruð ára gamla Stradivari- us-fiðlu, sagði sfðan í viðtali við fréttastofu AP I dag: „Ég er I frli svo ég lánaði henni Stradivari- usinn minn til bráöabirgöa“ Mullova mun hafa skiliö eftir fiðlu svipaðrar tegundar á rúmi hótels sins i Kuusamo í Norð- austur-Finnlandi eftir að hún ákvað að stökkva burt ásamt undirleikara sinum, Wartan Zhordania. Fiðla Crafoorda er eign hans sjálfs, en fiðla sú er Mullova skildi eftir I Kuusamo mun hafa verið fengin að l&ni hjá sovézkum yfirvöldum. Að sOgn Crafoords eru aðeins þrj&r eða fjórar Stradivarius-fiðlur eftir I Svíþjóð. Ungfrúin bar sigur úr býtum i Sfbeiius-fiðlukeppninni I Hels- inki 1980 og deildi fyrstu verð- launum með Oörum ( Tchaik- ovsky-flölukeppninni f Moskvu f fyrra. „Hún er að byrja feril sinn,“ sagöi Crafoord. „og á sennilega eftir að verða stór- stjarna." Flótti Mullova og undirlcikara hennar, hins fertuga Vakhtang Jordania, vakti á sínum tíma mikla athygli. Morgunblaóið birti þessa frétt um málið 7. júlí 1983. bil sjötíu tónleikum á hverju ári,“ segir Mullova. Hún æfir sig oft á fiðluna fimm klukkustundir á dag, stundum lengur og stundum skemur. Oft er hún uppgefin eftir æfingar og tónleika. „En ég er engu að síður ánægð,“ segir hún. „Það er betra að vera dauðþreytt, en að sitja með hendur í skauti og fá ekkert að gera.“ Mullova segir að það sé ekki auðvelt að skýra það í stuttu máli hvers vegna hún afréð að flýja frá Sovétríkjunum og biðja um hæli á Vesturlöndum. Hún er ekki póli- tískur andófsmaður, frekar en t.d. Andrei Tarkovskí, kvikmyndaleik- stjórinn sem hér var á dögunum. Reynsla þeirra beggja af komm- únismanum er hins vegar áþekk. Hún segir að af sér sé sömu sögu að segja og Tarkovskí. Hún hafi ekki fengið að njóta frelsis sem listamaður, ekki fengið að rækta tónlistarhæfileika sína. Hún fékk ekki að koma fram á tónleikum, nema eftir geðþótta skriffinna þeirrar ríkisstofnunar, sem ræður öllu tónleikahaldi i Sovétríkjun- um. Engu skipti f því sambandi þótt hún hefði unnið til glæsi- legra, alþjóðlegra verðlauna. Hún var hundsuð án þess að nokkur skýring væri gefin. Eins og rakið var í grein hér í blaðinu á fimmtudaginn var Vikt- oria Mullova á tónleikaferðalagi í Finnlandi í júlí 1983, þegar hún og undirleikari hennar flúðu vestur. „Við tókum mikla áhættu, þetta var sannarlega enginn leikur," segir hún þegar blaðamaður Morgunblaðift/Júllus Viktoría Mullova leikur með Sinfóníuhljómsveit íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.