Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985
„Liður í pólitísku
áróðursbragði“
— eftirJón
Sigurðsson
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
frá Jóni Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra íslenska
járnblendifélagsins hf.
við fréttatilkynningu frá Ólafi
Ragnari Grímssyni, sem birt
var í Morgunblaðinu 12. apr-
íl sl. um það, sem kallað var
rekstrarstyrkur frá Lands-
Það er til lítils að svara skrifum
eins og þeim, sem Ólafur Ragnar
Grímsson hefur látið frá sér fara
um ofangreint efni. Þau eru ekki
gagnrýni í eðli sínu heldur liður í
pólitísku áróðursbragði. Að halda
þeirri umræðu áfram hjálpar
áróðursmanninum til að halda
áfram iðju sinni, en samt skal það
gert, ef einhverjar markverðar
upplýsingar kynnu þannig að
komast til fólks, sem ella léti
blekkjast.
I fréttatilkynningunni er rætt
um rafmagnsverð til járnblendifé-
lagsins, ISAL í Straumsvik og al-
menningsveitna, eins og þar sé um
sambærilega hluti að ræða. Flest-
ir vita, að svo er ekki. Sjálfur veit
hann betur sem stjórnarmaður í
Landsvirkjun. Hann veit að
spenna, öryggi um afhendingu og
nýtingartími gera þær tölur, sem
hann notar, alls ósambærilegar.
Óðryggi járnblendifélagsins um
orkuafhendingu skv. samningi
þess er slíkt, að afkoman á ári eins
og 1984, hefði orðið um 200 millj-
ónum króna lakari en hún varð, ef
Landsvirkjun hefði á slíku ári orð-
ið að grípa til þeirrar skerðingar á
orkuafhendingu, sem hún má skv.
samningum. Það er því villandi,
þegar ólafur Ragnar ber saman
trygga og ótrygga orku stóriðju-
fyrirtækja eins og þeim sé ætlandi
að greiða fyrir hana sama verð.
Það er afar tilgangslítil iðja að
Jón Sigurðsson
eyða kröftum sínum f að sýta
orðna hluti með vangaveltum um
hvað væri, ef hlutirnir væru öðru-
vísi en þeir eru. Járnblendiverk-
smiðjan er hér og viðfangsefni
dagsins er að nýta hana sem best.
Rafmagnssamningar verksmiðj-
unnar hafa verið gerðir eins og
þeir eru og það er siðaðra manna
háttur að standa við sína samn-
inga.
Þessir samningar voru á sínum
tíma gerðir um rafmagnsverð,
sem Landsvirkjun taldi sig geta
selt á. Við hærra rafmagnsverð
hefði verksmiðjan ekki verið
byggð.
Þótt ýmsar forsendur hafi orðið
aðrar en þá var gert ráð fyrir,
snúa engar þeirra að járnblendifé-
laginu. Virkjanakostnaður,
vatnsbúskapur, tímasetning virkj-
ana, raunvextir í heiminum, geng-
issveiflur gjaldmiðla og skamm-
sýni stjórnvalda um verðlagningu
raforku innanlands hafa leikið
Landsvirkjun grátt. Afrakstur
Landsvirkjunar af viðskiptum við
járnblendifélagið hefur ekki orðið
sá, sem að var stefnt. Áhættu-
þættirnir, sem því hafa valdið, eru
allir innan garðs hjá Landsvirkj-
un og járnblendifélaginu óviðkom-
andi. Áhættuþættirnir, sem járn-
blendifélagið hefur tekið á sig í
þessum viðskiptum, hafa ekki síö-
ur leikið það og eigendur þess æði
grátt og má fullyrða að tap járn-
blendifélagsins á þessum viðskipt-
um sé margfalt á við tap Lands-
virkjunar.
Raunar er það reikningsdæmi,
sem fremur væri vert að skoða,
heldur en fárast um orðinn hlut,
hver hefði verið afkoma Lands-
virkjunar með og án járnblendi-
verksmiðjunnar. Þrátt fyrir allt
hefur járnblendifélagið árin
1979—1984 keypt orku af Lands-
virkjun fyrir nær 550 millj. króna
á núvirði og þá orkusölu hefði
Landsvirkjun ekki haft annars
staðar.
í fréttatilkynningunni ber ólaf-
ur Ragnar það á skrifara þessara
lína, að hann hafi hælst um í fjöl-
miðlum af afkomu félagsins og því
efni hann til þessarar orkuverðs-
krossfarar. Hið sanna er, að í
ársskýrslu járnblendifélagsins er
gagngert tekið fram, að hagstætt
orkuverð sé ein höfuðorsök þess,
að afkoman 1984 var góð.
Ólafur Ragnar og félagar hans
flestir hafa frá upphafi verið and-
vígir járnblendiverksmiðjunni og
það pólitíska viðhorf ber að um-
gangast með sama umburðarlyndi
og hvern annan sértrúarsöfnuð.
Hitt er vert að minna á, að rökin,
sem notuð voru um mengun um-
hverfisins, mengun mannlífsins og
hvað það nú annars var, sem tínt
var til á þeim tíma, hafa gufað
upp. Mengunarvarnir fyrirtækis-
ins hafa reynst vel og það finnast
varla vinnustaðir, þar sem starfs-
fólkið er í öllu meiri sátt við fyrir-
tæki sitt.
Hagstætt orkuverð mun á kom-
andi árum verða lykilatriði, sem
gefur járnblendifélaginu fjár-
hagslegan styrk til að vaxa og þró-
ast og væntanlega fjölga þvi fólki,
sem getur sótt til fyrirtækisins
tryggt lífsframfæri á viðunandi
vinnustað. Vilji ólafur Ragnar
fjandskapast út í það, þá er það
okkur járnblendifélagsmönnum
meinlaust.
Höfundur er framkræmdastjóri fs-
lenska járnblendifélagsins bf.
Tarkovskí-söfnunin:
Bréf sent til
Gorbatsjofs
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá forsvars-
mönnum Tarkovskí-söfnunarinnar,
dagsett 17. aprfl 1985:
„Forsvarsmenn Tarkovskí-
söfnunarinnar fóru í dag i sovéska
sendiráðið í Reykjavík og afhentu
afrit af bréfi til hr. Gorbatsjofs,
aðalritara Kommúnistaflfokks
Sovétríkjanna, undirritað af 1851
konu, með áskorun um að hjálpa
syni Tarkovskí-hjónanna að kom-
ast úr landi og til foreldra sinna,
sem búa á ítaliu.
Bréfið sjálft ásamt undirskrift-
um hefur verið sent til hr. Gorb-
atsjofs og annað afrit verður sent
sendiráði íslands í Moskvu.
Undirskriftasöfnunin stóð i eina
viku. Nokkrar íslenskar mæður
áttu upptökin að henni, en ýmsir
komu til liös við þær, bæði ein-
staklingar og samtök, þ. á m.
Kvennahúsið, Kvennafylkingin
Alþýðubandalaginu og Lands-
samband Sjálfstæðiskvenna.
Fyrir hönd forsvarsmanna söfn-
unarinnar.
Kristin A. ÓUfsdóttir**
Fáskrúðsfjörður:
Góður afli
Fáakráðsfirði, 18. aprfl.
MJÖG góð og mikil atvinna hefur
verið hér í vetur, að undanskildum
þeim tíma sem verkfall sjómanna
stóð. Eftir paáka hefur verið mjög
góð veiði hjá netabátum, en héðan
eru gerðir út þrir netabátar.
Sæbjörg SU hefur landað tvisv-
ar hér eftir páska og er afli henn-
ar frá þeim tíma 100 lestir. Heild-
arafli hennar á vertíðinni er 314
lestir. Sólborg SU hefur landað
352 lestum frá því um áramót og
Þorri SU hefur landað 405 lestum
frá áramótum.
f dag voru bátar að hefja róðra
á línu og fékkst mjög góður afli í
dag, einvörðungu steinbftur. Sem
dæmi má nefna að lítill opinn bát-
ur, 3,7 lestir, landaði í dag 2 tonn-
um af steinbít, sem hann fékk á 6
linur. Eigandi bátsins er Jóhann
Árnason og er hann einn á bátn-
um. Fréttaritari
virkjun til járnblendifélags-
ins.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
PLOTURm
Sæ- og seltuþolnar.
Hálfhart efni í þykktum frá 0.8 mm -10 mm.
Plötustærðir 1250 mm x 2500 mm.
SINDRA
STALHR
Borgartúni 31 sími 27222
MAZDA 523 DeLuxe er
rúmgóður, fjölhæfur
fjölskyldubíll með nægu
rými fyrir fjölskylduna
og farangurinn. \Jerð:
3 dyra HB Kr. 336.500.
77/ öryrkja ca. Kr. 230.500
5 dyra HB Kr. 345.900.
77/ öryrkja ca. Kr. 239.900
BILABORG HF.
Smiöshöfða 23 sími 812 99