Morgunblaðið - 20.04.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL1985
25
Mannskæðar óeirðir
í borginni Karachi
Kararhi, PakisUn, 19. aprfl. AP.
TÆPLEGA 50 manns hafa verid drepnir og hundruð hafa særst í miklum
óeirðum sem geisað hafa í Karachi síðan á mánudag. Meðlimir trúflokka
hafa barist með kjafti og klóm, hnífum og öxum og óeirðalögreglan hefur svo
látið til skarar skríða og tekist á við alla sem fyrir hafa orðið. 22 létu lífið í
dag og síðustu nótt.
Lætin byrjuðu á mánudag þann-
ig að hópar fólks fóru í fjölda-
göngu til þess að mótmæla herlög-
um, bágum efnahag, atvinnuleysi,
háu verðlagi og fleiru og fleiru.
Óeirðalögreglan réðst til atlögu í
því skyni að koma í veg fyrir meiri
háttar ólæti, en vopnið snerist í
höndum hennar og áður en menn
gátu deplað auga logaði allt í
óeirðum. Um miðja vikuna fjöruðu
ólætin út, en mögnuðust aftur nú í
vikulok. 22 létust í fyrstu óeirða-
hrinunni. Útgöngubann var sett á
í dag í þeim hverfum þar sem
ólætin voru hvað mest. Var og
mikil ólga vegna þeirra aðgerða,
því hinir strangtrúuðu múham-
eðstrúarmenn undu því illa að
mega ekki sækja moskur sínar.
Læknar sem vildu ekki láta
nafns síns getið sögðu flesta hinna
látnu hafa farist af völdum
hnífsstungna og axarhöggva. Þó
nokkrir hefðu einnig látist af skot-
sárum. Lögreglan sagðist einungis
hafa notað táragas og kylfur, en
ýmis vitni fullyrða að lögreglan
hafi einnig hleypt af rifflum og
drepið menn þannig og sært aðra.
Verðbólgan eykst
á ný í Bretlandi
Metgengi dollarans kennt um
London, 19. apríl. AP.
VERÐBÓLGA jókst í Bretlandi í
marz og nam hún 6,1 % miðað við
eins árs tímabil. Er þetta hærra en
nokkru sinni undanfarin 2Vi ár og
Ulið hnekkir fvrir ríkisstjórn
Ihaldsflokksins. I febrúar nam
verðbólgan aðeins 5,4% miðað við
eins árs tímabil. Tom King, ráðu-
neytisstjóri í atvinnumálaráðuneyt-
inu, komst svo að orði í dag, að
„vissulega ylli þessi tala vonbrigð-
um“.
421 milljón
fyrir málverk
London, 19. aprfl. AP.
Nær 500 ára gamalt málverk eft-
ir Andrea Mantegna var slegið J.
Paul Getty-safninu í Kaliforníu á
uppboði hjá ('hristie’s í gærkvöldi
fyrir 8,1 milljón sterlingspunda,
eða jafnvirði 421 milljónar ís-
lenzkra króna. Er það hæsta verð,
sem fengist hefur fyrir málverk.
Málverkið var í eigu mark-
greifans af Northampton, Spenc-
er D.D. Compton, sem ætlar að
nota andvirðið til að standa
straum af viðhaldskostnaði við
tvær hallir sínar.
Strax eftir söluna sagði fram-
kvæmdastjóri þjóðminjasafns
Skotlands í Edinborg, Timothy
Clifford, að hann mundi óska
eftir því að lagt yrði bann við því
að myndin yrði flutt úr landi.
Hyggst hann efna til samskota
um að kaupa myndina af nýju
eigendunum.
Myndin var slegin á 7,5 millj-
ónir punda eftir að mörg boð
höfðu borizt. Kaupendurnir
þiggja hins vegar 8% umboðs-
laun og greiðir Getty-safnið því
8,1 milljón punda fyrir hana.
Þátt i uppboðinu tóku banda-
rískir listaverkakaupmenn, sem
fylgdust með uppboðinu í Lond-
on um gervihnött. Myndina
keypti Artemis-safnið í London
fyrir Getty-safnið, sem er í
Malibu í Kaliforníu.
Hæsta verð, sem áður hefur
verið greitt fyrir málverk eru 7,4
milljónir sterlingspunda. Var
það mynd af ölduróti eftir
brezka málarann J.M.W. Turner.
Myndin var seld á uppboði hjá
Sotheby’s í London.
Genf, 19. aprfl. AP.
Samningamenn stórveldanna
héldu í dag sinn lengsta fund um
langdrægar kjarnaflaugar, og er þá
að Ijúka fyrstu lotu viðrædna þeirra
um takmörkun vígbúnaðar.
Fundurinn stóð í rúmar þrjár
stundir og voru fyrir nefndunum
John G. Tower og Victor P. Kar-
pov. Á þriðjudag lýkur fyrstu lotu
viðræðnanna með því að aðal-
samningamenn ríkjanna og að-
stoðarmenn þeirra koma saman.
Hefst næsta lota 30. maí næst-
komandi.
Michel Pache, talsmaður utan-
ríkisráðuneytis Sviss, sagði að að-
alsamningamenn stórveldanna,
Max M. Kampelman og Victor P.
Karpov, hefðu átt viðræður við Pi-
erre Aubert utanríkisráðherra í
vikunni. Ráðherrann ræddi við
Karpov á mánudag og Kampel-
man á þriðjudag. Pache vildi ekki
skýra nánar frá viðræðunum.
King sagðist álíta, að verð-
bólgan ætti enn eftir að aukast í
þessum mánuði sökum vaxta-
hækkana á veðlánum. Aukningin
í marz væri hins vegar fyrst og
fremst að kenna metgengi
Bandaríkjadollars í janúar og
þeim hækkunum á olíu og margs
konar innfluttum vörum sem og
vaxtahækkunum, sem fylgt
hefðu í kjölfarið.
Minnkun verðbólgunnar er
einn helzti hornsteinninn í efna-
hagsstefnu Margaret Thatcher
forsætisráðherra, sem lagt hefur
mikla áherzlu á aðhald í fjár-
málum ríkisins af þeim sökum.
Er Nigel Lawson fjármálaráð-
herra flutti fjárlagaræðu sína í
marz sl., spáði hann því, að verð-
bólgan í Bretlandi gæti komizt
upp fyrir 6% um mitt þetta ár,
en myndi síðan lækka aftur
niður í 5% í desember.
Thatcher sagði fyrr í þessum
mánuði, að hún vonaðist til þess,
að verðbólgan yrði komin niður í
3%, áður en næstu almennu
þingkosningar færu fram í
Bretlandi, en þær eru fyrirhug-
aðar 1988.
AP/Sfmamynd
Umtöluð fyrirsœta
Bandarískir tiskufrömuðir og aðrir sem sækja tískusýningar vestra
fá að sjá umtöluðustu fyrirsætuna á næstu dögum, enga aðra en
Stefaníu Mónakóprinsessu, sem starfar sem fyrirsæta hjá um-
boðsskrifstofu Vilhelmínu, sem er þekkt nafn i tískuheiminum i
Evrópu. Stefanía, sem er um tvftugt, hefur verið mynduð í ýmis
þekkt tískurit i Evrópu og hróður hennar eykst með hverri nýrri
myndbirtingu. Við sjáum hér eina af hinum umtöluðu myndum.
Viðræður um takmörkun vígbúnaðar:
Fyrstu lotu í
Genf að ljúka
ÍÍ4»nf 19 anríl AP
Palestínu-
menn drepnir
Vínarborg, 19. aprfl. AP.
SÍÐUSTU tölur herma, að 52 pal-
estínskir flóttamenn hefðu verið
drepnir og 230 til viðbótar særðir í
þeim bardögum sem verið hafa í
Líbanon síðustu þrjár vikurnar.
139 hinna særðu eru svo illa
haldnir að þeir liggja á sjúkra-
húsi, sumir hverjir í lífshættu.
Lúxus matseðlar—
föstudaga, laugardaga og sunnudaga í aprílmánuöi.
Her eru tcœr tUlögur að lúxuskvöldverði í Gullna hanan-
um sem standa gestum staðarins til boða auk hins venju-
bundna matseðils.
Fordrykkur Gullni fianinn
Kjötseyði Colbert
m/ostakexi
Fiskifantasia Gullna hanans
Sex gomsœlir sjávarréttir m/kryddgrjónum
Gljáð kiwi „Grand Marnier"
m/súkkuladi og rjóma
Kaffi og koniak
Merð kr \ 250
Fordrykkur. Gullni fianinn
Sjávarkæfutríó
m/þýskri eggjasósu
Te-frauð m/rommbragði.
Hvítlaukskrydduð
nautabuffsteik gratín
m kúmenosli og bakaðri kartöflu
Kaffi og koniak
Merð kr 1350
GULLNI HANINN
LAUCAVECI 178. SiMI 34780
í HÚSI TRYGGINCAR HF