Morgunblaðið - 20.04.1985, Page 56

Morgunblaðið - 20.04.1985, Page 56
TIL DAGIIGRA NOTA LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Maður rænd- ur og rist- arbrotinn MAÐUR i fertugsaldri varð fyrir iria þriggja ungmenna i Lindargötu í fyrrinótt. Ristarbrotnaði hann við irisina og er nú i sjúkrahúsi. Ung- mennin rtendu af honum veski með skilríkjum, krítarkorti, ivísanahefti og nokkur þúsund krónum í pening- um. Maður þessi var á leið heim til sín við Lindargötu þegar skyndi- lega var ráðist aftan á hann og honum skellt í götuna. Telur hann að að verki hafi verið tveir piltar og ein stúlka. Hrifsuðu þau af honum veskið og hurfu út í myrkr- ið. Maðurinn dasaðist nokkuð við árásina en náði fljótlega í leigubil og tilkynnti um verknaðinn á lög- reglustöðinni við Hverfisgötu. Var hann nokkuð skrámaður og bólg- inn á vinstra fæti og kom í ljós við læknisskoðun, að hann var rist- arbrotinn. Gekkst hann undir skurðaðgerð á Borgarspítalanum í gærmorgun og er nú á batavegi. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur málið til meðferðar og leit- aði ungmennanna þriggja í gær- kvöld. Tekinn fyrir netaveiðar án leyfis ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar stóð í gær nótaskipið Pétur Jónsson RE 14 að þorskanetaveiðum án leyfis á Breiðafirði. Skipið fékk leyfi til veið- anna frá ráðuneytinu skömmu síðar eftir símtal í land. Það var um klukkan 15 að Pétur Jónsson var staðinn að netaveiðum án þess að vera með til þess tilskilin leyfi. Klukkutíma síðar, klukkan 16, var skipið búið að fá leyfið eftir að skipstjóri hafði hringt í land og út- gerðarmaður þess í ráðuneytið. Starfsmenn Landhelgisgæzlunnar eru mjög óánægðir með vinnubrögð af þessu tagi. Telja þeir einkenni- legt að setja um það reglugerðir að veiðar skuli leyfisbundnar og því lögbrot í leyfisleysi, þegar ekki á svo að mæta brotunum samkvæmt lögum um veiðar i fiskveiðilögsögu íslands. Samkvæmt lögunum sé Landhelgisgæzlunni skylt að færa viðskomandi skip til hafnar, en ef þau geti þá látið nægja að hringja í iand og panta leyfi þá sé nánast verið að spauga með störf hennar. DIMISSION HJÁ VERZLUNARSKÓLANUM Það er skammt stórra högga á milli bjá nemendum Verzlunarskóla íslands. í fyrradag var peysufatadagur 4. bekkjar, en í gær dimitteruðu stúdentsefni skólans í vor. Mynd þessa tók Júlíus Sigurjónsson Ijósmyndari í vorsólinni í gær af glaðværum dimittöntum. Almannatryggingar: Kaupmáttur elli- og örorku- lífeyris aldrei lægri en 1984 Mæöralaun með þremur börnum aldrei hærri en á árinu 1984 KAUPMATTUR ellilífeyris hefur aldrei verið lægri en á árinu 1984, er hann fór niður í rétt rúmlega 70% miðað við töluna 100 frá árinu 1980. Þetta kemur fram í nýútkomnu fréttabréfi kjararannsóknanefndar. Hins vegar hefur kaupmáttur mæðralauna og þá miðað við móður með 3 börn aldrei verið meiri en nú. Á fjórða ársfjórðungi 1984 var kaupmáttur mæðralauna miðað við 3 börn 134,92 stig miðað við sömu viðmiðun og áður. Kaupmáttur þessi er miðaður við vísitölu framfærslukostnaðar. í fréttabréfinu segir m.a. um kaupmátt lífeyristryggingabóta: „1 stórum dráttum hefur þróun kaupmáttar ellilífeyris verið sú, að árið 1971 og 1972 jókst hann verulega og hélst þannig til ársins 1975, en þá og árið 1976 minnkaði hann verulega. Árin 1977 og 1978 jókst kaupmátturinn síðan aftur en síðan árið 1979 hefur hann far- ið lækkandi og hefur aldrei verið lægri en árið 1984. Síðan árið 1978 hefur þróun kaupmáttar annarra greiðslna verið svipuð. Á árinu 1984 hækkuðu lífeyris- greiðslur þann 1. marz í kjölfar kjarasamninga. Hækkanir þá voru á bilinu 7—62% og hækkaði elli- og örorkulífeyrir minnst eða um 7% en mæðralaun mest, t.d. hækkuðu mæðralaun miðað við 3 börn um 62%. Þessar hækkanir komu seint á 1. ársfjórðungi og höfðu því ekki mjög mikil áhrif á kaupmáttartöl- ur þess ársfjórðungs. Við útreikn- ing kaupmáttar 2. ársfjórðungs koma þessar hækkanir inn með fullum þunga, auk þess sem allar lífeyrisbætur hækkaðu um 2% 1. júní. Kaupmáttur allra lífeyris- greiðslnanna jókst því á 2. árs- fjórðungi 1984 og síðan aftur á 4. ársfjórðungi eftir lítilsháttar hækkun á þeim þriðja. Miðað við árið 1983 hefur kaupmáttur elli- og örorkulífeyris minnkað lítillega en kaupmáttur hinna bótanna hefur aukist. Einkum má benda á kaupmátt mæðralauna, en hann hefur aldrei verið meiri en á árinu 1984.“ MorKunblaöid/ÚIfai' Hurðin. þegar hún kom frá borði vélbátsins Óla vestui « Bolungarvík gærkveldi Hurðin er mjög heilleg, nema bvað skurðui er < henni á einun siaö. Óvisi er, hvon skurðurinn getur stafað fra toghlera rækjubátsins Gierio i glugga a hurðinní var óbrotið eins og sja ma á myndinni Hurðin er óskemmd en í henni er skurður HURÐ TF Ránar, þyrlu Landhelgisgæzlunnar, sem fórst í Jökulfjörðum haustið 1983, fannst í gær. Þess er vænzt að þessi fundur getið gefið vísbendingu um orsakir slyssins, en í því létu fjórir menn lífið. Samkvæmt upplýsingum fréttaritara Mbl. á ísafirði virðist hurðin lítið skcmmd, nema hvað skurður er í henni á einum stað. Tildrög þess, að hurðin fannst voru þau, að rækjubáturinn óli ÍS 81 frá Bolungarvík fékk hana í trollið er hann var á rækjuveiðum á Jökulfjörðum. Óli kom með hurðina til hafnai í Bolungarvík. gær- j kvöidi. Þar var tekið á móti henni j af loftferðaeftirlitinu og Landhelg- isgæzlunni og flogið með hana til | Reykjavíkur í Fokker-vél gæziunn- ! ar. Skúli Jón Sigurðsson, deildar- stjóri í loftferðaeftirlitinu, sagði í samtali við Morgunbiaðið. að hurð- arinnar hefði verið ieitað leng' og menn vonazt tii þess i nánast eitt og hálft ár, að hún kæmi I ieitirnar. Hann væri þvi mjög feginn að hurð- in vært fundir. Hún yrði skoðuð nánar á morgun og næstu daga. Hann gæti því ekki tjáð sig frekar um málið nú. Fréttaritari Morgunblaðsins á ísafirði, Úlfar Ágústsson, ræddi í gær við Pétur Runólfsson, skip- stjóra á Óla, sem kvað það hafa komið nokkuð á óvart, að hurðin skyldi koma í trollið á þessum stað, þar sem mikill fjöldi báta hefði tog- að þarna, oft dögum saman, í meira en ár, Hann kvað hurðina hafa I komið i trollið á 2ja tíma togi, svo j að erfitt. væri aö segjr, til um ná I kvæmlega, hvar hún hefði legið, en I togað var nálægi. þejm staÖ, sem I slysið varð og þyrlan sjálf fannst, á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.