Morgunblaðið - 07.05.1985, Blaðsíða 4
MOReUNBLAÐÍP, ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1985
Vertíð að ljúka í Qlafsvík;
Heildaraflinn 1.000
lestum meiri en í fyrra
OUforík, 6. bul
VETRARVERTÍÐ er sem næst lokið
hér Tið Breiðafjörð. Tveir eða þrír
bátar eru enn með net og hafa þeir
fiskað sæmilega, 8 til 12 tonn eftir
nóttina. Fáeinir bátar eru með drag-
nót og hafa þeir fengið ágætan afla,
allt að 18 tonnum af vænum þorski
eftir daginn. Handfærabátum fjölgar
hér ört, enda er hörkufiskirí á hand-
færín.
Sjómenn segja fjörðinn fullan af
físki og eru dæmi þess að menn
hafi séð berum augum stórar torf-
ur, þegar þeir eru að veiða á
grunnu vatni. Allur fiskur er ætis-
fullur. Mikil vinna er í fískvinnslu-
stöðvunum og vantar fleiri hendur
að vinnunni.
Fréttaritara finnst ekki ástæða
til að birta aflatðlur einstakra
báta, það er satt að segja varla
sanngjarnt því fenginn afli er eng-
inn mælikvarði á raunverulega
fiskigetu vegna mjög mismunandi
skorða, sem aflamörk setja bátum.
Réttara væri að stjórnendur veið-
anna birtu afíamörk allra báta eins
og þau eru nú eftir leiðréttingar.
Þær tölur myndu sýna vertíðarafla
hjá flestum Ólafsvíkurbátum, en
heildaraflinn 30. apríl var hins veg-
ar 10.430 tonn og það um 1.000
tonnum meira en í fyrra, sem þó
var fengsældarár hér vestra.
Helgi
V estmannaeyjan
Þokkalegt hjá netabátum
- með eindæmum slæmt hjá trollbátum
V«H1—«r)—, *■ m«í.
NÚ FER senn að styttast í þessari
vetrarvertíð. Gamli lokadagurinn er á
sunnudaginn kemur, 11. mal, en nú
orðið eru vertíðarlok almennt miöuð
▼ið 15. maí. Þetta ætlar að verða
þokkalega góð vertíð hjá netabátum,
en hreint með eindæmum slæm hjá
trollbátum. Þegar aflinn fyrstu fjóra
Vetrarvertíð lokið
frá Rifshöfn:
Aprflmánuð-
ur sá bezti
í mörg ár
FLESTIR netabátar, sem gerðir eru
út frá Rifshöfn, eru hættir veiðum.
Mjög góður afli var hér I aprílmánuði
og er hann einn sá bezti, sem komið
hefur í mörg ár.
Voru bátar yfirleitt með minna
af netum til að treina sér aflakvót-
ann út mánuðinn. Afíahæsti bátur-
inn er Rifsnes SH 44 með 850 tonn,
skipstjóri er Baldur F. Kristinsson.
Næstur er Saxhamar SH 50 með
760 tonn og þriðji Hamar SH 224
með 695 tonn, allt þorskur.
— Fréttaritarí
mánuði ársins er borinn saman við
afla sömu mánaða í fyrra, kemur í lós
að afli netabáta er aðeins 750 tonnum
minni nú í ár þrátt fyrir frátafír í
verkfalli sjómanna. Hins vegar vant-
ar hvorki meira né minna en rúm
2.000 tonn svo trollbátar hafi náð
sama afla og í fyrra.
Meðalafíi netabáta i löndun er
nú 11,8 tonn en var 11,7 tonn í
fyrra. Meðalafli trollbáta er nú 7,8
tonn i löndun er var 11,1 tonn i
fyrra. Afli Eyjabáta og togara i
aprílmánuði var rúmlega 900 tonn-
um meiri en í sama mánuði 1984,
7.937,6 tonn á móti 7.030,6 tonnum
árið áður. Heildarvertíðaraflinn
fyrstu fjóra mánuði ársins nemur
alls 20.793,9 tonnum. Þetta er um
3.000 tonnum minni afíi en á sama
tímabili árið 1984 og má rekja það
til verkfallsins svo og verulega
dræmari afíabragða trollbáta. !
dag voru 7 Eyjabátar búnir að
landa meira en 700 tonnum á ver-
tiðinni. Suðurey VE er sem fyrr
aflahæsti báturinn með 1.217 tonn.
Þórunn Sveinsdóttir VE er með 958
tonn, en hún landaði einhverjum
afía i gáma um helgina, og er hann
ekki inni i þessari tölu. Aðrir, sem i
dag eru komnir yfír 700 tonna
markið eru Bjarnarey VE með 827
tonn, Ófeigur VE 801 tonn, Valdi-
mar Sveinsson VE 734 tonn, Gjafar
VE 721 tonn og Bylgja VE með 714
tonn.
hkj.
Jóhann Hjálmarsson
blaðafulltrúi Pósts og síma
JÓHANN Hjálmarsson, útibússtjóri,
hefnr verið settur blaðafulltrúi Pósts
og síma til eins árs. Blaðafulltrúa
starfíð er nýtt hjá stofnuninni.
Starfið mun einkum fólgið i al-
menningstengslum, upplýsinga-
miðlun til viðskiptavina stofnun-
arinnar og fjölmiðla.
Jóhann Hjálmarsson mun fá
eins árs leyfi frá störfum útibús-
stjóra póstútibúsins í Umferðar-
miðstöð, R-6, til að gegna starfi
blaðafulltrúa. Jóhann hefur starf-
að hjá Póststofunni í Reykjavík
frá 1964. Hann hefur verið útibús-
stjóri póstútibúsins i Umferðar-
miðstöð síðastliðin fimm ár. Jó-
hann hefur setið í útgáfunefnd fri-
merkja frá 1983 sem fulltrúi póst-
manna og hefur samgönguráð-
herra nýlega skipað hann til að
sitja áfram í nefndinni næstu þrjú
ár.
Eftir Jóhann Hjálmarsson hafa
komið út margar ljóðabækur, söfn
þýddra ljóða, bókmenntasagan ís-
lensk nútímaljóðlist og hann hef-
ur annast útgáfu nokkurra bóka.
Jóhann Hjálmarsson er fæddur
Jóhann Hjálmarason
árið 1939 í Reykjavík. Kona hans
er Ragnheiður Stephenscn hjúkr-
unardeildarstjóri. Þau eiga þrjú
börn.
Þessum fálkaungum var reynt að smygla úr landi fyrir nokkrum árum.
Þriðja árið í röð sem fálka-
hreiðrið í Aðaldal er rænt
FÁLKAHREIÐUR í Garðshnjúki í Aðaldal í S-Þingeyjarsýslu var rænt
fyrir helgi, líklega á fóstudag. Lögreglunni á Húsavík var gert viðvart
síðastliðinn laugardag um að fjögur fálkaegg hefðu horfið úr hreiðrinu í
Aðaldal og beindist grunur að v-þýzkum manni, Christian Krey. Þetta er
þríðja árið í röð sem fálkahreiðrið í Garðshnjúki í Aðaldal er rænt.
Fyrir nokkru vöknuðu grun-
semdir um að egg hefðu horfið
úr fálkahreiðri í Dimmuborgum
í Mývatnssveit. Til útlendinga
sást skammt frá hreiðrinu og við
athugun kom í ljós að egg voru
ekki í hreiðrinu, en ekki er víst
hvort fálkapar, sem sást við
hreiðrið, hafi náð að verpa.
Lögreglan á Húsavík hóf
rannsókn þegar eftir að ljóst var
að eggjum hafði verið stolið úr
hreiðrinu. Grunur beindist fljót-
lega að Christian Krey, kunnum
eggjaþjófí sem hlotið hefur dóm
erlendis. Hann var hér á landi í
fyrra og lá undir grun, þó ekki
hafi tekist að sanna að hann hafi
gerst sekur um eggjaþjófnað.
Grunur leikur á að hann hafi
verið í samstarfi við aðra. Er
talið að sex útlendingar — þrjár
konjr og þrir karlar, þeirra á
meðal Krey, hafi haft samstarf
sín á milli og hugsanlega komist
úr landi með fálkaegg.
Við rannsókn lögreglunnar á
Húsavík kom í ljós að Krey kom
til Akureyrar á fimmtudags-
kvöldið. óvíst er hvenær hann
kom, því hann kom hingað til
lands undir fölsku nafni. Krey
leigði bifreið hjá Bílaleigu Akur-
eyrar á fimmtudag, Lada Sport-
jeppa og sneri tii Reykjavíkur á
laugardag. Þegar að kvöldi laug-
ardagsins hófst leit að Krey í
Reykjavík, en hann fannst
hvergi. Þó er hugsanlegt að hann
hafi skráð sig inn á eitthvert
hótelið undir fölsku nafni.
Við vegabréfaskoðun á sunnu-
dag kom i ljós, að Krey hugðist
fara úr landi til Lúxemborgar,
þrátt fyrir að nafn hans væri
ekki á farþegaskrá. Hann var
skráður með vélinni undir fölsku
nafni. Þegar var leitað á mann-
inum og í farangri hans, en ekk-
ert fannst og honum hleypt úr
landi.
„Það er vel hugsanlegt að
Krey hafi samverkamann. Miðað
við fyrri reynslu er líklegt að það
hafi verið kona,“ sagði Ævar
Petersen, fuglafræðingur, í sam-
tali við Mbl. 1 gær. „Við höfum
gert ákveðnar ráðstafanir er-
lendis til þess að hafa hendur í
hári mannsins, en við ramman
er reip að draga. Ljóst er að við
þurfum að breyta eftirliti með
hugsanlegum fálkaþjófum.
Margir aðilar hafa eftirlit með
höndum, en enginn hefur heild-
aryfirsýn. Nágrannaþjóðir okkar
hafa gripið til þess ráðs, að
koma upp sérstökum sveitum
ýmist með lögregluvald eða í
nánu samstarfi við lögregluyf-
irvöld. Eg tel vænlegt að grípa
til slíkra ráðstafana," sagði
Ævar Petersen.
Christian Krey sem grunaður er um eggjaþjófnað:
Var dæmdur í Kanada fyrir
að stela fálkaeggjum 1983
Setið fyrir Krey í Luxemborg en hann slapp
Frá öus Bjarudóttttr, öéUarHara MbL f Zttrich, 6. m«f.
CHRISTIAN Krey, V-Þjóöverjinn sem grunaöur er um að hafa stolið
fálkaeggjunum í Þingeyjarsýslu og fíaug til Lúxemborgar á sunnudags-
morgun, sat i faageiai í Kanada í fjóra mánuöi fyrir aö stela fálkaeggjum
áriö 1983. Hann var dæmdur til aö greiöa 3 þúsund kanadíska dollara í
•ekL Hann sagöist hafa stoliö eggjunum fyrir landa sinn, Rozinkranz aö
nafni. Rozinkranz neitaöi ásökunum, en bréf sem fannst frá honnm til
eskimóa í Kanada, þar sem Krey var grípinn, benti til þess, aö Krey færi
meö rétt mál. I bréfínu baö Rozinkranz eskimóann aö útvega sér fleiri
fálka.
Rozinkranz er meðal nafna
sem starfsmaður v-þýzka tolls-
ins nefndi i samtali i kvöld þegar
hann var spurður hverjir gætu
staðið á bak við ferðir Kreys til
Íslands. Múller og Luttger voru
aðrir. Þeir eru sagðir meðal
þeirra sem eiga íslenzk fálkapör
og gætu notað egg til að þykjast
hafa ræktað ungana sjálfir og
þannig verið heimilt að selja þá
á löglegum markaði.
„Krey fór frá íslandi klukkan
átta á sunnudagsmorgun. Þar
var leitað að eggjum í farangri
hans á Kefíavikurflugvelli en
ekkert fannst,” sagði starfsmað-
ur toilsins. „Við gerðum ráöstaf-
anir til að ná honum i Lúxem-
borg en hann ferðaðist undir
öðru nafni og við misstum af
honum. Einhver annar hlýtur að
hafa komið eggjunum úr landi
fyrir hann, en við Ævar Peter-
sen könnumst ekki við nein nöfn
á farþegaiistum. Aðeins einn
annar maður sem nú er á íslandi
er grunsamlegur. Kunnir fálka-
áhugamenn fara ekki til íslands
þessa dagana í skemmtiferðir."
Við yfirheyrslur yfír eggja-
þjófum í Bandarfkjunum í fyrra
kom fram að fálkaþjófar nota
aðailega einkafíugvélar í ráns-
ferðum sínum til Islands. Starfs-
maður v-þýzku tollþjónustunnar
taldi að Krey væri of „lítill"
skúrkur til að hafa þess konar
starfsemi á bak við sig.
Það kom fram i samtölum við
v-þýzka fálkaáhugamenn í
kvðld, að samkeppnin milli
þeirra er hörð og þeir reyna að
koma óorði hver á annan. Einn
heimildarmaður Mbl. nefndi
fuglaræktunarmanninn von
Pölnitz í sambandi við Krey og
sagði að hann hefði átt íslands-
fálka. Von Pðlnitz þvertók fyrir
að hafa haft nokkurt samband
við Krey í mörg ár en viður-
kenndi þó, að hafa alið upp f
honum fuglaáhuga og kennt
honum að umgangast ránfugla.
íslandsfálkinn hans er dauður.
Honum var mjög umhugað að
hreinsa nafn sitt af öllum grun
og gekk svo langt að bjóða
fréttaritara Mbl. í heimsókn til
að sanna að hann lumaði ekki á
týndu eggjunum fjórum.
Hark Bohm verður gest-
ur á kvikmyndahátíð
EINN aðalleikari Fassbinders, Hark
Bohm, sem lék m.a. píanóleikarann í
Lili Marlene, skrifstofustjórann í
Hjónaband Maríu Braun — auk
fjölda annarra hlutverka svo sem
skóreimasalann í sjónvarpsþáttun-
um Berlin Alexanderplatz — veröur
gestur Kvikmyndahátíðar.
Eíftir lát Fassbinders hefur
Hark Bohm tekið að leikstýra
myndum en á hátfðinni verður
sýnd mynd hans „Eigi skal gráta“
(Keine Zeit fúr Tránen) sem fjail-
ar um frægt glæpamál þegar móð-
ir skaut morðingja barns sins i
réttarsalnum við yfirheyrslur.
Mynd þessi hefur vakið gffurlega
mikla athygli ekki síður en þetta
óvenjulega sakamál.
Hark Bohm