Morgunblaðið - 07.05.1985, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MAi 1985
Tuttugu ára kórstarf
Tónlist
Jón Ásgeirsson
KÓR Öldutúnsskólans í Hafn-
arfirði hefur starfað í tuttugu
ár undir stjórn Egils Friðleifs-
sonar og af því tilefni hélt kór-
inn tónleika í Hafnarfjarðar-
kirkju, þar sem komu fram þrír
kórar og einnig eldri félagar,
sem lagt hafa fyrir sig tónlist
sem starfsvettvang sinn. Á
slíkum tímamótum rifjast ým-
islegt upp og því rétt að staldra
ögn við. Hvað er svo merkilegt
við skólakór, umfram aðra
starfsemi í skóla, að ástæða sé
til þess að draga slíka starfsemi
út og hampa henni, umfram
annað gott veganesti er skólinn
leggur ungmennum til lífsferð-
ar sinnar. Það er auðvitað
margt sem telja mætti upp
varðandi uppeldislegt ágæti
tónlistar og ögun þá er fylgir
iðkun hennar. En slíkt er ekki
einvörðungu bundið við tónlist,
heldur og allt nám. Hvað um
návist fegurðarinnar í tónlist?
Hún er sannarlega fyrir hendi
en ekki aðeins í tónlist og þá
aðeins hefur hún gildi að með-
ferð og útfærsla hennar séu
slíkar að fólk hrífist af, því
annars getur hún valdið and-
hverfu hrifningarinnar. Þarna
erum við komin að kjarna
málsins, því öll störf skólans
eru jafn mikilvæg og mannbæt-
andi og séu þau unnin vel og
samviskusamlega eru flestir
ánægðir en sjaidan haft um það
mörg orð. Aðeins ef sérstaklega
tekst til, þá er stundum dokað
við, og ef þessu heldur fram um
hríð er farið að huga að því að
þarna sé eitthvað gert umfram
það sem venjulega gerist. Því
lengra sem orðstírinn berst því
vissari eru menn í um ágæti
fyrirbærisins. Það sem Egill
Friðleifsson hefur gert með
starfi sínu sem tónmennta-
kennari við Öldutúnsskólann er
að vinna skylduverk sín með
þeim ágætum að ekki er aðeins
ástæða til að þakka honum
fyrir vel unnin skyldustörf
heldur ber að þakka honum
fyrir að hafa lyft söng barn-
anna í Hafnarfirði upp í þær
hæðir að eftir er tekið víða um
heim, sérstaklega þar sem fólk
telur ekki eftir sér að kosta
nokkru til uppeldis barna
sinna. Þannig hefur kór Öldu-
túnsskólans lyft ser upp fyrir
þögn hversdagsins og sungið
víða um heim, allt frá Túnis í
suðri til Bandaríkjanna í vestri
og Kína í austri. Undirstaða
þeirrar frægðar, er Kór Öldu-
túnsskóla nýtur, er vinna Egils
Friðleifssonar og vilji barna og
skólayfirvalda að styðja hann í
starfi. Undirritaður vill leggja
áherslu á starf kórstjórans, því
góður kór syngur illa undir
slakri stjórn og slakur kór
batnar mikið við góða stjórn.
Það er sú krafa er söngstjórinn
gerir til söngfólks og sjálfs sín
sem skapar kórnum það rikti að
gott söngfólk sækist eftir þátt-
töku á sama hátt og það fælist
slakan söngstjóra. Kór er og
verður það sem kórstjórinn
kann og getur og í söngþjálfun
barna hefur Egill Friðleifsson
náð frábærum árangri. Einn
fallegasti þáttur tónleikanna
sem haldnir voru sl. laugardag
var söngur litla kórsins og þar
mátti merkja ljúflegt og nær-
gætið handtak Egils, er hann
leiddi sönginn hjá þessum litlu
krílum, af þeirri ástúð sem
þeim einum er lagið að gefa
sem elskar starf sitt og fólkið
sem hann vinnur með. Þarna
mátti sjá, að Egill sáir í frjóa
jörð og fyrir gamlan kennara
var þetta helgistund.
Tónleikarnir hófust á söng
meginkórs öldutúnsskólans
með flutningi á Keðjukveðju
eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Keðjukveðja þessi er afmæl-
iskveðja til kórsins, skemmti-
lega gerður keðjusöngur, sem
ekki er alls kostar auðvelt að
syngja. Tvö næstu lög voru ís-
lensk, það fyrra tvísöngslagið
Nú er hann kominn og það síð-
ara Maístjarnan, við texta eftir
Halldór Laxness.
Næst á efnisskránni var lag
eftir Beethoven, við fallegan
texta eftir samkennara Egils vð
öldutúnsskólann, Sigríði Þor-
Niels Björndal
LYFIABÓKIN
ISAFOLD
m
Tm
LYFJABÓKIN er
nauðsynleg hand-
bókáhverju
heimili.
ÍSAFOLD
Kórínn á ferðalögum erlendis
Hópurinn sem fór til Túnis, 1972
Á tónleikum í Bandaríkjunum 1978
AA loknum tónleikum I Kanton I Klna, 1982
geirsdóttur. Lagið nefnist Nótt
og er það upphafsstef annars
þáttar sjöundu sinfóníu Beet-
hovens. Undirritaður saknaði
stefsins fræga er Beethoven
bætir við upphafið í 27. takti.
Væri hægt að fella textann að
þessu stefi yrði lagið enn
áhrifameira. Næstu tvö lög
voru eftir Kodály, Ave Maria og
Ladybird. Þessum þætti tón-
leikanna lauk með því að kór-
inn söng Þú hýri Hafnarfjörð-
ur, eftir Friðrik Bjarnason og
Guðlaugu Pétursdóttur. Kór
öldutúnsskóla söng mjög vel og
auðheyranlega í mjög góðu
formi. Næsta atriðið var svo
Litli kórinn en hann söng þrjú
lög, fyrst ís og snær, þá Kom-
um öll til Afríku, við skemmti-
legan texta eftir Hildigunni
Halldórsdóttur, og síðast Úti
um mó, við texta eftir Friðrik
Guðna Þorleifsson. Tveir eldri
nemendur komu fram, en það
voru Margrét Pálmadottir
söngkona og Valgerður Andr-
ésdóttir, sem nú þessar vikurn-
ar stendur í ströngu að taka
einleikarapróf frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Valgerð-
ur lék As-dúr-ballöðuna eftir
Chopin, sem er erfitt verk, af
smekkvísi og músíkalskri til-
finningu og auðheyrt að hún
nýtur góðs veganestis kenn-
ara sinna. Margrét Pálmadóttir
er í söngnámi við Söngskólann í
Reykjavík. Hún hefur mikla og
fallega rödd, er músíkölsk og
ætti er fram líða stundir að
geta náð góðum tökum á rödd
sinni. Þá er þarna von í góðri
söngkonu. Undirleikari var Jór-
unn Viðar tónskáld og var sam-
vinna þeirra með ágætum. Síð-
asta atriðið var Elite-hópurinn,
sem fyrst söng tvo negrasálma
og síðan lag Guðrúnar Böðv-
arsdóttur, Á föstudaginn langa,
við texta Davíðs Stefánssonar.
Þriðja lagið var Dúfa á brún,
skemmtilegt lag eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og því næst það
fræga lag Aglepta eftir Mell-
nás. í tveimur síðastnefndu lög-
unum er unnið með alls konar
tónmyndunaraðferðir, og kall-
ast lögin „nútímatónlist", sem
margir nota sem skammaryrði,
en það sem merkilegt má kalla
er að fólk gleymir þessari af-
mörkun er það hlýðir á lög eins
og Dúfa á brún og Aglepta og
það ríkti alger kyrrð í
Hafnarfjarðarkirkju er þessi
lög voru flutt, sem réttilega
þarf að taka fram, því yngri
kynslóðin var mjög fjölmenn á
þessum afmælistónleikum.
Tónleikunum lauk með Kvöld-
Ijóði eftir Kodály og sem auka-
lag söng Elite-hópurinn
Kveðjukeðjuna eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Elite-hópurinn
er frábær söngflokkur og var
flutningur hans t.d. á Aglepta
glæsilegur svo og kvöldljóðinu
eftir Kodály. Allir sem unna
góðri tónlist óska Hafnfirðing-
um til hamingju með Kór öldu-
túnsskóla og starf Egils Frið-
leifssonar í tuttugu ár. Kórnum
og Agli þakkar undirritaður
fyrir margar góðar stundir og
þar með fylgja óskir um áfram-
haldandi gott gengi á komandi
árum.