Morgunblaðið - 11.05.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ1985
Búnaðarbanki og Verzlunarbanki:
Vextir lækk-
aðir í dag
VAXTALÆKKANIR taka gildi í Búnaðarbankanum og Verzlun-
arbankanum í dag, 11. maí, eins og í Landsbankanum, en frá því
var skýrt í Mbl. í gær. Vextir lækkuöu einnig í Búnaðarbankan-
um 1. maí sl. og hafa frá og með deginum í dag lækkað samtals
í þessi tvö skipti um VA til 2‘A% af útlánum, en 2—2‘A % af
innlánum. Vextir Verzlunarbankans lækka í dag að meðaltali um
2%.
Vextir Iðnaðarbankans lækk-
uðu 1. maí sl. um sem svaraði 2%
að jafnaði. Ragnar önundarson,
bankastjóri Iðnaðarbankans,
sagði í viðtali við Mbl., að sú
vaxtalækkun hefði verið ákveðin
með hliðsjón af lánskjaravísi-
tölu. Nú væri útlit fyrir að verð-
bólgustig frá upphafi til loka
júnímánaðar yrði 23% en hefði
verið 28% í maímánuði og mætti
því reikna með breytingum á
lánskjaravísitölu, en hún er
reiknuð út 21.—22. hvers mánað-
ar og tekur gildi um mánaðamót.
Ragnar sagði, að ákvörðun
Landsbankans um enn frekari
vaxtalækkanir þýddi, að forráða-
menn Iðnaðarbankans myndu
kanna frekar tilefni til vaxta-
breytinga næstu daga.
Það kom einnig fram í viðtöl-
um við Jón Adolf Guðjónsson,
bankastjóra Búnaðarbanka ís-
lands, og Höskuld Jónsson,
bankastjóra Verzlunarbankans,
að gera mætti ráð fyrir enn frek-
ari vaxtalækkunum miðað við
stöðu mála í dag. Höskuldur
sagði, að jafnvel mætti gera ráð
fyrir að til vaxtabreytinga kæmi
á nokkurra daga fresti.
Morgunblaðift/Júllua
„Vegna breytinga verður bensínstöðin lokuð f dag“ stendur i skilti við
bensínstöðina í Fellsmúla. Búist er við að fógeti taki afstöðu til kröfu Olís
um lögbann i jarðrask Hreyfils eftir helgi.
Forskot tekið i sæhina. Þessar stölhir brugðu i leik í Eden-Borg síðdegis f g*r. MorgunblaðiJ/Bjarni
Skemmtigarður í Hveragerði
Skemmtigarðurinn Eden-Borg
opnar í Hveragerði í dag. Þar hef-
ur verið komið fyrir marvíslegum
leiktækjum i 60 dögum, en tveir
minuðir eru liðnir síðan fyrsta
skóflustungan var tekin að mann-
virkjum í Eden-Borg. Eigendur
garðsins eru Eden í Hveragerði og
Kaupland í Reykjavík, en síðar-
nefnda fyrírtækið rekur einnig
Hótel Borg.
Um 35 manns munu fyrst í stað
starfa í skemmtigarðinum, sem
verður opin daglega fri klukkan
14—23 fram í miðjan september
að minnsta kosti. I dag verður þó
ekki opnað fyrr en klukkan 15.
Viðskiptaráðherra á fund framkvæmdastjóra EB:
Reyni að fá saltfisk-
tollinn felldan niður
Deilur Hreyfils og
Olís um bensínstöð
Olís krafðist í gær lögbanns við jarðraski á
vegum Hreyfils við bensínstöð í Fellsmúla
OLÍUVERSLUN íslands setti í gær fram kröfu um lögbann við jarðraski við
bensínstöð við Fellsmúla. Forriðamenn Hreyfils höfðu fengið gröfu að stöð-
inni til þess að fjarlægja benzfn- og olíugeyma, sem standa i lóð bifreiða-
stöðvarinnar. Deilur hafa sprottið upp með forriðamönnum Olís og Hreyfils,
en bifreiðastöðin hefur um iratugaskeið verslað við Olís.
— segir Matthías Á. Mathiesen um fyrirhugaða inngöngu
Spánar og Portúgals í Efnahagsbandalagið
„Samningur Hreyfils og Olís
rann út þann 1. janúar síðastlið-
inn og hafa viðræður um nýjan
samning staðið yfir síðustu 4 til 5
mánuði. Samkomulag náðist ekki
og sögðu forráðamenn Olís samn-
ingnum upp með þeim orðum, að
frekari samningaumleitanir væru
til einskis," sagði Einar Geir Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri
Hreyfils, í samtali við Mbl.
„Forráðamenn Olís sögðu, að ef
við gerðum ekki upp viðskipta-
skuld okkar væru þeir reiðubúnir
að fara með hafurtask sitt af lóð
Hreyfils við Fellsmúla. Við tókum
þá á orðinu og gáfum þeim frest
til 1. maí að hafa sig á brott og
fyrrínótt þrennt — tvo karlmenn og
konu eftir að um 1300 lítrar af
bruggi fundust í fbúð í Norðurmýr-
inni í Reykjavík. Lögreglan lagði
hald á bruggið ásamt um 50 lítrum
af spíra, auk bruggtækja og eim-
ingartækja, sem komið hafði verið
upp í íbúðinni. Talið er að verðmæti
áfengisins, fulleimaðs, sé á svörtum
áskildum okkur rétt til þess að
fjarlægja eignir Olís á þeirra
kostnað. Við greiddum skuld okk-
ar við Olís að upphæð 7,4 milljónir
króna og nokkrum klukkustundum
eftir að við hófum framkvæmdir,
kröfðust forráðamenn Olís lög-
banns. Við bíðum niðurstöðu fóg-
eta,“ sagði Einar Geir.
Mbl. sneri sér til Þórðar Ás-
geirssonar, forstjóra Olís, og bað
hann skýra sjónarmið Olíuversl-
unar íslands. „Ég tel að forráða-
menn Hreyfils hafi hallað réttu
máli, en ætla þó ekki að flytja
málið á síðum blaðanna eins og
sakir standa, heldur bíða úrskurð-
ar fógeta," sagði Þórður Ásgeirs-
markaði á fjórða hundrað þúsund
krónur. Grunur leikur á að sala hafi
faríð fram f íbúðinni um nokkurt
skeið.
Fíkniefnadeild lögreglunnar
hafði mennina, sem eru um
fimmtugt, undir smásjá um skeið
vegna gruns um fíkniefnamisferli.
Á fimmtudagskvöldið aflaði lög-
MATTHÍAS Á. Mathiesen, við-
skiptaráðherra, mun á fundi með
framkvæmdastjóra Efnahags-
bandalagsins 24. maí næstkom-
andi leggja að bandalaginu að
fella niður stórhækkaða tolla á
saltfíski til Efnahagsbandalags-
landanna, þar á raeðal Portúgais.
„Takist það ekki munum við
leggja að þeim að lækka þessa
tolla, sem útlit er fyrir að verði
12—13% eftir inngöngu Portú-
gals í Efnahagsbandalagið, í
stað 3% eins og hann er nú,“
sagði ráðherrann í simtali frá
Vínarborg í gær.
Matthías sat í gær og fyrra-
dag fundi ráðherranefndar
EFTA í Vínarborg. „í framhaldi
af umræðum um inngöngu
Portúgals í Efnahagsbandalagið
og ákvörðun um innflutningstoll
á saltfiski var ákveðið að ég færi
til fundar við Jacques Delors,
framkvæmdastjóra bandalags-
ins, og fleiri embættismenn þess
í Brússel 24. maí næstkomandi,"
sagði hann.
reglan sér húsleitarheimildar og
lét til skarar skríða í fyrrinótt.
Lögreglan í Reykjavík setti fram
kröfu um gæzluvarðhald yfir
mönnunum tveimur og síðdegis í
gær voru þeir úrskurðaðir í gæzlu-
varðhald af dómara við Sakadóm
Reykjavíkur, en konunni var
sleppt úr haldi.
Matthías benti á, að kvóti
Efnahagsbandalagsins á toll-
frjálsum saltfiski væri 25 þús-
und tonn. Islendingar hefðu á
síðasta ári selt 36 þúsund tonn
„VIÐ höfum þegar gert íslensk-
um stjórnvöldum Ijóst, að við
teljum ekki að krafa íslendinga
til lögsögu á Hatton-Rockall-
svæðinu eigi sér nokkra stoð í
alþjóðalögum. Við munum á
næstu dögum ítreka mótmæli
okkar við íslensku ríkisstjórn-
ina,“ sagði talsmaður breska
utanríkisráðuneytisins í samtali
við Mbl. í gær er leitað var af-
stöðu stjórnar hans til útgáfu
reglugerðar um afmörkun land-
grunns íslands og kröfur fslend-
inga til svæðisins.
Talsmaðurinn sagði að Einar
Benediktsson, sendiherra íslands í
London, hefði í gærmorgun gengið
á fund Timothys Renton aðstoðar-
utanríkisráðherra bresku stjórn-
arinnar og afhent þýðingu reglu-
gerðarinnar, sem Geir Hallgríms-
son utanríkisráðherra gaf út á
miðvikudaginn.
„Það eru engar áætlanir um við-
ræður milli landanna ennþá,“
sagði talsmaður utanrikisráðu-
neytisins, „en ég er viss um að til
til Portúgals. Af því mætti sjá
hversu miklir hagsmunir væru í
húfi fyrir Islendinga að fá toll-
ana fellda niður eða stórlækk-
aða.
þeirra mun koma“.
AP-fréttastofan hafði í fyrri-
nótt eftir talsmanni breska utan-
ríkisráðuneytisins að frá sjónar-
miði bresku stjórnarinnar til-
heyrði Rockall og landgrunn
klettsins bresku krúnunni.
Læknar sam-
þykkja samning
LÆKNAR i Læknafélagi íslands og
Læknafélagi Reykjavíkur sam-
þykktu nýgeröan kjarasamning við
ríkisvaldið og Reykjavíkurborg á
fjölmennum fundi f Domus Medica í
gær. Aðeins einn greiddi atkvæði
gegn kjarasamningnum.
„Menn vildu fá meira, en miðað
við gang mála hafa ýmsir ástæðu
til að kvarta meira en við,“ sagði
Sverrir Bergmann, fo’rmaður
samninganefndar lækna í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, en hann vildi
ekki tjá sig frekar um samnine-
inn.
son.
1300 lítrar af bmggi í heimahúsi:
Áætlað söluverð yfir þrjú
hundruð þúsund krónur
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók f
Rockall er
bresk eyja
— segja talsmenn breska utanríkisráduneytisins