Morgunblaðið - 11.05.1985, Side 3
MŒ&UHfaJ.EftP.'tAíM AÍRPÁGÍfe llf MAtilM
Þrjátíu ára afmælis
minnst í Kópavogi
Kópavogskaupstaöur fékk kaupstaðarréttindi 11. maf 1955 og i því 30
ára afmæli á þessu ári. Til aó minnast þessara tfmamóU hefur Bæjar-
stjórn Kópavogs ákveðið að sUnda aö hátíóardagskrá þessa helgi, laug-
ardaginn 11. og sunnudaginn 12. maí. Hátíðarhöldin hefjast kl. 10 á
laugardagsmorgun, meó því aó afhjúpuð veröur stytU eftir Gerói Helga-
dóttur, sem er gjöf frá bæjarfélaginu til hjúkrunarheimilisins og tilkynnt
var aó yrði gefin þegar heimilið var vígt
Hátíðin verður síðan sett kl.
14 við Digranes, þar mun forseti
bæjarstjórnar, Björn ólafsson,
flytja ávarp. Síðan verður
dagskrá með ungu fólki, skóla-
kór Kársnesskóla syngur, Skóla-
hljómsveit Kópavogs leikur og
fimleikasýning stúlkna úr fim-
leikafélaginu Gerplu.
„Það sem við höfum fyrst og
fremst hugsað okkur að gera er
að draga upp nokkra mynd af
þeim fyrirtækjum, sem starfa í
bænum, og verður vörusýning
frá þeim í Digranesi frá laugar-
degi til þriðjudags," sagði Krist-
ján Guðmundsson, bæjarstjóri.
„1 Digranesi verða að auki sýn-
ingar á vegum lista- og menn-
ingarsjóðs á þeim verkum, sem
Kópavogsbæ hafa verið gefin.
Sýnd verða sýnishorn af verkum
þeirra Gerðar Helgadóttur,
Barböru Árnason og Magnúsar
Á. Árnasonar. Þar verður einnig
sýning á gömlum myndum, sem
teknar hefa verið í Kópavogi allt
frá 1955. Talsverð fyrirhöfn var
að hafa upp á myndunum en
Þeim hefur verið komið fyrir í
tímaröð á sýningunni svo að
samfelld þróun bæjarins til
dagsins í dag kemur nokkuð vel
fram.
Nýlega var samþykkt aðala-
skipulag fyrir Kópavog, sem
verður til sýnis. Kópavogur á
stórt landsvæði þar sem gert er,
ráð fyrir að ris 42 þús. manna
byggð í framtíðinni. Vöxtur bæj-
arins hefur verið mjög ör á und-
anförnum árum, sem sést best á
því að 1955 eru 3.800 manns bú-
sett hér, en í dag eru íbúar um
14.600. Bærinn var lengi nefndur
bær barnanna, en á því hefur
orðið breyting. Þeir sem byggðu
þennan bæ upphaflega eru orðn-
ir rosknir og fjölgun í efri ald-
ursflokkunum er mjög veruleg."
Á vegum félagsstarfs aldraðra
verður sýning á ýmsum verkum,
sem þau hafa verið að vinna að á
námskeiðum í vetur. Einn skól-
anna var með þemaviku í vetur.
Frá þeirri viku hefur verið sett
upp smá sýnishorn. Þessar sýn-
ingar verða einnig í Digranesi.
Náttúrufræðistofnun Kópa-
vogs, sem er til húsa á Digra-
nesvegi 12, hefur sett upp sýn-
ingu á hvölum og skeldýrum.
Sýningin verður opin kl. 14—22
daglega frá 11. til 14. mai.
Nokkrar stofnanir bæjarins
verða opnar almenningi til sýnis
á laugardeginum. Má þar nefna
leikskólann Kópahvol við
Bjarnhólastíg. Þar verður
Brúðuleikhús kl. 15 og kl. 16 í
tilefni 15 ára afmælis leikskól-
ans. Örvi, sem er verndaður
vinnustaður, verður kynntur sér-
staklenga milli kl 16 og 19, i
Sunnuhlíð við Kópavogsbraut.
Kynning verður á starfsemi sigl-
ingaklúbbsins, Kópaness við
Vesturvör, þar sem bátar verða
til reiðu.
Á Kópavogsvelli verður
íþróttahátið kl. 4 og munu fjögur
íþróttafélög bæjarins keppa þar.
f Kópavogskirkju verður há-
tiðarguðsþjónusta kl. 14 á
sunnudaginn, séra Árni Pálsson
predikar og séra Þorbergur
Kristjánsson þjónar fyrir altari.
Prestar búsettir í Kópavogi
verða þátttakendur í guðsþjón-
ustunni. Nemendur Tónlistar-
skólans flytja tónverk við at-
höfnina. Kaffisala i umsjá Kven-
félagsambands Kópavogs i til-
efni Mæðradgsins verður i Fé-
lagsheimilinu, 2. hæð, kl. 15 á
sunnudag. Þar syngur Friðbjörn
G. Jónsson við undirleik Sigfús-
ar Halldórssonar og nemendur
úr Tónlistarskóla Kópavogs
flytja tónverk.
Ljóðakvöld verður á sunnu-
dagskvöldi i Félagsheimilinu á
vegum Bókasafns Kópavogs,
Leikfélags Kópavogs og Tónlist-
arskóla Kópavogs. Þar verða
kynnt verk eftir Jón úr Vör og
Þorstein Valdimarsson. Leikarar
úr leikfélaginu lesa upp ljóð,
nemendur úr Tónlistarskólanum
flytja tónlist við ljóð skáldanna
og kór Kársenesskóla syngur.
Hátíðardagskránni lýkur með
tónleikum Tónlistarskóla Kópa-
vogs í Kópavogskirkju, laugar-
daginn 18. mai.
Morgunbladid/Einar Falur
Togarinn Bessi dreginn til Njardvíkur síðastlidinn fimmtudag.
Skuttogarinn Bessi frá Súðavík:
Aflaverðmæti 23
millj. frá áramótum
- Verður frá veiðum um tíma vegna bilunar
SKUTTOGARINN Bessi fs frá Súöavík hefur aflaö um 1.500 lesta frá áramót-
um. Nemur verðmæti aflans 23 milljónum króna. Afli togarans er rúmum 100
lestum minni nú en í fyrra, en skipiö hefur verið frá veiðum í viku vegna
bihinar.
Börkur Ákason, framkvæmda-
stjóri Frosta hf, sem gerir Bessa
út, sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að afli togarans væri að mestu
þorskur, grálúða og karfi. Það
óhapp hefði orðið síðastliðinn
sunnudag, að skipið hefði tekið
niðri í höfninni er það var að koma
inn með 150 lestir af fiski háfjara
var. Við það hefði bobbingur, sem
verið hefði á botninum, lent í
skrúfu skipsins og brotið af henni
tvö blöð. Því hefði orðið að draga
Bessa til Njarðvíkur, þar sem hann
hefði verið tekinn upp í slipp. Ekki
væri kunnugt um frekari skemmdir
og áætlað að viðgerð tæki um viku.
Börkur sagði, að vinna hjá fyrir-
tækinu hefði verið meira en næg í
vetur enda mannekla þar eins og
annars staðar. Tekið hefði verið á
móti 200 tonnum af rækju og afla
Bessa og tveggja minni báta að
mestu, en nokkru af fiski hefði
einnig verið miðlað til ísfirðinga
meðan á verkfalli sjómanna þar
hefði staðið. Hann sagðist þvi bú-
ast við að vinnsla í fiskverkun
fyrirtækisins yrði óslitin þrátt
fyrir tafir Bessa frá veiðunum.
Fiskmiðlunin við Djúpið bjargaði
því. Þá sagði hann að nú færi út-
hafsrækjan að taka við. Tveir bátar
I eigu Frosta myndu stunda veið-
arnar auk tveggja leigubáta.
Manneklan kæmi þvf miður nokkuð
niður á vinnslunni og drægi úr
möguleikum á þvf að pakka sem
mestu i verðmestu og jafnframt
timafrekustu pakkningarnar. Við
þvf væri ekkert að gera eins og
staðan væri, en fiskmiðlun við
Djúpið gæti hjálpað til við að jafna
aflátoppana.
MaeÓradagurinn
eramorgun
interfk>ra
Mæðradagsskreytingar
Afskorin blóm
Blómstrandi pottaplöntur
Ungplöntumarkaður:
Allar ungplöntur til
framhaldsræktunar
pr. stk. kr. 98.-
Gróðurhúsinu við Sigtún: Simar 36770-86340